23.2.2009 | 21:50
Nýjar myndir.
Jæja mín skellti nokkrum myndum inn í jan-feb albúmið. Eftir að ég fór að vinna aftur þá hef ég verið afskaplega ódugleg að taka myndir svo hefur margt annað spilað inn í líka en hvað um það.
Héðan er allt gott að frétta mér og Davíð tókst að næla okkur í þessa ógeðslegu magakveisu sem er búin að vera ganga og ég var með hana í 4 daga og Davíð eitthvað svipað. Sem betur fer að þegar ég var að koma til að þá byrjaði Davíð þannig að við láum ekki bæði handónýt á sama tíma. Krakkarnir hafa sloppið hingað til nema Emma Guðrún er búin að vera með smá hita en ekkert alvarlegt.
Orðaforðinn hjá Jóhann Otta er orðinn svo mikill að maður getur eiginlega haldið uppi samræðum við hann og það er rosalega fyndið þegar hann fær stundum munnræpu og talar og talar um allt og ekkert. Það gengur ennþá vel með gleraugun þannig að þar eru engar fréttir. Næsta fimmtudag erum við að fara í fyrsta foreldraviðtal á leikskólanum og það er mikill eftirvænting í að fara í það.
Emma situr orðið alveg þó að annað slagið hendi hún sér á magann en það er mjög sjaldan. Hún fer orðið upp á fjóra fætur og ruggar sé fram og til baka að öðru leyti þegar hún er á gólfinu þá er hún samt á fleygiferð. Hún er annars bara dúlla og þeim systkinum kemur vel saman og þetta gæti ekki verið betra.
Þar hafið þið fengið smá fréttir og myndir jeij
Erla og co.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
200 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 54
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Innlent
- Ástandið minni á nýlenduástand
- Blaðamenn spyrji yfirleitt að rangri spurningu
- Meirihluti hlynntur nýjum Matsferli
- Staðan langverst í Reykjanesbæ
- Fær hátt í þrjú hundruð milljónir í vasann
- Kýldi konu eftir samfarir
- Framtíð framtíðarnefndar í lausu lofti
- Sá sem féll í Brúará var ferðamaður
- Stóriðja aftur kúl
- Starfsáætlun Alþingis út um þúfur
Viðskipti
- Unnur nýr forstöðumaður hjá Eimskip
- Skuldahlutfall ríkissjóðs lækkar um 5%
- Fréttaskýring: Að veifa regnbogafánum þegar það selur
- Útnefnd verðmætasti fagaðilinn hjá Microsoft
- Sækja fram á húseiningamarkaðinum
- Farþegum Icelandair til Íslands fjölgar um 18%
- Aukin eftirspurn eftir því að lána
- Fjárfestingin hreyfi ekki nálina
- Styrkja stöðu íslensku í atvinnulífinu
- Útgjöld til hernaðar- og varnarmála aukast um allan heim
Athugasemdir
gaman að heyra af krúttsystkyninum. ég þakka ennþá æðri máttarvöldum að hafa ekki fengið Gullfoss/Geysi veikina ykkar, 7.9.13:)
Hvernig fór með myndatökuna hjá Jottanum?
Jóhann F. (IP-tala skráð) 28.2.2009 kl. 19:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.