GLEÐILEGT SUMAR: )

Sæl öll sömul og gleðilegan sumardaginn fyrstaCool, vona að allir hafi það bara gott í dag því það er jú vinnudagur á morgun GLATAÐ svo líður manni eins og það sé  hálfgerður sunnudagur í dag, allavega svona frídagur í miðri viku klúðrar sísteminu alveg.

Jóhann Otti er búin að vera með einhverja pest síðan á laugardaginn síðasta,hita og kvef hann er nú loksins að skána en samt mjög leiðinlegt maður finnur svo til með þessum litlu skinnum tala nú ekki um hvað honum finnst alveg hrikalega leiðinlegtAngry að hanga heima allan daginn með foreldrum sínum. Ég er nú að vona að svona flensu lasarus vesen á honum fari að hætta með hlýnandi veðri 7 9 13 það er svo mikið a dagskránni hjá okkur að við megum ekkert vera að svona veikinda veseni, við ætlum að vera dugleg að nýta sundkortið okkar og fara út að leika, amma Ólöf gaf honum fötu og skóflu sem á eftir að nota miklu meira en er búið að gera. Jóhann Otti er búin að fá úthlutað plássi á leikskóla næsta haust, leikskólinn heitir sem sagt Kópahvoll og er á Bjarnhólastíg hér í Kópavogi en ég á ekki von á að hann byrji fyrr en í ágúst september síðasta lagi sem er bara allt í lagi það verður hvort sem er nó að gera við að passa mömmu sýna og systur í sumar, þannig að næsta skref er að bíða eftir símtali frá leikskóatjóranum sem  ætti að koma í byrjun ágúst um það hvenær hann meigi byrja.Cool Þetta er alveg rosa spennandi, þegar ég fékk bréfið frá Kópavogsbæ um að litla beibíið mitt kæmist inn á leikskóla þá hugsaði ég bara ó mæ god litla barnið mitt er að stækka hann er að byrja á leikskóla, ætli ég verð ekki grenjandi fyrsta daginn hans þegar ég sleppi af honum hendinniTounge

Hnoðri hundur tengdaforeldra minna er í pössun hjá okkur til 3.maí þar sem að skötuhjúin skelltu sér í golfferð til Spánar og Jóhann Otta er bara alveg sama um að það sé einhver hundur hérna þannig að sú samvist gengur bara eins og í sögu og ef ég á að segja ykkur alveg eins og er þá er fínt að hafa hann hérna málið er nefnilega það að hann fær að spranga um í garðinum annað slagið með ólina samt bundna við stofu gluggann og hann fælir alla kettina frá sem er fínn, kettirnir sem eru í hverfinu eru óþolandi þér hafa nokkrir komið inn til okkar og svo pissað í anddyriströppurnar sem fer ekkert smá í taugarnar á mér en mér er nú samt ekkert almennt illa við ketti bara þessa sem búa í hverfinu mínu.

Annars er ég bara hress ég er sem sagt komin nákvæmlega 31 viku á morgun, ég var í mæðraskoðun í gær og það kom allt bara ágætleg út nema hvað það er kominn 1+ af próteini í þvagið sem er ekki það sem mig langar að sjá akkúrat núna en þetta er samt ekki hlutur til að hafa áhyggjur af eins og er þar sem að blóðþrýstingur er í lagi og enginn bjúgur í gangi en ég á að fara í skoðun aftur 7.maí og á sjáum við hvað setur.5. maí er ég samt að fara í sykurþolspróf til þess að ganga úr skugga um að ég sé nokkuð með meðgöngusykursýki, það er svo sum ekki grunur á því núna að ég sé með hana en þeir vilja bara athuga þetta. Ljósan þreifaði á bumbunni og þá var skvísan í höfuðstöðu sem er bara í góðu en samt nægur tími fyrir hana til að snúa sér í allar áttir og það er sko alveg verið að nýta þann tíma vel því ég er búin að finna ekkert smá mikið af hreyfingum núna undanfarið það er sko búið að vera partý bumbaTounge

Jæja segjum þetta gott í bili.

Kveðja Sumarálfarnir Erla, Jotti og co.Cool


Nýjar myndir loksins....; Þ

Jæja allesammen, hér á bæ eru allir bara hressir, Jotti er orðin hress af hlaupabólunni og ég mundi nú segja að hann hafi sloppið nokkuð vel hann var t.d. ekki með mikinn hita eða mikið af bólum.  Hann vex bara og dafnar og tala nú ekki um hvað hann þroskast, mér finnst hann vera farinn að skilja mann svo mikið þegar maður talar við hann. Jotti er að fara að fá glaðning í garðinn hjá okkur hann Sæmundur langafi ætlar að smíða handa honum sandkassa ohh ég er ekkert smá spennt það er nefnilega a teikniborðinu að nota garðinn MJÖG mikið í sumar, ég þarf bara að leggja smá vinnu í að gera hann soldið flottan. Það þarf t.d. að týna allt ruslið eftir veturinn kaupa blóm til þess að gera hann nógu litríkan lappa upp á stólana og borðið og slá þegar grasið fer að vaxa. Þá ætla ég líka að athuga málið með að planta einni buslulaug handa Jottanum og svo er alveg spurning um að fjárfesta í einum sólbekk. Ég sé þetta alveg fyrir mér.

Við erum að bíða eftir bréfi frá Kópavogsbæ um að fá pláss fyrir Jóhann Otta á leikskóla í ágúst, sept síðasta lagi og sá  á eftir að njóta sín þegar hann fer á leikskóla honum finnst svo gaman að vera úti að leika að það er alveg yndislegt, en Jóhann otti er bara að stækka og stækka og verður alveg ákveðnari í leiðinni. Nú er hann búin að vera viku í nýja rúminu og það gengur svona líka vel eða allavega vonum framar hann kann þó að klifra fram úr því en hingað til hefur ekki verið vandamál 7 9 13Blush

Ég er rétta að skríða í 30 vikur sem mér finnst vera bara áfangi út af fyrir sig, mér finnst þá orðið styttra í þetta því að ég get ekki ýmindað mér að ég gangi fullar 40 vikur þó að ég fari nálægt því en hver veit. Við ætlum að fara næstu mánaðarmót og kaupa kommóðu fyrir föt skvísuna svo ætla ég að fara yfir það sem ég á og það sem mér vantar sem á nú ekki að vera neitt þannig en svo verður splæst í heimferða gallann. Ég fer í mæðraskoðun næsta miðvikudag og svo eftir þá skoðun þá fer ég að fara oftar því það á að fylgjast extra vel með mér á endasprettinum út af smá áhættu á að fá aftur meðgöngueitrun og ljósan vill þá geta gripið í taumana strax og er því aukið eftirlit út af því. Kúlan stækkar en ég veit ekki hversu mikið mér finnst ég stundum bara vera passleg en stundum finnst mér ég vera HUGE kannski liggur hún bara asnalega, það er ekkert búið að athuga stöðuna á henni enda kannski soldið snemmt en ég held að hún muni gera það í næstu viku og það verður gaman að sjá hvort að hún verður komin í höfuðstöðu, ég man ekki hvenær Jotti var lausskorðaður en það var held ég um eða uppúr 32. viku. 

Breytingar á íbúðinni gengu bara svona líka vel ég er alveg í skýjunum yfir þeim því þetta koma bara vel út við komumst allavega 4 fyrir í herberginu og það er samt ekki þröngt um okkur en það er gott að vera búin með þetta.

Ég þarf að fara vera duglegri með myndavélina það er bara búið að vera pínu mikið að gera hjá mér en eftir þessa viku snar minnkar það sem betur fer, en þá eru komnar nýjar myndir inn í albúmið hans  því miður ekki bumbumynd en ég fer að splæsa í eina svoleiðis.

Jæja ég ætla í draumalandið.

Kveðja Erla og Jóhann Otti


Bóluhlaupari

Jæja þá erum við komin með einn bóluhlauparaTounge á heimilið, Jóhann Otti er búin að vera heima síðan á fimmtudaginn síðasta og búið að vera svo sem mis gaman að hanga svona heima það er jú ekkert gaman að vera innilokaður. Hann er sem betur fer búin að vera með lítinn sem engan hita með þessu og kláðinn hefur verið í lagmarki sem betur fer. Jóhann Otti er að öðru leiti bara hress.

Ég er að verða skriðin í 28 vikur sem er bara æði mér finnst ég fyrst núna vera ólétt það er komin einhver kúla að ráði og bara stemmning, skvísan spriklar ekkert smá að vanda þó mismikið suma daga. Ég er að fara í mæðraskoðun næsta fimmtudag og þá fæ ég að hlusta á hjartsláttinn oohh get ekki beðið , Davíð kemst því miður ekki með mér þannig að ég fer ein í þetta skiptið.

Við höfum ákveðið að slá íbúðarsölu á frest í ljósi ástands hér á landi, ef við hefðum gert þetta fyrir svona 3 mánuðum síðan þá hefði þetta ekki verið neitt mál en það er bara þannig núna að það selur enginn nánast og þér sem selja fá ekkert endilega lán ef þeir ætla að stækka við sig. Það skondna við þetta er að það er maður sem vill kaupa íbúðina en hann ætlar bara að bíða eftir okkur.  Varðandi pláss þá hef ég sko ekki áhyggjur af því við komumst alveg fyrir 4 í einu herbergi þó að það sé bara tímabundið en ég ætla ekkert að fara að lýsa því eitthvað nánar hvernig við komumst fyrir ég tek bara myndir þegar herbergið verður tilbúið, það verður geggjað flott.  Annars erum við búin að festa kaup á nýju rúmi fyrir Jóhann Otta sem sagt stærra rúmi þannig að hann fer úr rimmla rúmminu sínu það vill nefnilega til að konan sem á rúmmið sem hann er í núna er líka ólétt og á bara að eiga viku á eftir mér þannig að ég verð að skila því.

Þetta er ekkert smá flottur gripur og við fengum það á HEILAR 500 kr í Góða hirðinum og núna er Davíð í þessum skrifuðum orðum að pússa það allt upp og svo ætlar hann að hvítta það af því að þetta er viður, svo fór ég í dag og keypti dýnu í það þannig að þetta er allt að smella, stefnan er að hann farið í þetta rúm næstu helgi því að við viljum vera búin að venja hann á svona rúm áður en skvísan kemur. Það eru hliðagrindur á rúminu þannig að þegar hann bröltir og snýr sér á næturnar þá veltur hann ekki út, sniðugt. Svo fer skvísan bara í vöggu til að byrja með og að sjálfsögðu með himnasæng.

Jæja ég ætla að segja þetta gott í bili. Ég set inn myndir fljótlega. 

Kveðja Erla  


Páskar o.fl.

Jæja þá eru páskarnir senn á enda því miður svo er manni bara skellt í vinnuna aftur eins og ekkert sé glatað alveg glatað. Þessir páskar eru búnir að vera yndislegir, byrjuðu sem sagt á fimmtudaginn ég vann til kl 15 í fermingarveislu og eftr hana þá  brunuðum við til Keflavíkur í skírnar/afmælisveislu hjá Einari og Ástu sem var bara æðislegt svo var svo sum ekki gert neitt sérstakt það sem eftir var af deginum annað en bara að slappa af. Á föstudaginn þá fór ég og Jóhann Otti á leikskólann sem er fyrir utan hjá mömmu og pabba að leika sem var ekkert smá gaman, litli gaur naut sín alveg í botn og veðrið var æðislegt. Amma og Bjössi komu síðan út til okkar að leika aðeins og þá var sko enn þá meira gaman.

Laugardagskvöld þá fórum við í matarboð hjá Gunnu og Þorsteini og snæddum þar lamb og með því og það var bara rosalega kósý, eftir matarboðið  þá fórum við til ömmu Erlu þar sem að þar hafði verið smá matarboð á sama tíma og heilsuðum upp á liðið þar svo var bara farið heim í háttinn. Í gær þá vorum við bara á náttfötunum fram eftir hádeigi og skelltum okkur síðan í sund sem var ekkert smá hressandi svo ætluðum við að gefa öndunum brauð eftir sundferðina en þurftum að hætta við þar sem að Jóhann Otti sofnaði í bílnum því að hann hafði eiginlega ekkert sofið um daginn. Svo eldaði Davið dýrindis máltíð handa okkur um kvöldið sem var svínalundir og brúnaðar kartöflur. Í dag var  matarboð hjá mömmu og pabba þar sem við fengum ekkert smá gott lambalæri, brúnaðar kartöflur  og allan pakkann með því.

Annars er bara allt gott að frétta ég er alveg að detta í að vera komin 27 vikur og heilsan bara góð, daman lætur sko alveg finna fyrir sér skal ég segja ykkur. Allt í einu einn daginn fannst mér eins og ég blési út eins og loftbelgur úff og ekki fer þetta minnkandi. Annars er ég farin að nota snúningslak í rúmmið sem ég bjóst sko alls ekki við að þurfa að draga það fram strax en ég hef bara verið að sofa svo laust að í hvert skipti sem ég velti mér þá hef ég verið að vakna við það en þegar ég setti snúningslakið í þá snarskánaði ástandið. 

Jóhann Otti er hress að vanda alltaf jafn mikill strákur í sér, hann hefur verið staðinn að því núna nokkrum sinnum að þurka sér um munninn í ermina sína svo er að bætast í orðaforðann hann það er komið orð eins og  dus sem þýðir djús svo er hann oft að reyna að herma eftir okkur en babblar alveg helling á milli. Vonir standa nú um að við fáum bréf frá Kópavogsbæ í apríl um að hann fái leikskólapláss í ágúst og þá mun hann hætta hjá dagmömmunni 1.júlí þar sem að hún er að fara í sumarfrí 4.júlí minnir mig og til 7.ágúst og þá verður hann bara heima með mömmur og pabba þangað til að hann fer á leikskólann hvenær sem það verður.

Jæja ég ætla að fara að knúsa minn heittelskaða og heimsækja draumalandið.

ÉG VIL MINNA Á AÐ ÞAÐ ERU NÝJAR MYNDIR AF JOTTA Í NÝJU ALBÚMI OG NÝ BUMBUMYND.  Til þess að sjá myndirnar þá farið þið hérna vinstrameginn á síðunni inn í myndaalbúm og tvö efstu albúmin eru þau nýjustu.


Ekki fyrir viðkvæma....

1.HVERS VEGNA ERU KARLMENN GÁFAÐARI MEÐAN ÞEIR HAFA MÖK?
(vegna þess að þeir eru tengdir við snilling!)

2.HVERS VEGNA BLIKKA KONUR EKKI AUGUNUM MEÐAN ÞÆR HAFA MÖK?
(þær hafa einfaldlega ekki tíma!)

3.HVERS VEGNA ÞARF MILLJÓNIR SÆÐISFRUMA TIL AÐ FRJÓVGA EGG?
(þær stoppa ekki til að spyrja vegar)

4.HVERS VEGNA HRJÓTA KARLMENN ÞEGAR ÞEIR LIGGJA Á BAKINU?
(pungurinn fellur yfir rassgatið og stöðvar gegnumtrekkinn)

Þið eruð farnar að brosa núna stelpur, er það ekki? ;o)

5.HVERS VEGNA FENGU KARLMENN STÆRRI HEILA EN HUNDAR?
annars væru þeir riðlandi á fótleggjum kvenna í kokteilboðum)

6.HVERS VEGNA SKAPAÐI GUÐ MANNINN Á UNDAN KONUNNI?
(þú þarft jú gróft uppkast áður en þú gerir lokaútgáfuna)

7.HVE MARGA KARLMENN ÞARF TIL AÐ SETJA KLÓSETTSETUNA NIÐUR?
(hmm, veit ekki.....það hefur ekki gerst ennþá)


Einn góður í lokin...


8.HVERS VEGNA SETTI GUÐ KARLMANNINN Á JÖRÐINA?
(vegna þess að titrari slær ekki garðinn)

24vikur og 4daga

Já ég er komin svona langt og áður en ég veit af verð ég komin í næsta tug sem sagt 30.vikur úúúff hvað þetta líður hratt stundum finnst mér eins og þetta sé bara á næsta leiti og ég eigi eftir að gera allt, það er að sjálfsögðu ekki þannig en ég ætla samt að gera allt tíbúið tímanlega miðað við hvernig þetta endaði síðast. Ætli ég byrji ekki um 34.viku að klára allt þar að segja finna kommóðu, fá barnabílstólinn fara yfir öt og þvo þau og ætli ég leigi ekki vöggu til að byrja með og ég þarf þá að gera það, svo er það að rissa á blað hvað mig vantar og hvað ég tek a spítalann, græja heimferðaföt. Þetta er alveg slatti í poka ég veit nú að ég mun ekki gera þetta allt ein.Annars er lítið af fréttum a bumbunni ég var í skoðun um daginn og það var allt bara tipp topp og ekkert meira um það að segja nema næsta skoðun er í byrjun apríl. Mér finnst ég stundum varla vera ólétt kannski af því að maður hefur svo sem nóg í stafni fyrir og svo er maður ekkert orðinn fyrirferðamikill, en ég nyt þess samt að vera ólétt ekki misskilja mig Tounge Svo er komið ein bumbumynd inn í nýtt album sem heitir bumbumyndir2 til að sjá myndina þá verðir þið að smella á myndaalbúm hérna til vinstri á síðunni og albúmið er þar inni.

Litli prinsinn minn er orðinn aftur veikur Frown nema þetta er doldið skrítið síðast þegar hann var veikur sem er MJÖG stutt síðan þá var eins og hann vær ekki veikur hann lék sér og var ekkert aumur eða slappur hann var bara með hita núna er hann slappur og lasinn. Ég ætla að eyna að koma honum til barnalæknis hans á morgun good luck en ég verð að reyna. Læknirinn hans er búin að segja við mig að ég meigi alltaf hringja í hana ef það er eitthvað og ég ætla að nota það spil á morgun og hringja og sjá jafnvel hvort að hún skrifi ekki upp á beiðni fyrir röntgenmyndatöku til að athuga lungun. Þetta hljómar kannski doldið paranoijað en það er það gæti blundað í honum lungnabólga og því miður þá treysti ég heilsugæslulæknum takmarkað, ég ætla svo sum ekki að fara út í það að útskýra afhverju. Við vonum bara það bestaSmile Annars er litla barnið mitt bara þvílíkt að stækka og ég finn fyrir því því að allt í einu þá þurfti ég að taka til í kommóðunni hans því að það vara bara slatti af fötum orðin of lítil svo er hann líka að þroskast farinn að hafa skoðanir á hlutunum og sífellt að láta reyna á það hver ræður á heimilinu. 

Við skelltum okkur með mömmu minni og pabba i sumarbústað síðastliðnu helgi og Árni lilli bró fylgdi auðvitað, það var ekkert smá yndislegt bústaðurinn var rétt fyrir utan Laugarvatn og að sjálfsögðu var hann með heitapotti. Við komum seinnipartinn á föstudeginum og þá var bara komið sér fyrir og skellt hamborgurum á grillið svo eftir mat var farið í potinn. Á laugardeginum fórum við í bíltúr niður á Laugarvatn og tökum stuttan göngutúr þar og fórum síðan aftur í bústaðinn. Seinnipart laugardags komu Sæmi stóri bró, Inga og Ólafur Már rúsínubollan okkar, um kvöldið var svo grillað dýrindis svínaundir með tilheyrandi meðlæti og jeremías ég fæ vatn í munninn bara við að skrifa þetta þær voru svo góðar namm. Um kvöldið var síðan skellt sér í pottinn og á pallinn ehehehe Davíð og pabbi duttu á rassinn í hálkunni á pallinum slösuðu sig ekki en þetta var frekar fyndið.LoL

Á sunnudeginum fengum við okkur morgunmat meistarana, egg, beikon,ristað brauð og rauðar baunir og þetta var ekkert smá gott en svona gerir maður líka eiginlega aldrei þannig að maður naut þess, svo var bara farið í að ganga frá og koma sér til Selfoss í sund sem var nú ekkert rosalega langt aðallega sökum þess að það var bara ekkert alltof hlýtt en eftir sundið þá brunuðum við til Hveragerðis og ætluðum í Eden en ÞAÐ VAR LOKAÐ!!! shokking. Við fórum þá á eitthvað grill þarna og sleiktum sárin.

 ÉG VIL MINNA Á AÐ ÞAÐ ERU NÝJAR MYNDIR Í ALBÚMINU HANS JOTTA

 


Nýjar myndir

Jæja þá eru loksins komnar inn nýjar myndir og  ég reyni að skella inn bloggi fljótlega.

Knús Erla


23 vikur

Jæja þá er maður kominn 23 vikur og allt gengur bara vel mér finnst ég finna voðalega lítið eitthvað fyrir óléttunni maður er allavega ekki farinn að vagga. Ég er byrjuð í meðgöngusundi og búin að fara í tvo tíma sem er ekkert smá fínt að hafa svona skipulagða hreyfingu.

Jotti spotti er búinn að vera lasinn síðan  á miðvikudaginn bara með flensuskít en búin að vera samt alveg ótrúlega hress mjög viljugur í að leika sér, svo hefur mikið verið horft á Latabæ og mamma hefur skellt sængunum hans á gólfið fyrir framan sjónvarpið og gert svona kúruhreiður og það hefur alveg vakið ágætis lukku. Ég finn samt doldið til með honum maður sér það alveg seinni part dags að hann er orðinn þá pínu eirðalaus en við höfum okkur alla við til reyNa að létta honum lund.  Hann hefur lítið viljað borða sem ég er ekkert hissa á en leiðinlegt því að ég tími ekki að hann missi gramm því hann er svo nettur en svona er þetta bara.

 

Við erum loksins búin að fá bílinn okkar ég er ekkert smá feginn þrátt fyrir að mér sé ekki vel við hann út af öllu því sem hefur komið fyrir hann þá vil ég vera á bílnum mínum.  Ég á samt frábæra tengdaforeldra sem höfðu tök á því að lána okkur annann bílinn sinn á meðan við vorum bíllaus og það bjargaði ÖLLU bókstaflega og við erum þeim svo þakklátGrin.

Eins og þið sjáið á færslunni hér fyrir neðan þá átti ástapungurinn minn afmæli á þriðjudaginn, við gerðum svo sem ekkert úr því nema að ég bakaði eina köku til að eiga heima ef fólk skildi vilja koma,  foreldrar mínir og tengdaforeldrar kíktu við og var það bara kósí stund, kakan var bara fín kom skemmtilega á óvart þar sem að ég átti sko tvo frosna púðursykursbotna og ég skellti þeim saman með smá rjóma með súkkulaðibitum í á milli og súkkulaðiflórsykurskrem ofan á. Þessi blanda var bara fín og borðuðum við hana með bestu lyst.

jæja ég ætla að hætta að skrifa um köku áður en mér fer að langa ógeðslega mikið í köku og fara að orfa á despó.

Adios amigos.  ErlaInLove og Jóhann Otti Police

 

p.s. fe alveg að skella inn myndum gekk eitthvað erfiðlega áðan þannig ég gafst upp.

 


Hann á afmæli í dag.........

hann á afmæli hann Davíð hann á afmæli í dag jjjeeiiijjj internet afmælissöngur fyrir elskuna mína.

 

þessi fjallmyndalegi foli á afmælí í dag og hann er hvorki meira né minna en 10+17=wow bara ungur össs.

Til hamingju með afmælið elskan mín...frá Erlu og Jottanum og bumbuskvísunni okkar.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

199 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 105205

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband