20.2.2008 | 22:19
21vika og 5 dagar
Er ég sem sagt komin núna og heilsan so far bara mjög góð maður er ennþá bara lipur með sig, ég er að fara að byrja í meðgöngusundi næsta mánudag og verður það 2x í viku í 1 klst í senn. Þetta er sama dæmi og ég var í á síðustu meðgöngu og var það bara æðislegt. Það er loksins komin einhver bumba eiginlega alveg ágætis bumba og ég þarf bara fara að drífa mig í að taka mynd. Eins og þið sáuð í myndaalbúminu þá er auðvitað búið að kaupa smá bleikt á ófæddu dömuna.Ég finn orðið alveg fyrir mjög sterkum hreyfingum og hún er sko þvílíkt fjörug enda þegar við vorum í 12 vikna sónar þá var ljósan alveg í vandræðum því að hún þurfti að mæla hana en það var svo mikið fjör að hún var bara á fleygiferð.
Jóhann Otti þroskast með hverjum degi og orðaforðin að stækka hjá honum, nýjasta sportið er að toga upp um mann eða annan bolinn og pota í bumbuna og segja buba=bumba. Svo er hann alltaf jafn hress og kátur þessi elska, ég var að skrá hann á íþróttanámskeið sem ég er ekkert smá spennt yfir það byrjar reyndar ekki fyrr en 12.apríl en við bíðum bara róleg. Þetta er sem sagt 8 skipti alltaf á laugardögum fyrir hádeigi reyndar en okei svo er þetta svona blandaðir tímar það eru t.d. 2 tímar af 8 sem eru í sundi.
Þetta hljómar allavega ekkert smá vel og er alls ekki dýrt.
Bílinn okkar er búin að vera með vesen við okkur sem er nú bara saga sem varla er hægt að blogga um hún er svo löng en djööfull er það mikið bög, það eltir okkur einhver bílabölvun. Fyrsti bílinn okkar sem var Subaru Justy okei gamall bíll allt í lagi en hann var í topp standi sjálfskipt dúlla nema hvað einn daginn þá fór hann ekki í park né bakkgír svo nokkru seinna þá slitnaði handbremsan og þá var sko orðið brandari að keyra bílinn en hann var dúlla og okkur þótti vænt um hann. Bíll nr 2 Suzuki swift lítil púdda gott sem ekkert ekin bodyið perfect og fengum hann á klink og stefndi í að vera bíll sem maður mundi bara keyra út en nei þá eiðilagðist hann i árekstri. Bíll nr 3 Polo 2002 árg sem við eigum núna og búin að eiga í svona rétt tæp 2 ár og hann er búin að bila svona 4x allavega.
ÚÚFF hvar á þetta að enda ég vildi óska þess að einhver mundi koma og gefa mér einhver dúllulegan station bíl svona hentugan fyrir 4 manna fjölskyldu og við gætum átt hann í meira en ár án þess að eitthvað kæmi fyrir...... miði við okkar heppni DREAM ON.
Minn heittelskaði á afmæli í næstu viku og ég var búin að lofa að bara köku sem hann gæti tekið með í vinnuna,svo þarf ég væntanlega að baka eina til að eiga heima þannig allar uppskriftir eru vel þegnar þar sem að ég á eitthvað takmarkað af þeim.
Pabbi fór til Danmerkur síðastliðna helgi og var sú helgarferð reyndar bara tengd vinnu en gat þó skroppið aðeins yfir til Svíþjóð að hitta afa og ömmu, þau sendu smá sendingu með honum heim til Jóhann Otta sem var ekkert smá flottur íþróttagalli, bolur og regngalli sem ég vil bara segja TAKK æðislega fyrir þessa sendingu knúsar og koss frá Jotta og okkur.
Jæja komið gott í bili.
Kveðja Erla og Jóhann Otti
14.2.2008 | 21:49
Nýjar myndir albúm 14-16 manada
Nýjar myndir ásamt myndaseríu sem davíð tók þegar þeir feðgar voru einir heima að fíflast.
BARA SÆTUR
7.2.2008 | 12:31
Jæja kynið er komið á hreint
Við fórum í sónar í dag og það leit all svo glimrandi vel út, við fengum meira að segja tvöfalda skoðun þar sem að það var ein ljósmóðir sem var að læra að skima. Þannig að það fer ekki á milli mála kynið þar sem að það voru tvær ljósmæður sem gátu staðfest það að þetta er lítil prinsessa.
Jóhann Otti er sem sagt að fá litla systur og við erum ríkust í heima að eiga þennan yndislega dreng fyrir og fá svo eina skvísu líka alls ekki amarlegt.
Jæja best að halda áfram að vinna
4.2.2008 | 22:56
The Secret(og ég er ekki að tala um bókina né myndina)
Já ætli það sé ekki kominn tími á að restin fái að vita, þetta hefur ekki verið neitt leyndarmál svo sem en samt ekkert sem ég hef verið eitthvað að tapa mér í að auglýsa.
Þannig vill nú svo til að í lok júní þá eigum við von á nýjum fjölskyldumeðlim og Jóhann Otti verður stóri bróðir. eintóm gleði og hamingja í gangi hérna á þessum bæ skal ég segja ykkur. Ég er sem sagt að skríða í 20 vikur eða 5 mánuði(20 vikur nákvæmlega á föstud) og framan af þessu hef ég nú verið heilsuhraust það var þó smá ógleði á fyrstu 3 mánuðum en hún sneri mest að því að ég var viðkvæm fyrir allskonar lyktum, t.d. epla og kanil hafragraut, bláberjaskyr já og þegar Jóhann Otti fékk gubbupest þá þakkaði ég guði fyrir það að ég á yndislegann maka sem er ekki klíjugjarn og gat þrifið æluna upp á meðan ég var að berjast við að halda minni niðri úúff that wasn´t easy.
Ef þið eruð að spá í það hvort að þetta barn sé "planað" eða ekki þá get ég svara því strax ykkur kemur það ekki við, ég lenti nefnilega mjög oft í því þegar ég var ólétt af Jóhann Otta að ég var mikið spurð að þessu og þegar maður fer aðeins að spá þá jaðar þessi spurning við að vera dónaleg því að hvort sem að óléttan sé plönuð eða ekki þá er þetta ákvörðun á milli tveggja ástfangna einstaklinga og fólk á eiginlega ekki að vera að spyrja að þessu því að fólk væri aldrei að tilkynna þetta nema það ætli sér að eignast barnið og fólk á bara að segja til hamingju, shitturinn mér líður eins og ég sé að skamma einhvern sem ég er ekki að reyna en þetta er satt þegar maður pælir aðeins í þessu.
Ég er svo sem ekki komin með neina kúlu af viti þannig ég hef ekkert verið að stressa mig á að taka neinar bumbumyndir enda skemmtilegra að taka helling af þeim þegar einhver bumba er komin.
Við vitum ekki kynið ennþá allavega en við erum að fara í sónar næsta fimmtudag og ætlum að fá að vita það, við ætlum að opna pakkann við fyrsta tækifæri.
Að örðum skemmtilegum málum þá gifti stóri bróðir minn sig 26.janúar síðastliðinn og skírði son sinn í leiðinni og hann heitir Ólafur Már, hann er orðinn alger rúsínubolla í bókstaflegri merkingu en hann er samt sem áður eins og snýttur út úr nefinu á pabba sínum. Þessi dagur var rosalega fallegur og lukkaðist hann vel, veislan var haldin í höllinni hans og var þar boðið upp á kökur og annað góðgæti.
Svo vil ég endilega láta ykkur vita af því að tvíburafrænkur mínar Þóra og Þórunn sem búa út í Svíþjóð ásamt afa átum afmæli síðastliðnu helgi og það eru öll mjög ung-ára þannig að TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ELSKURNAR MÍNAR ég sendi kossa og knús frá mér, Davíð, Jotta og bumbunni með íslandspósti
.
Jæja ég ætla að fara að fara að fá mér night/beauty sleep.
Kveðja Erla
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 22:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.1.2008 | 10:36
Hahaha ég gat nú ekki annað en hlegið.
Blind kona var í einu af sínum reglulegu flugum frá Seattle til San Fransisco, ásamt blindrahundinum sínum Buddy. Buddy var ekki sýnilegur öðrum flugfarþegum þar sem hann var búin að koma sér kyrfilega fyrir undir sæti eiganda síns.
Óvænt var vélinni snúið við til Sacramento og flugfreyjan útskýrði að það yrði 50 mínútna seinkun og ef farþegar vildu ganga frá borði á meðan væri það velkomið.
Allir stóðu upp og fóru frá borði, nema blinda konan.
Flugmaðurinn sem var vel málkunnugur konunni vegna tíðra flugferða hennar gekk til hennar og sagði: Kathy, við stoppum hér í næstum klukkustund. Viltu ekki fara frá borði og rétta aðeins úr fótunum.
Nei, ég held ekki sagði konan. En ég held að Buddy þarfnist þess.
Það varð uppi fótur og fit hjá farþegum vélarinnar við hliðið, þegar flugstjórinn kom á eftir þeim. Með dökku sólgleraugun og blindrahund sér við hlið.
22.1.2008 | 21:08
ojj barasta veðrið : Þ
Já þetta er nú meira grín þetta veður hér en það er sammt gaman að hafa snjóinn þá getum við og Jotti farið út á snjóþotuna sem hann fékk í Jólagjöf frá ömmu Ollu og afa Nonna. Við skelltum okkur eimmit síðasta föstudag strax eftir kvöldmat á snjóþotu með hann og við löbbuðum upp á leikskólann sem er á bak við hjá okkur, leikskólann sem við erum að vonast til að hann fái inn sem fyrst . Við vorum nú ekki lengi úti en við fórum semsagt þangað og létum hann renna niður litla brekku og ég stóð neðst í henni til að taka á móti honum nema hvað það koma einu sinnu fyrir smá slys, þotan sem sagt snérist óvænt eitthvað smá og henni hvolfdi
bara en minn maður var svo mikill nagli að hann fór ekkert að gráta þrátt fyrir að hafa lent á hálfu andlitinu. Eftir smá tíma úti þá drifum við okkur bara inn og í heitt bað svo fór hann nú bara fljótlega að sofa eftir það.
Annars eru það nú STÓRU fréttirnar sem eru að drengurinn er byrjaður að labba, hann byrjaði að labba eftir eitt got æfingakvöld hjá ömmu Gunnu á meðan við þurftum að vinna aðeins lengur og eftir það kvöld var ekki aftur snúið. Hann nýtur sín í botn og verður færari með hverri viku að labba og finna jafnvægið í sér, að sjálfsögðu er nóg að gera eftir þessa þróun en það er bara það sem fylgir þessum rjómabollum maður getur líka litið á það eins og bara að halda sér í formi hlaupin á eftir þeim. Litli strákurinn okkar er að þroskast svo hratt að það er ótrúlegt hann babblar svo mikið núna inn á milli þeirra orða sem hann kann og segir að hann samkjaftar varla sem er fínt því að það er skárra heldur en öskur tímabilið sem hann tók úúfff ekki skemmtilegt tímabil. svo er að styttast í læknisskoðun og bólusettninguna en ég er nú mest spennt yfir þyngdinni hjá honum hvort að hann hafi ekki bætt á sig smá eftir síðustu veikindi þetta er voða spennó, svo er maður bara að verða kominn með 9 vinnukonur(tennur) þannig þetta er allt að gerast.
Janúar er alveg að verða búin THANK GOD þetta er svo langur mánuður hvað gerist þá í febrúar, tja Davíð á afmæli systir hans og litli frændi líka svo má ekki gleyma stóra brósa og Daybright frænku þannig að það er nóg af afmælum til að fara í. Já svo er ekkert að gera í vinnunni núna það er gjörsamlega barist um umsókninar sem koma í deildina okkar. talandi um vinnuna það er bóndadagur næsta föstudag og hver og ein kona á að koma með eitthvað og það vill svo til að það eru MIKKLU fleiri konur eldur en karlar þannig að það verður nú engin smá veisla en við konurnar fáum nú að bragða á þessu, en hvað á maður að gera fyrir bóndann sinn, það þarf nú ekkert að vera eitthvað rosalegt en það væri gaman að gera eitthvað smá, endilega komið með tillögur
Jæja farinn að horfa á fabilous 5.
Kiss kiss Erla og Jóhann Otti.
13.1.2008 | 23:03
NÝJAR MYNDIR
8.1.2008 | 17:35
Fréttir
Jæja þá er komið að fréttum málin standa þannig að við erum bara rosalega hress, jól og áramót búinn og hversdagsleikinn tekinn við sem er bara fínt þetta var löng hátíð og eiginlega allt of mikið af jólaboðum ef ég á að segja eins og er manni langar stundum bara að fá að vera í friði með fjölskyldunni og kúra upp í sófa og horfa á allar þessu góðu bíómyndir sem eru sýndar yfir hátíðirnar eða hreinlega bara gera ekki neitt það er alveg spurning hvenær þetta er orðið gott. Jotti fékk alveg fullt af jólagjöfum og flestir pakkarnir voru þó mjúkir og vorum við eiginlega bara fegin því að hann fékk svo ROSALEGA mikið af dóti í afmælisgjöf og ekki er langt síðan að afmælið hans var að það er bara ekki pláss fyrir meira dót, hann fékk samt örfáa dótapakka sem verður að vera þeir meiga ekki allir vera mjúkir. Við erum byrjuð það ferli að fara að huga að selja og kaupa nýja íbúð og er ég bara nokkuð bjartsýn með það, við munum þó sennilega ekki kaupa fyrr en í apríl, maí , júní síðastlagi en það er ýmislegt sem þarf að gerast áður.
Orðaforði Jóhann Otta hefur aukist verulega á stuttum tíma hann kann sem sagt að segja takk, datt, mamma, pabba, bæ,hæ og hættu svo man ég ekki meir það voru einhver örfá orð í viðbót. Hann er ekki farin að labba en það er alveg ótrúlegt hvað það vantar lítið upp á hann er aðeins farin að sleppa sér en þessi þróun gengur eittvað hægt. Hann fór í blóðprufu um daginn til að kanna ónæmiskerfið í honum og fékk niðurstöðurnar í dag, það kom í ljós að það vantar mótefni í hann sem heitir IGG2 sem er efni sem ver mann fyrir bakteríum og sýkingum, það sem á að gera er að hann á að fá bólusetningu sem er vanalega ekki gerð sem svona standard bólusetning í ungabarna eftirliti en hún er fyrir einhverjum kokkum ekki streptakokkum einhverjum öðrum sem ég get ekki munað nafnið á en hún er að vonast til að sú bólusetning gefi ónæmiskerfinu spark rassinn og það verður athugað hvort að sprautan hafi virkað með blóprufu2-3 vikum eftir hana. Svo ef að hún er ekki að virka þá fær hann mótefna sprautur og vonandi verður hann þá bara eiginlega ekkert veikur eftir það eða það er allavega draumurinn. Hún bað okkur einnig af hafa þröskuldinn okkar lágan þegar það kæmi að honum og kvef og sleni að fara strax með hann og láta athuga hann, svo vill hún líka að hann fái alltaf púst þegar hann fær kvef og hósta. Að öðru leiti kom allt annað vel út eins og t.d. járn magn og blóðmagn sem er bara jákvætt. já svo er það líka í fréttum að Jotti er að fá 8 tönnina veeiii.
Núna standa framkvæmdir yfir í þvottahúsinu okkar sem eiginlega meira kompa heldur en þvottahús en allavega ég er rosalega spennt yfir því því að það leit ekkert vel út fyrir það hafði ekkert verið gert fyrir það en það vildi svo til að við eigum allt efni í að laga kompuna þannig að við ákváðum bara að drífa í þessu enda eitthvað sem gerir íbúðina sölulegri. Við erum að mála hana og laga tvö svona hálfgerð göt sem eru á veggjunum og svo flísaleggja gólfið þannig að þetta verður bara eins og nýtt svei mér þá.
Ég ætlaði nú að setja nýjar myndir en myndavélin er batteríslaus þannig að ég geri það bara bráðum.
Knús Erla og Jóhann Otti.
Vinir og fjölskylda | Breytt 9.1.2008 kl. 18:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Færsluflokkar
199 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 55
- Frá upphafi: 105205
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar