9.6.2008 | 20:53
Fleiri nýjar myndir og NÝtt myndband
Já og til að svara kommentinu hér fyrir neðan þá er settur dagur hjá mér 27.júní, og já Dagbjört það er skildumæting í heimsókn hjá mér : ) takk fyrir að hugsa til mín Farðu nú að láta sjá þig.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 20:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.6.2008 | 20:44
Nýjar myndir og nýjar bumbumyndir..........
Jæja við skelltum okkur í smá sulluferð í Nauthólmsvík í dag og það var tekið fullt af myndum svo eru einhverjar eldri myndir líka, svo eru tvær nýjar bumbumyndir.
5.6.2008 | 21:16
37 vikur á morgun föstudaginn
vúhú gaman gaman, ég var í skoðun í morgun og það var allt í þessu fína lagi og ljósan var rosalega ánægð og telur að ég sleppi sennilega við meðgöngueitrun nema eitthvað gerist snögglega sem er frábært. Mér finnst svo spes að hugsa til þess að ég gæti gengið fulla meðgöngu því það hefur einhvernvegin ekki verið inn í myndinni ekki það að ég sé búin að vera eitthvað svartsýn eða búin að eiga von á einhverjum fyrirbura en að ganga 40 vikur hefur einhvernvegin ekki verið inn í myndinni en núna er það. Það eiga margir afmæli júní og ég ætla að vona að barnið komi ekki á afmælisdögum þessara aðila ekkert persónulegt gagnvart þeim ég vil bara helst að barnið fái sinn eigin afmælisdag en svo ræður maður ekki alltaf en eins og ég segi ég vona að það fæðist ekki á afmælisdegi einhverns annars í fjölskyldunni.
Jæja og þá er það sagan af baðferðinni skemmtilegu. Þannig er mál með vexti að Jóhann Otti þurfti að fara í bað í gær eins og við gerum reglulega nema hvað að við borðuðum kvöldmat og ég rauk síðan í meðgöngu/hvala sund kl 19 og Davíð ætlaði að bara hann á meðan okei ekkert mál. Davíð byrjar að láta renna í bað nema hvað að við erum með soldið spes blöndunartæki það rennur sem sagt ekki úr blöndunartækinu sjálfu heldur það kemur bara vatn úr sturtuhausnum. Davíð háttar gæjan og skellir honum í baðið og það var rétt komið botnfyllir í baðið og ennþá að renna í það, þá hringir gsminn hans og hann var inn í stofu hann sem sagt stekkur inn í stofu til að ná í hann og svara. Á meðan tekur Jóhann Otti sturtuhausinn sem var að buna vatni í baðið og fer að leika sér með hann og ýmindið ykkur gosbrunn sem hefur misst stjórn á sér Davíð tekur strax eftir þessu og hleypur inn á bað og tekur á sig svaka gusu til þess að taka sturtuhausinn af honum og þar með var baðherbergið á floti og þetta tók ekki langann tíma. Ég var því miður ekki heima en Davíð sagði mér frá þessu og ég vildi óska þess að ég hefði séð þetta, en þetta er nú meiri grallarinn.
Nú er helgin að koma og það er hitt og þetta á prjónunum um helgina t.d. að fara i sund og fjöruferð með litla já og svo ætlar litli bróðir minn að bjóða mér á Sex and the City, hann er nefnilega að vinna í Smárabíói og fær frímiða og ætlar að bjóða mér jeij, en talandi um litla bróðir minn hann var í dag að útskrifast úr grunnskóla TIL HAMINGJU og hann var líka að fá viðurkenningu í útskriftinni því hann er búin að vera taka aukaáfanga í Borgarholtsskóla skólann sem hann er að fara í og hann fékk viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í þeim áfanga TIL HAMINGJU við erum allavega rosalega stolt af honum.
Jæja ég er farin að horfa á sjónvarpið ég ætla að vera dugleg á myndavélinni um helgina.
Kveðja Erla og Jóhann Otti.
3.6.2008 | 16:15
Aðeins að bera saman...36 vikur
Myndin þar sem ég er í svörtum bol er þegar ég er gengin 36 vikur með Jóhann Otta en mydirnar þar sem ég er í hvítum bol er ég gengin 36 vikur með ófæddu skvísuna.
Mér finnst kúlan mikklur rúnaðari núna heldur en síðast og jafnel nettari hvað finnst ykkur?
Minni á nýtt blogg og nýjar myndir og bumbumyndir.
2.6.2008 | 13:42
Nýjar myndir komnar inn
Jæja þá er ég búin að búa til nýtt albúm Jotti 20-22mánaða þó hann sé ekki orðinn 20 mánaða þá er ég bara aðeins að svindla
Það er líka komnar inn nýjar bumbumyndir,
svo er nýtt blogg hér fyrir neðan þessa færslu.
1.6.2008 | 22:33
36vikur+
Jæja þá er ég að skríða í 37 vikur og maður er orðin ansi stór mér finnst ég sammt ekkert stærri en þegar ég var með Jóhann Otta ef eitthvað er þá bara nettari en kannski er það bara ýmindun í mér
Ég fór í skoðun síðasta fimmtudag og það leit allt bara vel út sem er frábært, ég hitti síðan fæðingarlækni á föstudaginn og hann var rosaæega ánægður með mig hvað það hefði gengið vel hingað til en ég er í aðeins þéttari eftirliti út af meðgöngueitruninni sem ég fékk síðast. Læknirinn sagði mér að hætta að vinna því að hann vildi að ég færi bara í hvíld ég er svo sem fegin þetta er barasta hörkupúl að ganga með barn og að þurfa að sinna einu fjörugu, hann sagði líka að þar sem að blóþrýstingurinn væri ekkert farinn að hækka og væri búin að vera góður þá héldi hann að ég væri nú að sleppa en taldi þó að ef það gerist ekkert á næstu dögum þá gæti ég sammt fengið smá blóþrýstingshækkun svona í lokin sem er ekkert endilega talið óeðlilegt. Hver veit nú er það bara dag fyrir dag viku fyrir viku næsta föstudag er ég gengin slétt 37 vikur og full meðganga er 38-42 vikur ég hélt reyndar að það væru 37-42vikur en svona er þetta ég veit ég yrði allaveg ekki stoppuð af ef ég færi af stað fyrir 38 vikur. Ég er sammt nokkuð viss að sama hvernig fer með blóþrýstinginn þá mun ég ekki ganga yfir 40 vikur bíðið bara það er allaveg eiginlega allt tilbúið það er svo lítið eftir að það er varla hægt að tala um það.
Jæja nóg um óléttu hann sonur minn er alltaf janf mikill gleðipinni og nýjasta æðið er að segja HÆÆÆ alveg rosalega krúttlega og segir þetta við hvern sem er jafnvel ókunnuga. Hann er að þroskast soldið mikið núna en fatar sammt ekkert að það er annað barn á leiðinni en það fattast þegar það mætir á svæðið og fólk talar um að hann gæti orðið afbrýðissamur en vitið ég hef bara engar áhyggjur ef hann verður það þá verður bara tekið á því þegar þar að kemur og unnið úr því, ég geri mér grein fyrir því að ég þarf að passa mig að veita honum kannski svona "extra" athygli en við sjáum bara hvernig hann breggst við þessu. Eitt er víst að fyrstu dagarnir munu snúast um að aðlaga okkar 3. manna fjölskyldu að þeim fjórða fjölskyldumeðlimi og honum að okkur.
Jæja nú er ég komin með ritstíflu og man ekki stundini lengur hvað ég ætlaði að skrifa meir en þetta eru allaveg smá fréttir af okkur og svo set ég inn nýjar myndir á morgun mánudaginn ásamt bumbumyndum.
Stay tuned..... Erla og Jóhann Otti
22.5.2008 | 23:51
Nýjar bumbumyndir og myndir í Jotta albúmi
19.5.2008 | 21:58
Fréttir
Jæja þá er sumarið að renna í garð og býflugurnar komnar á kreik og EKKERT SMÁ STÓRAR, ég var eimmit í vinnunni í dag og þá kom ein í heimsókn og ég gerði það sem ég geri vanalega hljóp eins og asni undan henni en ég soldið fegin þegar önnur stelpa í afgreiðslunni fór að hlaupa líka. Svo eru geitungarnir að fara að fæðast ég veit það, hvernig?, nú ég sá eitt geitungabú í dag en það var reyndar bara á stærð við golfkúlu en eins og ég segji þeir eru að fæðast.
Nú er ég að skríða í 35.vikur og það styttist óðum ég fer i vikulegar skoðanir og so far so od eins og þeir segja ég er reyndar komin með læknis vottorð um að hætta að vinna en ég talaði við yfirmen mína og vð ætlum að hafa þannig næstu tvær vikurnar að ég mæti bara þegar ég treysti mér til og vinn þá bara eins lengi og ég vil, sem er frábært það voru allavega allir sáttir við það þannig að ég verð svona viðloðandi við vinu næstu tvær vikurnar eða þangað til 30.maí þá hitti ég fæðingarlækni og þá sjáum við bara til. Þetta er orðið ansi strembið núna mér líður stundum eins og flóðhesti já eða fíl eða bara einhverju rosalega stóru ég hef verið með grindarverki eins og ég hef sagt frá áður en þó mis mikla t.d. í dag var ég ekki góð og þetta gerir það að verkum að ég vagga stundum alveg rosalega og þá lít ég út eins og togari á stórsjó
úúff þetta er ekki alltaf dans á rósum en ávöxtur þessara níu mánaða meðgöngu mun verða ómetanlegur og það er það sem gildir. Svo er bara að fara af stað loka undirbúningur fyrir komu skvísunnar okkur vantar eitthvað smotterí sem er nú ekki mikið mál að bjarga en ég verð fegin þegar það er búið.
Við familían skelltum okkur í fjölskyldu og húsdýragarðinn um helgina og það var alveg rosalegt stuð Jotti fór og skoðaði kálf og meira að segja klappaði honum nema hvað að kálfurinn var soldið mikill kjáni og vildi bara sleikja mann og annan þegar það var verið að reyna að klappa honum, en það var þó skárra að klappa kusunni það sem hún lá bara í leti og horfði á okkur eins og ég veit ekki hvað. Jóhann Otti bætir fleiri orðum nánast á hverjum degi í orðaforðann sinn og er orðinn ekkert smá duglegur að segja öll þessi orð sem hann kann en það er alltaf rosalega þægilegt að horfa, benda og bara babla eitthvað en svona er þetta við erum bara að læra. Nú erum ég og Jotti búin að fara í sund 2 DAGA Í RÖÐ shitt hvað við erum dugleg. Við skelltum okkur í gær fyrir hádeigi og ákváðum að leyfa pabba bara að lúra og njóta sín svona einu sinni þar sem að mamman á heimilinu er búin að fá að gera síðastliðnar tvær helgar, svo fórum við í kvöld eftir kvöldmat og það var rosalega gaman hann Árni frændi kom með okkur og við láum þarna í bleyti í svona 1 og 1/2 klst og svo var bara klætt drenginn í náttföt og heim í ból og hann sofnaði eins og lítið lamb.
Jæja ég er ekki frá því að ég sé lúin eftir sundið og ætla að fara að hátta og kúra.
Adios amigos.
MINNI Á NÝJAR MYDIR OG BUMBUMYNDIR.
17.5.2008 | 22:48
Nýjar myndir og bumbumyndir
Jæja loksins eru komnar inn nýjar myndir og bumbumyndir endilega kíkið á þær svo kemur ´nýtt blogg í sðastalagi á mánudaginn og þá hef ég FULLT af fréttum að færa ykkur.
10.5.2008 | 00:27
Komin tími á fréttir
Jæja ég hef nú ekki verið dugleg að blogga hérna inni undanfarið hvað þá setja myndir en núna er ég komi í átak promise.
Það er allt gott að frétta af okkur Jóhann Otti stækkar og skapið með, hann er farin að segja fleiri orð og segja þau skýrari en hann er ekki farinn að mynda setningar sem þýðir nú samt ekki að hann sé eitthvað eftir á í þroska það er nú tæpir 6 mánuðir í að hann verði 2 ára og margt getur gerst á þeim tíma. Hann var í ungbarnaeftirliti á heilsugæslunni um daginn og Ólöf læknirinn okkar var mjög ánægð með hann, hún hefði þó viljað að hann hefði þyngjast aðeins meira en hún hafði þó samt engar áhyggjur af honum þar að auki hefur hann verið 2x veikur síðan hann var síðast vigtaður og um leið og hann verður veikur þá borðar hann nánast ekki neitt þannig að það setur alltaf stórt strik í reikninginn. Hann er á fullu hjá dagmömmunni og verður þar út júní og svo hættir hann þá verður hann bara með mömmu, pabba og litlu systir í sumar þangað til að hann byrjar á leikskólanum, við höfðum svo sem ekkert hugsað okkur að fara neitt í sumar við erum ALLT of sein að bóka bústað annars hefði verið finnst að skella sé í bústað og njóta friðsældarinnar og nærveru barnanna, farið í göngutúra með litlu í vagninum og leift Jóhann Otta að rúlla sér í grasinu ohh ég sé þetta alveg fyrir mér en nei ekki þetta sumar, draumurinn er nú að fara til Spánar næsta sumar það eru orðin fleiri fleiri ár síðan að bæði ég og Davíð höfum farið til Spánar þannig að það er alveg komin tími til.
Heilsan hjá mér er svona ágæt mér finnst ég vera alveg rosalega ólétt núna, núna fyrst er óléttan að láta finna fyrir sér enda er ég komin 33 vikur og er með lítinn orkubolta sem þarf mikla athygli og það er sko ekkert grín. Ég hef alveg verið að koma vel út úr skoðunum þó er ég ennþá með 1+ af próteini í þvagi og smá bjúgur er búin að bætast við EN svo lengi sem að blóðþrýstingurinn er í lagi þá er ég ekki með meðgöngueitrun en það þýrðir ekki að ég þurfi ekki að fara varlega þetta er í raunin bara byrjunar einkenni.
Ég er að fara til heimilislæknis 16.maí til að fá vottorð til að minnka vinnu eða hætta, ljósmóðir mín stakk upp á að ég mundi minnka vinnuna í 50% sem er nú allt í lagi en ég stakk að henni hvort að það væri ekki sniðugt að ég færi að hætta að vinna um næstu mánaðarmót og henni leist vel á það þannig að það er spurning hvort að læknirinn sem ég hitti 16 vilji splæsa á mig vottorð til þess að jafnvel bara hætta þá að vinna. Ég er orðin rosalega orkulaus ég vinn ekki erfiða vinna þannig en ég vinn frá 7:30-15 og fer síðan beint og sæki strákinn og fer heim og þá er ég bara búin á því, það bætir ekki á það að ég hef verið með grindarverki síðastliðnar vikur. Ég vil bara fara fá að hvíla mig geta sofið það sem ég þarf að sofa náð orkunni kannski aðeins upp og þá gæti ég til dæmis skellt mér í stutta göngutúra, leikið við strákinn eða bara eitthvað við sjáum til hvað læknirinn segir 16. Ég er í eftirliti vikulega núna sem er fínt það heldur okkur á tánum með meðgöngueitrunarvesen en svo þann 30.maí hitti ég fæðingarlækni sem kemur held ég 2x í mánuði upp á heilsugæslu til að hitta konur sem þurfa að hitta lækni, ég er svo sum ekki að fara að hitta hann út af neinu sérstöku það er soldið síðan ég hitti hann síðast og bara komin tími á að hann hitti mig aftur til að ath stöðuna.
Ég er komin með kommóðu fyrir litlu prinsessuna og ég er að byrja að þvo og verð sennilega í því um helgina, ég tek enga sjensa ef þetta fer eins og síðast þá ætti ég að vera að eiga eftir 5 vikur og ég ætla ekki að vera að þvo á síðustu stundu. Ég er byrjuð að kaupa smátteríis dót eins og bleyjur og svoleiðis þó vantar mig aðeins meira en það er bara lítið og ég hef svo sum engar áhyggjur af því.
það gleður mig að tilkynna að það er búið að kaupa heimferðar fötin, amma Ólöf fór og keypti þvílíkt flott heimferðaföt en það var ekki annað hægt en að halda í hefðina þar sem að hún keypti heimferðadressið á litla prinsinn ég þarf að taka mynd af því um helgina og skella henni hér inn ÞAÐ ER GEGGJAÐ FLOTT.
Jæja við skvísurnar ætlum að fara að sofa, strákarnir mínir eru þegar sofnaðir ég fékk bara allt í einu eitthvað orkuspark ég er gjörsamlega búin að vera leka niður í allan dag og svo allt í einu rankaði ég við mér þegar ég þyrfti að fara upp í rúm.
Góðan nótt. Erla. p.s. fylgist með ég fer að skella inn myndum og taka mig á í blogginu.
Færsluflokkar
199 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 55
- Frá upphafi: 105205
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar