10.7.2008 | 17:20
NÝTT blogg...
Jæja þá er komin tími á smá blogg. Stelpan kom semsagt 30.júní kl 20:53, hún vó 3.855gr og var 50 cm og eins og þið sjáið kannski á myndunum þá er hún með frekar dökkan húðlit og dökkbrúnt hár sem sagt andstæðan við bróðir sinn.
Fæðingin tók 3 klst frá fyrstu verkjum og var stelpan fædd tæp 2 klst eftir að ég kom á fæðingardeildina. Ég var heima þegar ég byrjaði að fá verkina og það var mikið lán að pabbi var í heimsókn því að hann tók strákinn bara með sér þannig að ég og Davíð gátum brunað niður á fæðingardeild beint. Ég fór í gegnum fæðinguna á glaðlofti og svo fékk ég eina nálastungu sem mér fannst ekki virka neitt en jeremías glaðloftið hjálpaði helling en ég var farin að væla um mænurótardeyfingu en svæfingarlæknirinn var að deyfa aðra konu þegar ég bað um hana þannig að það vara bið í deyfinguna. Þegar svæfingarlæknirinn kom loksins þá var ég komin með 9 og hálfan í útvíkkun og alveg tilgangslaust að setja deyfinguna upp sem var allt í lagi því að innan við 5 min eftir að læknirinn fór þá byrjaði ég að fá rembingstilfinningu og mér var sagt að rembast. Ef ég man rétt þá held ég að ég hafi kannski þurft að rembast í heild svona 3-4x og stelpan kom úr í 2 rembingnum. Mér leið strax mjög vel eftir fæðingu og það þurfti bara að sauma eitt spor, Davíð stóð sig svo vel og hjálpaði mér meðal annars mikið þegar ég var að rembast. Það var ljósóðursnemi sem tók á móti og með henni var ljósmóðir sem var meira henni innan handar enda hún að læra og ég treysti henni alveg fullkomlega en þær voru yndislegar. Ég var soldið ringluð eftir fæðinguna enda gerðist þetta rosalega hratt(3klst í heild) og fannst mér eins og þetta hafið tekið kannski klukkutíma, þegar ég fékk stelpuna upp á magann þá fattaði ég ekki að hún væri komin og og greip ekki strax í hana þannig að hún rann aðeins til og ljósan lagaði hana fyrir mig. Það sem kannski fáir vita er að ÉG klippti á naflastrenginn Davíð spurði hvort að ég vildi ekki gera það þar sem að hann gerði það hjá Jotta og ég ákvað bara að slá til.
Við skírðum kl 16 daginn eftir Emma Guðrún og Emma er út í loftið en Guðrún er eftir mömmu hans Davíðs svo strax eftir skírn fórum við heim.
Hingað til hefur þetta gengið svo vel að það liggur við að maður haldi stundum að maður lifi í draumi því að þetta smellur allt svo vel saman. Jú jú þetta er ekkert alltaf dans á rósum og þetta er hellings vinna en þetta er góð vinna og samvinnan á milli mín og Davíð sem foreldrar er mjög góð enda mundi þetta ekki ganga upp öðruvísi. Jóhann Otti er því orðin stóri bróðir honum er þó að öllu jöfnu slétt sama en það koma alveg atvik þar sem að hann verður abbó en það er bara partur af programmet og við vinnum úr því þegar það gerist. Við höfum verið að passa okkur að knúsa hann alveg extra extra mikið svo að hann finni að hann sé ekki að gleymast og það virðist virka ágætlega.
Jæja ég læt þetta duga í bili, vil minn á að Það eru nýjar myndir í albúmi krakkana sjá blogg fyrir neðan.
Kveðja Erla og gríslingar
8.7.2008 | 22:31
NÝJAR MYNDIR...BÆÐI Í JOTTA ALBÚMI OG Í EMMU ALBÚMI...
2.7.2008 | 20:29
MYNDIR.....NÝJAR MYNDIR
Jæja þá er ég búin að búa til albúm fyrir skvísuna sem fékk nafnið Emma Guðrún hún var semsagt skírð í kapelluni áður en við fórum heim af spítalanum. Þar eru fullt fullt af myndum og svo kem ég með gott blogg brálega.
Það eru líka nýjar myndir í albúminu hans Jóhann Otta.
1.7.2008 | 18:15
Stelpan er komin
Jæja hæun kom í gær kl 20.53 með mikklum látum. Hún er 15 merkur og 50 cm, það gekk allt eins og í sögu og það heilsast öllum vel, ég set inn smá sögu við fyrsta tækifæri.
27.6.2008 | 21:50
40 vikur...settur dagur í dag...ekkert að gerast...ný bumbumynd...
Jæja þá er dagurinn RUNNINN UPP og það bólar ekkert á henni það er þó farið að bóla á smá fyrirvaraverkjum en þeir eru ekki miklir en það að það séu þó komnir fyrirvaraverkir þýðir að þetta er allt að þróast í rétta átt. Mér líður annars bara vel en ég væri alveg til í að fara að klára þetta maður er orðin soldið stór og ekkert grín að hreyfa sig mikið, Davíð rak mig út í göngutúr með sér í dag sem var bara yndislegt nema hvað að það hafðist ekkert upp úr því nema sinadráttur í nárana en ekki fæðing og djöfull er það vont að fá sindrátt í báða nárana ég hef aldrei fengið svona áður.
Við skelltum okkur í sund í dag og tókum ömmu Gunnu með sem hefur nú verið að kenna sund í áraraðir og litli prinsinn okkar var ekkert smá duglegur, málið er það að hann er sko komin með tæknina að vera með handkúta og láta sig fljóta en hann hefur ekkert verið að sprikla með fótunum en amman kom því í gang í dag þannig að hann synti um eins og kópur og það mátti sko ekki vera að hald neitt í hann eða snerta hann synti bara og synti. Eftir sundið þá fórum við heim til ömmu Gunnu og afa Þorsteins og þar grilluðu þau yndislegan mat ofan í okkur öll sem var bara æði. Eftir matinn þá settumst við út og nutum restina af sólinni, þannig að þetta er búið að vera frábær dagur.
Við vorum í skoðun í gær og það leit allt alveg rosalega vel út blóðþrýstingur svona líka flottur og bara allt flott, hún vildi ekkert hreyfa við einu eða neinu en ætlar þó að gera það næsta fimmtudag ef ég verð ekki búin þá, þá ætlar hún að losa um belginn og panta gangsetningu það er þó ekki víst að ég þurfi hana því að það oft þá dugar að losa um belginn hjá konum og þær fara af stað en það þarf samt ekkert að vera. Það væri nú samt asskoti flott ef hún kæmi næsta fimmtudag því að þá er kennitalan 06.07.08.... en hver veit, tengdapabbi var að segja mér að hann væri búin að spá 3.júlí ég veit ekki afhverju og það er ekkert sérstakt að gerast þá en hann sagði að honum grunaði að hún kæmi þá.
Ljósan spurði hvort að strákurinn væri eitthvað farinn að finna fyrir þessu, þar að segja að það væri að koma annað barn og við getum ekki fundið fyrir því hann fattar þetta ekkert fyrr en hún er komin og þá þurfum við öll að læra að það sé komin fjórði fjölskyldumeðlimur. Ég hef stundum heyrt raddir að það þurfi sko að koma og nappa honum því að við eigum ekki eftir að geta verið eins mikið með hann og núna, við bara munum ekki fallast á það því miður því að hann á aldrei eftir að geta vanist því að hann sé búin að eignast systkini ef að það er alltaf verið að "bjarga" honum þar að auki hefur verið og verður vonandi áfram svo gott veður að það verður farið út að labba við fyrsta tækifæri og jafnvel skellt sér bara á næsta leikskóla að leika og skvísan sefur. Ég ætla allavega ekki að sitja heima allan daginn þó að við séum einu fleiri hananú.
Við ætlum að raka Jóhann Otta um helgina, við höfum sko verið að safna smá lubba á hann hingað til en ég hugsaði að það þyrfti nú að taka einu sinni vel af honum og það væri skárra að gera það núna heldur en að gera það þegar nær dregur að hausti því að þá verður honum bara kalt á hausnum en jú við þurfum líka að passa að hann brenni ekki á kollinum en það er nú lítið mál. Við ætlum reyndar að raka Davíð líka en ekki krúnuraka en taka allavega vel af honum. Það verður gaman að sjá hvernig þetta kemur út og ég mun taka before and after myndir og skella þeim inn.
Jæja ég ætla að fara að horfa á smá tv skelli inn nýrri bumbumynd með þessari færslu.
Adios Erla, Jóhann Otti og þrjóska bumbuskvísan.
22.6.2008 | 22:50
Nýjar myndir í Jotta albúmi
21.6.2008 | 00:43
Nýjar bumbumyndir og myndir og nýtt blogg hér að neðan
20.6.2008 | 14:52
39 vikur
jæja þá er ég komin 39 vikur og ekkert bólar á skvísunni, ég hef þó verið að fá nokkra sterka samdrætti og svona þrýstingstilfinningu en það er svo lítið að það tekur því varla að skrifa um það þar að auki eru engir verkir með og þessir fáu sterku samdrættir ekki reglulegir þannig að þetta er bara eitthvað prump. JÁ ég verð að segja að ég er að verða ansi óþolinmóð það er ekki auðvelt að vera svona stór geta varla hreyft sig og í þessum hita úff en mér finnst leiðinlegast að geta ekki leikið almennilega við litla prinsinn minn þar að segja ég vildi að ég gæti farið meira með hann t.d. á leikvöll og annað en ég hef bara ekki burði í það en við fjölskyldan reynum að vera dugleg að gera eitthvað þrjú saman við hvert tækifæri við erum t.d. mjög dugleg að fara í sund og förum orðið minnsta kosti 1x í viku.
Ég er sem sagt að fara í skoðun á fimmtudaginn í næstu viku þar að segja ef ég verð ekki búin og þá vona ég að hún verði viljug og hreyfir við belgnum ég ætla allavega að biðja hana um það, ef að hún gerir það þá er smuga að skvísan láti sjá sig um næstu helgi ég veit ekki með hana en ég er alveg reddí eins og maður segir.
Við erum farin að setja Jóhann Otta 1x á dag á koppinn svona til að byrja með og það hefur hengið alveg rosalega vel hann hefur í öll skipti pissað í hann við ætlum nú að reyna að auka koppaferðir en eins og er verður þetta bara 1-3 á dag fer eftir því hvort að það er virkur dagur eða helgi því hann er hjá dagmömmunni á daginn, ég held að honum sé samt alveg sama þegar hann pissaði í koppinn um daginn og ég og Davíð vorum svo glöð þá var hann bara eins og eitt spurningamerki í framan en við erum öll bara að læra þetta byrjar allavega vel. Hann er alveg rosalega duglegur að vera úti hjá dagmömmunni að leika sér og ég sé að hann er orðin pínu brúnn í framan, ég veit samt að hún ber á þau sólarvörn á fullu þannig að hann er ekkert að brenna sem betur fer en þessar litlu dúllur meiga alveg fá smá lit.
Davíð var að ákveða í dag að taka sér sumarfrí í næstu viku frá mánudegi eða þriðjudegi svona þangað til barnið fæðist sem er frekar næs það verður yndislegt að hafa hann heima aðeins fyrir fæðingu.
Ég ætla að taka nýjar bumbumyndir í dag og ég skelli þeim inn kannski í kvöld ásamt nokkrum myndum frá 17.júní o.fl.
OHhh ég skal segja ykkur ég elska Stöð 2 þar sem að So you think you can dance er að byrja á mánud en ég HATA STÖÐ 2 á daginn þar sem að ég er eiginlega bara heima núna í tjilli þá er ósjaldan kveikt á Stöð 2 og þeir gera ekkert annað enn að sýna þessar ÓGEÐSLEGA LEIÐINLEG spænsku sápu þætti og ég get sagt ykkur það að þetta er búið að vera svona síðan ég var í fæðingaorlofi með Jóhann Otta þá var Valentina sýnd en núna er það eitthvað annað og þetta er svo BOOOORING ég segji þetta er komið gott takk fyrir. Í gær þá ákvað ég að skella dvd í og myndin sem varð fyrir valinu var Turner and Hooch, þetta er eldri mynd með Tom Hanks og er um sem sagt lögreglumann sem tekur að sér hund af tegundinni Dog de bordeauxhttp://europuppyblog.com/media/40/turner_et_hooch.jpg eftir að eigandi hans er myrtur og þeir eru að reyna að leysa morðgátuna í myndinni. Ég dýrka þessa mynd þetta er ein af mínum uppáhalds myndum það þarf enginn að segja ykkur að hundurinn gerir útslagið en ég mæli með henni ég grenjaði allavega úr hlátri þegar ég var að horfa á hana og var reyndar næstum því farinn að grenja líka en það er önnur saga þetta er allavega möst watch.
Jæja farinn að halda áfram að tjilla.
16.6.2008 | 13:35
Nýjar bumbumyndir og nýjar myndir
14.6.2008 | 00:34
38 vikur
Jæja þá er ég komin slétt 38 vikur á leið og það er allt í þessu fína lagi, heldur lág í járni í blóðinu en ekkert sem er hægt að laga. Ég var í skoðun í gær og blóðþrýstingurinn er svona líka fínn og ljósmóðirin leyfði sér að fullyrða að ég væri sloppin við meðgöngueitrun og þar af leiðandi fer ég ekki til hennar fyrr en eftir tvær vikur sem sagt 26.júní og settur dagur er 27.júní en eins og fæðingarlæknirinn sagði þá gæti komið einhver smá hækkun í lokin en það mundi sennilega ekki flokkast sem meðgöngueitrun því að þegar það er komið svona seint að þá er þetta oft bara merki um að líkaminn sé að fara yfir á þetta stig að fara að fæða barnið ef þið skiljið hvað ég á við.
Ég sér orðið fram á það að ég gæti lent í því að bíða eftir skvísunni ekki það að maður sé hálfpartinn farin að gera það en þá er ég að tala um að ég gangi þessar 40 vikur eða lengur, ég er nefnilega ekki með neina fyrirvaraverki og reglulega samdrætti það mundi þá sennilega gerast skyndilega ef ég færi af stað. Ég sem sagt hitti ljósuna eftir tvær vikur og ef af bumban er bara róleg þá gæti verið að að hún hreyfi við belgnum þá ef ekki þá gerir hún það pottþéttvikunni eftir og ef að skvísan lætur ekki segjast þá er það bara að setja mig í gang en við vonum að það þurfi ekki að gera.
Þessa dagana er ég bara heima að dúlla mér og hvíla mig inn á milli sem er fínt Því að þegar það verða komin tvö börn að þá hefst sko vinnan. 17.júní er ég að fara í matarboð á Selfoss um kvöldið og þá er sko bannað að fara af stað í fæðingu ekki það að ég væri nú fljót í bæinn en ég segi samt pass, en um daginn ætlum við sko að marsera í skrúðgöngu með litla Jotta spottann okkar hérna í Kópavoginum. Jóhann Otti er annars bara hress hann er orðin alveg rosalega duglegur að segja ný orð þó að hann viti ekki alltaf hvað þau þýði en hann apar eftir manni, hann er alltaf hjá dagmömmunni og verður þar út júní og svo fer hann bara á leikskóla í ágúst öss litla barnið mitt er að verða svo stórt.
En jææja ég ætla að fara að koma mér í bólið.
Kveðja Erla og Jóhann Otti
Færsluflokkar
199 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 55
- Frá upphafi: 105205
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar