Flutt inn!!!

Jæja þá erum við flutt inn og meira að segja búin að koma okkur fyrir það var bara tekið á því,  þetta gerðist allavega hratt allt þetta ferli og þreyta var sko til staðar en ég er bara fegin ég nenni ekki að vera að taka mér einhverja viku í þetta.

Annars er allt gott að frétta ég tók að mér karlmanshlutverkið síðastliðin föstudag og sló garðinn sem var ekki leiðinlegt Árni Snær og mamma gerðu það líka því þetta er nefninlega ekki eins auðvelt og maður heldur,  síðan voru reittir arfar,  plantað blackberry tréi og tveimur myntuplöntum og vitir menn garðurinn er orðin glæsilegur tala nú ekki um að það er svo oft lítil kisa sem fær að leika í garðinum hjá okkur.

Síðan er það bara grand næsta þriðjudag því staffiunu í lobbíinu er boðið út að borða á nýja veitingastðainn Silfur á Hótel Borg og ég geri nú ekki ráð fyrir örðru en að það verði geggjað gott.

 Síðan fer að styttast í þetta pabbi að verða 26.........(50) 3.Ágúst og planið er að fara út að borða á Tvo Fiska og snæða dýrindis kvöldmat og gefa honum fullt af pökkum JEIJGlottandi, já tíminn líður hratt hraðar en maður veit af.

 

En ég ætla ekki að hafa þetta lengra ekki gleyma næsta þriðjudag 26.vikur.

Annars vil ég þakka öllum sem veittu okkur hjálparhönd við að koma okkur fyrir í nýju íbúðina okkar ég get fullyrt það að þetta hefði ALDREI geta gengið svona hratt og vel fyrir sig nema með þessari aðstoð sem við fengum og við erum ykkur MJÖG ÞAKKLÁTHlæjandi 

Ég set líka inn myndir á næsta þriðjudag af íbúðinni.

Adios ErlaSvalur 

 


25.vikur

SvalurJæja þá eru það komnar 25.vikur og litli kútur farinn að sprikla eins og línudansari,  buffar magan á mér alveg hægri vinsrti.

Mér er annars búið að líða vel.  Nú er allt í hers höndum við fengum íbúðina síðasta laugardag og í kvöld verður lögð síðasta hönd við að ditta upp á hana og þrífa rykið og drulluna sem mamma,  Sæunn og amma ætla að gera fyrir mig þar sem ég er að vinna til 22:30 og kannski fullseint fyrir mig að vera að byrja þá en þær eru svo yndislegar við mig og ætla gera þetta fyrir mig og bumbubúan.

Síðan er stefnan sett á að flytja á morgun ohh þetta verður ÆÐI,  ég ætla að vera með myndavélina á lofti þar sem ég má ekki lyfta neinu hehehe þannig ég verð þarna að skipa fyrir múha.  Ég ætla líka taka myndir af garðinum sem er geggjaðslega flottur   það verður sko legið í sólbaði þarna þegar gula kvikindið lætur sjá sig almenniglega.

Annars var ég í mæðraskoðun í morgun og allt leit mjög vel út ég hittti líka nýja ljósu sem er alveg frábær verst að ég fæ bara að hafa hana framm að hausti sem er BÖMMER því hún er bara þarna á sumrinn síðan fer hún yfir á spítalan í haust þá fæ ég nýja en það verður bara að hafa það.  Hjartað slær alltaf jafn fallega í lilta guttanum okkar og hann lætur bara fara vel um sig í mallakúttnum mínum.

Hér er smá fróðleikur um barn á 25. Viku

Á þessum stigspunkti getur barnið sett þumalinn upp í munn sinn. Barnið getur á þessum tíma í fyrsta sinn grátið sem er mikilvægur eiginleiki. Bein byrja að harðna. Húðin þroskast áfram og styrkist og getur nú þolað betur vökva í leginu og viðhaldið stöðugum líkamshita barnsins. Hér hægist talsvert á vexti og verður hann stöðugur það sem eftir er meðgöngunnar. Barnið er nú 32 cm langt og 750 grömm.

Þar hafið þið það annars er það að frétta að við erum búin að fá baðvog í innflutningsgjög alveg geðveikt flotta digital baðvog.

ÉG ætla ekki að hafa þetta lengra í bili þar sem ég er í vinnuni þið verðið að afsaka seinkun á blogginu það hefði átta að koma í gær en það tókst ekki ég blogga næsta þriðjudag og set þá inn eitthvað af myndum af flutningum og íbúðini.

ErlaSvalur


Rigning og rok=KKKÚÚÚÚRRRRR

handklaedasett_fra_erlu_ommu_36695.jpg

OOHHH SJIITTTÍÍÍÍ veður Fýldur

Ég var rifinn upp á rassgatinu klukkan 09:00 í morgun og skundað var í hvalasund sem var bara mjög fínt með tvo kennara og eitt stk einkakennslu,  ég lærði helling sem ég mun reyna að nýta mér og vera duglegri fyrir vikið að fara í sund.

Síðan kom ég heim og beint upp í rúmm að KÚRA ég stein rotaðist ZZZZzzzzz sem var líka fínt hvað á maður að gera í svona veðri sættið ykkur við það sumarið er búið setjið olíurnar inn í skáp stuttbuxurnar innst inn í skáp og hafiði flísið til taks.

Síðan gerðust hlutirnir í gær Davíð FANN SPARK við láum að horfa á Basic Instinc alveg að pissa í mig úr spenningi og finn síðan að púkinn byrjar eitthvað að hreyfa sig og ég ríf í hendina á Davíð og skelli henni á bumbuna og segi honum að bíða rólegum þá kom eitt lítið spark síðan stuttu seinna eitt ROSALEGT spark hann buffaði pabba sinn í gegnum bumbuna og svipurinn á Davíð er eitthvað sem ég geymi í minnigarbankanum forever og rifja sennilega upp þegar hann er kominn á gelgjuna og gerir okkur gráhærð þá segji ég honum frá þessu Hlæjandi  Hann er allavega duglegur að hreyfa sig hann tekur stundum svona rispur og þá er djamm í maganum þá er sko ekkert skafað af því.

 Annar er ég búin að bæta við bumbumynd svona ganni því bumban er búin að taka smá kipp.

 

Rúmið kallar á mig þannig nú ætla ég að hætta og fara og kúra rúmið mitt og glápa á sjónvarpið.

 

ErlaSvalur


Íbúð á laugardaginn jjeeeiijjj

Þá er komið að því við fáum íbúðina í síðasta lagi á laugardaginn þá fer Davíð og hans "gengi" inn og spaslar,  pússar, málar o.fl og síðan er stefnana sett á að flytja næsta fimmtudag ég verð kannski búin að svindla smá og fer með eitthvað smá dótt á miðvikudagskvöld þegar ég fer að þrífa en það er allt í lagi það er svo sum nó að bera handa ykkur heheheh. 

En i fullri alvöru þá var ég heima í gær að dunda mér að pakka niður í kassa dóti sem úr herberginu sem má vera í kassa þanngað til á fimmtud og ég stalst til að lyfta smá en ég held ég geri það ekki aftur það gerðist ekkert en mér var sammt smá illt í bumbuni.

 Litli kútur er ennþá að þrjóskast við að sparka ekki í pabba sinn og haggast ekki þegar við spilum músik fyrir hann þvílík þrjóska í gangi hérna.

Jahérna hér ég for til tannfræðings í gær að því ég þarf að fara einu sinni á ári því ég fæ svo mikinn tannsteinn sem þarf að slípa af. 

Okei allt í góður ég leggst í stólinn og hún byrjar að slípa og DÍSES KRÆST hvað þetta var vont óléttar konur eru nottla með viðkvæmt tannhold fyirir þannig þessi slípun verður verri fyrir vikið.  Eftir svona 15 mínútur í stólnum þá byrja ég að fá verk á milli brjóstana og byrja bara að sjá stjörnur ég sets upp og ég var eins og í teiknimyndonum þegar það eru svona stjörnur og kringum mann og hausinn sníst í hringi.  Greyið tannfræðingurinn stóð nú ekki á sama og náði í tannsan minn og hann sagði að þetta er sennilega belgurinn að þrýsta á þindina og þá minnkar súrefnið.....en ef ég myndi ekki fara að jafna mig þá mundi hann sko kalla á sjúkrabíl.  Ég verð nú að viðurkenna mér leið mjög illa á tímabili og það vantaði mmjjjöggg lítið upp á að ég myndi detta út en ég var ekki að meika að fara þarna út á sjúkrabörum þannig eftir að hún opnaði gluggan og ég sat í sona 15 mín þá leið mér mun betur en ég var að sitja upprétt það sem eftir var af slípun sem var spes.

 Annars var ég spurð í gær hvort ég hafði einhverjar sérstakar óskir með innflutningsgjöf og ég lagði höfuðið í bleiti og þetta kom upp ú því.

 

  1. Náttborð úr IKEA heitir ANEBODA
  2. Hvíta ódýra kaffivél t.d. ú Elko
  3. Baðvog
  4. Steikarpönnu

þetta er það sem mér datt í hug þetta er það sem okkur vantar og langar í ef ég man eitthvað meira þá set ég það innBrosandi

Annars varð ekkert úr þessari hvalaskoðun því það var svo vont veður þannig þegar ég fer í hana þá skelli ég inn myndum ekki spurning.

Þanngað til næst

 

ErlaSvalur


24.vikur

vika24_1.jpg

24.vikur þar er nú það já, litli púkinn er ennþá að þrjóskast við að stríða pabba sínum og ekki sparka í hann heheh.  

Ég tel niður mínútur í símtal sem ég á von á miðvikudaginn um hvort það náist að afhenta okkur íbúðina um helgina eða ekki  ohh get ekki beðið.

Annars er ég að fara í hvalaskoðun á morgun með litlu frænku minni skvísunni henni Ólöfu Soffíu og hún veit ekki enn þá af því það verður surprise.  Það verður rosa gaman því hún hefur ekki farið áður vonandi sjáum við höfrunga sinda með fram bátunm og fullt af hvölum síðan verður tekið fullt af myndum sem ég mun síðan setja inn á síðuna.

 Ég hef ekkert heyrt í neinni ljósmóður þannig ég geri ráð fyrir að blóðprufan hafi komið vel út sem er bara gott.

 

Hér er fróðleikur um barn á 24.viku 

 Skynfæri barnsins er tengjast heyrn eru nú fullþroskuð. Innra eyrað hefur náð sinni endanlegu stærð og hljóð heyrast mjög vel. Sagt er að róleg og þægileg tónlist hafi róandi áhrif á barnið. Neglur byrja að vaxa og athyglisvert er að fingurneglur verða mun fyrr fullþroska en táneglur. Barnið er nú um 30 cm og 650 grömm.

 

 Ég ætla bara hafa þetta stutt núna en lengra seinna í vikunni ég læt fylgja með mynd af barni á 24.viku ekki mínu þó.  Endilega smellið með músinni á myndina sjálfa þannig þið sjáið hana stærri þetta er þvílíkt dúlló.

 

 Þanngað til næst.

 

ErlaSvalur


ÍBÚÐ EFTIR 7-12 DAGA HA!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Jú þið eruð að heyra rétt ég var rétt í þessu að tala við parið sem býr þarna núna og þau voru að fá afhent í dag sína íbúð og ætla að setja allt á fullan gír og vonandi verður okkar tilbúin næstu helgi sem sagt 13-15júlí  JJJJEEEEIIIJJJJJ þá er bara að mála smá og síðan flytja JEIJ

Mæðraskoðun

adidas_skor.jpg

Jæja þá er ég búin í aukaskoðunninni og það kom svo sem ekkert neikvætt út.

Það var skoðað það sem er vanalega gert blóðþrýsting,  hlustað á hjartað og sent inn miðbunupiss í ræktun DON'T ASK einhver rútína.  Þær vilja ólmar senda mig í hvalasund(meðgöngusund: ) þannig að það er næst á dagskrá og ég fékk eitthvað blað með upplýsingum um sund í sundlaug hrafnistu í Hafnfj. Jú okei 9000kr fyrir 4vikur 2 í viku.  NEI ég talaði nottla við tengdó og besta vinkona hennar byrjar að kenna msund í lok ágúst og tengdó hefur stundum kennt þetta sjálf og þær eru svo elskulegar og ætla að fara með mér í sund sem fyrst og kenna mér æfingarprógram sem ég get svo bara gert sjálf þannig ég þarf ekki að borga 9000kr ég fæ svona prævat lesson.  Síðan er ég komin efst á lista í lok ágúst fyrir hvalasund.

Síðan var tekin blóðprufa og það verður kannað hvort storknunarefnin í blóðinu séu ekki örugglega í lagi og ath járnmagn nú séu þau ekki í lagi verður bara fylgst með því.  Niðurstöðu fæ ég kannski í vikuni eða í byrjun næstu sé eitthvað óeðlilegt hringja þær.

Síðan kíkti ég í Ólavíu og Ólíver og sá draumarúmmið og í leiðinni sá þessa geggjuðu skó sem ég stóð ekki á mér og kipti svona með ásamt smá öðru sem ég læt fylgja mynd af.

Annars er ég hress ég tók það "merkilega" skref og skráði okkur í sambúð í dag líka svo hann yrði Davíðsson en ekki Erluson.  Ég var spurð fyrir nokkrum mánuðum síðan hvort við værum ekki skráð í sambúð ég sagði nei ég ætla ekki að vera skráð í sambúð fyrir 20 það er alveg nó að vera byrjuð að búaHissa

Þanngað til næst

 

ErlaSvalur

 

 

 


23.vikur.

stollinn_fra_saeu.jpg

Ég hef ákveðið að blogga 23.vikuna snemma út af mörgum ástæðum.

 Þá er ég komin 23.vikur eða næstum því 6mánuði líður hratt sem er allt í lagi mér líður þokkalega vel hef reyndar verið mjög þreytt undanfarið og mjaðmagrindin stundum alveg að fara með mig en að öðruleit bara góð.

Annars er ég að fara í aukaskoðun næsta miðvikudag því ég var að tala við vaktljósmóðir í dag um að skipta um ljósmóður og minntist á örfá atriði við hana sem hún vill láta ath.

Ég hef nefninlega fengið blóðnasir stundum og síðast þegar ég fékk þær þá blæddi eins og það væri borgað fyrir það þetta var rosalega mikið þannig hún vill láta athuga storknun í blóði hjá mér og þá í leiðini verður athugað járnmagn í blóðinum því það gæti veri að mig vanti bara járn og þá fari þreytan.   Annars er ég nú ekki að fara að skipta um ljósmóður vegna bullandi óánægju heldur vegna þess að mér fannst bara sú sem ég hitti fyrst vera bara svo hress og jákvæð en sú sem ég á að vera með er fín en það er doldið óþægilegt þegar maður er í skoðun og það kemur svona óþægileg þögn og hún var eitthvað svo döll.  Þetta eru manneskjur sem hugsanlega taka á móti barninu mínu þannig ég geri mikklar kröfur þó þær séu ekki óraunhæfar.  Annars sú sem mig langaði að hafa er bara í afleysingum en þá finn ég bara einhverja aðra.

 

Hér er fróðleikur um barn á 23.viku 

 Litlar línur sjást nú á fingrum og lófum sem síðar verða að fingraförum. Taugafrumur hafa nú náð þroska og byrja bráðum að tengjast saman og mynda heilstætt taugakerfi. Vísar fullorðinstanna, sem er alla tíð í barninu fyrir ofan barnatennur, eru nú á sínum stað og vísar barnatanna taka að þroskast. Barnið er nú 28 cm langt og 550 grömm að þyngd.

 

Annars vorum við að fá GEGGJAÐA gjöf frá Sæu frænku sem ég læt fylgja mynd af og hún útskyrir sig sjálf við erum allavega nokkuð solid með þetta TAKK SÆAKossHann er geggjaður.

 

Þanngað til næst elskurnar 

 

ErlaSvalur


Kúrfélagi!!!

heittelska_i.jpg

Klukkan er 22:13 og ég var að koma heim fyrir svona 30mín síðan og ég er búin á því það var svo mikið að gera í vinnunni búin að vera að síðan 9 í morgun  og það versta við þetta er er að minn HEITTelskaði er í útilegu og það er enginn til að kúra okkur tvö og nudda á mér lapprinar þá er þessi elska reyndar svo sætur í sér að hann skildi eftir ljónabangsan minn á rúminu til að kúra í nótt og hann er STÓR en gallinn er bara sá að hann gefur ekki af sér hita, hann kyssir mig ekki góða nótt og segjir ég elska þig og hann nuddar ekki á mér lappirnar.

Ég veit sammt aðhugsunin hjá þessari elsku með það að setja þennann staðgengil er svo góð og einlæg að það bætir upp allt hitt sem vantarSaklaus

 

Annars er ég bara þokkalega hress nóg að gera í vinnunni og gaman að læra á eitthvað algjörlrga nýtt.

Skondið að segja frá því ég lá upp í rúmmi um daginn og prinsinn byrjar með fótboltataktana í mallakútin á mér og ég kalla á Davíð að koma og reyna að finna en NEI ekki sjens þá reyndum við að spila músik, hann reyndi að tala við hann og pota í hann en NEI hann var ekki tilbúin til að leyfa pabba sínum að finna Eið Smára fótboltataktana sem hann er að æfa; ) þannig að Davíð sat eftir með sárt ennið.  Einn að stríða pabba sínum hehehe.

Jæja hef þetta ekki lengra næsta blogg er á þriðjudaginn þá er 23.vikur

ErlaSvalur

 

 

 

 


22.vikur eða 5 og 1/2 mánuður

sunskilan_min_vi_hli_ina_a_pabba_32695.jpg

Þá er komið að 22.viku mér líður feiki vel dagarnir þjóta frá manni nóg að gera í vinnuni sem heldur manni uppteknum. 

Næsta helgi,  ferðamanna helgi og Davíð og félagar ætla upp í Þakgil sem er GEGGJAÐUR staður við fórum þangað þar síðasta sumar í tvær nætur að það var æði.  Staðurinn er semsagt rétt hjá Vík í Mýrdal eða svona 30mín akstur.  Ég er auðvitað að vinna þessa helgi þannig ég kemst ekki með í staðinn grenja ég mig í svefn á kvöldin þanngað til þessi helgi er búin......grín

 Annars er ekki mikið að frétta við bíðum enn eftir íbúðinni þó við séum flutt inn í huganum,  ég talaði við eigandan nýlega og hann upplýsti mig um að þau væru búin að kaupa íbúð sem stæði tóm og þannig séð tilbúin fyrir þau en þau ætla eitthvað að vinna í henni mála og spasla en væru að stefna að því að reyna hafa Vallartröðina tilbúna 18.júlí en svo er bara að bíða og sjá hvort þeim takist það því þau hafa alveg til 12.ágúst þannig í raunini þurfa þau ekkert að stressa sig.  Markmiðið er samt 18.júlí.

Ég vil hvetja ykkur í að smella á myndaalbúmin því ég er búin að dæla inn myndum sem sjást ekkert á forsíðunni á heimasíðunni.

 

Hér er fróðleikur um barn á 22.viku

 Barnið byrjar í þessari viku að framleiða hvít blóðkorn sem síðar hjálpa því að berjast við sjúkdóma, sýkingar og aðrar óværur. Barnið bregst við áreiti úr umhverfinu á borð við rödd fólks og strokum á maga og öðrum slíku. Húð barnsins fer að þykkjast talsvert en fitufrumur eru ekki enn komnar í húðina svo hún er enn hálfgegnsæ á að líta. Augnabrúnir og augnhár hafa einnig byrjað að vaxa. Barnið er núna um 26 cm langt og 500 grömm.

 

Annars er gaman að segja frá því að frænka mín sem býr á Akureyri hún Dagbjört var í heimsókn í bænum fyrir nokkrum dögum síðan og við fórum á kaffihús saman og updateuðum slúðrið en það var gaman að hitta hana þar sem það gerist ekki oft ég get bara ekki beðið eftir að komast með henni aftur á skrall á Akureyri það var svo gaman síðastKoss

 Ef þið eruð að sitja inn athugasemnd og það kemur eins og þið séuð ekki skráðir notendur og það er óskað eftir nafni og e-mail,  skrifið það þá bara inn þá getið þið skrifað inn athugasemd.

Ég læt fylgja með mynd af sundskíluni sem litli prins á að fá og hún er við hliðina á skíluni hjá pabba sínum svona til að sína stærðarmuninn og bara svo þið vitið það jú það verður farið í ungbarnasund og sundkennarinn sjálfur veit af okkur og búin að fá að sjá töffaraskíluna sjálfa hún er nefninlega besta vinkona tengdóGlottandi

 

Sæl að sinni ErlaSvalur


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

184 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband