34.vikur

Jæja 34.vikur allt að gerast litli kútur dafnar vel í bumbunni minni hann kúrir bara og sprikklar svo bara inn á milli en ekki búin að skorða sig enda nægur tími.  Ég var sammt búin að semja við hann að vera ekkert á síðustu stundu með það við ætlum að vera með allt á hreinu þegar við förum að vinna í því saman að koma honum í heiminnGlottandi 

Síðan er það foreldranámskeiðið og dagurinn sem við biðum eftir heimsóknin á spítalann.  Jú þetta var áhugavert við vitum allavega hvert við eigum að fara og jú það er eins gott að hafa það á hreinu það er ekki cool á vera kannski með 5-8 í útvíkkun og bullandi hríðir og hafa ekki hugmynd um hvert maður á að fara neibb ekki cool. 

Við fórum og skoðuðum tvær mismunandi fæðingarstofur sem var mjög gaman maður sá þetta pínu fyrir sér að vissu leiti.  Fæðingarstofurnar voru mikklu hrárri en ég bjóst við ég var svo sem ekkert búin að gera einhverjar rosa væntingar en ég hélt að þetta væri kannski pínu huggulegra en greinilega ekki,  þetta voru lítil rúmm og ekki gat ég séð neina lampa til að gera þetta kannski huggulegra en svona er þetta.  Þær ættu kannski að fá Mörthu Stewart til að koma og gera MakeoverUllandi  Síðan skoðuðum við hreiðrið sem er staður fyrir konur að koma og hvíla sig á eftir fæðingu eða jafnvel fæða þarna en ekki er gert ráð fyrir að konur séu lengur en í sirka 24 tíma minnir mig en.  Þetta er svona eins og hótelherbergi queensize rúmm þannig að pabbinn getur líka verið þarna og kúrað litla krílið og konuna sína.  Því miður sáum við ekki fæðingarstofuna á hreiðrinu því þær voru báðar uppteknar það voru einhvejar kellingar að gjóta í báðum stofonum: Þ

Síðan sáum við líka sængurkvennagang sem er staður fyrir konur sem hafa kannski lent í keisara til dæmis og það var bara fróðlegt.  Annars var þetta mjög gaman maður komst kannski skrefinu nær þessum atburði þó það væri ekki nema í huganum.

Hér er fróleikur um barn á 34.viku

Nær öll líffæri barnsins eru fullþroskuð fyrir utan lungun. Barnið þjálfar sig af krafti fyrir öndun en þar sem ekkert loft er í leginu tekur barnið inn vökva sem veldur oft hiksta. Hár á höfði barnsins byrja oft að vaxa hér og barnið reynir að depla augnlokunum. Barnið sýnir sterk viðbrögð þegar það heyrir kunnuglegar raddir. Hér er barnið 43 cm langt og 2,3 kg að þyngd.

Því miður get ég ekki set inn myndir núna þar sem ég er ekki í réttu tölvunni til þess en ég lofa ég reyni að fara drífa mig í því.

Annars vil ég minna á að það er uppskeruhátíð HK-inga næsta laugardag 23. september sem verður haldin í HK heimilinu miðaverð er 1000kr,  húsið opnar 21:00 og skemmtun stendur til 02:00 og veigar á góðu verði og það verður DJ og trúbador og kynþokkafyllsti rauðhærði Kópavogsbúinn að afgreiða á barnum með brjálæðislega stinnann rass........(Davíð Þorsteinsson).  Þannig ég hvet alla til að mæta og fagna góðu gengi HK í sumar  og sýna sig og sjá aðra og drekka fullt af bjór fyrir mig því ég og litli ætla að vera heima að kúra og horfa á Despó eða eitthvað.    

Reyni að skella inn myndum um helgina síðan er bara næsta blogg á næsta Miðvikudag þá verða komnar 35.vikur,  ný vika byrjar reyndar að telja á þriðjudegi en égt ætla sammt að skrifa á miðvikudegi ég er líka að fara í mömmuskoðun næsta miðvikudag og þá fáum við að hlusta á hjartað í litla kút,  síðan er gaman að segja frá að eftir næstu skoðun fer ég hálfum mánuði seinna í næstu og síðan fer ég einu sinni í viku sem þýðir að það fer að styttast verulega í þetta.

Það er einnig gaman að segja frá hvað margir halda að ég sé búin að eiga,  svona kunningjar og svona sem maður heyrir sjaldan í þeir spurja mann "hva ertu búin að eiga" neibb ég er sett 31.október þá er það á hreinu:Þ


Sumarfrí : )

Jæja þá er ég komin í sumarfrí bara cill og ekkert stress,  ekkert planað annað en að undirbúa komu litla prinsinns og prjóna og hekla eins og brjálæðingur : Þ Ég ætla ekki að hafa þetta langt ég ætlaði bara að láta ykkur vita að ég ætla ekki að blogga næsta þriðjudag ég ætla að gera það á miðvikudag og þá set ég inn fullt af myndum + allt um heimsóknina á spítalann.

Bless í bili

ErlaSvalur


33.vikur

_lpa_sem_tobba_gaf_okkur_57661.jpg

Þá eruð það komnar 33.vikur hvorki meira né minna og spurningin " hlakkar þig ekki til" er farin að hljóma æ oftar og mitt alhliða svar við henni er jú auðvitað hlakka mig til en ég er sammt ekkert að deyja þetta gerist í lok okt og ég vil fá að klára september og síðan ætla ég að segja að mig hlakki ógeðslega til því miður á meðan það er ennþá september þá get ég ekki séð fyrir endanum strax en þegar 1. október kemur þá er óhætt að segja að ég muni byrja að sjá ljósin í endanum á göngonum og spenningurinn á eftir að magnast.

Annars hef ég það bara fínnt heilsuhraust og allur pakkinn ég á eftir að vinna í 2 daga síðan er bara adios vinna ég er farinn í sumarfrí.  Síðan gerðist doldið skondið um daginn ég og Davíð láum upp í rúmmi og hann setur eitthvað lag af stað sem hann er með í símanum sínum og leggur hann á bumbuna en ekkert gerist ekki spark ekki neitt okei þannig hann skiptir um lag og setur eitthvað rosa rapplag í gang og setur símann síðan á bumbuna og þá fer allt af stað byrjaði að sparka og snúa sér og bara læti það var allavega svaka stuð hjá litla kút hann fór að rappa í mallanum mínum.

Annars er það að frétta að ástkæra vinkona mín hún Aldís var að flytja til Köben  með Baldri ástarpungnum sínum þau ætla að vera þar framm yfir næsta sumar sem er eins gott því ég og Davíð erum búin að panta gistingu hjá þeim næsta ágúst,  september þá er draumurinn að skreppa helgarferð bara við skötuhjúin og kíkja að þau.

Hér er fróðleikur um barn á 33.viku 

 Lungun eru hér nánast fullþroskuð. Ef barnið er fætt nú þegar mun það líklega vera í súrefniskassa um tíma. Barnið er enn veikbyggt þó það hafi náð fullum þroska og er í þeim hlutföllum sem það er við fæðingu. Þyngd þess er 2,1 kg og lengd 42 cm.

Síðan er tími nr 2 á foreldranámskeiðinu í kvöld þá heldur fræðslan um fæðinguna áfram og þessi fræga slökunSkömmustulegur síðan eftir viku þá fáum við vonandi að sjá fæðingarstofu og ég segji vonandi því ég var að tala við yfirmanninn minn sem átti fyrir tæpu ári síðan og hún sagði mér að allar stofurnar hefðu verði fullar þegar hennar hópur átti að fá að skoða fæðingarstofu þannig allar kellur sem eiga að eiga eftir viku vinsamlegast haldiði fótunum ykkar lokuðum saman takkGlottandi

Síðan fór ég í hvalasund í gær sem var geggjað ég var reyndar ekki í tíma sem heitir meðgöngusund ég var í tíma sem heitir vatnsleikfimi en helmingurinn voru sammt óléttar konur og hinn gamlar konur.  En þetta var æðislega gaman og mikklu meira átak en ég bjóst við það er ekkert bara verið að fljóta á bakinu með bumbuna út í loftið ó nei.  Ég mæli alveg með þessu þetta er algert möst fyrir óléttar kvennsur.

Annars verð ég að hryggja ykkur á því að ég gleymdi að taka myndavélina með mér þannig í þetta skipti get ég ekki sett inn neinar myndir en ég reyni að gera það með næsta bloggi.

 

 

 

 

 


Foreldranámskeið og mömmuskoðun: Þ

Jæja þá var fyrsti tíminn á foreldranámskeiðinu í gær sem var bara mjög fínn það var fjallað um fæðinguna sjálfa og það verður líka gert næsta þriðjudag síðan 19. sept þá förum við í heimsókn upp á lansa að skoða fæðingarstofur og hvert maður á að fara það er eins gott að hafa það aá hreinu þegar maður er komin af stað að maður sé ekki villtur hehe.

Síðan í fjórða´tímanum þá verður kynjaskipt spjall.  Ég var nottla lllaannngg yngst þó við höfum nú kannski ekki verið yngsta parið sem slíkt,  en þetta var mjög fræðandi og gaman.  Síðan erum ég og Davíð stundum svo mikklir unglingar hehe málið er það að í lok hvers tíma á að vera svona slökun þá setur hún geisladisk af stað með ölduhljóðum og byrjar að lesa einhvern saminn texta með svona tón einsog hún sé búin að vinna hjá rauða torginu í 30 ár og allir eiga að slaka á enn við þurftum bæði að flissa svo mikið en við náðum stjórn á okkur sem betur ferUllandi

Síðan var mæðraskoðun í hádeiginu í dag og allt leit svona líka vel út við hittum okkar yndislegu ljósu sem er ekkert nema almennilegheitin uppmáluð og hún sagði að litli kútur dafnaði bara vel í mallanum mínu og hann væri í góðu atlæti.  Hún athugaði líka stöðuna á honum og vildi jafnvel meina að hann væri orðin lausskorðaður en það þýðir sammt að hann ´hefur sjens á að verða þrjóskur og snúa sér við eða leggjast á hlið eða gera bara það sem honum hentar en ég vona bara að hann haldi sér og færi sig bara neðar í grindina mína ég nenni ekki veseni hann á að vera góður við mömmu sínaSaklauser það ekki.

Síðan spurði ég hana hvort hún gæti fundíð út sirka stærðina á honum svona í mið okt með því að þreifa á bumbuni og hún sagði að hún gæti reynt það þó það yrði aldrei nákvæmt upp á hár en sagði líka að ef hún ætti að giska núna þá yrði hann svona 14-16 merkur sem er mjög góð stærð og telst í raunini vera meðal stærð.

Annars fer að styttast í þetta og ég sit eins fast á bremsuni og ég get því ef ég fer strax á stað í einhver undir búning what so ever þá er ég ekki viss um að ég geti stoppað mig og ég vil eiga eitthvað eftir í okt  en annars get ég í lok sept byrjað á óskalistanum(fæðingar og gjafa) síðan hafði ég hugsað mér að fá mömmu og Sæu frænku í að hjálpa mér í okt að þvo því ég er nottla svo mikill nýgræðingur og þetta þarf allt að vera gert eftir kúnstarinnar reglum sem ég kann ekki alveg nóu vel.

Annars er það að frétta að ég er að byrja í hvalasundi(meðgöngusundi) næsta mánudag hjá Birnu vinkonu tengdó mér hlakkar geggjað til þá fer ég tvisvar í viku í 1klst í keikó leik heheheUllandi 

Síðan næstu helgi er golffjölskyldumót hjá fjölskylduni hans Davíðs  þar sem þau eru hard core Glottandigolfarar en ég og Hnoðri ætlum að bara að fara í sér voffagolf og leika.

Annars hef ég ekkert meira að segja í bili þannig næsta blogg verður næsta þriðjudag og þá eru 33.vikur og kannski myndir frá helgini you never know.

ErlaSvalur

 

 

 


32. vikur.......

30_vikur.jpg

Jæja sökum anna og leti þá hef ég ekki haft tækifæri á að setja inn færslu fyrir 31.viku þannig ég set bara 32.viku inn snemma en hún byrjar sammt ekki fyr en á þriðjudaginn.  Þið verðið að afsaka þetta þars sem tölvu aðgengi er ekki eins hentugt og var þegar maður bjó hjá tengdó þannig maður þarf að gera sér sérferð í þetta þið skiljið.

 Allavega við höfum það bara ágætt litli prins er orðin doldið plássfrekur og er byrjaður að ýta stundum í rifbeinin á mér og stundum ef ég sit þá getur komið ákveðin þrýstingur á einhverja æð þá er orðið doldið erfitt að anda og hjartað fer að slá óreglulega og ef ég passa mig ekki þá getur liði yfir mig.  Þetta er sammt ekkert óeðlilegt þannig séð því nú er komið á enda sprettinn og hann tekur meira pláss með hverjum cm sem hann stækkar sem þýðir það að líffærin mín fara að búa við ákveðin þrengsli.  Þetta sagði læknirinn við mig og ég á að taka því rólega en aftur á móti ef þetta hedlur áfram þá á kannski að setja mig í hjartalínurit  en það er engin ástæða til að panica svona er bara að vera óléttBrosandi

Ég ætla með þessari færslu að sitja inn nokkrar nýjar myndir og bumbumynd sem var tekinn á 30.viku.

 Annars fórum ég og Davíð á árshátið á núna á laugardaginn hjá Agli Árnasyni sem bauð öllum á Hótel Flúðir í eina nótt og 3 rétta dinner sem var alveg geggjaður annars var ég nú bara rétt yfir mattnum og aðeins lengur síðan fór ég bara að kúra mig og litla prinsinn.

 

Hér er fróðleikur um barn á 32.viku 

 Heilinn heldur áfram hröðum þroska. Húðin breytist talsvert og verður barnið nú feitara en áður og svonefnd barnafita sest á það. Dúnmjúku hárin sem umluku barnið meðan húðin var að þroskast fara að hverfa. Bein halda áfram að styrkjast og vaxa og krefst sá þroski mikils magns af kalsíum. Barnið er hér 1,9 kg að þyngd og 40,5 cm að lengd.

Annars ætla ég að deila með ykkur að ég er búin með teppið ég á bara eftir að taka mynd af því það fylgir því miður ekki þessum mynda skammti.

Síðan er það að frétta að næsta mæðraskoðun er næsta miðvikudag eeennnn FORELDRANÁMSKEIÐIÐ byrjar næsta þriðjudag þá er sem sagt fyrsti tíminn hann verður einu sinni í viku út september alla þriðjudaga í tvo tíma og við erum að pissa á okkur úr spenningi við fáum til dæmis að sjá fæðingar stofu og fleira. Annars stefni ég á það að blogga næsta miðvikudag og læt ykkur alveg vita hvernig fyrsti tíminn var.

 

Þanngað til næst.

ErlaSvalur


30.vikur

toffarabolur_sem_eg_keypti.jpg

Jæja þá eru það komnar 30.vikur frá og með morgundeginum 22/08/06 sem þýðir að ég á lágmark 8.vikur eftir  sem er ekki upp í nös á ketti.

Pakkinn er komin frá Swerige og ég og Davíð þökkum kærlega fyrir okkur þetta kemur okkur að góðum notumHlæjandiKoss

Annars er allt gott að frétta heilsan mín hefur verið góð hvorki ég né Davíð höfum nælt okkur í pestina sem er að ganga annars er ég komin með rosa bakverki á milli herðablaðana sem er vikrkilega óþægilegt þar sem að þeir eru vestir þegar ég sit eða ligg Óákveðinnbömmer enn ég er að fara hitta ljósu á Fimmtudaginn og þá sjáum við til hvað hún segir.  Annars eru öll ráð vel þegin.

Síðan fer að styttast í sumarfrí og við vorum að velta því fyrir okkur að fara dagsferð út á land fara á Þingvelli og Vík í Mýrdal t.d. sem er bæ ðe vei uppáhalds staðurinn minn á Íslandi fyrir utan Afa sveit.

Það er bara svo hrikalega fallegt þarna þessi fjara er bara svo flott.  Síðast þegar við fórum svona dagsferð þá fórum við á Gullfoss og Geysi og Vík með smá stoppi á Hellu og það var yndislegur dagur við lögðum á stað um hádeigi og vorum að koma heim umm eitt leytið þá var skriði beint upp í rúm og stein rotast.  Stoppið á Vík var sammt lang skemmtilegast við löbbuðum alla leið niður í fjöru og vorum þar í örugglega klukkutíma og það voru svo mikil læti í öldunum og briminu en sammt var allt eitthvað svo hljótt og friðsælt,  við sáum líka helling af Lundum Davíð til mikkilrar ánægju.

 

Hér er fróðleikur um barn á 30.viku 

 Barnið fyllir nú út í nær allt legið. Ef barnið er ekki að hreyfa sig situr það venjulega með hendur upp með líkamanum og hausinn uppréttan. Barnið mun þó bráðlega skorða sig í endanlegri stellingu fyrir fæðinguna og staðsetja sig með höfuðið niður á við og lappirnar upp. Heilinn þroskast hratt um þessar mundir og þjálfar um leið augnlok og lungu svo allt sé til reiðu þegar barnið kemur í heiminn. Lengd barnsins er nú 37 cm og þyngd 1,5 kg.

Annars hefur litli prins það bara gott hann er duglegur að sprikkla og tekur stundum alveg góðar rispur og tekur snúninga og kollhnísa eins og honum væri borgað fyrir það.

Lengra ætla ég ekki að hafa þetta að sinni ég fer að reyna að smella inn bubumynd of leiri myndum.

 

ErlaSvalur

 


29.vikur

myndir_047.jpg

Já það eru 29.vikur á morgun þriðjudaginn 15.ágúst ég ætla sammt að blogga um það núna þar sem ég veit að ég hef ekki tækifæri á því á morgun.

Það gengur allt rosalega vel ég er sammt búin að vera pínu þreytt undan farið en allt innan eðlilegra marka,  nú er prinsinn og bumban orðin það stór að það er hægt að finna fyrir litla prinsinum þegar maður potar í bumbuna.  Davíð fékk að finna um daginn og honum fannst það alveg æðislegt.  Síðan er ég búin að fá staðfest hvenær ég hætti að vinna síðasti vinnudagur er semsagt 15. sept en þá byrja ég eiginlega í sumarfríi sem nær framm í miðjan okt og þá er hvort sem er orðið fínnt að hætta þannig það má segja að 15.sept sé ég bara hætt að vinna.

Ég hef ekkert planað hvað ég ætli að gera í sumarfíinu sem er bara allt í lagi ég ætla að láta það ráðast, en ég hugsa sammt að stefnan verði sett á að hugsa vel um sjálfan sig fara oftar í sund,  rækta fjólskyldu og vinabönd og tala nú ekki um að rækta ÁSTINASkömmustulegur síðan þegar líða tekur á október þá þarf maður að byrja undirbúa komu litla Dave þvo og strauja,. setja upp rúmm versla krem  og allt þetta lilta dót sem barnið þarf,  skrifa óskalista,  skrifa óskalista fyrir fæðingu,  klára teppið sem ég er nú langt komin með.

Að hugsa sér eftir viku þá er lámark 8.vikur í að sonur okkar fæðist mér finnst það bara ekkert langur tími ég væri svo sum alveg til í að það væri styttra í þetta en ég veit að biðin borgar sig.

 

Hér er fróðleikur um barn á 29.viku 

 Barnið fer nú að heyra betur og betur. Barnið getur greint raddir og hljóð og sagt er að hjarta barnsins slái hraðar en ella þegar það heyrir rödd föður síns eða móður. Einnig er sagt að tónlist sem barnið heyri í móðurkvið komi það til með að muna eftir fæðingu og á það að sjást best á því að barnið stoppar við til að hlusta á tónlist sem það heyrði í móðurkvið. Barnið er að þyngjast um 200 grömm á viku en vex aðeins um nokkra millimetra í stærð. Núverandi stærð þess er 36 cm á lengd og 1,3 kg á þyngd.

Annars er ég að fara í hvalaskoðun á miðvikudaginn með litlu frænku minni við ætlum að reyna aftur þar sem ferðini var aflýst sýðast vegna verðurs þá mun ég reyna að taka eitthvað af myndum sem ég set þá næstu helgi hérna inn áþá kannski splæsi ég á eina bumbumynd eða svoGlottandi

Þanngað til næst

ErlaSvalur

 

 

 


28.vikur

vika28_1.jpg

Jæja þá er ég kominn 28.vikur og allt svona líka fínnt ég var í mæðraskoðun í dag og allt leit svona líka vel út,  hún vill reyndar að ég breyti vinnutímanum ég vinn allt of mikið í senn hún vill að ég vinni færri tíma á dag sem er allt í lagi ég á eftir að tala við yfirmanninn minn um það.  Svo vill hún fá þvag sýni því að ég er búin að vera með smá ónot neðst þar sem legið er svona eins og þrýsting hún ætlar bara að útiloka sýkingu vonandi er þetta ekkert.  Maður er nú sammt farin að finna fyrir að maður er sko ekki einsamall því ég er farinn að finna pínu til í bakinu en það er svo sum lítið hægt að gera í því nema fara vel með sig.

Síðan spurði ég ljósuna hvort hún gæti fundið hvernig hann liggur í bumbuni og hún athugaði það þá snýr hausinn niður og hann er með bakið til vinstri og hún lét mig þreifa líka þannig ég fann fyrir hausnum sem var ÆÐI en þetta getur nú sammt verið fljót að breytast því þessi kríli geta farið á flegi ferð ef þau ætla sér það og þá breytist hvernig þau liggja.

Síðan er fer bráðum að styttast í foreldranámskeiði  ohh hvað mig hlakkar til.  Mig minnir að það byrji 5 eða 6 sept.

 Hér er fróleikur um barn á 28.viku.

 Lungun nálgast nú fullan þroska. Hreyfing öndunarfæra eru nú í takt og spila vel saman. Ef barnið er karlkyns færast eistu niður í pung; ) Barnið er nú 35 cm langt og 1,15 kg.

 Þar hafið þið það.

Ég læt fylgja 3d mynd með af barni á 28.viku( ekki okkar ; )

Þanngað til um helgina.....

 ErlaSvalur

 


27.vikur

Jæja sæl öll sömul þið verðið bara að afsaka seinganginn í mér það er búið að vera brjálað að gera þessa viku og ég hef ekki haft nein tíma til að blogga.

Annars er allt gott að frétta af mér ég hef reyndar verið orkilítil en það fylgir þessu bara.   OHHH síðan er litli prinsinn farinn að taka meira pláss og farinn að þrýsta á pissublöðruna mína þannig mér er alltaf mál,  hann er að verða plássfrekurHlæjandiAnnars er hann bara í fullu fjöri.  Síðan er ég að fara í mæðraskoðun næsta miðvikudag,  þá fæ ég að hlusta á hjartað AFTUR jeij en því miður kemmst ekki Davíð með mér því  það er svo fáliðað í vinnuni hans að hann kemmst ekki frá en það er nú enginn heimsendir hann kemur bara næst.

Ég gerði ekki rassgat í bala um verslunarmannahelgina eða þannig ég fór allavega ekkert út úr bænum ég kíkti í eitt partý á laugardeginum fór síðan bara heim að sofa og síðan vinna,  mér dauðlangaði sammt að fara til Galtalækjar því amma og Kristján eru með bústað þar þannig við hefðum ekki þurft að gista í tjaldi það er líka svo kósí þarna. 

Síðan varð pabbi 50ára 3. Ágúst og við fórum hópur út að borða á Tvo Fiska og fengum þar alveg geggjaðan mat,  við byrjuðum á hörpuskel í forrétt síðan fengum við fiska þrennu á aðalrétt lax,  þorsk og lúðu,  síðan í desert fengum við skyrbúðing.  Þetta var algjört nammi eftir matinn var pabbi boðið surprise upp á hótelið sem ég er að vinna í gistingu.  Þar gistu mamma og pabbi eina nótt og fengu morgunmat í rúmmið og alles.

Hér er fróðleikur um barn á 27.viku

Íþessari viku mun himnan sem hulið hefur augu barnsins fram til þessa opnast lítið og mynda þannig augnalok. Byrjar nú sá tími þar sem barnið getur greint hluti með sjón sinni. Á þessum tíma eru augu barnsins í flestum tilvikum blá og taka á sig endanlegan lit nokkru eftir fæðingu. Augnlokin og augabrúnir eru einnig mótuð. Þyngd barnsins er nú 1 kg og hæð þess 34 cm.

síðan eru það bara 28.vikur næsta þrðjudag en ég blogga ekki fyr en á miðvikudag.

Þangað til næst.

ErlaSvalur

 


26. vikur

26vikur.jpg

Jæja þá eruð það komnar 26.vikur allt að gerast búin að flytja og koma okkur fyrir ohh þetta er rosa kósí að vera kominn með okkar eigin íbúð ég neita því ekki.

Ég viðurkenni það nú að ég var ekki nógu dugleg að taka myndir en tók sammt örfáar.

Mér líður annars bara vel ég er að fara út að borða með vinnuni í kvöld sem verður vonandi geggjað,  ég set líka inn eina mynd eða svo sem Davíð tók af mér í dag með bumbuna út í loftiðBrosandi

Annars ætla ég ekki að hafa þetta lang í dag það er nó að gera hjá mér.

Hér er fróðleikur um barn á 26.viku 

 

Barnið byrjar að dreyma um þetta leyti. Lungnapípur byrja að þroskast en lungun verða þó ekki fullkomlega þroskuð fyrr en eftir fæðingu. Frá og með þessum tímapunkti dregst notkun legkökunnar talsvert saman og vökvar í leginu breytast eftir því sem barnið vex. Barnið er nú 33 cm að lengd og 850 grömm.

Jæja show must go on ég þarf að rjúka út það er útréttinga dagur í dag:)

 

ErlaSvalur


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

184 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband