25.6.2006 | 23:28
Gullkorn
Jæja ég held ég geti fullyrt að eian manneskjan sem vildi ekki vita veit núna þannig ég get skrifað núna hvað kynið er jú þetta er strákur JJJEEEIIJJJ.
Fyrir mæður drengja
Drengir eru breytilegir að stærð, þungd og lit þeir eru alls staðar- uppi á öllu og niðri á öllu, klifrandi, hlaupandi og stökkvandi.
Mæður elska þá, eldri systur og bræður umbera þá og drottinn verndar þá. Drengur er sannleikur með óhreinindi í andlitinu, viska með tyggigúmí í hárinu og von framtíðar með ánamaðk í vasanum.
Drengur hefur matarlyst eins og hestur, meltingu eins og sverðagleypir, orku eins og vasaatómsprengja, rödd eins og einræðisherra.
Hann er græddur forvitni kattarins, ímyndunarafli skáldsins, feimni fjólunar, viðbragðsflýti veiðibogans, funa flugeldsins, og þegar hann býr eitthvað til hefur hann fimm þumalfingur á hvorri hendi.
Hann kann vel að meta rjómaís, hnífa, sagir, myndabækur, skóga, vatn (í sínu náttúrulega umhverfi), stór dýr, pabba, bíla, laugardagsmorgna og brunabíla.
Hann er lítið fyrir sunnudagsskóla, barnaskóla, myndalausar bækur, spilatíma, hálsbindi, rakara, stelpu, frakka, fullorðna eða háttatíma.
Enginn er eins árrisukk, og enginn eins síðbúin til matar og hann. Enginn nema hann getur troðið í einn vasa ryðguðum hníf, hálétnu epli, þriggja feta snærisspotta, þremur blossateinum, tuttuguogfimmeyringi, vatnsbyssu og dularfullu áhaldi sem enginn þekkir nema hann. Drengur er sannkölluð töfravera- þú getur lokað hann úti úr vinnustofunni þinni, en þú getur ekki lokað hann út úr hjarta þínu.
Þúgetur fengið hann burt úr skrifstofunnu þinni, en þú getur ekki fengið hann burt úr huga þér.
Það er ein gott að gefast upp strax- hann er fangavörður þinn, húsbóndi og herra-freknóttur ólátabelgur. En þegar þú kemur heim á kvöldin með allar borgir vona þinna og drauma hrundar, getur hann reist þær aftur með tveim töfraorðum -HALLÓ MAMMA
Þetta er smá lýsing eða hugmynd um hvernig litlir strákar geta verið.
Héðan er alltg gott að frétta ég ætla dæla inn nýjum myndum ásamt bumbumynd sem er 21vika og 5 dagar semsagt á þriðjudaginn er komnar 22.vikur eða 5 og hálfur mánuður.
Sæl að sinni
Erla
21.6.2006 | 22:45
21.Vika
21.vika þetta er allt að rúlla áfram ég var í mæðraskoðun í morgun og það kom allt mjög vel út við heyrðum hjartsláttinn sem er geggjað, litli púkinn minn sparkar í mig á fullu þannig það er nó að gera.
Sumarið virðist ætla að byrja að birtast hér loksins en það er spurning um hversu lengi það endist hhhmmmm....Annars er ég búin að vera doldið sibbinn núna síðastliðnu tvo daga það er líka ástæðan fyrir því að ég blogaði ekki í gær sem er allt í lagi.
Við höfum verið að segja vinum og vandamönnum kynið og það eru skondin viðbrögð frá eldra fólkinu sem talar stundum við mann eins og það hafi skift okkur ÖLLU máli hvort kynið það er. NEI það gerir það ekki auðvitað gerir maður sér fullkomlega grein fyrir því að númer 1.2 og 3 er að það sé í lagi heilsulega séð en ekki hvað en það er ekki þar með sagt að það sé ekki gaman að velta fyrir sér kyninu
Hér er fróðleikur um barn á 21.viku
Dúnmjúk hár umlykja nú allan líkama barnsins. Þetta lag hára mun vernda barnið næstu 3 mánuði frá ákveðnum efnum í vökvanum sem umlykur barnið. Lagið mun síðan leysast upp og hverfa áður en kemur að fæðingu. Þó mun svolítið verða eftir sem kemur til hjálpar og gerir barnið sleipt sem auðveldar fæðinguna. Barnið er nú 24 cm á lengd og 450 grömm.
Við fórum í brúðkaup þann 17.Júní hjá vini hans Davíðs það var rosalega fallegt það var í fríkirkjunni í Reykjavík þannig brúðhjónin fengu rosa athygli þegar þau löbbuðu út úr kirkjunni. Ég reyndi að vera algjör pæja búin að kaupa geggjaða sumarskó gullitaða flatbotna skó og ég meina KOMMON þetta á aðð vera solid þeir eiga ekki að meina mann en NEIIII maturinn var ekki byrjaður í veislunni og ég var að DEYJA OOOHHH ég brunaði heim þegar maturinn var búin og skipti um skó mmm það var svo næs.
Ég var líka sniðug og skilaði skónnum í dag það sást hvort sem er ekkert á þeim en allavega ég ætla að vera leiðinleg og ekki hafa þetta lengra næsta blogg???
Af sökum batterísleysis í myndavélum kemur bumbumynd seinna, mynd af því sem amma keypti og sónar myndir, en læt fylga 3d mynd af barni á 21.viku ekki okkar.
Erla
19.6.2006 | 03:52
Mér leiðist
OOHHHH ég er á næturvakt í vinnunni og mér leiðist svo við er búin að gera allt sem þarf að gera í bili og klukkan er 03:45 bbboooorrriiinnngggg.
Annars ætlaði ég að koma því á framfæri að ég ætla að setja inn sónarmyndirnar næsta þriðjudag með 21.vikunni og myndir af fötunum sem tilvonandi langamma keypti á Kanarí sem eru í hlutlausum lit taka það fram, og það er aldrei að vita nema maður skelli einni bumbumynd með.
Síðan er mæðraskoðun næsta miðvikudag og þá fáum við að heyra í hjartanu hjá litla púkanum okkar JEEIIIJJJ
Kveðja Erla
15.6.2006 | 17:45
VIÐ VITUM KYNIÐ
OHHH þetta var yndisleg stund að sjá litla krílið okkar í sónar í morgun. Jú við vitum kynið en eins og ég hef áður sagt þá mun ég ekki skrifa það hér niður þannig að þeir sem vita það taka tillit til þess ef þeir skrifa inn athugasemdir
Þetta var rosa munur frá því í síðasta sónar þvílíkt búið að stækka og fylgjan liggur aftaná sem þýðir það að auðvelt er að finna fyrir spörkum og hreyfingum fyrir mig allavega í bili það er smá í að aðrir geta fundið fyrir því. Barnið mitt er nú orðið 25 cm og á þessum tímapunkti er talið að það sé helmingur stærðar sem það á eftir að fæðast.
Áætlaður fæðingar dagur stenst en 31.október jeij. Síðan næsta miðvikudag fer ég í aðra mæðraskoðun þá fæ ég að hlusta á litla hjartað aftur jeij.
Vá samt ég veit það allt í einu, kynið, ég sé ALLS EKKI eftir því að fá að vita ég er bara búin að vera að bíða í 8 vikur eftir því og síðan PÚFFFF ég veit það bara sí sona það er skondin tilfining en góð.+
Persónulega fyrir mig mundi ég núna segja að meðgangan sé að byrja kúlan stækkar ört og hreyfingar og spörk verða sterkari með hverri viku.
jæja ekki meira í bili ég er farin á mínu "bleika" skýji þanngað til næst.
Kveðja Erla og litla kríli
14.6.2006 | 00:06
20.vikur
Jæja .á 20.vikur og áður en maður veit af er barnið komið þetta líður svo hratt. Jú ekki á morgun heldur hinn fáum við vonandi að vita kynið það veltur á því hvort lilta krílið okkar verði ekki örugglega í ljósmyndastuði til að sýna okkur the privat parts.
Héðan er allt það besta að frétta Davíð gengur betur og betur með hverjum deginum í vinnuni þá meina ég að hann er farinn að selja meira og meira sem er gott því að sölumannastarfið sem slíkt er nýtt fyrir honum. Ég þarf orðið að panta tíma til að tala við hann það er bara HM öll kvöld(nei grín) en jú þau eru öll kvöld og það er bara allt í lagi ég hef ekkert á móti þessu þetta er nú ekki það oft þennig mér finnst hálf barnalegt ef kvennmenn ætla að fara að skæla mikið út af tímanum sem karlmenn eyða í þessa keppni.
Ég var að vafra um netið um daginn og rakst á þessa skemmtilegu gullkorn sem ég tók níður og það sem ég hef skrifað er bara brot af því sem égfann þannig það kemur meira. Ég hef verið heilsuhraust ég finn þó að mjaðmagrindin er farin að segja til sín þegar maður er t.d. að labba upp stiga eða búin að standa lengi en ekkert alvarlega allt á eðlilegu nótonum. Ég hef samt ákveðið að leggja inn líkamsræktarkortið setja pásu á það því það er orðið lítið sem ekkert sem ég get og orðið má gera þar þannig ég ætla að fara að stunda meira sund og jafnvel seinna kannski júlí ágúst fara í meðgöngujóga við sjáum til, það er allavega heryfingar sem er góðar fyrir mig og barnið og lætur mér líða betur eins og í mjaðmagrindinni.
Hér er fróðleikur um barn á 20.viku
Vöðvar barnsins styrkjast með hverjum deginum. Lappirnar eru í réttum hlutföllum við líkamann frá og með þessum tímapunkti. Hreyfingar barnsins verða nú enn flóknari og líkari fimleikum en áður. Þessar hreyfingar verða líklega daglegt brauð og þá sérstaklega þegar móðirin leggst út af. Barnið vex hratt og er nú um helmingur af þeirri stærð sem það verður í við fæðingu en aðeins um 12% af þeirri þyngd sem þá verður. Nú er barnið um 22,5 cm langt og 380 grömm.
Boðorðin 10 fyrir foeldra.
- Meta skaltu börnin þvín eins og þau eru ekki eins og þú vilt hafa þau.
- Líta skaltu á sérhvert barn sem sjálfstæðan einstakling en ekki sem krakkan"
- Þú skalt sinna þér vel en ekki lifa lífinu í gegnum börnin þín.
- Taka skaltu eftir öllu sem vel er gert, hvort sem það er stórt eða smátt og viðurkendu það.
- Láttu börnonum þínum té óyggjandi upplýsingar af fremsta megni og treystu þeim til að vega þær og meta og draga af þeim eigin ályktanir.
- Þú skalt ekki láta börnin þín nota þig eða misnota þig því slíkt skaðar þau.
- Þú skalt fela börnum þínum ábyrgð hvenær sem færi gefst á svo sjálfstæði verði þeim ekki um megn, því börn eru skammtímalán.
- Gera skaltu börum þínum ljóst að þú elskar þau án þess skilyrða, hvort sem ákvarðanir þeirra falla þér í geð eða ekki.
- Gefðu börnum þínum ráðrúm til að gera sér grein fyrir afleiðingum gjörða sinna í stað þess að halda yfir þeim hlífskildi endalaust.
- Þú skalt gleðjast innilega þegar forsjár þinnar er ekki lengur þörf því þá og aðeins þá hefurðu haft árangur sem erfiði.
Jú þar hafið það , okkur hlakkar ROSALEGA til á fimmtudaginn en eins og ég segji það er sá möguleiki til staðar að krílið vilji ekki sína okkur the thing" en við gerum ekki ráð fyrir því þannig ég mun skrifa ltinn pistil á fimmtudaginn sem segir hvort við vitum eða ekki en ég mun ekki skrifa inn hvort kynið það er af virðingu fyrir þá sem vilja ekki vita en það eru til símar þannig ykkur er frjálst að senda sms eða hringja ef þið eruð spennt, nú vitið þið ekki síman hjá mér eða Davíð greyið þið
Amma var að koma frá Kanarí og kom heim færandi hendi með smá pakka fyrir krílið sem ég mun taka mynd af og sitja inn á síðuna en það eru örlitlir tæknilegir örðuleika í gangi þannig það kemur ekki inn strax og heldur ekki bumbumynd. Bumbumynd gæti komið inn eftir viku síðastalagi 2.vikur.
Ég heurði skemmtilega kenningu um daginn að ég vissi að þetta væri stelpa því síðan heitir kleopatra7 NEI ekki satt nafnið á síðnu var slys því það var svo óljóst hvar ætti að fylla út nafnið á síðnu og ég hélt að þetta yrði svona notendanafn til að skrá sig inn til að geta bloggað. Svo vet maður aldrei hvað fimmtudagurinn leiðir í ljós.
Ég læt fylga með sýnishornamynd af barni á 20.viku
Love you all
Erla
11.6.2006 | 21:54
Gullkorn
Afa og Ömmu boðorðin tíu
- Þú skalt alltaf vera að knúsa og kyssa barnabarnið þitt.
- þú skalt gefa því ótakmarkað af kökum.
- þú mátt ekki gleyma að kyssa á öllbáttin.
- þú skalt alltaf vera í sambandi--í eigin persónu, símleiðis eða með pósti.
- Þú skalt deila góðum minningum og sögum.
- Þú skalt alltaf vera tilbúin með nammiskálina.
- Þú skalt verðlauna góðar einkunnir og íþróttasigra.
- Þú skalr leyfa því að vaka lengur en háttatími segir.
- Þú skalt vera örlát/ur á lof og hrós.
- Þú skalt segja því við hvert tækifæri sem gefst að þú elskir það.
Amma
Ömmur hafa ekki neitt að gera, þær eru bara til. Þær segja aldrei flýttu þér nú, eða haltu áfram. Flestar ömmur eru feitar en þó ekki svo feitar að þær geti ekki reimað skóna manns. Þær geta sagt manni allt sem manni langar að vita, eins og afhverju hundar hata ketti og afhverju Guð er ekki giftur. Ef þær lesa fyrir okkur hlaupa þær aldrei yfir neitt. ömmur eru þær einustu sem hafa tíma fyrir aðra.
Afi
Afa hafa oft mikið að gera, en hafa samt næstum því alltaf tíma til að leika við mann, þá láta þeir oft eins og algjörir kjánar, og leyfa manni að gera næstum því allt sem mann langar til að gera. Mamma segir að afar geri börn óþæg. Margir afar þurfa aldrei að greiða sér það er af því að þeir eru með svi lítið hár. Afar eru oft að kenna manni hvað fuglar og fjöll og svoleiðis heitir.
EF KARLMENN GENGU MEÐ BÖRNIN.
- Væri barneignafrí á fullum launum lágmark tvö ár
- Væri búið að finna lækningu við appelsínuhúð
- Væri náttúruleg fæðing úrsögunni
- Væri morgunógleði talið helsta heilsuvandamál þjóðarinnar
- Væri árangur getnaðarvarnapilla 100%
- Væri börn geymd á spítalanum þangað til þau kynnu sjálf að fara á kopp
- Væru menn æstir í að binda sig.
- Væru tvíburar ekki svona rosalega krúttlegir í þeirra augum
- Yrðu synir að vera komnir heim af stefnumótum klukkan tíu á kvöldin
- Væru skjalatöskur notaðar sem bleyjugeymsla
- Væru óléttuföt helsta tískuframleiðsla heims
- Væru þeir rúmliggjandi alla níu mánuðina
- MYNDU KONUR STJÓRNA HEIMINUM.

Kveðja Erla

6.6.2006 | 23:11
19.vikur
Þá eru það 19.vikur og styttist hratt í næsta sónar semer 15.júní kl 8:15 Ó MÆ GOD ég er að spræna í mig af spenningi.
Annars er allt gott að frétta ég fór í Galtalæk á laugadaginn og gisti eina nótt við vöknuðum síðan á sunnudaginn og málðuð bústaðinn ég, mamma og Sæunn á meðan Ólöf Soffía og Arni höfðu ofan af Hnoðra hundinum sem tengdó á. Davíð kom síðan seinni partinn og við grilluðum dýrindis kálfasteik mmmm með kartöflum og gúmmelaði síðan var fondú í desert ég skar niður ávexti bræddi súkkulaði og síðan var þetta fræst upp mæli með þessu.
Þar sem að það fer að styttast í sónar þá styttist í það að við fáum að vita kynið. Við höfum ákveðið það í sameiningu að fá að vita kynið þar sem við erum hrillilega spennt og forvitið fólk, hafi einhver á móti því skal hann vinsamlegast halda því fyrir sjálfansig ég þoli ekki þegar fólk spyr :ætli þið að vita kynið? ;já ;æji afhverju það er svo gaman að vita það ekki það er svo mikið surprise þegar það fæðist. HEY hættið þessu gamaldags hugsunathætti að þetta eigi maður ekki að vita mér finnst alveg jafn sjálfsagt að fá að vita kynið og ekki að vita það þannig er það bara í dag. Einhvertíman langt inn í framtíðinni ef og þegar ég verð ólétt aftur þá myndi ég freker sleppa því að vita kynið.
Hér er fróðleikur um barn á 19.viku
Nú taka tennur að myndast. Fyrst verða til vísar að fullorðinstönnum sem eru ofar en barnatennur. Framar fullorðinstönnum eru barnatennur sem myndast á næstu dögum. Barnið verður á þessum tíma mjög mikið á hreyfingu, spyrnir fótum, hristir sig, og reynir á þol kviðarins með bæði höndum og fótum. Barnið sefur einnig mikið eða um 20 klst á dag en á það til að vakna einmitt þegar móðirin ætlar að hvíla sig. Barnið er nú orðið um 21 cm á lengd og um 270 grömm.
Við erum líka með smá test sem við ætlum að athuga hvort við getum gert þegar við förum í sónar. Við ætlum að biðja ljósuna að halda sónartæki kyrru á einum stað þannig við sjáum sem mest af barninu og Davið kemur síðan að maganum og segir eitthvað og síðan sjáum við viðbrögðin á skjánum það verður geggjað
Éghef að öðru leiti verið mjög heilsuhraust ég er búin að reyna að fara aðeins í ræktinsa en það gengur brösulega því um leið og ég byrja að reyna á mig þá fer ég að fá verki í mjaðmagrindina en þá þarf ég að taka því rólega en það er bara svo skrítið og asnalegt að vera í ræktinni og maðurinn við hliðinni á manni þarf að skúra upp eftir sig svitann því hann tekur svo á en ég er bara chillin á hjólinu skondið.
Jæja það verður ekki meira í bili ég tæla að láta mynd fylgja með sem er af barni á 19.viku Ekki okkar þetta er bara til að sýna ykkur hvernig það getur litið út þetta er þrívíddar mynd.
Erla
31.5.2006 | 23:51
Barn sem fæðist í sporðdrekamerkið.
Ég fann hérna litla grein þar sem það er fjallað um börn sem fæðast inn í ákveðið stjörnumerki, þetta er áhugavert fyir þá sem trúa á svona.
24. október- 21. nóvember. Sporðdreki.
Þegar barn í sporðdrekamerkinu lítur dagsins ljós beinast öll augu að því. Og barnið heldur þeirri athygli í langan tíma því það þarf mikla athygli. Foreldrar meiga búast við því að heyja valdabaráttu við litla sporðdrekann því hann ætlast oftar en ekki til þess að pabbi og mamma séu boðin og búin þegar hann þarfnast einhverns(ekki 5 mínútum síðar).
Þetta er kraftmikið barn og foreldrar þurfa að vera á verði því þau eru snillingar í að fá fólk til að snúast í kring um sig og nota til þess alls kyns kænskubrögð. Uppeldi sporðdrekans getur skipst í tvö horn því þó hann sé ráðríkur, skapstór og þrjóskur getur hann einnig verið blíður og elskulegur. Það borgar sig ekki að skipa honum fyrir eða ætla að ráðskast með hann. Þó slíkar uppeldisaðferðir séu óhentugar fyrir öll börn geta afleiðingarnar orðið sérsatklega slæmar þegar sporðdrekinn á í hlut. Hann getur l okað á umhverfið, dregið sig inn í skel og orðið stífur og jafnvel árásargjarn.
Foreldrar þurfa að fylgjast með tilhneiginu litla drekans til að byrgja in reiði. Best er að fá hann til að opna sig með því að tala við hann í ró og næði. Sporðdrekar eru mjög næmir á umhverfið sitt og því er mikilvægt að umgangast þá með varúð og hreinskilni. Sporðdrekanum er illa við yfirborðsmennsku og fals og missir auðveldlega álit á þeim sem ekki koma heiðarlega fram við hann.
Þetta er auðvitað enginn heilagur sannleikur en fyrir þá sem trúa á stjörnumerki þá er þetta svona hlutir sem hægt er að styðjast við. Og skítt með stafsettningar villur ég var að flýta mér var að missa af l Word.
Erla
30.5.2006 | 00:04
18.vikur
Jæja þá er komið að 18.viku, vikurnar þjóta burt frá manni jahérna.
Ég og Davíð erum búin að ganga frá kaupsamningnum á íbúðinni þannig nú er ekkert eftir nema bið og síðan að flytja, núverandi eigendur sögðu að þau væru að stefna að fara út ú íbúðinni í júlí þannig nú bíðum við bara og sjáum.
VÁÁÁÁ það er ekkert smá vesen að kaupa íbúð common ég geri mér nú grein fyrir því að það sé ekkert eins og að hlaupa út í 10-11 og kaupa sér kókómjólk en VÁÁ. Sko við fórum upp á fasteignasölu til að gera kaupsamninginn með núverandi eiganda og lögfræðingi fasteignasölunar og kaupsamningur er plagg sem lögfræðingur þarf að lesa yfir til að passa upp á að allt sé í lagi svo það klikki ekkert okei.
Hann rétti okkur A4 blað sem stóð á hitt og þetta og hann las hvern bókstaf og tölustaf fyrir sig okei, síðan segir hann jæja síðan snúum blaðinu við......Ó MÆ GOD sú blaðsíða var þakinn ýmsum ákvæðum sem hann þurfti að lesa yfir og letrið var svona stórt þannig ég hallaði mér aftur því ég sá framm á að sitja þarna í 1 klst í viðbót úúfff þegar við loksins fórum voru komin rassaför í stólana.
Annars er allt gott að frétta Davíð byrjar í nýju vinnunni 1. Júní og það þýðir Erla Þarf að fara taka strætó takk fyrir okei málin eru þannig mér finnst ekki kvöð að taka strætó, sitja í strætó hlusta á útvarpið, stara út um gluggan, velta fyrir sér vitleysingunum sem taka strætó þar á meðal ég tíhíhíh nei án gríns það getur verið margt furðuleg fólk sem tekur strætó. Ég lenti t.d. einu sinni í því að ég var að taka strætó búin að borga ætla að skunda inn í vagninn en þá sat ein manneskja í öllum 2 manna sætunum og nú var bara að velja, þannig ég valdi sæti við hliðina á heldri konu ég hefði betur geta sleppt því, greyið konana hún vissi greinilega ekki hvað sápa er því það var bara sterk vond lykt af henni ÚÚÚFFFFFF þetta var hrikaleg lífsreynsla leiðinlegt en satt.
En svo er annað mál leiðarkerfin eru kominn í f*c* það er nú doldiið síðan ég þurfti að taka strætó reglulega en þetta er rosalega lélegt miðað við þá ég get ekki tekið strætó frá Fagrahjalla út í Mjóddina né upp í hamraborg og þaðan út í Mjódd ekki sjens ég veit að það er ekki langt út í Mjódd en ég hafði nú hugsað mér að hjóla þangað en síðan eins og í Ágúst þegar ég er komin með duglega bumbu þá er ég ekkert viss um að ég vilji á annað borð vera að hjóla HVAÐ EF ég skildi nú detta allt getur gerst þá vil ég ekker vera taka einhveja rosa sjensa.
Þangað til verður þetta víst að vera seinni tíma hauverkur
Jæja hér er smá fróleikur um barn á 18. viku
Barnið getur nú heyrt hljóð sem koma utan frá í gegnum móðurkvið. Hljóðin er þó dempuð og líkjast því þegar talað er í gegnum kodda. Ef hávært hljóð heyrist þá lyfti barnið höndum sínum til að verja eyrum gegn hávaðanum. Barnið jafnvel spyrnir við fótum eða grefur sig í legiðtil að fela sig fyir hávaðanum. Barnið hreyfist nú mikiðog er farin að sparka og kýla í magann(hef ekki fundið fyrir því en tel mig vera farin að finna fyrir örlitlum hreyfingum: ) Nokkuð öruggt er að móðirin finnur nú fyrir hreyfingum barnsins hafi hún ekki fundið þær nú þegar. Vöðvar við lungu þroskast nú frekar sem síðar er notaðir við öndun. Litlu holrúmin sem verða að lungum þroskast nú með meiri hraða en áður. Barnið er nú 20cm langt og 250 gr.
Þar hafið þið það þannig ef það verðu slökkt á símunum okkar þá finniði Davíð ligja upp í rúmmi með mér að tala við magan minn..............................................GRÍN
Jæja meira fáið þið ekki upp úr mér að sinni næsta blog er næsta sunnudag þegar ég kem heim úr cill ferð frá Galtalæk JEIJ
þanngað til næst
Auf wiedersehen Erla
Myndin sem fylgir er mynd af útsýninu sem við höfðum á hótelinu þegar við vourm í Danmörk nóv 05
23.5.2006 | 23:01
17. Vikur
Jæj þá er það 17. vika sem er að byrja þetta fer að líða hraðar og hraðar og heilsan er góð. Það er annríkur ménuður að byrja 3 giftingar, 1 sónar, 1 mæðraskoðun, 1 lýðveldisdagur, 1 afmæli o.fl já það verður nó að gera.
Þessi engill sem vex í mallanum mínum hefur lítið sem ekkert haft fyrir sér heilsan hjá mér hefur verið 99,9% síðan ég komst að þessu að undanskildu ég fæ stundum hausverki en ljósan sagði að ég ætti að vera duglegri við að drekka djús, vatn og borða ávexti milli mála því það væri lítill einstaklingur að taka mikið af efnum sem ég fæ úr matnum til sín og hausverkirni stöfuðu af því að mig vatnaði þessi efni skondið hah.
Bumban mín er ennþá voða nett þannig þið fáið ekkert bumbumynd fyr en á 19. eða 20. viku ég ætla ekkert að strippa neitt að óþörfu.
Nú eru stjórnmálaflokkarnir byrjaðir að hringja í mann á hverjum degi liggu við allt fyrir atkvæðið oohhhh þetta fer í pirrurnar það eru 2 ár síðan ég fékk kosningar rétt og það er verið að þröngva upp á mann að manni er hollast að kjósa þennan stjórnmálaflokk en ekki hinn þið þessi ætlar að gera allt fyrir mann.
Æji prump ég er ekki þessi týpa sem pælir mikið í þessu en ég vil bara fá að velja í friði hvort ég ætla að taka pólitíkska afstöðu eða ekki.
Update á íbúðarmálum við erum að fara gera kaupsamning á morgun jeij.
Ég vil líka nota þetta tækifæri og þakka þeim sem eru duglegir að kíkja á síðuna mína það er mér mikils virði að vita að ykkur langi að fylgast með þróun mála hjá bumbubúanum okkar
Hér er fróðleikur um barn á 17. viku
Húð barnsins þroskast frekar en er ennþá frekar gegnsæ. Dúnmjúkt lag hára tekur að þekja líkama barsins og gegnir því hlutverki að vernda húðina í vexti sínum. Kynfæri barnsins hafa nú þroskast nægilega mikið svo hægt sé að sjá í skanna hvers kyns barnið er(úúúúhhh spennó). Barnið hér er 19 cm langt og 200 gr
Ég ætla ekki að hafa það lengra í bili ég er með ritstíflu en reyni að bloga næsta laugd eða sunnud,
ég vil líka benda ykkur á að í næstu viku (18) fara margir skemmtilegir hlutir að gerast í þroska barnsins og ég vildi láta ykkur vita ég er ekki enn farinn að finna fyrir hreyfingu sem er ekkert óeðlilegt en ég mun láta ykkur vita um leið og það gerist.
Myndin sem ég læt fylgja með er mynd af skóm sem Davíð langar að babyið eignast annað hvort bleika eða bláa hann er svo mikið merkjafreak hehehe.
Adios amigos Erla
Vinir og fjölskylda | Breytt 24.5.2006 kl. 12:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Færsluflokkar
184 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar