30.10.2006 | 20:34
Næstum því 14 daga gamall.....
Jæja þá er hann næstum orðin 14 daga gamall og það gengur allt eins og í sögu það er svo sem ekki mikið sem hann hefur að gera annað en að drekka, sofa og gera í brækurnar. Við þrjú eru öll með mjög góða samvinnu hann fær vel að borða rétt áður en við förum að sofa síðan vaknar hann 1-2 á nóttuni til að drekka og síðan skiptir Davíð á honum síðan fer hann a sofa þannig so far hefur þetta bara verið allt í góðu.
Á morgun kemur hjúkrunarfræðingur til að vigta og mæla hvort hann hafi stækkað mikið og það verður nú aldeilis gaman að sjá tölurnar sem koma úr því. Síðan erum við komin með nettengingu heim JJJEEIIJJJ þannig að nú verður ægt að gera eitthvað annað en að horfa á Mi gorda bella á daginn sem er frekar súr spænsk sápu þáttur en því miður er oft ekkert annað.
Okkur þykir gaman að upplifa þessa lífsbreytingu sem gerðist 18.október það spurja mann margir "hvernig er síðan að vera orðin foreldri" þetta er spurning sem er auðvelt að svara fyrir það fyrsta er það að eins og ég nefndi áður þá er það eina sem hann gerir er að borða, sofa og gera í brækurnar þannig það er svo sem ekkert "uppeldi" sem slíkt byrjað en tilfiningin hjá sjálfum manni kemur ekkert bara um leið og þú færð barnið í hendurnar þetta tekur smá tíma og síast inn í hausinn að maður sé kominn með gullið mans í hendurnar og þetta beri maður ábyrgð á næstu árin síðan þegar maður er búin að átta sig á þessu(sem kemur voða fljótt) þá er þetta besta tilfining í heimi.
Síðan veit ég ekki alveg hvernig ég á að orða þetta en sumir eru rosa fljótir að mynda sé skoðanir á hvernig maður á og á ekki að gera hlutina þegar það kemur að Jóhanni Otta eins og maður sé ekki fullfær um að leita ráða eða spurja réttu aðila ef þess þarf. Jú það meina allir vel og sumir halda að þeir séu að gefa manni "ráð" en stundum en þau eru vel þegin þegar það er/verður leitað eftir þeim þar hafið þið þaðEkki misskilja mig en svona er þetta bara stundum og ég vil þá bara hafa þetta á hreinu hvar hugur minn liggur gagnvart þessu.
Svo ég hætti þessu nöldri þá er gaman að segja ykkur frá að núna síðastliðinn sunnudag þá komu ömmurnar frá útlöndum, Gunna skvísa frá Köben og Ólöf skutla frá Glasgow. Þær komu færand hendi með pakka til Jóhans Otta sem dæmi kom Gunna með húfu og vettlinga sem er MÖST í vetrarkuldanum, samfellur með dýramyndum og geggajaðar buxur og peysu í stíl við. Hin amman kom aftur á móti með hermanna buxur mér til mikillar ánægju þar sem ég er mikill aðdáandi af þessu munstri og síðan var það punkturinn yfir i-ið SKOTAPILS á Jóhann Otta hann á reyndar ekki eftir að passa í það fyr en hann er orðinn sirka 1 árs en sammt það er ekkert smá flott og hann fékk líka töskuna eða "kiltbag" þannig að hann verður flottur að ári, pabbi hans varð líka svo lánsamur og fékk líka "kiltag" þannig haldiði að feðgarnir veri ekki flottir saman. Ég skal taka mynd af því og setja það inn á síðuna við fyrsta tækifæri.
Næsta sunnudag verður síðan skírnarveislan hún verður reyndar haldin hjá tengdó þar sem að við teystum okkur ekki alveg til þess að bjóða sirka 50 mans í 60 fm íbúðina okkar æji þð skiljið þar er ekkert voða spennandi. Ég ætla reyndar að hafa þetta líka sem hálfpartinn afmælisveislu líka þar sem ég á AFMÆLI7.nóvember og á ekki eftir að nenna að fara troða ofan í mig kökum þá líka og standa í einhverjum bakstri þá. En já ma ma ma verður bara 21 öösss ekki yngist maður.
Einnig vil ég benda á að Heiða skutlan hans Jóa frænda á afmæli 8.nóv og þar er sko stórafmæli 30+20 þannig það má ekki gleyma að knúsa hana.
Jæja ég er komin með blöðrur á puttana og komin tími á breik ég þar að fara að hringja og bjóða í veislu og knúsa son minn.
Lov you all
Kveðja Erlaog Jóhann Otti
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 22:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.10.2006 | 15:56
Nýjar myndir
25.10.2006 | 20:44
-=Jóhann Otti Davíðsson=-
Jæja þá er kúturinn kominn í heiminn ég var sem sagt lögð inn á þriðjudagshádeiginu með of háan blóðþrýsting´+3 Prótein í þvagi og bjúg. Þetta kom mér svo sem ekki að óvart því það var´búið að segja mér að ég ætti að eiga von á því að vera lögð inn, en hvað með það ég tók því bara rólega yfir daginn blóðþrýstingurinn var mældur með reglulegu millibili og hann fór ekkert lækkandi.
Síðan leið á kvöld og ég fékk þennan glæsilega spítalakvöldmat eða þannig og fór síðan bara upp í rúm í tölvuna síðan kom Davíð með djúsí bragðaref mmmmm hvað hann var góður. Davíð fór síðan eftir smá heimsókn og ég fór að horfa á DVD mynd þegar myndin var að klárast hringdi Davíð og spurði hvort ég gæti ekki stolist til að hitta hann og knúst hann góða nótt þrátt fyrir að heimsóknartímin vlri á enda. Ég bjó til einhverja lélega afsökun og fór og knústi kallinn minn síðan kvaddi hann þá var klukkan að ganga 00:30 ég fór inn og kláraði myndina og kom mér síðan fyrir og 10 mín síðar fékk ég líka þessar rosalegu hríðir ég fór framm og talaði við ljósmóður og hvorki hún né ég voru viss að ég væri að fara af stað því ég var ekki með neina samdrætti þannig hún gaf mér verkjalyf en það dugði EKKERT þannig ég fór aftur framm og hún ákvað að sitja mig í mónitor sem ég var í í tæpar 20 mín síðan tók hún blóðþrýsting og þá var illt í efni því hann var orðinn hættulega hár. Ljósan náði strax í lækni sem vildi bara rúlla mér uppá fæðingardeild og blóðþrýstingurinn var orðin það hár að ég varla mátti ná í síman til að hringja í Davíð.
Mér var rúllað upp og Davíð kom 10mín seinna eftir að hafa farið yfir á 2 rauðum ljósum en það var ekkert fyr en rétt áður en Davíð kom sem það var staðfest að ég væri kominn af stað. Eftir 1 klst var ég komin með 4 í útvíkkun sem þykir nokkuð gott mér var einnig gefið blóðþrýstinglækkandi lyf svo það myndi ekki skapast of mikið álag á litla kút og mig. Það var ákveðið frekar fljótt að ég myndi fá mænurótadeyfingu þar sem hún hjálpar oft við að lækka blóðþrýstinginn og ég var að Deyja ég var kominn með svo harðar hríðir, það tók nú smá tíma að fá hana en biðin var þess virði því þegar ég var búin að fá hana þá leið mér ólýsanlega vel. Nú tók bara bið við að leghálsinn opnaðist og um 7:00 var útvíkkun kominn í 10 og ég mátti byrja að rembast þegar ég fékk hríð þeim fannst ég nú sammt ekki vera að fá nógu harðar hríðir og voru að spá í að gefa mér dripp en hættu við síðan var ég að rembast til 9:14 með aðstoð Davíðs og ljósu og Jóhann Otti kom í heiminn. Ég var semsagt 8klst að fæða sem þykir lítið miðað við fysta barn en meðgöngueitruninn hefur átt þar stóran þátt. Litli kall fæddist 17 merkur og 55cm sem kom ÖLLUM MJÖG á óvart þar sem að það var búið að giska á 12-13 merkur en hann fæddist stálhraustur og ljósan var meira að segja með þá kenningu að það gæti verið að ég hafi verið lengra genginn en það er ekki hægt að athuga það eftir á. Síðan var mér rúllað inn á sængurkvennadeild ég mátti ekki fara á hreiðrið út af mínu fyrr nefndu ástandi sem var pínu bömmer því þá mátti Davíð ekki gista.
Við fengum brottfaraleyfi heim daginn eftir og við ákvaðum að skíra upp á spítala þar sem að nafnið var löngu ákveðið og við vildum ekki að hann fengi eitthvað leiðinlegt gælu nafn. Hann var skírðu JÓHANN OTTI DAVÍSSON. Jóhann er í höfuð á besta vini Davíðs og Otti er í höfuð á honum Jón Otta heitins. Eftir heimkomu hefur allt gengið bara frekar vel hann er búin að far í 5daga skoðun sem er rútinu check hjá nýburum og lækninum leist rosa vel á hann enda ekki við öðru að búast. Við erum búin að vera með frábæra ljósmóður í heimaþjónustu sem er búin að fylgjast með Jóhanni og leiða okkur í gegnum fyrstu dagana og núna snýst lífið um að borða og sofa mikið.
OG ÉG ER ÁSTFANGINN AF KÖLLUNUM MÍNUM TVEIMUR
Ég get því miður ekki sett inn myndir strax en reyni að gera það sem fyrst en ég vil benda ykkur á heimasíðu pabba þar er albúm sem heitir Jóhann Otti Davíðsson www.123.is/MOTIVMEDIA
Síðan er bloggið ekki búið það er bara rétt að byrja og verður reglulegt eðlilega hefur verið smá pása en nú er hún búin.
Þangað til næst
Erla og Jóhann Otti
17.10.2006 | 09:38
38.vikur og stutt en mikilvægt update
Jæja ég fór í skoðunn í gær og mín er bara kominn með meðgöngueitrun semsagt of háan blóþrýsting 1-2+ af próteini í þvagi og hellings bjúg ekki got þannig að þriðjudagsfærslan verður stuttt þar sem ég á að mæta upp á spítala eftir 30 min í mónitor.
Það sem á að gera er að setja mig í hvíld í 2klst mæla blóþrýsting ath prótein í þvagi og blóðprufur sem voru teknar í gær metnar og setja mig í mónitor sem er nemi sem er á hálgerðu belti sem er lagður á bumbuna til að fylgjast með hjartslættinum í litla gaur. Ef blóþrýstingurinn lækkar ekkert eða helsta samur þá verð ég líklegast lögð inn og á endanum sett af stað þar sem ég er kominn fulla meðgöngulengd sem er 38-42.vikur þannig gullið okkar gæti komið bara í heiminn í lok vikunar hver veit en við sjáum hvað doksi segjir.
Út og yfir.
Erla
12.10.2006 | 14:40
Slímtappinn
Jæja þá er hann að hverfa, fyrir þá sem ekki vita hvað slímtappin er þá er hann ætla ég að útskýra það hér.
Alla meðgönguna hefur legið dregist saman af og til, óreglulega og verkjalaust. Í lok meðgöngunar heldur legið áfram að dragast saman óreglulega en því gætu fylgt einhverjir vekir og þetta kallast fyrirvaraverkir eða BRAXTON HICKS. Leghálsinn hefir haldist lokaður og svokallaður slímtappi er til staðar sem lokar leghálsinum enn betur og hefur líka verið sýkingarvörn á meðgönguni. Hjá sumum konum fer þessi slímtappi nokkrum dögum áður en hríðar byrja og er oft merki um að fæðingin sé að nálgast, oft fer þessi slímtappi ekki fyr en í fæðinguni.
Þar hafið þið það en þetta þýiðr sammt ekkert endilega að hann gæti fæðst í næstu viku slímtappinn getur farið og ég gæti sammt gengið framm yfir tíman með hann(Hope not; ).
Annars er allt gott að frétta að okkur ég er byrjuð að fá smá bjúg sem er svo sem ekkert alvarlegt en þýðir sammt að ég þarf að fara vel með mig. Síðan fer ég í skoðun næsta mánudag og þá sjáum við hvað setur því það getur fylgt því að fá bjúg t.d. hærri blóþrýstingur eggjahvíta í þvagi sem er ekki gott en það gerist sammt ekki alltaf.
Síðan var uppáhalds búiðn okkar Davíðs að opna í dag IKEA þannig við ætlum að leggja í það að kíkja þangað um helgina og hver veit nema kallinn bjóði manni kannski í Lax eða sænskar kjótbollur í kaffiteríunni
9.10.2006 | 14:55
37.vikur
Jæja ég ákvað að grípa gæsina þar sem ég er stödd hjá tangdó í tölvunni og skella inn vikulega blogginu.
Jú nú eru komnar 37.vikur það er allt tilbúið nema rúmmið ég á eftir að fá það og spítalataskan. Það kemur nú allt fljótlega ég viðurkenni það nú ég er doldið smeik við að setja í spítalatöskuna strax því þegar ég er búin að því þá finnst mér ég formlega vera farinn að bíða æ þetta er bara í hausnum á mér. Annars hafði ég hugsað mér að hún yrði nú tilbúin í síðastalagi næsta sunnudag þá er ég að skríða í 38.vikur.
Annars er allt gott að frétta við fórum í mæðraskoðun á föstudaginn og allt leit svona rosalega vel út. Ljósan sagðist halda að hann væri orðinn sirka 12 merkur sem mér skilst að séu um 3 kíló annars er ég ekki góð í þessu þyngdarsystemi. Síðan var litli prinsinn bara með stæla við okkur málið er það að ljósan mín var með ljósmæðranema með sé sem framkvæmdi skoðunina þar að segja hún tók blóðþrýsting og mældi legbotnin og hlustaði á hjartsláttinn, en þegar hún var að fara að hlusta á hjartsláttinn þá gekk eitthvað erfiðlega að finna hann en ég vissi alveg að hann væri þarna og ljósan mín kom og prufaði sjálf þá loksins fannst hann. Ég held að hann hafi bara verið í fýlu því það var búið að vera að pota svo mikið hann til að finna hvernig hann lá að ljósonum grunar að hann hafi bara sett hendurnar fyrir aftan bak sem gerði þeim erfitt fyrir að finna hjartsláttinn.
Hér er fróleikur um barn á 37.vikur
Neglur á fingrum hafa nú vaxið til fulls (fram að fingurgómi) og sama má segja um táneglur. Barnið heldur áfram að æfa sig inn í kvið móðurinnar og styrkja þannig sjálfan sig og æfa öndun. Öll líffæri nema lungun eru nú þroskuð. Lungu þurfa nokkra daga til viðbótar til að ná fullum þroska. Barnið er nú 48 cm langt og 2,9 kg að þyngd.
Já annars erum við bara hress við erum að reyna að vera dugleg að fara út í göngutúra það er svo gott þó manni líði eins og elephant og stundum doldið erfitt að hreyfa sig sökum eitt stiki barns þá er sammt svo gott að hreyfa á sér rassinn þegar maður er í stuði ég og Davíð fórum t.d. út í göngutúr í gær sem var tæpur 3km en sammt ekkert erfiður alls ekki svo segja menn að þetta komi nú stundum fæðingu af stað sem sakar ekkert þó hann megi nú hanga þarna inni í vikur í viðbót.
Síðan átti bróðir minn afmæli síðastliðinn laugardag 7. október JEEIIJJ TIL HAMINGJU og það þýðir líka að það er mánuður í að ég verði 21 sjibbí gaman gaman en það verður ekkert djamm þetta ár eins og síðasta sem er allt í lagi það verða bara kökur og kozy eða eitthvað svoleiðis. Hver veit nema það gæti orðið afmææisveisla og skrínarveisla á sama tíma hhhmmmm það væri nú ekkert amarlegt skal ég segja ykkur slá tvær flugur í einu höggi
Vitiði ég var að hugsa, þetta er bara alveg að verða búið jú það geta verið allaveg 3 vikur eftir og jafnvel meira en sammt getur allt gerst aldrei segja aldrei mér finnst ég sammt að vissu leiti eiga svo lítið eftir en vildi óska að ég ætti minna eftir ég viðurkenni það alveg en svona er þetta.
Þanngað til næst.
Erls
4.10.2006 | 13:40
36.vikur
Og já ég er að springa ööösss. Þetta er allt að gera sig ég er byrjuð að þvo og strauja það er eins gott að fara að byrja á því þar sem þetta tekur smá tíma. Ég átti að fara í mæðraskoðun á morgun en ég svaf yfir mig og Davíð líka við rummskuðum ekki við neinar vekjaraklukkkur þannig ég hringdi og lét vita og mér er troðið inn á föstudaginn þá fáið þið details ef það verður eitthvað.
Annars er allt gott að frétta það vill svo skemmtilega til að dagana 26 okt -29okt verða tengdaforeldrar mínir og mamma ekki á landinu, mamma er á leiðinni til Glasgow og tengdó til Köben þannig það er vinsamlegast búið að byðja mig um að vera búin að þessu þá eða gjöra svo vel að halda í mér en þæð væri týpískt að ég myndi eiga þá en hver veit. Davíð er búin að panta að mamma kaupi mini skotapils út í Glasgow handa litla svo hann geti verið eins það verður ýkt krúttlegt ef hún finnur svoleiðis.
Annars erum við búin að ákveða skírnina þar sem að við erum löngu búin að velja nafn þá viljum við að hann fái það bara sem fyrst og höfðum hugsað okkur að skíra upp á spítala, við ætlum bara að hafa litla fjölskyldu athöfn og síðan verður veislan bara seinna og þá verður öllum boðið. Það eina sem gæti stoppað það að við skírum upp á spítala er að hann komi þessa helgi 26-29okt þá verður þetta bara gert öðrvísisem kemur þá bara í ljós seinna.
Hér er fróleikur um barn á 36.viku
Undanfarið hefur barnið verið að taka mótefni úr líkama móðurinnar. Mun barnið mynda mótstöðu við nokkuð af þeim sjúkdómum og öðru sem móðirin hefur myndað mótstöðu við og græða þannig á bólusetningum og öðru sem móðirin hefur gengist undir. Nokkuð hægir á vexti barnsins en hann stöðvast þó ekki. Þyngd barnsins er 2,7 kg og lengd þess 46,5 cm.
Síðan eru nokkrar nýjar myndir sem ég set inn með þessari færslu þannig endilega kíkið í myndaalbúmin.
Þessi bumbumynd er tekinn akkurat kominn 36.vikur
27.9.2006 | 19:29
35.vikur
OG BÚIN AÐ SKORÐA SIG JJJJEEEIIJJJ. Sko auðvitað hlíðir hann mömmu sinni við ætlum að vera með svona á hreinu þegar hann ætlar að koma í heiminn og hana nú.
Annars líður mér bara þokkalega hef ekki yfir neinu að kvarta við vorum í síðasta tíma á foreldranámskeðinu á þriðjudaginn og erum orðnir útskrifaðir foreldrar......nei grín við erum allavega mun fróðari um fæðingarferlið ef svo má segja. Í síðasta tímanum var spjallað aðeins um foreldrahlutverkið allir saman og síðan mömmurnar sé og pabbarnir sér það var svo sum ekkert rætt neitt sérstaklega um þetta, þetta var bara svona spjall um hvort við værum farnar að sjá okkur sjálfar sem mömmur og ef ég á að segja eins og er þá er mitt svar nei ekki þannig ég eða við höfum ekki verið að setja nein markmið eða spá rosalega í uppeldi þó það verði nú gert eina markmiðið er bara fæðingin núna.
Við munum svo sannarlega gera það en eins og ég sé þetta þá er ennþá nægur tími, það eina sem ég hafði hugsað mér þegar það mun koma að uppeldi sonar míns er að nýta mér það jákvæða sem foreldrar mínir hafa gefið mér í gegnum uppeldisárin mín í veganesti. Annars er ég búin að gera svona fæðingaróskalista sem er í raunini listi yfir mínar óskir þegar kemur að fæðinguni og einnig ef það er eitthvað sem ég vil alls ekki prufa að þá get ég líka skrifað það á listann. Þetta er mjög sniðugt að gera svona ef það er eitthvað sem maður vill alls ekki prufa eða er með einhverjar sér óskir því þá er það bara á hreinu, sumir segja bara bullshitt ég ætla að gera þetta með opnu hugarfari og ekki útiloka neitt sem er allt í lagi en ég kommst að því á þessu foreldranámskeiði að það er ekkert allt sem mér mundi líða vel að að prufa og vill eiginlega alveg sleppa því, því það getur haft áhrif á barnið sem ég ætla nú ekki að fara nánar út í.
Síðan er ég að fara á föstudaginn að versla svona baby stuff eins og rassakrem og þessa litlu hluti sem maður þarf að eiga því þó ég sé skráð 31.okt þá hugsa ég þetta þannig better to be safe then sorry, ég meina hvað ef hann ákveður að koma eftir 2 vikur þá er bara allt í lagi að hafa þetta tilbúið. Síðan var með smá vangaveltur um daginn með svona hjátrúr hvað varðar meðgöngu og allts sem tengist því eins og til dæmis rúmmið má ekki verða tilbúið áður en það fæðist eða eitthvað álíka, sorry með fullri virðingu en er þetta ekki orðið doldið old school persónulega er ég ekki mjög hjátrúarfull eiginlega bara ekki neitt þó ég hafi farið eftir einu frá því ég kommst að því að ég væri ólétt, ég keypti ekki nein föt fyr en eftir að ég var kominn 3mánuði á leið sem mér finnst vera bara meira common sence. Þessar hjátrúr æji ég veit það ekki ég er svo sum ekki beint að gefa skít í þetta en ég held að fólk verði að sýna fólki smá virðingu fólki sem er t.d. ekkert að fara eftir þessu því það eru bara breytttir tímar í dag og hver og einn gerir þetta eftir sýnu eigin höfði og það verður bara að fá að eiga það. Ekki misskilja mig ég er ekki að kvarta sjálf en ef þið spáið aðeins í þessu þá er þetta bara blákaldur sannleikur.
Hér er fróðleikur um barn á 35.viku
Barnið eykur nú þyngd sína umtalsvert og fitnar einnig mikið. Mikið af dúnmjúku hári og lögum sem hulið hafa barnið til verndar húð og öðru hverfa nú hvert á fætur öðru en stundum er þó nokkuð eftir af þessu við fæðingu og myndar þá skán á barninu. Barnið er 45 cm langt og 2,5 kg.
Annars var ég í mæðraskoðunn í dag og allt leit bara vel út blóþrýstingurinn búin að hækka bara örlítið en allt bara heilbrigt og fínnt, ég þurfti síðan að fara í blóðprufu sem er bara rútína þetta er gert á nokkra vikna fresti bara til að að kanna stöðuna og greijið konana hehehe. Sko það er einhver svona pólsk að taka blóðprufurnar, hún sem sagt var búin að koma nálinni fyrir í vinstri handlegg og var að klára að láta renna í fyrsta glasið nema hvað það byrjar blóð að renna úr gatinu sem hún stakk í þegar nálin var ennþá inn í af því að hún hafði hana of grunnt og greið konana hún for alveg í kleinu sagði fyrirgefðu svona 7 sinnum mér var svo sem alveg sama þetta var bara smá blóð. Þannig ég bauð henni bara hinn handlegginn og þá var hún orðin svo mikil taugahrúga að hún rak sig í nálarunitið og það fór á gólfið og hún þurfti að ná í nýtt, æji skondið
Þanngað til næst
Erla
26.9.2006 | 16:24
Nýjar myndir
Já það eru komnar nýjar myndir sem eru í Fötin mín albúm og ýmislegt annað albúm, ég ákvað ekki að setja inn bumbumynd fyr en í fyrsta lagi í næstu viku þannig að það sé nú einhver munur á myndunum.
Síðan eruð það 35.vikur í dag en bloggið kemur á morgun.
Adios
Erla
22.9.2006 | 17:04
DÍSA OG BALDUR

Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 17:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
184 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar