4.12.2006 | 01:27
Hundraðkelling
Þá er maður bara orðin 6.vikna alveg að verða 2 mánaða og að styttast í ungbarnasund, hann er búin að vera duglegur að halda mér vakandi á næturnar síðustu tvær nætur þá er ég búin að vera vakandi til 7:00 um morguninn og það er ekkert sérstakt að þannig hann er bara búin að snúa sólahringnum við og ég þarf að snúa honum aftur við fyrir hann, en ég skal segja ykkur svona vökunætur reynir á ALLA þolinmæði sem maður á síðan er ekkert get ég ekkert verið að vekja Davíð í tíma og ótíma því hann þarf að vakna í vinnu, ég er líka stundum svo þrjósk að ég vil og ætla mér að geta þetta sjálf.
Við erum að fara æi 6.vikna skoðun í fyrramálið og það verður gaman að sjá hvað hann sé orðinn þungur og ég mun skrifa smá um það þegar við erum búin. Síðan get ég ekki beðið eftir að hann má fara í ungbarnasund oohhh það verður svo gaman að kafa og láta hann bussla í sundinu. Síðan er hann orðinn svo stór fyrir ykkur sem sáu hann í skírnaveislunni iss hann er sko búinn að stækka og orðin þvílíkt mannalegur meira að segja farinn að brosa.
Ég var rétt í þessu að koma heim úr hina árlega jólahlaðborði fjölskyldunar á Loftleiðum og NAMMI NAMM hvað þetta var gott ég er alveg að springa það er líka alltaf jafn gaman á þessu hlaðborði. Ég og Davíð fórum og byrjuðum að kaupa jólagjafir við erum svona tja hálfnuð sem er jákvætt ég greip líka gæsina og verslaði mér jólakjól alveg glæsilegan gullkjól og mér finnst ég vera ýkt pæjaa í honum og ákvað að vígja hann í kvöld og hvað haldiði!!! ég setti niður á mig þannig ég þarf að koma honum í hreinsunfyrir næstu helgi.
Síðan er það aðal málið ég eignaðist "listaverk" síðustu helgi, málið er það að fyrir nokkru síðan tók kona sig til og tók einhverja fleiri hundruð hundraðkalla og spreyjaði þá bleika og kallaði þá HUNDRAÐKELLINGAR og setti þá síðan í umferð og ég fékk einn svoleiðis síðust helgi og ég er ýkt ánægð með hana, Ég var að tala um þetta við Davíð og hann man ekkert eftir því að þetta hafi verið í sjónvarpinuog fáir virðast muna eftir því en ÉG SVER ÞAÐ þetta var í sjónvarpinu og ef einhver annar en ég kannast við þetta þá ENDILEGA SKRIFIÐ Í ATHUGASEMDIR takk fyrir.
En halló halló I´m in love sko það er Íslenskur hönnuður hún Hendriks Wage sem er að hanna kokteilhringi var að fá verðlaun eða viðurkenningu fyrir sína hönnun á hringjunum og ég vissi að þeir væru seldir á Hótel Loftleiðum og auðvitað greip ég öndina nei gæsina og kíkti í gluggan á búðinin og OMG hvað þetta eru geggjaðir hringir ohhhhhhhh mig langar þeir kosta en eru sammt ekki dýrir þeir eru undir 10000kr þeir sem ég sá í glugganum þessi kona hannar líka hálsmen og eyrnalokka þannig ef einhver á auka pening sem hann hefur EKKERT við að gera þá vitið hvað þið getið eitt honum í : Þ Jæja þanngað til á morgun.
Kveðja Erla og Jóhann Otti
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 02:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.11.2006 | 16:41
Smá bros
Nú er minn maður 6. vikna gamall og díses maður hefur varla undann því að fylgjast með því hvað hann stækkar. Talandi um stærð ég fór í gegnum kommóðuna hans i gærkvöldi því neðsta skúffan var að SPRINGA það var sem sagt skúffan sem ég geymdi öll stærri eða stóru fötinn sem hann getur ekki notað strax, ég fór síðan í gegnum öll fötin og fyllti heilan kassa til að geyma, síðan fór ég í gegnum minnstu fötinn og það eru alveg nokkrar flíkur sem hann gat aldrei notað því hann fæddist svo stór hehe hann verður stór og sterkur eins og pabbi sinn. Síðan vil ég meina að hann sé aðeins farinn að bregðast við okkur og brosa það gerist samt ekki oft en við erum að æfa okkur og ætla að reyna að vera skælbrosandi á jólunum og eins og ég lofaði brosið er æði : )
Síðan er ég að fá jólakortin á morgun og myndina og þá er bara að byrja að skrifa,, síðan ætla ég að vera ýkt dugleg og klára allar jólagjafirnar í næstu viku á einu bretti ég NENNI ekki að vera allan des að þessu vanalega er ég búin að þessu á þessum tíma en eins og gefur að kynna þá hef ég verið önnum kafinn að vera mamma: Þ
Fyrsta jólahlaðborðið er næsta sunnudag á Loftleiðum ohh það er alltaf jafn gaman að fara þetta er orðin svo mikil hefð að fjölskyldan fari einu sinni á ári og þegar við erum búin á því þá er bara eitt hlaðborð eftir og tvær jólaveislur eftir fyrir utan aðfangadag og gamlársd ÚÚÚFFF út að skokka í jan; )
Við tókum okkar slúður göngutúr í dag sem sagt út á bókasafn lesa slúður og tilbaka og ég fann þessa blessuðu lyftu þökk sé Heiðu.
Jæja ég ætla fara að þrífa fiskabúrið þrátt fyrir að ég NENNI því ekki sökum alvarlegrar LETI.
Adios
Erla og Jóhann Otti
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 16:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.11.2006 | 18:14
Litli unglingurinn
Þá er maður bara orðin 5 vikna gamal rooossa stór
Það er allt gott að frétta af okkur Jóhann Otti er eins og versti unglingur í framan með því líkt mikið af bólum, þetta er reynadar ekki áberandi nemi í mikillri birtu. Ég hélt að hann væri að fá exem eða einhver ofnæmisviðbrögð í húðina og fór meira að segja með hann til læknis, en læknirinn sagði bara að þetta væru hormónabólur ég vildi reyndar meina að þær væru búnar að koma og fara en hann sagði að þær gætu komið aftur og ekkert endilega litið alveg eins og þær fyrstu sem komu. Alltaf lærir maður eitthvað nýtt.
Nú erum við bara að bíða eftir brosi eða sem sagt að hann brosi á móti þegar við brosum til hans það ætti að fara að gerast bráðum og vitið það ég get lofað ykkur að það verður ÆÐISLEGA krúttlegt við höfum nefninlega séð hann nota brosvöðvana
Nú er snjórinn aðeins búin að bráðna og vð kíktum út í stuttan labbitúr í dag það vantar nú samt ekki klakan öss ég var nætum því flogin á hausinn. Ég fékk þær upplýsingar að það væri lyfta á bókasafninu ég var heldur ekki alveg að gleypa það að það væri ekki lyfta þarna. Síðan fékk ég líka merkinguna á orðinu Fjörulalli og hún er þjóðsagnaskepna, einhverskonar sækind sem leitast við að hrekja menn í sjóinn, þetta er orð dagsins.
Síðan er desember eftir OMG skemmtilegur mánuður en maður gerir ekkert nema að éta ég er að fara á hlaðborð 3 og 9 des og tvær jólaveislur, vanalegar fer ég bara á eitt jólahlaðborð og það er með fjölskyldunni á Loftleiðir sem við förum á 3. des en síðan bætist við núna 9. des Jólahlaðborð hjá Agli Árnasyni á Perluni ég hef reyndar aldrei farið þanngað þannig ég er pínu spennt fyrir því, litli rassálfurinn okkar fer líka í sína fyrstu næturpössun til Ólöf ömmu og Nonna afa þannig að ég og Dave ætlum að skvetta pínu úr klaufunum. Þannig að það verðu stuð hjá mömmu og pabba að vekna til að gefa honum pela og skipta á honum og Bjössi deyr úr afbríðissemi hehe hann verður rosa abbó ef mamma eða pabbi halda á Jóhanni Otta en það sem mér finnst skemmtilegast að sjá hvað hann er góður gagnvart honum, hann er rosa forvitinn en hefur sett sjálfum sér ákveðna línu og fer ekkert yfir hana.
Síðan þegar Bjössi kemur í heimsókn til okkar þá fer hann altaf strax að rúmminu hans til að athuga hann veit að litla barnið liggur stundum þarna síðan kemur fyrir að þegar Bjössi er hjá okkur og við kannski öll frammi en Jóhann Otti sofandi inn í rúmminu sínu þá labbar Bjössi stundum einn inn í herbergi bara til að athuga hvort allt sé ekki í lagi hann er sem sagt að passa hann. Þeir verða mikklir vinir, Jóhann Otti á eftir að klípa í trínið á honum og leika við hann um leið og hann hefur vit og getu til þess sem er mjög gott því persónulega er ég mjög hlynnt því að börn alist upp í kring um dýr því það kennir þeim að umgangast þau af virðingu og ákveðnu öryggi og eins með dýrið/inn sem umgengst þau.
Síðan fer alveg að koma að því að maður má byrja setja Jólaséríu í gluggan JEIJ gaman gaman.
Síðan viljum við Óska Brynhildi og fjölskyldu til hamingju með litla guttan
Yfir og út.
Erla og Jóhann Otti
20.11.2006 | 21:10
Skamm
Ég segji skamm Kópavogsbær fyrir að skafa ekki gangstéttarnar vetur ég og Jóhann Otti tókum okkur til og fórum út í dag ætluðum að taka góðan göngutúr sem varð síðan lítill að sökum þess að sumar ganstéttir voru svo illa skafaðar að ég komst liggum við hvorki aftur á bak né áfram eða þannig þetta vat allavega rosa torfæra fyrir snúlla en hann svaf það allt af sér. Þetta var samt hressandi.
Síðan svo ég haldi áfram að kvarta að þá þegar ég fór á bókasafnið um daginn þá var ég alvarlega hneiksluð , sko það getur vel verið að ég hafi ekki leita nóg en ég gat ekki séð NEINA lyftu og fyrir þá sem ekki vita þá er það á þrem hæðum, þannig ég varð að göra svo vel að dröslast með vagninn upp sirka 20 tröppur sveiattan.
Veit einhver merkinguna á bak við orðið fjörulalli???
Hjúkkan átti að koma í morgun og vigta Jóhann Otta en hún er víst veik þannig hann fer 4.des í 6 vikna skoðun upp á heislugæslu þá hittir hann líka lækni sem potar í hann þá verður líka gaman að sjá hvað hann er orðin þungur og stór.
Annars ætla ég að segja ykkur frá nafninu hans hvaðan það kemur Jóhann Otti. Jóhann er í höfuð á besta vin hans Davíðs og Otti er eftir manni sem hét Jón Otti, sá maður var mér afar hlítt til eins og mörgum öðrum, ég vona að hann horfi niður til okkar og sé glaður yfir því að það sé kominn lítill gutti með hans millinafn honum til heiðurs því við erum afar glöð yfir því.
Jæja farinn að horfa á Grey´s Anatomy.
Kveðja Erla og Jóhann Otti
18.11.2006 | 21:31
18.Október----Vogin
Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: Hvað finnst þér? Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína.
Kveðja
Erla og Jóhann Otti
17.11.2006 | 20:06
Út að labba.....
Jæja ég og Jóhann Otti tókum okkur til og fórum út að labba í dag þetta var nú enginn rosa göngutúr við röltum út að bókasafn þar sem ég skoðaði slúður og síðan til baka, þetta var fínnt honum leið vel þrátt fyrir kulda enda var hann í þykkum flísgalla, með lambúshettu, vetlinga og í þykkum kerrupoka og flísteppi fyrir þannig að kalda loftið blési ekki inn. Það er frekar að eyrun á mér hafi verið frosinn hehe
Maður er að stækka ég og Sæunn guðmóðir mældum hann um daginn og hann er orðinn sirka 58cm. Litli kall er líka farinn sko að sína skap hann var eitthvað pirraður um daginn og gargaði á Ólöf ömmu sko hann var ekki að grenja og garga hann gargaði eins og maður sjálfur mundi garga upp úr þurru ég og mamma rákkum upp stór augu hvað væri í gangi.
Síðan byrjar X-Factor í kvöld JEIJ það er alltaf gaman að horfa á fyrstu þættina líka í Idol þar sem maður sér einhverja vitleisinga sem halda að þeir séu næstu James Blunt eða næsta Britney Spears.
Ég á vinkonu sem er amerísk hún heitir Rebecca, þessi skvísa var hér á landinu síðustu helgi og hún kíkti til okkar í heimsókn þá barst í tal fæðingar orlof á Íslandi hún var eitthvað að spurja hvað ég væri lengi og ég sagði henni það að ég væri í 6mánuði hún var hissa á hvað það væri lengi því konur í USA fá bara 6 vikur í orlof greitt spáið í því hversu sorglegt það er, ég spurði hana hvað mæðurnar gerðu síðan við börnin þá eru sumar sem eru heimavinnandi en hinar fara með þau í svona daycare eða daggæslu. Þá þakka ég nú fyrir þennann skítna pening sem ég fæ.
jæja ég ætla fara strauja.
Yfir og út.
Erla og Jóhann Otti
14.11.2006 | 11:35
Módel
Hjúkkan var rétt í þessu að fara frá okkur hún var hérna í reglubundnu eftirliti og var að vigta Jóhann Otta og pota aðeins í hann ath hvort það væri ekki örugglega allt á sínum stað.
Henni leist svona rosa vel á hann dafnar vel hjá okkur búin að þyngjast meira okkur til mikillrar ánægju því í síðustu vigtun þá var hann búin að þyngjast í það minnsta (150gr) en núna er hann búinn að þyngjast um 300gr það sem er kannski líka að hjálpa er að hann er farinn að fá einn pela fyrir nóttina svo ég geti safnað í brjóstin, eins og ég segji hann er bara algert matargatsem er alls ekki slæmmt. Síðan er hann farinn að vera meira vakandi og þegar hann er vakandi þá er hann að fylgjast með í kring um sig og jafn vel að spjalla aðeins við mann þannig þetta er allt á réttri leið. Aftur á móti erum við ennþá að læra á snuð málinn hann tekur það alveg og heldur því í smá tíma enn missir það síðan enn hann verður duglegri með hverjum deginum að halda því sjálfur.
Síðan eru nýjar myndir inn á síðunni en sumar eru á hlið að sökum tæknilegrar örðuleika.
En jæja nú eru mánudagar orðnir heilagir fyrir kvennþjóðina því Grey´s Anatomy er byrjað aftur á stöð 2 kl 20:50 mér fannst þátturinn í gær samt frekar daufur það gerðist eiginlega ekki neitt þannig ég var pínu svekt en ég hef fulla trú á þessu dramað er bara rétt að byrja.
Síðan er ég orðin rosa spennt fyrir miðvikudeginum því pabbi ætlar að koma til okkar og taka myndir af okkur fyrir jólakortin og bara líka til að eiga og þetta verða sko flottar myndir við ætlum allaveg ekki að stilla okkur upp eins og einhver amerísk fjölskylda og sitja jólasveina húfu á hann óóó nei hvernig þær verða eru hernaðar leyndarmál og ef þig eruð að hugsa brosmyndir þar sem það er sett vængir á börnin eða þau klædd í allsskonar búninga óóó nei hann er heldur ekki orðin nógu stór í það, það er svo sem flott en það á orðið annað hvert barn svoleiðis og mér finnst það ekki lengur flott þegar allir eiga svona myndir og örugglega ekki gaman að eiga svona því þetta er allt eins uppsetningin það breytist ekkert með börnunum.
Jói frændi og Heiða skvís komu í heimsókn um daginn og færðu Jóhann Otta alveg krúttlegasta útigalla sem ég hef séð það er mynd af honum í myndaalbúminu hans og ég held ég láti myndina tala
Svei mér þá ég held bara að það verði farið út í fyrsta göngutúrinn í dag enda kominn tími til maður alltaf á leiðinni út en síðan kemur alltaf einhver stormur sem er ekki vinsælt.
Jæja ég ætla að fara koma mér á lappir og gera eitthvað af viti.
Yfir og út
Erla og Jóhann Otti
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 11:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.11.2006 | 17:39
Litli kálfur
Þá er Jóhann Otti að verða mánaðar gamall næsta miðvikudag þetta líður hratt og sammt ekki.
Það sem er að frétta af honum er að hann er orðinn betri í mallanum þannig að greyið litla engist ekki um en þegar eitt lagast þá tekur eitthvað annað við eða þannig við erum allavega búin að komast að því að hann er rosalega matfrekur sem er svo sem eðlilegt enda stór strákur þrátt fyrir ungann aldur. Davíð er líka svona hann getur stútað allt að 2L á dag ef hann er rétt stemdur þannig að ég var að stinga upp á því við Davíð að við mundum bara kaupa eina belju og geyma hana út í garði og þegar feðgarnir væru þyrstir þá mundu þeir bara fara á sitthvorn spenann. Mjólkurbúið mitt hefur varla undan að framleiða fyrir litla kálfinn Síðan reyni ég að fara sitja inn fleiri myndir sem fyrst.
Síðan er hann að verða mannalegri með hverjum deginum og duglegri að halda haus það er ennþá smá í að hann geti haldið honum alveg sjálfur en við erum dugleg að æfa okkur.
Ég get allaveg sagt ykkur það foreldrahlutverkið er yndislegt þrátt fyrir að hann geti haldið okkur vöku langt framm eftir nóttu hehehe
Síðasta þriðjudag var afmælið mitt og ég gerði svo sem ekkert þannig annað en að eyða tíma með fjölskylduni og bjóða fólki heim til að klára kökuafganga og ég vil þakka kærlega fyrir mig og líka fyrir að klára kökurnar ég var orðin smeyk um að þurfa að éta kökur næstu vikuna oohh.
Síðan ætlum við Dave að reyna að skella okkur í bíó í næstu viku að sjá Borat sem er mynd sem ég held að maður meigi hreinlega ekki missa af í bíó annars erum við búin að ákveða að ver ekki að stunda bíóin nema að það sé einhver möst see mynd því að það er búið að hækka miðverðið upp í 900kr WHAT er verið að gera grín í okkur maður getur leigt eina nýja og eina gamla fyrir minna OOOHHH ég þoli ekki hvað sumt eða kannski flest hérna á Íslandi er dýrt ekki það að ég sé eitthvað nýsk en ég kannski miða við önnur lönd voða mikið svona er þetta bara.
Síðan er Nóvember hálfnaður OMG jólahjól bara á næsta horni mér finnst yndislegt að hugsa til þess að ég sé ekki að vinna yfir jól eða áramót og síðan fer Davíð aftur í orlof 15. des þannig að það verður sko jólastemmning á þessum bæ síðan er sko búið að plana að fara niður í bæ á Þorláksmessu þar sem ég hef ALDREI farið ég hef alltaf verið að vinna en núna get ég farið JEIJ, og síðan eru þetta fyrstu Jól Jóhanns Otta en ég held að næstu verða æði fyrir hann því þá er hann orðin 14 mánaða og getur leikið sér með allt dótið sem hann á eftir að fá en þessi Jól verður hann bara slefandi og skilur ekkert í þessum Jólaljósum.
Jæja ég ætla að fara að taka úr þvottvélinni sem er búin að vera nánast stanslaust í gangi í 4 vikur eða síðan Jóhann Otti kom heim hehehe.
Yfir og út
Erlaog Jóhann Otti
5.11.2006 | 22:29
Skírnarveisla
Hún var í dag og heppnaðist svona líka vel fólkið byrjaði að týnast inn upp úr 15:00 og alls mættur 44 mans + - 2. við buðum upp á þetta hefðbundna kökur og kaffi og virtist leggjast bara vel í fólkið því summt kláraðist bara strax eins og þessi fræga skinku þakta brauðtetra.
Jóhann Otti svaf nú mest allan tíman en var eitthvað ósáttur þarna undir lokinn þar sem hann er með eitthvað í mallanum en það lagaðist nú.
Það er nó af afgöngum ó dí ég er ekki að meika kökur út vikuna en þá verður bara bananar og hrökkbrauð næstu.....nei segji svona. Síðan verður mín nottla 21 á þriðjudaginn þannig ef fólk lítur við þá fær það bara afganga úr veisluni og ef þeir klárast ekki þá kem ég í heimsókn til ykkar og þröngva upp á ykkur kökur hehehe
Ég vil þakka Gunnu, mömmu, Sæu og ömmu sem voru svo elskulegar að baka fyrir veisluna og sérstaklega Gunnu og Þorsteini fyrir lánið á húsnæðinu og öllum þeim sem lögðu fram hjálpahönd við að koma veislunni saman.
Ég vil líka þakka fyrir frábærar skírnagjafir annars var nú samvera ykkar sem komu besta skírnargjöfin
Síðan vil ég minna ykkur á heimasíðunna hjá pabba þar sem hann setur inn myndir úr skírninni og síðan er www.123.is/motivmedia mydirnar eru í möppu sem heitir óflokkaðar möppur og einnig eru eldri myndir sem þið getið séð með því að fara inn á myndaalbúm og þar inni er mappa sem heitir Jóhann Otti Davíðsson
nýtt blogg seinna í vikunni á nýrri tölvu þangað til næst.
Erlaog Jóann Otti
4.11.2006 | 18:24
Jææjjaa
Nú er maður orðin 2 vikna+ og hutirnir ganga tja ég segji nú ekki áfallalaust en bara þokkalega Jóhann Otti er nefninlega búinn að vera með eitthvað í mallanum síðastliðna 3 daga þannig það svefn er ekki búin að vera nr 1 síðastliðnu 3 nætur en við keyptum sérstaka magadropa í gær og það ætti að fara að virka og við þrjú ættum að geta farið að sofa aftur fljótlega annars er þessi elska að verða mannalegri með hverjum deginum.
Síðan var amma Gunna að gefa okkur kerru Graco kerru sem er alger snild því að það er doldið í að hann geti farið að vera í kerru en með þessa kerru þá er hægt að smella bílstólnum ´kerruna síðan þegar hann er orðin stór þá getur hann bara verið í kerruni sjálfri.
Síðan er skírnarveislan á morgun í Fagrahjallanum (16 og kl:15:00) þar verða í boða kökur og kræsingar og skemmtilegasti félagsskapur í bænum.
Ég hef þetta stutt í þetta skipti en síðan verður nánar blogg eftir helgi.
Þanngað til næst.
Erlaog Jóhann Otti
Færsluflokkar
185 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar