Læknisskoðun

dsc02478.jpg

Jæja hann Jóhann Otti fór í læknisskoðunn í dag bara partur af ungbarnaeftirlitinu og allt kom svona líka vel út hann er búinn að þyngjast vel, síðast var hann 5.440g núna er hann 6.100g síðan er hann orðinn 63 cm hann var síðast 60.5 cm þannig að hann vex og dafnar hjúkkuni leist rosalega vel á hann og honum leist ýkt vel á hana því hann brosti alveg allan hringinn og sjarmaði þvílíkt fyrir henni pissaði meiri segja tvisvar á borðið hjá henni híhíhí. Næst fer hann í skoðunn 17. jan og þá fær hann sprautu OOÓÓÓÓÓ, en við erum búin að ákveða að vera ýkt dugleg og gráta ekkert. Annars er það að frétta að ég fór í skriflegt inntökupróf fyrir flugfreyjuna hjá Icelandair í morgun og það gekk svona lala, því var skipt í tvo hluta almennar spurningar og tungumál og mér gekk ágætlega í almennu spurningunum en OMG skeit á mig í tungumálonum þetta var líka ekkert auðvelt. Þetta var allt eiðufyllingar semsagt á ensku, dönsku, þýsku, spænsku og frönsku og þessi texti var bara ekkert grín þetta var bara háskólatexti og ég veit það að ég er ekki sú eina sem þótti þetta erfitt það var almennt talað um það hvað þetta var rosalega erfiður texti. Ég gerði enskuna, dönsku, frönsku og þýsku og by the way ég kann ekkert í þýsku en ég reyndi, síðan var mér litið yfir axlirnar á tvem stelpum þegar ég var að labba út og ég sá að þær voru rétt hálfnaðar með prófið og 10 mín þá eftir. Það sem mestu skiptir ég mætti og gerði mitt besta ég er eiginlega búinn að ákveða að ég sé ekki kominn í gegnum þessa síu því ég meika ekki að gera mér einhverjar vonir því mig langar ýkt í þetta starf þannig ég kemst ekki í gegn og nú verð ég ekki fyrir vonbrigðum. Síðan jafnvel þótt ég kæmist í gegnum þessa síu þá er ekkert sjalfsagt að maður fengið starfið því maður þarf að fara í viðtal og þá byrjar stressið þá þarf maður að vanda fataval og framkomu og amður er þvílíkt dæmdur. Síðan á ég vinkonu sem hefur sótt nokkrum sinnum um og hefur einu sinni eða tvisvar fengið viðtal en ekki komist í gegn og hún er meira menntuð en ég og útskrifuð úr flugfreyjuskólanum, hún þekkir líka margar freyjur og þær segja að þetta sé voðalega mikið happadrætti eða klíkuskapur hvort þú komist inn, segir þjósagan ekki það líka að þú komist inn ef þú þekkir einhvern eða ert einhver; )heh.

Jæja farinn að horfa á neighbours.

Hastala vista beibí


Börn

Já gott fólk ég var að velta fyrir mér börnum og brjóstagjöf um daginn, að eignast barn er guðsgjöf það er alveg á hreinu því því miður þá geta það ekki allir ég man eftir því ég horfði einu sinni á þátt með Sirrý og þá var verið að fjalla um fók sem getur ekki eignast börn vegna líkamlegra vandamála eins og of fáar sæðiafrumur og þar fram eftir götonum þannig þetta er ekkert sjálfsagt mál. En ef þú ert ein af þessum lánsömu þá ertu heppinn þetta ferli frá byrjun til enda er rosalega fallegt og "verðlaunin" er það stærsta gjöfin sem þú getur fengið í lífinu. Síðan tekur uppeldi og ummönnun við það eru auðvitað viðbrigði og ég neita því ekki það reynir oft á þolinmæðina en það er að sjálfsögðu eðlilegt því maður er kominn með lítinn einstakling og maður er ekkert vanur að vakna nokkrum sinnum á næturna eða taka nætur sem maður hreinlega sefur ekkert það er hlutur sem maður þarf að venjast því þessar elskur gefa manni sko engann sjens. Ég gerði mér ENGA grein fyrir hvað brjóstagjöf er mikið stór mál fyrir konur ég hef verið að lesa á Barnalandi t.d. að það eru konur sem þurfa að hætta með börnin á brjósti vegna ýmissa vandræða og stundum er það stundum eitthvað sem þær ráða ekki einusinni við ef krakkinn er t.d. með mjólkuóþol og almennt finnst mér að ef af einhverjum ástæðum það eru einhver stór vandræði þá eru þær að leggjast í hálfgerða depru yfir því.

Jú ég geri mér grein fyrir því að þetta er mjög mikilvægur hlutur ekki miskilja mig en ég get alveg sagt það að brjóstagjöfin hjá mér hefur ekkert gengið alveg 100% ég hef ekki nó af mjólk fyrir blessað barnið þannig hann fær þurmjólk á móti, ég tel mig ekki vera verri móðir eða manneskju ég hef reynt að láta þetta ganga upp en það heppnaðist ekki því miður en það sem er númer 1 2 3 það er að fá næringu hann er ekki svangur og það finnst mér fyrir öllu. Mér finnst persónulega að það sé búið að taka þessa brjóstagjöf og hreinlega stimpla inn í mæður að þetta sé það mikilvægt að ef þetta gangi ekki þá fari himinn og jörð, ég held að konur verði að hafa í huga að ef barnið nærist betur á þurmjólk eða einhverju öðru þá sé það fyrir öllu nei ég meina ef þetta er orðið þannig í dag að konur eru að leggjast í depru yfir að þetta gangi ekki það er það orðið doldið sick.

Æ ég veit það ekki en það sem ég hef lært að það eru ROSALEGA sterkar skoðanir á brjóstagjöfinni.

Kveðja mjólkur bú Jóhans Otta


Jólahjól

dsc02311.jpg
HÆ ég vildi bara blogga sérstaklega til að þakka fyrir okkur(pakkana) og þetta blogg er sérstaklega til ykkar út í Svíðþjóð TAKK æðislega þetta voru þvílíkt flottar gjafir til hans Jóhans Otta og eiga eftir að koma sér að mjög góðum notum og takk líka fyrir mig og Davíð. Þúsund kossar og knús frá Jóhann Otta, Erlu og Davið

GLEÐILEG JÓL ÖLL SÖMUL

jodc_151106_jsm2052_103025.jpg

Gleðileg Jól sykurpúðarnir mínir hafið þið það gott í kvöld, borðið hægt og mikið maður fær nú svona mat bara á jólonum. Njótið þess að vera með þeim sem ykkur þykir vænt um og munið að gefa mér marga pakka...........nei djók ; ).

Ást og friður pís

Gleðileg jól allir

Frá fjölskylduni í Vallartröð 8


Ný skoðunarkönnun

Ný skoðunarkönnun vinstrameginn á síðunni endilega takið þátt ekki vera hrædd það verður enginn móðgaður hver sem útkoman er: )

Fullt af nýjum myndum

dsc02497_2_2_102596.jpg

Sem eru í Jóhann Otta almbúmi og Ýmislegt annað albúmi.
Annars er allt gott að frétta af okkur það er bara búið að vera nó að gera hjá okkur, en núna er ég búinn að öllu nema Dave á eftir að ryksuga og skúra á morgun, ég gerðist meira að segja svo djörf og ég bjó til nokkrara jólagjafir sjálf í ár ýkt stolt af mér, síðan var ekki á planinu að baka en ég ákvað að gera haframjölskúlur mmmmmm þær eru svo góðar og alls ekki flóknar, ég gleymi því aldrei þegar ég var lítil þegar mamma gerði svona kúlur að það var aðalsportið að fá að rúlla kúlonum og velta þeim upp úr kókos.

Jóhann Otti er ávalt í stuði með guði hann er alltaf að verða mannalegri og þetta yndislega bros er orðið daglegt brauð stundum er meira að segja svo gaman að maður bíður bara eftir því að það fari að koma hlátur með það vantar stundum svo lítið upp á alger rjómabolla. Næsta læknisskoðun er 28.des þá verður hann vigtaður og mældur aftur og ætli hann sé ekki búinn að þyngjast duglega hann étur eins og hross hann er sammt ekkert búttaður það er svo sem ekkert til að klípa í þannig æ þið vitið sum börn hafa svona smá spikfellingar sem er hægt að klípa í og ég er svo hissa að hann sé ekki með svoleiðis því hann étur svo mikið.
Hann er orðinn duglegri að sofa sefur lengur í senn á næturnar sem er bara jákvætt við viljum ekkert breyta því ALLS EKKI. Síðan var mamma að minna mig á það að hann á örugglega eftir að fá ÓGEÐSLGA mikið af dóti í jólagjöf Ó DÍ og við þurfum að fara að reikna með því inn í íbúðinni ég var ekkert að spá í þessu bara svo kærulaus eitthvað en þetta fylgir blessuðu börnonum.

Þetta stefnir í góð Jól ég segi ekki annað og það verður yndislegt að hafa litlu rjómabolluna mína.

Kíkiði á þetta, þetta er mynd sem vinur hans Davíð tók út um stofu gluggan hjá okkur.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

2 máðnaða

Ég verð að byrja á því að afsaka blogg leysið en þar sem lyklaborðið okkar er "bilað" þá get ég ekki gert bil á því. 

Minn er bara orðinn 2 mánaða orðinn rosa stór og eins og þið sjáið er maður bara farinn að brosa á miljón trilljón alger rjómabolla.  Hann allavega vex og dafnar.  

Síðasta helgi var æði á laugardaginn þá var jólahlaðborð hjá Agli Árnasyni,  hann Jóhann Otti fór í sína fyrstu næturpössun hja´'Olöfu ömmu og Nonna afa sem gekk eins og í sögu mamma kom og sótti hann um 17:00 leitið og fór með hann heim það var látið hafa fyrir sér til 20:00 leitið og þá steinrotaðist maður og svaf til klukkan að verða 1 síðan var bara sofið meira og minna alla nóttina það eru pælingar um að þetta hafi verið með vilja gert því dagana áður hafði ekki verið sofið mikið þannig þetta var rosalega auðvelt fyrir ömmu og afa.

Klukkan 18:00 fórum við í fordrykk þar sem var boðið upp á bjór og freyðivín þar vorum við til klukkan að ganga átta og síðan var haldið á leið upp í Perluna þar borðuðum við ágætis mat annars fórum ég og Davíð bara strax í aðalréttinn og slepptum meira að segja desert ekki af því að þetta var eitthvað vont við vorum bara ekki í einhverjum át fýling.  Síðan þegar borðhald var búið þá var farið upp á barinn og chillað þar þar fékk ég afgreiddan Cosmopolitan í long drink glasi og fyrir þá sem ekki vita hvað það er þá er það svona glas sem maður fær afgreitt gin og tonik í hehe. Það var því miður umtalað hvað barþjónustan þarna var fyrir neðan ALLAR hellur og ég er ekki sú eina sem lenti í einhverjari djók þjónustu á barnum þeir vissu ekkert hvað þeir voru að gera EKKI NEITT.

Tengdó kom í vikunni með GEGGJAÐ góðar smákökur sem hún bakaði þvílíkt myndó.  Takk Gunna.

Síðan kom Halla frænka hans Davíð í heimsókn og færði honum smá pakka og að kíkja á hann hún hafði aldrei séð hann áður.  Takk Halla frænka fyrir pakkann.

Allaveg þar hafið þið það kem með nýtt blogg von bráðar.

 

Kveðja Erla og Jóhann Otti 

 


Nýjar brosmyndir

Jæja þá er hann byrjaður að brosa á fullu fyrir myndavélina. Nýjar myndir í albúminu hans Jóhanns Otta

Það er ekkert að

Jæja fórum til læknis í morgun og það er ekkert að litla hjartanu í honum, læknirinn sagði að svona hljóð væru mjög algeng í ungabörnum en ættu að vera farinn um skólaaldur sem sagt 5-7 ára. Ég get því miður ekki sagt hvað þetta er hann var eitthvað að reyna að útskýra þetta fyrir okkur en ég mér hreinlega fannst ekki fá almennilegt svar en það skiptir engu þar sem þetta er EKKERT. Jóhann Otti stóð sig eins og hetja það þurfti að hátta hann alveg nema hann fékk að vera á bleyjuni og síðan var litla hjartað skoðað frá öllum hliðum með ómtæki hægri, vinstri, ofan frá, neðan frá og hann er stálhraustur. Hann er byrjaður að taka upp á því að rugla doldið með svefnin það var hérna um daginn þar sem hann fór ekki að sofa fyr en 7:00 um morguninn og í nótt þá svaff hann ágætlega nema hann vaknaði um 5, 6 leitið og fór ekkert almennilega að sofa aftur fyr en 3 í dag og svaf með mér til 19:00 í einni bunu þið getið rétt ýmyndað ykkur hvað ég get stundum verið þreytt og mygluð ljótan er allavega búin að vera vinkona mín síðastliðnu daga. Þið verðið að afsaka að þetta komi svona í einni bunu þeð vill ekki halda línubilinu það er eitthvað að þessu en ég reyni að laga þetta. Ég er farinn að éta uppáhaldið mitt fisk og gera jólakort.

Adios


Læknisskoðun

Ég vil byrja á því að benda ykkur á að ég er aðeins búin að breyta síðunni, á vinstri hliðinni er komið nðurtalning til jóla og spurt er sem er dálkur fyrir skoðunarkönnun sem ég hvet ykkur eindregið til að taka þátt í.

Annars er það að frétta að við fórum í skoðun í morgun og lækninum leist voðalega vel á hann. Hann er orðinn 60cm og 5440gr semsagt búin að stækka um 5cm og þyngjast um tæp 900gr sem er alveg geggjað, en þegar hún hlustaði hann þá heyrði hún aukahljóð í litla hjartanu, læknirinn sagði okkur að EKKI fara í panic svona hafi hún heyrt áður í ungabörnum en það væri vinnuregla að láta athuga þetta eðlilega og oftar en ekki væri þetta ekki neitt þannig að Jóhann Otti er að fara til hjartalæknis á miðvikudaginn, en í guðana blnum það þarf ekki að panica það geta allir verið rólegir.

Þá ætla ég ekki að hafa þetta lengra blogga á miðvikudaginn um hvernig gekk.

Kveðja Erla og Jóhann Otti


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

185 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband