14.1.2007 | 18:01
Gælunöfn
Hér eru nokkur gælunöfn sem hann hefur fengið af hinum og þessum búbbi, snúlli, Jotti, Jói, gull, nonni, rassaprumpi(bara þegar hann prumpar) þetta er svona það helsta sem mér dettur í hug í augnablikinu langaði bara svona að deila með ykkur. Annars fer að líðan að næstu læknisskoðun hjá Jóhann Otta sem er næsta miðvikudag hann er líka farinn að sofa meira úti sem er bara gott því þá sefur hann í einni bunu allan lúrinn hann er þé ekki að vakna í tíma og ótíma. Dagurinn í DAG er doldið sérstakur fyrir mig og Davíð því í dag 14. jan erum við búin að vera saman í 3 ár hvorki meira né minna JEEEEEIIJJJJJJ gaman gaman og ég skal segja ykkur að minn heitt elskaði er búin að vera ekkert smá rómó í dag það byrjaði með breakfast in bed síðan fékk ég að kúra aðeins lengur síðan þegar ég vaknaði aftur þá var búið að þrífa íbúðina núna er hann að elda dýrindis máltíð handa okkur og baka súkkulaði köku haldiði að maður eigi ekki MYNDARLEGAN MANN : )
Annars ætla ég að skella inn örfáum myndum með þessari færslu sem eru að venju í albúmi hans Jóhanns Otta
Adios Erla og Jóhann Otti
Ef þið smellið á þessa skrá hér fyrir neðan þá sjáið þið mynd af Jóhann Otta þar sem að pabbi litli var eitthvað sofandi þegar hann var að klæða hann í
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 18:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.1.2007 | 04:29
Jæja...
var að koma heim úr veisluni og þetta var smá miskilningur hjá mér þetta var veisla á vegu Glitnis en ekki Kaupþings en engu að síður var þetta mjög flott veisla miðaða við það að þetta voru nokkur hundruð manns. Ég hef aldrei þjónað í svona stórri veislu en mjög gaman að prufa það allavega einu sinni. Þetta var ekki árshátíð eða neitt svoeiðis þeir voru að bjóða alskonar fólki úr þjóðlífinu t.d. Jóhannes í Bónus, Össur skarphéðins, Erla Júlía nei djók, Jón Sigurðsson og margir fleiri. Þetta gekk nokkuð áfallalaust salnum var skipt í 4 hluta eftir lit glum, rauðum, grænum og bláum síðan var einn stjórnandi á hverjum lit og tveir þjónar með 2-3 borð, síðan var maturinn keyrður á tvem stöðum í salnum og stjórnandinn stóð við það borð sem maður átti að leggja á og hún hélt hendini uppi á lofti og hélt á litlu ljósi svo að við sæjum hana því það var mikklu erfiðara en maður hélt að koma auga á konuna. Glitnir gerði kröfu á að það yrðu sem mest af lærðum þjónum þannig að ég hitti marga sem ég þekki úr bransanum alveg böns sem var bara gaman maður hittir þetta fólk eiginlega aldrei. Kvöldið gat sammt ekki gengið áfallalaust því þegar það kom að því að fara að koma kaffina á borðin þá var búið að safna saman svona pressukönnum sem mér persónulega þykir það bara ein fáranlegasta hugmynd í HEIMINUM því að við áttum að fara með könnur og bara hella í bollana en ekki setja neinar könnur á borðin HA!!! Svo var það teið nei góðan daginn þá duttu allar dauðar lýs úr mínu höfði það var einn já EINN te kassi fyrir allt þetta fólk WTF það bað maður mig um te okei ekkert mál en ég þurfti að byrja á því að fara og leita að te kassanum sem tók mig reyndar ekki eins langan tíma og ég hélt en sammt ég hlatraði hringinn um salinn(sökum Þess að ég var kominn með blöðru á litlu tánna) og loksins fann ok það reddaðist. Síðan undir lokinn var skipulagið orðið doldið mikið óskipulag en þetta var flott veisla hjá Glitni og skemmti atrðiðin bara þokkalega flott t.d. Diddú, einhver tenór, Páll óskar og síðan var Björk konana hans Gunnars Helgason veislustjóri og svei mér þá þetta er hress og fyndin kona og tala nú ekki um öryggið upp málað. Síðan kom sá tímapunktur að ég var orðin svo þreytt í fótonum(var í nýjum skóm) að minns gat bara ekki meir þannig ég skundaði heima og knúsaði kallana mína, bloggaði og ætla núna að fara að heimsækja draumaland.
Lov jú all
Erla og Jóhann Otti
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 04:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.1.2007 | 17:50
Svefn
jæja það er eins og hann hafi vitað að við hefðum hringt í svefnráðgjafa því sama kvöld fer hann að sofa klukkan 3:00 og það var ekkert vesen kvöldið eftir það 2:00 og í gærkvöldi klukkan 1:00 og að sjálfsögðu vaknar hann þá fyrr þannig þetta er allt að koma hjá okkur. Við erum búin að komast að því að honum líður líka voðalega vel þegar hann er orðinn þreyttur og við tökum hann og vefjum sængini utan um hann þá sofnar hans eins og grjót. Við komumst líka að því að hann vill núna taka eina týpu af snuði sem heitir nam og er svona gómlaga við höfðum reynt það áður en hann hefur verið einhver þrjóskupúki en ég er mjög fegin að hann taki það því þó að hann sé ekki með það 24/7 þá getur það sammt verið þægilegt að hann taki það. Hlutirnir eru allir að þróast hann er farinn að geta haldið á einni hringlu sem hann á ef ég set hana í hendina honum, honum finnst hún vera æði og reynir stundum að éta hana líka þannig hann áttar sig nokkurn veginn að hann sé með eitthvað í hendinni. Síðan er það nýjasta nýtt að drekka úr stútkönnu það nefninlega fannst stútkanna af algeri tilviljun sem var merkt fyrir 3 mánaða tja hann er ekki orðin en sammt sem áður var ákvðið að prufa og við svona líka góðar undirtektir við prufuðum að setja svona ungbarnadjús í það og mmmm nammi nammi hann elskar þetta. Hann fattar sammt ekki alltaf að byrja að sjúga þannig stundum þá þarf að hella upp í hann smá djús til að hann fatti að það sé verið að gefa honum djús.
Síðan er það ungbarnaeftirlitið næsta miðvikudag og það verður spennandi að sjá hvað hann hefur þyngst og stækkað. Næsta laugardag er ég að fara vinna í laugardagshöllini fyrir kappaflingdfling eða kkkööööppptthhiiinnngg þeir verða með rosa flottan gala dinner það verður spennandi því mér var boðið að vinna í þessari veislu þegar hún var í fyrra en ég gat það ekki þá.
En allaveg nenni ekki að skrifa meira mér er eitthvað illt í maganum og ég ætla að faðma sófann minn og jafnvel les 10 kafla í Laxdælu jeij : /
Sí jú leiter
9.1.2007 | 17:42
Ný skoðunarkönnun....
og takk fyrir að taka þá í þeim sem á undan hafa komið. Það er alveg augljóst að Davíð á mest í honum og ég bara smá sem er allt í lagi einhverjum verður hann að líkjast það segja líka nánast allir að hann sé mest líkur Davíð en hann sé með augun mín sem ég vil reyndar taka undir sjálf. Ég er mjög sátt við það að hann hafi fengið mín augu: )
Endilega takið þátt mig mig grunar nú sammt hver útkoman verður en hver veit eheheh.
Óver and át
Vinir og fjölskylda | Breytt 10.1.2007 kl. 11:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.1.2007 | 02:06
Það er komið myndband
Það er komið myndband vinstra meginn á síðuna undir kassanum þar sem eru nýjustu myndirnar það er eiginlega möst að hafa hljóð á tölvunni.
CHECK IT OUT.
9.1.2007 | 01:34
Yngsti lögreglumaður Ísalands.....
Jæja síminn er fundinn þannig þið getið hringt í 869 númerið ég ætla ekki að segja hvar hann var en ég vil taka það framm hann var ekki hérna heima eða í bílnum.
Annars er allt gott að frétta hjá okkur Jóhann Otti hefur það bara fínnt maður er orððinn svo stór að hann alveg er hættur að fara í bað í balanum það er meira að segja búið að skila honum. Hann er allur að verða sterkari stundum þegar hann ligur á bakinu þá lyftir hann löpponum alveg upp síðan settum við hann á magann um daginn við höfðum nefnilega ekkert gert það í smá tíma og hann var byrjaður að ýta sér til hliðar þannig f við verðum duglegri þá getur hann æft sig í því að velta sér á magann. Hann er ekki enn þá kominn með svefninn í lag þannig ég hringdi í svefnráðgjafa í dag og talaði við hana sem betur fer því það sem ég var að reyna hefur enginn áhrif en hún gaf okkur góð ráð sem við þurfum að reyna núna og gefa þessu uppundir hálfan mánuð ef við erum ekki farinn að sjá árangur þá þá eigum við að hringja og panta tíma hjá þessum svefnráðgjöfum þá mundum við fara í klukkutímalangt viðtal og síðan yrði staðan metinn út frá því en ég vona að við náum nú að leysa þetta sjálf annars þarf að leggja hann inn og kenna honum að sofa. Góðir hálsar hjá sumum börnum er þetta stór vandamál og þetta er mikklu algengara en manni grunar, það hefur verið sagt við mig "þetta líður hjá" "leyfið honum bara að sofa" það virkar bara hreinlega ekki þannig því miður hann er búinn að vera svona í hálfan mánuð og nú er kominnn tími til að grípa inn í því ef þau finna sér eitthvað "þægilegt munstur" eins og t.d. að fara sofa 5 og sofa til hádeigis afhverju ætti þau að breyta því sjálf þau fatta það ekkert, þau geta auðveldlega snúið sólahringnum við og þau skinja það sjálf venær það er dagur eða nótt. Þrátt fyrir að það sé nótt og þau glaðvakandi þá halda þau að það sé dagur stundum þurfa þessi kríli hjálp við að koma smá röð og reglu á sig tala nú ekki um foreldrana vegna mér finnst allavega skárra að leita hjálpar núna heldur en að reyna kyngja stoltinu og tapa geðheilsu í leiðinni það er bara ekki flóknara en það. Tala nú ekki um að hún sagði mér margt fróðleikt sem ég mun hiklaust nota.
Jóhann Otti er að fara til læknis 1.feb til að ath með augun í honum það eru því miður mikklar líkur á að hann þurfi gleraugu hvernær sem hann má fá þau. Ef maður bara lítur á fjölskyldusöguna ég sem er alveg þvílíkt nærsýn, pabbi með gleraugu, litli bróðir minn, mamma og davíð en auðvitað vonar maður bara það besta. Læknirinn í ungbarna eftirlitinu sagði okkur bara að drífa okkur með hann því þrátt fyrir ungan aldur þá er sammt hægt að sjá þetta það var útskýrt fyrir mér fyrir stuttu hvernig en ég er bara búinn að gleyma því : /
Læknirinn sem mun skoða hann er eimmitt sami læknirinn sem skar mig upp á auganu hann Guðmundur Viggóson.
En eg mun sitja NÝJAR MYNDIR inn á hans albúm og fyrir þá sem eru ekki alveg klárir á hvernig eigi að fara inn á það þá er kassi vinstra meginn ofarlega á síðunni þar stendur myndaalbúm smellið á það og þá fáið þau öll á skjáinn og þið bara smellið á nafnið hans þá farið þið inn í hans albúm.
Ég ætla að gera lía heiðarlega tilraun til að setja inn stutt myndband semnáðist af honum hlæja.
Þanngað til næst...............................
3.1.2007 | 17:13
UUUHHHHUUU "grát"
3.1.2007 | 03:04
Nýjar myndir og fyrsti hlátrurinn
Jæja þá er fyrsti hláturinn kominn það kom fyrst þegar hann var búin að ver pirraður og ég stóð með hann inn í eldhúsi og Davíð var að þykjast meiða sig það fannst honum rosa fyndið síðan kom aftur þegar ég var búin að setja með hann og hlæja í góðar 4 mín þá var hann að herma eftir mömmu sinni þannig þetta er allt á réttri leið. Sólahringurinn er að lagast hjá okkur loksins þetta er allt að koma hann er farinn að sofa núna klukkan 3 en ekki 5 sem betur fer það er nú skömmini skárra. Annars er allt gott að frétta af okkur ég er að fara að byrja að leita af dagmömmu sem ég hefði í raunini átt að byrja á í sept þegar ég var í fríi nei í alvöru talað þetta er víst ekkert eðilegt lengur með þessar blessuðu dagmömmur. Úff hvað ég er ekki að nenna að byrja en jæja ég verð fegin þegar þetta er búið. Þessi litli drengur er orðinn enginn smá merkja kall hann á orðið þrenna adiddas skó alla í mismunandi stærðum sem betur fer tvenn Joe Boxer náttföt, gap náttföt og sokka og adiddas íþróttagalla pabba hans til mikillrar ánægju en annars á þessi drengur bara flott föt almennt þökk sé ykkur dúllonum mínum.
Það eru nýjar muyndir í hans albúmi og ýmisslegt albúminu.
Sí jú leiter
1.1.2007 | 06:43
GLEÐILEGT NÝTT ÁR
Elsku dúllurnar mínar og takk fyrir þetta svona líka viðburðaríkt ár sem er liðið. Ég fékk alveg kökk í hálsinn þegar ég horfði á tölurnar á stöð 1 breytast úr 2006 í 2007 því ég er svo þakklát fyrir síðasta ár það gerðist svo margt gott.
Jóhann Otti var ekki alveg viss hvernig hann átti að haga sér í öllum þessum látum en hann var voðalega heillaður af öllum þessum ljósum sem voru á himninum og fylgdist með þeim þegar þau birtust. Annar er hann byrjaður að uppgöta hendurnar á sér sem er bara jákætt þá getur hann farið að taka við dóti og leika sér eitthvað af viti, en þetta er ferli sem er að byrja. Við eyddum kvöldinu hjá Gunni og Þorsteini ásamt fleirum og þar fengum við dýrindis kalkún og ÆÐISLEGAN desert heimalgaður toblerone ís mmmm hvað hann er góður. Síðan kíktum við á mömmu mína og pabba og fórum á brenuna og flugeldasýningin var GEGGJUÐ eins og vanalega en það var samt áberandi að þeir voru með nýjar bombur sem voru æðislega flottar, eftir það fórum við aftur til Gunnu og Þorsteins þar horfðum við á skaupi sem að mínu mati var bara þokkalegt og síðan rann nýja árið í garð og hann Jóhann Otti svaf á meðan síðan fórum ég og Dave út að sprengja flugelda. Þetta var í heild frábært kvöld.
Enn og aftur gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það liðna.
Litla fjölskyldan í Vallartröð 8.
31.12.2006 | 00:46
Jóhann Otti
Jóhann
Nafn þetta er stytting á nafninu "Jóhannes" sem merkir Guð er náðugur.
Fallbeyging
nf : Jóhann
þf : Jóhann
þgf: Jóhanni
ef : Jóhanns
Otti
Sama/svipað og Ottó.
Fallbeyging
nf : Otti
þf : Otta
þgf: Otta
ef : Otta
www.mannanöfn.com
Færsluflokkar
185 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Viðskipti
- Lakers metið á 1.250 milljarða
- Viðskiptavinir færri á nýjum stað
- Hvernig finnurðu hálfvitann í herberginu?
- Bílastæðafjöldinn gefur sérstöðu
- Stefnumótun, stjórnun og lyftingar
- Hvað annað var hægt að gera?
- Innviðafélag Íslands til aðstoðar
- Tapið hafi legið í Atlantshafsflugi
- Verðlag á mat og drykk að jafnaði 44% hærra á Íslandi
- Norðurlöndin horfa til sjálfbærra fjárfestinga