1.2.2007 | 16:24
Góðar fréttir
Við fórum með Jóhann Otta til auglæknis í dag og hann skoðaði litlu augun Jóhann Otta fannst þetta ekkert rosalega gaman enda þreyttur og þegar við mættum og það þurfti að vekja hann
.
Hvað um það hann þarf ekki gleraugu allaveg ekki eins og staðan er í dag læknirinn sagði að hann hefði alveg sloppið en við eigum bara að fylgjast með honum og ef hann skildi fara að taka upp á því að verða rangeygður þá eigum við að koma með hann aftur annars fer hann ekkert í næstu augnlæknaskoðun þegar hann verður 3 ára bara til að ath hvort að hlutirnir séu nokkuð búnir að þróast í vitlausa átt því þó hann hafi fengið grænt ljós núna þá getur allt gerst og það er kannski ekki hægt að útiloka það 100% að hann þurfi kannski að fá gleraugu seinna en það er hægt að 90% útiloka það núna hjúkket.
Þar hafið þið það.
Erla og Jóhann Otti
31.1.2007 | 20:39
Bara að..........
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 20:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.1.2007 | 19:40
Nú er ég móðguð
það er kominn einhver ný kókómjólk á markaðinn sem heitir kappinn WHAT
sem EINLÆGUR áðdáandi alvöru kókómjólkurinnar þá er ég móðguð. Jú ég viðurkenni það að ég hef smakkað kappann enda verður maður að vita hvað þeir eru að reyna að rembast við að gera, bragðið af þessu kemst EKKI NÁLÆGT kókómjólkinni en jú það getur vel verið að það sé líka ásettningurinn hver veit en þrátt fyrir það er hún VOND.
Þið verðið bara að afsaka en ég hef og mun alltaf vera No. 1 fan af kókómjólk þannig að þessi rembingur hjá mjólku er bara tja ég veit ekki einu sinni hvað skal segja ég hristi bara hausinn. Ég legg til að við tökum saman höndum og sniðgöngum þessa nýju vöru og pössum rækilega upp á okkar gömlu góðu kókómjólk.
Og hana nú.
Erla
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 19:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.1.2007 | 18:13
Ný skoðunarkönnun
Já það er alveg á hreinu að það finnst öllum að hann fái hæðina hans Davíðs hlutföllin voru Davíð 81%, Erla 18% allt í lagi ég er ekkert sár hehehehehe einsog ég segji ég á ekkert í þessum grís nema augun
.
Endilega takið þátt í þeirri næstu.
Annars erum ég og Jóhann Otti bara að chilla núna og horfa á Rachel Ray hann fýlar hana í tætlur hehehe annars er ég að drepast úr leti sólarhingurinn minn er búinn að vera doldið leiðinlegur síðastliðna 2 daga, þar sem ég hef ekki verið að fara að sofa fyrr en 4 oohh ég veit þetta má ekki en við vorum nú líka að þrífa í gær, núna er ég að drepast úr þreytu alvarlega að spá í að fara hella mér upp á kaffi svo ég meiki yfir kvöldmat ég vaknaði nenfninlega klukkan 7:00, en ég ætla að halda mér vakandi þannig ég fari bara snemma að sofa í kvöld
.
Ég bætti við fjórum myndum í albúmið hans þannig að endilega kíkið.
Jæja farinn að knúsa litla grísinn minn.
30.1.2007 | 01:29
Nýjar myndir....
ég þarf væntanlega ekki að taka það framm á hvaða albúmi það er
.
Annars er það að frétta að framkvæmdinar eru loksins búnar ég get ekki sagt 100% búnar það vantar að fínisera einhver 3 eða 4 atriði sem er ekki neitt neitt þanig við erum núna pungsveitt að klára að þrífa og ég mun koma með myndir af baðinu seinna í vikuni. ég þakka uði fyrir að þetta sé búið ég höndla ekki svona róterí og drullu sem fylgir þessu ég get alveg viðurkennt það en svona er ég bara.
Jóhann Otti er farinn að hlæja mikið meira ótrúlegustu hlutir eru orðnir fyndnir í dag hjá honum og hláturinn hans gæti brætt 70 kíló af smjörlíki eru þið ekki sammála? Hann er líka orðinn rosalega sterkur og velti sér alveg sjálfur yfir á bakið 4 sinnum í röð í kvöld ekkert smá duglegur ég var eitthvað að reyna að taka það upp á myndband en það mistókst þannig ég reyni aftur fljótlega og skelli því inn á síðunna.
Síðan er febrúar að ganga í garð sem betur fer ég hata jánúar mér hefur alltaf fundist eins og jánúar sé einn langur mánudagur mér finnst árið aldrei byrja fyr en í febrúar nema hvað þetta er alveg afmælismánuður það eru fimm aðilar í fjólskilduni sem eiga afmæli þeir er Sæmi bróðir 1.feb, Rut mágkona 6.feb, Jakob Dagur frændi Jóhans Otta 7.feb, Dagbjört frænka 10.feb (eða 11 ruglast alltaf) og síðast en ekki síst han Davíð Þorsteinsson minn heittelskaði og barnsfaðir 26.feb(ef ég er að gleyma einhverjum þá fyrir framm sorrí), þannig að þetta er alveg slatti og ég hef ákveðið að stofna styrktarreikning fyrir þetta fólk svo ég geti keypt handa þeim afmælisgjafir.....................................................nei grín en þetta er nú sammt alveg slatti á einum mánuði
.
Jæja nú er mín farinn í hundana ég er byrjuð að æfa mig í að sýna hunda, næsta hundasýning er í mars en ég geri ekki rá fyrir að ég taki þátt þá því það er heldur stutt og ég vil æfa mig meira, ég og Hnoðri (hundur tengdó) förum á sunnudögum upp í reiðhöll gusts að æfa okkur ásamt örðum hundum sem eru að fara að sýna í mars síðan eru líka sumir hundar þarna sem eru ekki að fara að sýna en fólk er kannski að æfa sjálfan sig og hundinn. Síðasta sunnudag gekk rosalega vel hann stóð eins og hann átti að standa og hljóp með mér alger töffari en síðan þarf að stilla honum upp á borði og dómari skoðar hann strýkur honum og ath pung og tennur og þá var minn ekkert neitt rosa glaður en hann lét sig hafa það þessi elska er líka pínu lofthrædd já hundar geta verið lofthræddir góðir hálsar, en ég mun láta ykkur vita hvernig mér gengur.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra.
Endilega skrifið eitthvað í athugasemdir þarf ekki að vera neitt merkilegt frekar en þið viljið bara eitthvað.
Adios guys Erla og Jóhann Otti
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 01:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2007 | 02:11
Hvað er í gangi..........
nú er sonur minn búin að sofa í 12 tíma tvo daga í röð what hann sofnaði á föstudagskvöldið eins og vanalega um tíu ellefu leitið og svaf alveg til hálf eitt daginn eftir og annað eins núna í dag spes hann hefur fundið á sér að það væri helgi og ákveðið að sofa út hehehe
.
En nú eru framkvæmdinar að verða búnar JEIJ gaman gaman og baðherbergið barasta að verða GLÆSILEGT þökk sé Davíð hann er búinn að standa sig rosalega vel þannig ég reyni að koma með myndir í vikunni.
Síðan er það dagurinn óurlegi á fimmtd þarf hann gleraugu eður ei lemur í kjós.
Allaveg ætla bara að hafa þetta stutt núna set inn nýjar myndir á morgun
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 02:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.1.2007 | 00:12
Velta sér....
þá er það búið að gerast hann er búinn að velta sér af maganum ufir á bakið tvisvar á einu kvöld ó mæ god hvað maður er að þroskast.
Annars hefur Jóhann Otti það bara gott við tvö höfum verið mikið á faraldsfæti núna síðastliðnu 3 daga sökum þess að það er verið að flísaleggja baðið og sóðaskapurinn í HÁMARKI en Jóhann Otti hefur svo sem ekki látið þetta á sig fá sem er bara gott. Hann fór í pössun til ólöf ömmu á laugardaginn og það var rosa stuð Bjössi(voffinn hennar ömmu) var rosalega duglegur að passa Jóhann eins og alltaf.
Ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra ætla að skríða upp í rúmm en reyni að koma með eina góða bloggfærslu á fimmtudaginn og myndir þá líka, before and after myndir af baðinu.
Adios
Erla og Jóhann Otti
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 07:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.1.2007 | 11:11
Nú er minn sko orðinn stór og stæðilegur
Við vorum rétt í þessu að koma heim frá lækninum og það gekk bara vel þannig hann var doldið pirraður og mamma og pabbi þurftu að halda í hendina á honum hann var líka orðinn svo þreyttur þannig að þetta var ekkert rosa gaman.
Hann er orðin 65 cm og 6,425g algjör massi, læknirinn var rosalega ánægður með hann sagði að hann var bara flottur strákur. Síðan kom það að sprautuni og það gekk tja svona akkurat þegar hún stakk þá öskraði hann ekkert en það kom ROSALEGUR fýlusvipur og síðan þegar hún var aðsprauta hann þá var minn sko EKKI sáttur skiljalega drulluþreyttur og það er barasta verið að stinga mann en það gekk vel.
Annars er það að frétta að við erum að fara að byrja í ungbarnasundi 6.febrúar jibbbííííí það verður sko gaman þá verðum við í lauginni tvisvar í viku að busla og það er sko búið að kaupa sundskílu sko addidas takk fyrir maður verður sko að vera í flottri skílu ef það skildi vera fullt af skvísum í lauginni.
Síðan er það svefin já hann er loksins kominn í lag hann leggur sig tvisvar yfir daginn einu sinni fyrir hádeigi og einu sinni eftir og sefur þá sirka tvo tíma í senn síðan leggur hann sig kannski tvisvar á kvöldin en þá bara stutt í senn svo um 10, 11 leitið þá er hann orðin þreyttur og meira að segja getur sofnað sjálfur í sínu eigin rúmmi maður þarf ekki lengur að labba með hann um öll gólf til að hann sofni. Hann rumskar einu sinni fyrir nóttina og fær að drekka en vaknar sammt í raunini aldrei sem er doldið skondið hann gerir þetta eiginlega sofandi síðan er bara sofið til svona 7, 8.
Þannig að þegar uppi er staðið þá má segja að það bara gangi mjög vel eins og staðan er í dag
Hef þetta ekki lengra í dag.
Erla og Jóhann Otti
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 11:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.1.2007 | 01:12
Blóðgjöf er lífgjöf
Hæ allir saman ég vil bara minna ykkur á að endilega drífa ykkur í að gefa blóð það vantar alltaf blóð, þetta er mjög einfalt ef þú hefur gefið áður þá hringið þið bara og spyrð hvenær þú megir mæta þá gefa þær þér tíma síðan mætir gefur blóð sem tekur svona 5 mín já ég sagði 5 mín síðan á eftir þá ferðu inn á kaffisofa og um leið og þú labbar inn þá er dýrindis kaffhlaðborð með allskonar kræsingum, en ef þú hefur elli gefið blóð þá þarftu að hringja og fá tíma í blóðprufu það er bara til að ath hvort það sé ekki örugglega allt í lagi með það síðan líður einhver smá tími þanngað til að niðurstöður koma þá er bara gefið grænt ljós og þá hefst ferlið. Síðan eftir hverja blóðgjöf fær maður tíma aftur, þetta er EKKERT mál BLÓÐGJÖF ER LÍFGJÖF.
Þið getið líka hugsað þetta þannig að ef að eitthvað kemur fyrir ykkur eða fjölskyldumeðlim og ykkur vantar blóð þá er þetta bankinn til að treysta á sá EINI.
Annars er ég búin að uppgötva það að sonur minn er að fýla eitt myndaband á www.kvikmynd.is, ef þið farið inn á þessa síðu og farið í leit sem er efst til hægri og skrifið í leitina Gúmmíbangsi síðan ætla ég að leyfa ykkur að ýminda hvað hann verður hugfanginn þegar hann sér þetta
Ég er að fara að fjárfesta í doldið sniðugum stól(heitir Bumbo) handa Jóhann Otta þetta er stóll sem gerir honum kleift á að setja uppréttur. Þetta kennir honum sammt ekki að sita sjálfum en þetta er ekki stór stóll og hann er mjög léttur og rándýr hérna á Íslandi (9000kr) en ég ætla að byðja vinkonu mína sem býr út í USA að kaupa hann þar(3500kr) smá munur
Jæja vil minna ykkur á að það kemur nýtt blogg eftir hádeigi þá verður allt um ferðina í ungbarnaeftirlitið.
Myndin sem fylgir blogginu er af Bumbo stól
Já og TAKK fyrir að skrifa í athugasemdir endilega haldið því áfram gaman að vita hverjir fylgjast með
Kveðja Erla og Jóhann Otti
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 01:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.1.2007 | 18:16
Gleraugu
Færsluflokkar
185 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar