Bjútíbollan okkar

kafa1

 

 

 

 

 

 

 

kafa2

 

 

 

 

 

 

 

sund1


Sund framhald.....

Hæ allir saman já það er svo sum ekkert margt að frétta af okkur nema það að nú var kafað í annað skiptið síðastl föstud í beibísundinu kannarinn gerði einu sinnu eeennn svo gerði ég einu sinni og omg tilfiningin við að þurfa stinga ungabarninu sínu á bólakaf er doldið freakí jafnvel þó maður viti að það loki fyrir munn, nef og augu en það hafðist ég stóð mig víst bara þokkalega en þetta gekk bara vel og fyrir þá sem kíktu á síðunna hjá pabba þá líður honum voða vel í sundinu,  en annars er minn bara orðin svo sterkur ég vildi ég gæti sýnt ykkur hvað það vantar lítið upp á að hann velti sér á magann og vonandi áður en vitum þá verður hann búin að ná þessu og verður að velta sér hring eftir hring hérna um öll gólfW00t

En svo er það húðin á litla punginum hún er ekki alveg orðinn 100% þurkurinn er farinn en exemið er svona að koma og fara og svo klæjar honum svo þannig ég hringdi í lækninn sem við fórum til um daginn og hann gaf mér í raunini doldið óljós svör en ef ég skildi hann rétt þá á ég að gefa þessu aðeins lengri tíma og sjá hvort þetta líður ekki yfir og á bara að vera dugleg að bera á hann góð krem og get sett mildison sem er mildasta sterakerm sem er hægt að kaupa án lyfseðils og sjá hvað setur en hann sagði að hann þyrfti að fara í ófnæmis próf en kannski ekki alveg strax.

Þannig er nú það ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili ætla fara að skúra aðeins.

 

ErlaInLove og Jóhann OttiBandit

 


Nýjar Myndir......

GenerateThumbNail.aspxaf Jóhann otta í ungbarnasundi EKKI inn á þessari síðu það er inn á www.123.is/motivmedia 

NÝ SKOÐUNARKÖNNUN

Jæja þá er kominn ný skoðunarkönnun það er allavega greinilegt miðað við síðustu könnun að ég á ekki að breyta síðunni allaveg ekki í bili sem er allt í lagi ég er svo sem sátt við hana eins og hún er en alltaf gaman að sjá hvað öðrum finnst.

Þessi könnun er bara svona ut í loftið en endilega takið þátt fyrir mig það er allavega á hreinu hvað ég ætla að kjósa heheheTounge.

Þetta stefnir allt í chill helgi þannigð séð nema mér er boðið í afmæli á Players á föstud ekki alveg að nenna að fara en maður sér til það er X-Factor sem ég er farin að fylgjast doldið með sem var ekki planað ég bjóst við því að þetta yrði svo leiðinlegur þáttur  ég var komin með svo mikið ógeð af íslenska Idolinu og hélt ég væri ekki að fara að meika aðra svona keppni en þetta kemur bara á óvartFootinMouth

Ég vil meina að Jóhann Otti sé  núna að taka smá vaxtarkipp því ég fór í gegnum kommóðuna hans um daginn og þurfti að pakka alveg hellings af dóti og á móti koma að ég þurfti að kafa ofan í kassan sem er með of stórum fötum og tók alveg fullt af fötum úr honum aðalega nr 74 það er doldið rúmmt á hann en sleppur sammt.  Svei mér þá mig langar  geggjað að skella mér í litun i næstu viku og þá er ég með tvær hugmyndir sko,  síðast þegar ég fór í litun þá lét ég sitja alveg rauðvínsrauðan og það koma bara vel út en eins og rauðu litirnir eru þá eru þeir fljótir að renna úr þá er spurning hvort ég láti sitja aftur svoleðis?  Eða gera eins og ég gerði í sumar láta taka litinn sem ég er með í núna úr og setja ljósbrúnan svona eins og hægt er og ljósar strípur það koma alveg geggjað vel út sá doldið eftir að hafa litað ofan í það þannig ég hallast mjög að því að gera það aftur lýsa það aðeins,  en ef þið hafið einhverjat hugmyndir þá eru þær vel þegnarTounge

Heheheheh ég gat nú ekki annað en hlegið í gær þegar ég fattaði það að ég er núna í síðustu fjórum færslum búin að nota sitthvora myndina tvisvarBlush ég þarf greinilega að fara taka töflurnar mínar en núna ætla ég að setja inn nýja.

Jæja ætla fara aðSleeping

ErlaInLove og Jóhann OttiBandit


Fór í kaf

DSC02814Þá er þriðji tíminn í ungbarnasundinu búinn og í þessum tíma var honum dýft í kaf og það gekk bara fínnt þannig séð hann var bara doldið skelkaður eðlilega en hann sýndi eðlileg viðbrögð og lokaði þannig að hann drakk ekki vatnið en þetta kemur sundkennarinn sagði að það væri alveg eðlilegt að þau yrðu skelkuð eftir fyrstu dýfuna en að öðru leiti gekk bara vel. Annars ætlar Jón afi að koma með í næsta tíma og taka myndir af prinsinum í laugini og jafnvel á kafi þannig við reynum kannski að vera búin að koma eitthvað af þeim myndum annað hvort á þessa siðu eða myndasíðuna hans pabba i næstu viku.

Nú er hann líka að styrkjast alveg rosalega mikið stundum þegr hann situr í ömmustolnum sínum þá lyftir hann efri hlutanum á sér eins og hann vilji bara sita takk fyrir en það er smá í land með það.FootinMouth

Á morgun er valentínusardagur og jú við ætlum svo sem ekki að gera neitt sérstakt kallinn minn ætlar að stinga mig af og fara í rómantískan póker og pitsu með strákunum þannig að Jóhann Otti verður minn valentínus og við eigum eftir að koma okkur vel fyrir, kúra og horfa á uppáhalds þáttinn okkar Americas Next Top Model þannig það verður bara stuðGrin

Síðan set ég inn nýjar myndir fljótlega Kissing 

Ég æta ekki að hafa þetta lengra í bili verið góð við hvort annað á morgun (og alltaf).

ErlaInLove og Jóhann OttiBandit

 


Vogin

DSC02902Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: “Hvað finnst þér?” Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína.

Ungbarnasundið

DSC02902Jæja þá erum við búin að fara í seinni tíman og það var nú bara allt annað líf hann notaði líkamann sinn mikklu meira en síðast hann sperti sig, hann spriklaði með fótonum og hreyfði sig bara mikklu meira það var bara eitt skipti sem það var aðeins farið að væla en það gekk fljótt yfir þannig þetta stefnir allt í rétta átt og við rosa spennt því sundkennarinn sagði að það væri nánast undantekningarlaust munur á þessum krílum eftir eitt svona námskeið þá meinar hún svona líkamlegur bara í styrk og öðru sem er að sjálfsögðu mjög jákvætt.

Ég fékk nú vægt sjokk um daginn þegar einhver spurði mig hvað hann væri gamall og ég er löngu hætt að telja vikurnar en ég sagði tæp fjögra mánaðar og um leið og ég sleppti orðinu þá fékk ég barasta sjokk þetta líður svo hratt eiginlega allt of hratt en svona er þetta bara.  Nú er planið að lengja fæðingarorlofið mitt aðeins semsagt ekki byrja að vinna í lok apríl heldur vera í fríi til lok júní það er nú aðallega gert af því að hann fer ekki í til dagmömmu fyr en í byrjun ágúst og ef ég færi að vinna í apríl þá væru alveg heilir þrír mánuðir sem þarf að redda í pössun ég sé það líka bara núna ég meika ekki að setja hann í pössun svona "lítinn" þannig að Davíð tekur sennilega síðasta mánuðinn sinn í Júlí og þá smellur þetta saman en þetta er allaveg stefnan að reyna að láta þetta ganga.

Annars er allt gott að frétta hjá okkur  uppþvottavélin okkar er í viðgerð og það lyggur við að maður sé þunglyndur (er það sammt ekki) því jeremías og jólaskór hvað það er leiðinlegt að vaska upp jú við gerðum það í Dalselinu þegar við áttum heima þar og þetta er svo sum ekkert mál þannig séð en ef maður er eitthvað latur þá safnast þetta svo hratt upp og það verður svo fljótt drasl og það meika ég ekki já ég skal alveg viðurkenna það að ég þarf að hafa hlutina í röð og reglu í kring um mig enda hefur ákveðinn aðili(Davíð) kallað mig Monicu (úr Friends) því hún er svona vill hafa allt vel skipulagt en ég get alveg sagt ykkur það ég er ekki eins slæm og hún nó vei.

Jæja ætla fara að horfa á imbakassan en með þessari færslu ætla ég að setja inn örfáar nýjar myndir í albúmið hans Jóhans Otta.

Kveðja ErlaInLove og Jóhann OttiBandit


Nýjar myndir

Ég er búin að setja inn nokkrar nýjar myndir í albúmið hans og meðal annars mynd af ullarsokkonum og vettlingunum sem langamma Sæunn prjónaði handa honum.

 

Au revoirDSC02814


Læknisferðin

Hún gekk bara alveg  eins og ég vildi að hún mundi ganga hann er sem sagt kominn með exem, læknirinn skrifaði upp á sterakrem sem á að bera á hann tvisvar á dag og síðan  á hann að fá ofnæmis/kláðastillandi mixtúra tvisvar á dag og ég get svo sagt ykkur að honum líkar EKKI vel við mixtúruna ALLS EKKI en það er bara ekkert val því miður nú kannski fer hann að hætta að vera með hendurnar svona mikið framan í sér sem er hlutur sem við héldum að væri bara kjækur eða hann léti svona þegar hann væri þreyttur en læknirinn sagði að honum klæjaði bara. 

Síðan á hann að fara á soya þurrmjólk í 2 vikur til að ath hvort þetta lagist ekki þótt að hann sé líka að frá krem en þá gæti þetta verið mjólkurofnæmi,  þetta exem gæti sem sagt verið viðbrögð við mjólkini sem hann er að fá og ef svo er þá þarf hann að fara alfarið á soya mjólk en læknirnn vill mena að ef þetta sé mjolluofnæmi þá sé það ekki eitthvað sem hann á alltaf eftir að vera með hann sagði að í nánast öllum tilfellum mundi þetta vaksa af börnonum.

Síðan var það ungbarnasundið og það var bara geggjað hann var sammt frekar skelkaður og mjög hissa en þetta gekk bara vel þanngað til síðustu tvær mínúturnar þá tók minn maður eip og gargaði hátt en þá var tíminn akkurat að klárast þannig við skelltum okkur bara  í heita pottinn og þá leið okkur sko vel, nú verður bara spennó að sjá hvernig næsti tími verður.

Þanngað til næst.

ErlaInLove og Jóhann OttiBandit

DSC02796


Sæl.....

verið þið héðan er allt gott að fréttalitla fjölskyldan er að byrja í ungbarana sundi á morgun og við verður í því tvisvar í viku ég ætla ekki að taka myndavélina í fyrsta tíman en mun taka hana með mér í næsta tíman.  Jóhann Otti er að fara til læknis á morgun því að það er búin að vera þvíllík barátta við húðina framan í honum og mig grunar bara sterklega að hann sé með exem í andlitinu,  ég er allavega búin að prufa svo mikið af kremum að hann á orðið fleiri krem heldur en ég hehehe. En ég bíð bara spennt eftir því hvað hann segjir. 

Jóhann Otti veltir sér núna alveg sjálfur yfir á bakið og gerir það undantekningarlaust þegar hann er settur á magann næsta skref er að hann læri að fara af bakinu og á magan og sú þróun er að byrja hann svona lyftir löpponum alveg upp og rúllast svoa yfir á hliðina þannig þetta er allt að koma, hann er líka aðeins byrjaðu að uppgötva röddina á sér og situr stundum í ömmustólnum og gefur frá sér allskonar hljóð rosa dúllóHalo

Jóhann Otti fór í næturpössun á laugd og það gekk bara mjög vel hann leyfði ömmu sinni og afa allavega að sofa helling afi þurfti að rumska tvisvar og gefa kúttnum að drekka meira var það nú ekki ég og Davíð kíktum síðan út á lífiið sem var bara gamanWizard

Annars er Dagbjört sætasta frænka mín byrjuð að blogga og  hér www.blog.central.is/day-bright getið þið fylgst með henniKissing

Af hundabraskinu er það að frétta að ég fór reyndar ekki í gær á æfingu sökum þreytu en stefni á að fara næsta sunnud og þá jafnvel með nýjan hund sem heitir Nói hann er dverg schnauzer og er víst algert krútt ég hef ekk hitt hann enn þá en vonandi gerist það bara í vikunni ég er geggjað spennt fyrir að fá að sýna hann því hann er bara hvolpur og aldrei verið sýndur áður þannig að þetta verður spennandi W00t

 Annars ætla ég ekki að hafa þetta lengra en ég læt fylgja mynd af Schnauzer hundi en þetta er ekki Nói taka það fram

Læt vita hvernig læknistíminn fer og fyrsti sund tíminn.

 ErlaInLove og Jóhann OttiBandit

schnauzer


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

186 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband