Jiisús minn góður

þetta verða allar konur að opna kallar mega það líka.

 

 

http://www.femin.is/article.asp?art_id=3749

 

Vinsamlegast kommentið takk:

InLove


Nýjar Myndir

Já það eru komnar nýjar myndir inn í albúmið hans CHECK IT OUT



Sumarið á enda


Jæja þá er sumarið á enda og það er orðið KALT  öss  og þetta gerðist ekkert smá hratt finnst mér allavega einn daginn var hlítt og bara klikkað gott veður, daginn eftir þá vara bara orðið kalt, anar er ég sko klikkaðslega mikil kuldaskræfa þegar frostið er sem mest þá vil ég helst sofa í kraftgalla með lokaðan gluggann og ofninn í botni.  

Við lögðum leið okkar niður bæ á Gay pride daginn og það var bara ágætis stuð og heitari en andskotinn, en það var ekkert smá mikið af geitungum ég get svo svarið fyrir það ég held að það hafi líka verið Gay pride hjá þeim. Skrúðgangan var ágæt en ekkert meira en það maður þurfti nottla að hafa fyrir því að sjá eitthvað þar sem maður er smágerður.

Jóhann Otti  fór á sinn fyrsta fótboltaleik um daginn HK-Keflavík og að sjálfsögðu vann HK 2-1, en það var rosaleg t stuð hjá honum hann var pínu hissa þegar allir stóðu upp og öskruðu þegar HK skoraði mark. Þetta var rosa skemmtileg upplifun fyrir hann og hann fer örugglega miklu oftar á völlinn með pabba sínum þegar hann er orðinn eldri.

Svo var það menningarnóttin ég var reyndar að vinna smá en svo koma Davíð, Jotti og tveir vinir hans Davíðs og við röltum niður við sjó og horfðu á flugeldasýninguna sem var GEGGJUÐ hún var svo miklu flottari en síðasta ár og ég vona að þessi standar falli ekki hjá þeim.  Að vana var bærinn stappaður við vorum nú ekkert lengi við fórum bara  á sýninguna og löbbuðum i gegnum bæinn og heim.  Jóhann Otti fannst flugeldarnir rosa skrítnir og var alveg undrunarsvipur á honum en hann var alls ekki hræddur.

Það er nú ekki frásögufærandi hvað fólk er duglegt að keyra á okkur þessa dagana sko þegar við fórum niður í bæ á Gay pride þá lögðum við á Hótel Holts bílastæðinu ókei ekkert mál nema hvað þegar við komum til baka úr bænum þá var númera platan(vorum á Honduni) ekki á þá hafði einhver bakkað á okkur en sem betur fer voru þetta einu skemmdirnar en það sást ekkert á bílnum sjálfum leiðinlegt samt.  Í dag þá var þá var svínað fyrir Davíð hann var sem sagt á hægri akrein og það var jeppi sem var á vinstri og inni honum voru hjón og konunni langaði allt í einu í ís og þá beygir hann bara til hægri til að komast á frárein til þess að komast í sjoppu sem var þarna við hliðina en með þeim afleiðingum að hann keyrir á frambrettið og stuðarann sem er doldið beyglað en ekki það mikið að það sé ekki hægt að keyra bílinn, en ég vil bara koma því á framfæri hér HÆTTIÐ AÐ KEYRA Á OKKUR.

Jóhann Otti er síðan að fara í 10 mánaða skoðun á þriðjudaginn og það verður gaman að sjá hvernig hann kemur út úr henni og þess má til gamans geta að hann var eimmitt 10 mánaða  á menningarnótt. Ég er síðan á fullu að leita mér að vinnu og er að fara í tvö atvinnuviðtöl í vikunni þannig að wish me luck.

Jæja nú er ég farinn að tjilla. 

ErlaInLove og Jóhann Otti Wizard


Versló

Já þá er verslunarmannhelgin liðinn og hversdagslífið tekur við, það var alveg gasalega gaman hjá okkur.

Þetta byrjaði sem sagt þannig að ég fór að vinna á laugd til 12:30 og síðan kom ég heim og þá var litli pungur sofandi ég og Davíð fórum í það að klára að pakka þó að það hefði verið gott sem búið og koma öllu fyrir í bílinn, síðan va haldið af stað og fyrsta stoppið var í mosó vegna hungurs siðan brunuðum við af stað og næsta stopp var á Búðardal.  Áður en við vissum af þá vorum við kominn til Kvígindisfjarðar, planið var að grilla þetta laugardagskvöld en það var svo leiðinlegt veðrið að við frestuðum því um einn dag, í staðinn fengum við okkur gúllas og hjemmlageð kartöflumús a la Sæa frænka og Jotti át ekkert smá vel af henni, áður en maður vissi af var kominn háttatími fyrir jotta og hann var svæfður og gekk það allt eins og í sögu.

Þegar það var búið að svæfa var tekið í spil með Edda, Sæu, Dagbjörtu, Sverri og Davíð við vorum eitthvað fram á nótt að spila og það var bara geggjað stuð strákarnir urðu reyndar eftir og kláruðu spilið og sötruðu wisky þar sem að ég og Dagbjört vorum orðnar svo þreyttar og fórum bara að sofa.

Á sunnudeginum vöknuðum við og fengum okkur morgunmat og það birti til vindurinn var þó kaldur á köflum en það var allt í lagi við klæddum okkur bara vel. Jotti vígði nýja polla gallann sinn og stígvélin sem ólöf amma gaf honum og fékk að stinga löppunum í sjóinn i fjöruna með aðstoð pabba síns, við enduðum daginn á að grilla alveg dýrindis máltíð og slökuðum síðan bara á um kvöldið.

Mánudaginn þá vöknuðum við snemma  borðuðum morgunmat og brunuðum í bæinn við ákváðum að fara snemma því við vorum  ekki í stuði að vera koma seinnt heim, en þar með var verslunarmannahelginni lokið og hún var frábær.

Annars er allt gott að frétta  þessi litla elska er farin að reyna að stjórna heimilinu en hann kemst að því fljótt að mamma og pabbi ráða, hann stendur upp sjálfur alveg hægri vinstri og ég vil meina að hann sé farinn að segja mamma.  Hann er ann bara með fjórar tennur en næstu fara að detta niður, það er komið allskonar nýir hlutir í mataræðið hans eins og t.d. nýja uppáhaldið er sólberja svali kindakæfu bitar, hann er líka orðinn svo rosa duglegur að týna upp í sig sjálfur  sem er bara góð þróun.

Jæja ég þarf að fara skella inn myndum sem fyrst endilega fylgist með.

Erla og jotti 


Versló

Hæ alle sammen já nú er að detta í verslunarmannahelgi og við ætlum á vestfirðina hvorki meira né minna, við förum semsagt á laugdags hádeigi og komum á mánudaginn.  Ohh ég get ekki beiði þetta verður svoo huggó, það er ekkert gsm samband þarna sem er líka mjög gott þá truflar enginn mann. Þetta er sem sagt staður sem afi og systkinin hans eiga, þeirra uppeldisstaður en allir hafa aðgang af.  Þarna er eittt stórt hús  sem er með sólpalli, við hliðina á því er mini hús sem við köllum dúkkuhúsið og þar geta krakkarnir leikið sér. Síðan er líka bátahús, gúmmíbátur og trilla, svo er einnig verið að byggja sumarbústaði þarna þar sem að þessi ætt er orðin svo stór og gamla húsið rúmar ekki alla.  

Annars er bara allt það besta að frétta ég er að bíða eftir svari hvort ég fái nýja vinnu og fæ svarið vonandi næsta miðvikudag  þannig það er bara að bíða og vona.  Jotta er orðin alveg hress og bíður spenntur eftir að komast í afasveit. Hann er komin með fjórar tönnslur og er aðeins farinn að dansa eða sko þegar ég set græjurnar í gang og dilla mér þá byrjar hann að dilla sér líka voða dúlló.  Við erum ennþá að reyna að fikra okkur áfram í þessu mjólkur veseni nú fær hann svo rosalegan mikinn vindgang á soya mjólkinni og  hefur hægðir minnst 5 sinnum á dag þannig að ég ætla að blanda rís og soya mjólk og sjá svo hvað gerist.

Jotti er búinn að læra hvað hann á að gera þegar hann er spurður hvað hann er stór og þegar hann lyftir hendinni sinni þá segir mamma og pabbi alveg hátt og snjallt vvvvááááá og honum finnst það svo gaman að stundum þá fangar hann sjálfur með gasalega krúttlegt. Hann er búin að vera einstaklega duglegur að vera óþekkur að fara að sofa á kvöldin og er ég ekki frá því að ég þurfa að breyta lúrunum hans úr einum stuttum og einum löngum yfir í einn langan á dag svo að hann fari nú einhvern tíman að sofa en þetta kemur hjá okkur nú gæti verið að hann sé að taka þroskakipp og þess vegna láti hann svona.  

Við ætlum að vera rosa dugleg að taka myndir fyrir vestan og setja inn á síðuna.

Adios



Að byrja að braggast

Já hitinn hefur lækkað hann er kominn niður í 38°og hann er farinn að leika sér sjálfur á gólfinu og er farinn að taka gleði sína á ný,  hann heldur þó litlu niður hefur lítið borðaðog þessi tæpa  jógúrt dolla sem ég kom ofan í hann kom öll aftur til baka. En hann er allavega rosa hress hann var að standa upp hérna við hliðina á mér þessi litli ormur og meira að segja að reyna að labba með öss.

 

Jæja ætlaði bara að láta ykkur vita.

 

Kiss kiss 


ÚÚUÚFF ekki gott

Já litla músin okkar hann Jóhann Otti er kominn með lungabólguSick, hann er búin að vera með hita í þrjá daga og mjög háan hefur lítið sem ekkert borðað nema í morgun þá koma ég slatta ofan í hann en nei þá ældi hann því öllu og þá stóð mér nú ekki á sama og dreif mig með hann til læknis.  Við vorum send í myndatöku og það fannst lungnabólga í hægra lunganu í efri hlutanum á því.  

Það var nú ekki á planinu hjá Jotta og okkur að hann fengi lungnabólgu svona snemma en maður ræður því miður ekki öllu, svo er líka talað um að fái maður lungnabólgu einu sinni að þá sé maður mjög næmur á að fá hana aftur. Það á reyndar ekki við mig því eftir að ég fékk lungnabólgu fyrir nokkrum árum síðan þá hef ég eiginlega ekki verið veik síðan en ég er smeik um að þetta muni eiga við Jotta.  Maður á nú kannski ekki að vera svartsýnn á svona en hann er bara svo lítill, svo lítill til að fá lungnabólgu.

Jæja ætlaði bara að segja ykkur.

 

Kveðja Jotti lasarus, Dave and Erla the nurses.Heart

 


Sætilíus

 

 

 

 

 

 

 

 



Vigtun

Já það var nú hitt og þetta sem ég gleymdi að skrífa í síðustu færslu og hér kemur það.

Við fórum með hann í ungbarnaeftirlyt í vigtun og línan hans tók stökk upp sem var akkurat sem við vildum sjá, eins og ég útskýrði fyrir nokkrum færslum þá er þetta sett inn á "kúrvu sem er ákveðið línurít sem fylgist með hvort að þau séu að þygjast rétt og stækka. Það er svona meðal lína í henni en það er svo sem ekkert óeðlilegt að vera undir þeirri línu aðalmálið er að börnin búa sér til sína eigin lína tja nánast frá fæðingu og þau þurfa að fylgja henni eftir, Jóhann Otti tók smá stökk niður en nún er það að lagast.

Eins og er er hann með tönnsluhita því seinni frammtönnin í efrigóm er að koma, sem sagt FJÓRÐA tönnin. Svo er maður orðin svo stór að mamma og pabbi fá að bursta tennur á hverju kvöldi núna og maður á sko sinn eiginn tannbursta og tannkrem næstum því fullorðins sko; )

Davíð' kom heim úr ferðalaginu á laugd og það var bara mjög nice hann og vinur hans skemmtu sér rosalega vel sem var markmiðið en síðan var söknuðurinn orðinn mikill.

Annars skal ég alveg viðurkenna það að ég er orðin frekar þreytt tala nú ekki um þar sem að júlí er senn á enda þá er bara ágúst eftir og ég vildi oska þess að hann væri að enda núna, æj kannski á ég ekki að vera kvarta þar sem ég tók þessa ákvörðun en svona er þetta bara ég verð bara að vera jákvæð Nr 1,2 og 3 og þá líður þetta bara eins og ekkert sé. Annars er ég að vinna í því að leyta mér að vinnu núna og ég skal segja ykkur það að ég ætla EKKI að fara í þjóna vinnu ég verð að fá smá pásu ég er komin með nett ógeð og vil bara prufa eitthvað algerlega nýtt og bæta við í reynslu bankann, en þetta er allt í vinnslu og ég læt ykkur vita m leið og ég fæ nýja vinnu helst mundi ég bara vinna í lóttóinu og þurfa ekki að vinna æj þið skiljið;)

Jæja það er kominn háttatími hjá mér.

Góða nótt....Erla og Jotti


Jotti er 9 mánaða ÍDAG

Já elsku landar nær og fjær það er sko búið að vera nó að gera hjá okkur núna undanfarið og ég ætla að sjá hvort ég get ekki sagt ykkur frá því og vona að ég gleymi enguWink

Síðasta sunnudag hittum við skyldfólk Davíðs(mömmu hans megin) í Heiðmörkinni og það var bara geggjað veður,  það var ákveðið að eyna koma hópnum saman eina dagsstund því við hittumst svoooo sjaldan.   Það var geggjað veður og bara stemmning með frábæru fólki. Síðan þegar það var búið þá fór lagði Davíð og Anton vinur hans í hringferð um landið þannig að ég og Jotti erum bara ein í kotinu.  Ég er svo heppinn að eiga pabba sem er með svo frjálsan vinnutíma að hann hefur verið að koma eldsnemma á morgnana og passa svo ég get farið í vinnuna því dagmamman er í fríi. Afi og Jotti eiða hálfum deginum saman og gengur það bara eins og i sögu og var ekki við öðru að búast.  Þeir hafa tvisvar farið út í tæp tveggja tíma göngu og Bjössi hefur fengið að fljóta með.

Jotti er komin með þrjár tennur tvær framtennur í neðri góm og eina framtönn í efri góm, svo er hann farin að standa upp alveg sjálfur en jafnvægið hjá honum er stundum svona la la eins og maður segir en hann er svell kaldur í að hreyfa fætur og sleppa annari hend og gera allskonar kúnstir þegar hann stendur upp.  Hann er farin að vera svo duglegur að borða allskonar mat og leyfi ég honum hiklaust að borða það sem við borðum nema það sem er mjólk í, hann smakkaði t.d. pizzu um daginn reyndar ekki með neinu á nema sósu, hann hefur líka smakkað skrúfu pasta og át það með bestu lyst. Það að hann geti ekki drukkið venjulega mjólk er bara alls ekki slæmt því maður er alltaf að uppgötva eitthvað nýtt í soya vörunum ég hef t.d.  verið að kaupa soya með jarðaberja, banana og súkkulaði bragði ég hef verið að kaupa soya ís og soya jógúrt og desert þannig að það er komið alveg gott úrval af soya vörum.

Svo verður Jóhann Otti stóri frændi í byrjun desember því að bróðir minn og kærastan hans Inga eiga von á barni sem eru bara HAMINGJA.

Jæja ég er orðin svo þreytt að ég man ekki helminginn sem ég ætlaði að skrifa, ég skrifa þá bara meira seinna.

Góða nótt sofið rótt í alla!!! nótt.

Guð geymi ykkur.

ErlaInLove og Jóhann OttiSleeping



« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

198 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband