Samantekt

Hei beibs,

héðan er allt gott að frétta, það sem hefur verið að gerast undanfarið er að 

*Jotti fékk LOPAPEYSU og sparidress frá Ólöf ömmu og Nonna afa

*Fór í næturpössun á laugd hjá Gunnu ömmu og afa og ég fór að vinna og Davíð i vinnupartý síðan hittumst við seinna um kvöldið og fórum saman niður í bæ sem ég hef ekki gert í lllaannngann tíma við vorum sammt ekki lengi sem var bara fínnt því Jotti kom 10:00 daginn eftir.

*það var kósí kvöld hjá mér og kallinum á föstudagskvöldið sem var yndislegt

*ég er á fullu núna í sýningarþjálfun fyrir sýninguna 6 og 7 október

*ég er komin með nýjan hund, tík af Yorkshire tegund og er á fullu að vinna í henni, hún er aðeins meiri áskorun en Nói enda er hann svo mikill fyrirmyndar drengur.

* ég var á vinnu fundi í dag og þar fékk ég að vita betur hvað hlutverk mitt á að vera þarna og það var einnig lýst yfir ánægju á mér sem var bara gaman að heyra

*ég er að fara afturBlush út á næsta laugdagskvöld og þá í  innflutningspartý en feðgarnir ætla að vera heima að tjilla

* ég á afmæli 7 nóv og af einhverjum ástæðum hef ég verið doldið að hugsa um það og hvað mig hlakkar til að gera eitthvað GEGGJAÐ skemmtileg...ég veit langt í það I´m crraazy

*ég er búin að vera sprite sjúk þessa dagana don´t know why er það ekki vanalega.

Jæja starter wife er byrjað þanig að ég ætla að fara að innrétta mig inn í sófann.

BÆ 



NÝJAR MYNDIR

Nýjar myndir



Ný skoðunarkönnun

Það er ný skoðunarkönnun hér vinstra megin á síðunni.

 Bounty sigraði í súkkulaði í fyrri könnununni bounty smántí mars rules


Nýjar myndir í nýju albúmi

Já það er komið nýtt albúm sem heitir Jotti 11-13 mánaða með örfáum myndum í ég er nefnilega ekki búin að vera dugleg með myndavelina núna undanfarið.

Héðan er annars allt gott að frétta 5 tannslan fer vonandi að stíga niður það er allavega að glitta í hana í efri góm við hliðina á annarri frammtönnini. Jotti er annars bara hress hann er ekki farinn að labba honum finnst ennþá voða gott að halda sér i eitthvað sem er bara í lagi þetta kemur þegar það kemur en hann er alveg búin að læra að láta sig detta á rassinn sem er mjög gott að hann sé búin að læra það áður en hann fer að labba. Nú styttist óðum í fyrsta afmælið og það er komin ósk frá pabbanum að það verði fótbolta þema tja kannski ekki beint þema en að kakan verði fótboltakaka sem  verður gert.  Jotti fær endalaus hrós frá dagmömmunni hún var að segja mér hvað hann væri orðin rosalega meðfærilegur það heyrðist varla í honum og hann væri svo duglegur að sitja og dunda sér í dótinu og alltaf jafn duglegur að borða þannig að maður er rosa stoltur af þessum litla pung. 

ÚÚFFF  það rignir og rignir og á svona dögum þá langar manni bara að stinga af til Spánar eða eitthvað alíka en neibb we live in Iceland.   Mig langar samt að gera so margt núna mig langar t.d. í ljós eða spray tan mér líður eins og albínóa mig langar að verða brún. Mig langar í strípur því að ég er komin með rót en ég kemst bara ekki alveg strax.  Mig langar til útlanda sérstaklega til köben í des úú það væri sko geggjað fara í rómóferð, mig langar í stærri íbúð svo að jotti geti fengið sér herbergi fyrir allt dótið sitt sem hann á nó af ohh það er so margt sem manni langar í en getur ekki alltaf fengið en ég veit af þessu sem ég taldi upp núna þá ætla ég að láta tja eitt eða tvö atriði rætast á næstunniWink 

Jæja ég er farin að orfa á Friends Davíð downloadaði ÖLLUM þáttonum and now there is a Friends maraþonGrin

MUNIÐ AÐ KÍKJA Á YMCA VIDEOIÐ ÞIÐ ER MMMÖÖÖSST 


 


AHAHAHAHAH

Þetta er YMCA á finnsku þið verðið að horfa og þið verðið að horfa þanngað til að dansararnir birtast þá fyrst er þetta flott atriði.

 

 

http://www.kvikmynd.is/video.asp?land=&offset=117&id=4052

ÓÓÓkeeiii

Sko ég var eitthvað að fikta um daginn og skoða myndböndin sem við höfum takið af Jotta og ekki sett inn hér og ég ákvað að prófa að reyna dúndra þeim hérna inn, nema hvað éghélt að það hefði ekki komið en núna var ég að fatta það að þau komu inn.

 ÞANNIG AÐ það eru komin tvö ný myndbönd sem eru vinstramegin á síðunni. 

Og það er aldrei að vita hvort maður grafi ekki upp gömlu myndböndin og skelli inn um helgina.

Over and át


Lasin fjölskylda

Já það eru allir hér á bæ eitthvað slappir eða bara veikir ég er allavega búin að vera veik í tvo daga Davíð líka en svo í kvöld þá ældi jotti kvöldmatnum sínum og fékk niður gang..............já ég veit smekklegt.  Ég byrjaði i nýrri vinnu á mánud þannig að ég hef ekki getað verið heima til að reyna að hrista þetta af mér, ég er sem sagt að vinna hjá  Hjálpartækjamiðstöð Tryggingarstofnunar ég er að vinna við að skrá umsóknir afgreiða fólk þegar það skilar eða sækir tæki eða koma með það í viðgerð svona sem dæmi, þetta er æði ég sem sagt vinn frá 7:30-15:30 og sæki síðan Jotta bara strax eftir vinnu. Ég er lang yngst þarna en það er ekkert glatað það eru allir mjög almennilegir við mig og ég og fólkið sem vinnur í minni deild náum mjög vel saman þrátt fyrir stóra aldursbrú. 

Jæja þetta er svona það helsta ég ætla að fara og ná í tissjú og nýta mér þetta þýðir ekki. 



Funny ha

 

Ég stal þessu af annari síðu, þetta eru óheppilega orðaðar auglýsingar.

 

1. Sérstakur hádegisverðarmatseðill: Kjúklingur eða buff kr. 600, kalkúnn kr. 550, börn kr. 300.

2. Til sölu: Antikskrifborð, hentar vel dömum með þykkar fætur og stórar skúffur.

3. Nú hefur þú tækifæri til að láta gata á þér eyrun og fá extra par með þér heim.

4. Við eyðileggjum ekki fötin þín með óvönduðum vélum, við gerum það varanlega í höndunum.

5. Til sölu nokkrir gamlir kjólar af ömmu í góðu ástandi.

6. Þetta hótel býður upp á bowlingsali, tennisvelli, þægileg rúm og aðra íþróttaaðstöðu.

7. Brauðrist: Gjöfin sem allir fjölskyldumeðlimir elska, brennir brauðið sjálfvirkt.

8. Ísafjarðarkaupstaður: Starfsmann vantar kvenmann til starfa.

9. Vantar mann til að vinna í dínamítverksmiðju. Þarf að vera tilbúinn til að ferðast.

10. Notaðir bílar. Því að fara annað og láta svíkja sig. Komdu til okkar!

11. Vinna í boði fyrir mann til að hugsa um kú sem hvorki reykir né drekkur.

12. Ólæs? Skrifaðu okkur strax í dag og við munum veita þér ókeypis aðstoð.


*grát*

Sjitt hvað það var stutt í að ég færi að væla eins og lítið barn þegar ég sá þetta.

 Krúttlegast í heimi.

 

http://www.b2.is/?sida=tengill&id=251488

Já halló

Jæja hér er allt gott að frétta úr kotinu ég er núna í tveggja daga fríi sem er yndisleg, á þessum fyrsta frídegi mínum hef ég nú reyndar eitt honum í þrif en það er allt í lagi ég er að spá í að skella  mér í sund í kvöld og synda svona mér til heilsubótar.  Mér finnst veturinn vera á næsta horni og jólin á þarnæsta horni, mér varð hugsað til jólanna í dag og hvað að verður gaman sem sagt að því leytinu til að nú hefur Jóhann Otti kannski eitthvað vit á pökkunum og fær að hitta Jólasveininn og fara á jólaball, já þetta verða yndisleg jól ég er alveg viss um það.  Annars er næst á döfinni afmælið hans Jotta sem er í okt doldið þangað til I know en málið er nefnilega það að ég fór að taka það saman um daginn hvað við þurfum að bjóða mörgum og það er bara 40 mans  takk fyrir þannig að það lýtur allt út fyrir að það verðir svaka partý ég efast ekki um það.

Ég er meira að segja búin að vinna fyrir afmæliskökunni og þar er ég ekki að ljúga, ég var nefnilega að þjóna í brúðkaupi á laugd hjá einum kokki sem er að vinna á Holtinu og partur af greiðslunni fyrir vinnuna er STÓR afmæliskaka þannig ef restin af kökunum sem verða flesta bakaðar af mér verða vondar þá er hægt að stóla á afmæliskökuna hehehe.

Jæja gólfið er þornað og ég ætla að halda áfram.

Kiss kiss



« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

198 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband