13.7.2007 | 18:56
VVVVÁÁÁÁ MONTIN
svona 45 min eftir að ég skrifaði hina færsluna þá horfi ég á barnið mitt reisa sig upp á hnéin og standa upp alveg sjálfur shitt ég er að springa úr ég er svo montin.
Langaði bara að deila þessu með ykkur
13.7.2007 | 18:09
Fótboltastrákurinn
Afi og Árni frændi voru að koma frá UK og þeir stóðust ekki mátið og keyptu fótboltagalla frá Arsenal liði sem Árni heldur með í enska boltanum (ekki Davíð thihi), og þeir sérmerktu hann Jotti nr 14
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 18:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.7.2007 | 12:00
Hei allíjúbba
Já við stungum okkur til svía landsins, við vorum löngu búin að plana það en ættingjar okkar úti höfðu ekki hugmynd um það þannig að það var mjög gaman að koma þeim á óvart og svipurinn á ömmu þegar hún sá okkur eftir að við höfðum kæruleysislega dinglað á bjöllunni hennar og hún kemur til dyra haldandi að þetta sé bara "einhver", úúfff það var mjög skemmtilegur svipur á ömmu og afa, andlitið á ömmu ljómaði en fraus í alveg nokkrar sek. Ástæðan fyrir því að við vorum að stinga okkur út er sú að amma hún var 35 þið vitið yngist með árunum og síðan var Kjartan fændi 40, nema hvað þessu var slegið saman í eina veislu og síðan var rosaelgt surprise í veislunni, Kjartan og Anett giftu sig þannig að þetta var heldur betur viðburðarík helgi. Það var að sjálfsögðu hægt að versla þarna við fórum í Välja(held að það sé skrifað svona) sem er verslunar miðstöð sem var í svona 10-15 hin akstursfjarlægð frá okkur, síðan á mánudeginum þá fórum við í dagsferð til Köben og þar var mér sleppt lausri ein, ma, pa, Jotti, Árni, Linda og Eyjó fóru í sædýrasafn Danmerkur og ég tók lestina til köben til að hitta hana Dísu vinkonu mína við þrömmuðum strikið alveg upp og niður og haldið að það hafi bara ekki komið þessi úr hellis rigning og við ekki með svo mikið sem eina regnhlíf en jæja það má segja að við blotnuðum all rækilega en regnhlífunum voru síðan reddað þökk sé Dísu.
Dísa var ekkert smá almennileg og fór með mér í þær búðir sem ég vildi kíkja í og við spjölluðum alveg helling og slúðruðum, settumst á kaffihús og fengum okkur klúbbsamloku og öl og þar fram eftir götunum. Síðan Komu ma og pa, Jotti og rest og hittu mig þá voru þau nú búin að eyða smá tíma sjálf á strikinu og þegar é hitti þau þá var Jotti sofandi í kerruni sinni með hákarla bangsa sem amma ólöf hafði gefið honum í sædýrasafninu búin að fá að smakka franskt criossant og það var víst algert bíó að horfa á hann borða það því þetta var svvvoooo gott. Jæja síðan héldum við blaut og þreytt heim til ömmu og afa í þurr föt og kvöld mat. Þriðjudag og miðvikud vorum við svo sum bara að dúlla okkur sem var líka bara fínnt þetta var ekkert það langur tími að ég hefði ekki nennt einhverju stífu prógrammi.
Gestrisnin hjá ömmu og afa var sko ekki af verri endanum og fór alveg rosalega vel um okkur hjá þeim, ég vil líka þakki bara fyrir allar gjafirnar sem hann Jóhann Otti fékk bangsana, stígvélin og fötin, TAKK ÆÐISLEGA KOSS OG KNÚS Á LÍNUNA.
Jóhann Otti var alveg að plumma sig í stóru flugvélini, þegar við vorum að fara út þá sátum við þrjú saman ég,Árni og pabbi síðan skiptumst ég og pabbi á að halda á honum og það var rosa stuð, í flugtakinu þá sat hann í fanginu hjá mér og þegar vélin vara að gefa í þá kom pínu skelfingar sviður á hann en mamma og afi brostu til hann og voru rosa glöð til að hann geri sér grein fyrir því að það væri nú ekkert slæmt að gerast en þegar nefið á vélini lyftist þá gerðist að krúttlegasta í HEIMINUM þá snýr hann sér og vefur handleggjunum um hálsinn á mér og knúsar mig, smá óöryggi í gangi. Síðan þá var þetta nú í lagi hann sofnaði og svaf í fanginu hjá afa, allan tíman úti þá var hann alveg rosalegur mömmustrákur enda kannski ekki skrítið veit ekkert hvar hann er og bara nýtt fólk í kringum hann fyrir utan mig mömmu,pabba og Árna, þannig að hann hékk mikið á handleggnum mínum sem var ekki mikið mál hann gat alveg verið hjá mömmu og pabba en hann mátti helst ekki sjá mig labba úr herberginu.
En þetta gekk eins og í sögu með hann þarna úti og flugferðin heim var meira að segja auðveldari þá vorum ég og mamma með eina þriggja sæta sætaröð þannig að þegar Jotti sofnaði stuttu eftir flugtak þá lagði ég hann í sætið á milli okkar og hann svaf bara restina af fluginu.
Aftur á móti núna í dag þá erum við að fara i vigtun með hann til að ath stöðu mála og ég skal láta ykkur vita sem fyrst hvernig gekk. Núna er hann að fara yfir á Soya mjólk því að hún er miklu feitari en Rísmjólk og er miklu betri fyrir hann.
En ég er farin að skipta um föt jú sjáið til ég er enn þá í vinnufötunum og það er ein klst síðan ég var búin að vinna úbbs.
MINNI YKKUR Á NÝJAR MYNDIR Í ALBÚMINU HANS
Heidó, Erla og co
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 12:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.7.2007 | 21:09
HELLINGUR AF NÝJUM MYNDUM
Já við erum ný komin heim frá Svíþjóð, ég gat eiginlega ekki bloggað um það því að þetta var surprise fyrir skildmenni okkar þarna úti.
Ég er búin að sitja inn hellings af myndum og kem með ferðasöguna innan skamms
25.6.2007 | 17:19
Hundasýning
Sæl verið þið lömbin mín, já hundasýningin var um helgina og ég og Nói stóðum okkur svona líka vel hann hann lenti í 1.sæti í sínum aldursflokki sem sagt hvolpar 6-9mánaða og af því að hann lenti í fyrsta sæti í sýnum flokki þá keppti hann í opnum flokki, en þá keppast hundar sem hafa unnið sinn flokk og þar lenti hann í 3.sæti. Það var rúsnenskur dómarai í okkar hring sem var ekkert lítið strangur en hann er prófesor í líffræði og hefur gríðalega þekkingu á uppbyggingu hunda og er einn færasti á því sviði. Ég er gífurlega ánægð með þennan árangur enda stefnan aldrei tekin á neitt minna en 1.sætið, mér fannst bæði ég og Nói mikklu betri en á síðustu sýningu enda má eiginlega seigja að fyrsta sýning sé hálfgerð general prufa. Ég er þó ekki alveg sátt við það hvernig hann dæmdi okkur þegar við kepptum í opnum flokki því að við löbbuðum inn í hringin og stilltum okkur upp hann setti okkur í sæti og setti okkur í þriðja síðan áttu hinir hundarnir að labba hringin og gera eitthvað og ég átti að vera kjur sem mér var reyndar ekki sagt og byrjaði að labba og hann alveg bara NO NO NO og mér leið eins og asna hmmm síðan setti hann hina hundana í sæti og gaf þeim munnlega umsögn og ég stóð bara þarna með hundinn og beið eftir að maður mætti labba út æji ég var ekki alveg að fýla þennann krumpukall; )
Annars er bara hitt og þetta að frétta Jóhann Otti var veikur alla síðustu viku með bara flensu og þá eru þetta fyrstu veikindin hans, það var nú engin glæsilegur tími skal ég segja þér hann var voðalega lítill í sér og vildi oftar en ekki láta bara halda á sér kyssa sig og knúsa. Núna er hann nú orðin hitalaus og mikklu hressari, matarræðið hans er þó farið í klessu af því að hann var með svo mikkla hálsbólgu þá vildi hann ekkert borða bara hvað sem er sem sagt lítin sem engan mat meira bara svona ávaxtamauk og stappaða banana, við reyndum allt en bara nó way en eins og ég sagði við Davíð þá bara að reyna að koma öllu ofan í hann sem hann tekur burt sé frá því hvað það er því annars fær hann enga orku til þess að reyna að hressast. Hann fór nú til dagmömmunar í dag og var ekki duglegur að borða og ekki heldur núna áðan þannig að maður hefur pínku áhyggjur þar sem að maturinn sem hann fær er aðal næringin hans því hann er á rismjólk og það er mikklu minni næring í henni heldur en stoðmjólk eða venjulegri mjólk.
Þar að auki vorum við í ungbarnaeftirliti um daginn og þessi litli pungur hefur ekki þyngst eins og við viljum þannig að hann má ekki alveg við því að vera með einhverja matarstæla núna annars veit ég ekki alveg hvort þetta eru stæla eða honm sé einfaldlega bara ennþá illt í hálsinum, en hann er að fara til læknis á morgun til að aðeins fara yfir og meta stöðuna.
Ég reyni að sitjar inn myndir í kvöld eða á morgun og leyfi ykkur að fylgjast með hvað læknirinn segir.
AAAAAAAAAAAAAADIOS
Bara taka það ramm af því að það sést kannski ekki vel að það er verið að halda i hann á hjólinu, ví ar not kreisí; )
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 17:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.6.2007 | 11:50
Nýtt albúm
Það er komið nýtt albúm sem heitir Jóhann Otti 8-10 mánaða og þar eru komnar inn myndir frá 17.júní .
19.6.2007 | 23:50
Lasarus
Hæ alle sammen, já hvað segið þið? hér á bæ er litli pungur lasinn í fyrsta skiptið hann er búin að vera með hita, hálsbólgu hor og hósta sem hefur valdið því að hann er doldið lítill í sér og vill bara knús og að maður haldi á honum hann hefur líka verið pínku pons lista lítill en svo lengi sem hann drekkur vel þá er ég sátt, ég var allaveg heima í dag og verð það á morgun líka. Tannslan hans er að rísa upp, þegar ég fór með hann til læknis í dag til að ath hvort hann væri kominn með í eyrun þá leit hann upp í hann og sagði að það væri allt rosa bólgið sem þýðir það að tönnslurnar eru að fara að poppa niður.
Já 17.júní er ný liðinn og það var rosa stemmning hja okkur að sjálfsögðu þurfti Jotti að fá gasblöðru og fána og hann var nú ekkert lítið sætur með fánann sinn og hélt í blöðruna sína sem var reyndar bundinn við kerruna hans og hann skildi ekkert í öllum þessum mannfjölda, by the way ég reyni að setja myndir frá 17. júni á morgun.
Síðan er alveg að smella í hundasýningu OMG þetta er að bresta á þetta verður geggjað gaman.
Jæja ég blogga aftur á morgun ég er orðinn sibbin.
17.6.2007 | 21:48
NÝJAR MYNDIR
HÆ ALLIR SAMAN ÞAÐ ERU NÝJAR MYNDIR INN Á 6-8MÁNAÐA MÖPPUNI REYNI AÐ SETJA INN MYNDIR FRÁ 17. JÚNÍ DEGINUM Á MORGUN OG EITT BLOGG MEÐ.
FYLGIST VEL MEÐ.
ADIOS
10.6.2007 | 22:45
Jotti
Sæl öll sömul þetta var nú góða veðrið í dag þrátt fyrir að þessi stóra gula hafi ekki verið áberandi, það var sko hægt að vera á stuttermabolnum.
Kallý þetta er bara fyrir þig, mannstu þegar ég bloggaði um öll gælunöfnin sem væri stundum notuð á hann og þú sagðir :já herðu þú verður að kalla hann Jotta ég kallaði pabba það alltaf mér finst það lang flottast: mig minnir að þú hafir sagt þetta sirka svona en allavega þá hefur þetta þróast þannig að hann er bara kallaður Jotti eða Jóhann Otti and there u have it.
Annars er allt gott að frétta frá okkur Sæunn frænka og amma Erla voru að koma frá Spáni og Jotti fékk pakka frá þeim meðal annars þessa derhúfu, stuttermabol fyrir sumarið og sandala og að sjálfsögðu segji ég bara ástarþakkir Ég er bara búin að vera að vinna eins og geðsjúklingur en núna er ég komin í 3 daga frí ég fer sem sagt að vinna á miðvikudaginn þannig að núna er helgi hjá mér, við skulum bara orða það þannig að ég er með einn kaldann i einni og lyklaborð í annari
. Ég ætla að nýta frídagana mína vel hvíla mig endurhlaða batteríin mín, ég er mikið að hugsa um að reyna taka garðinn í gegn og slá kaupa mér blóm og setja í potta og gera kósí. Jú það má heldur ekki gleyma að kaupa eitur þar sem að ég er bara búin að drepa tvö köngulóabú hér fyrir utan *hrollur* ég meina ein og ein er allt í lagi svona til þess að halda flugunum frá ein ekki heilu búin OJJ. Ég var í afmæli í dag og þá barst í tal geitungar og annað tengt þeim og þá var verið að segja að þeir forðast víst B vítamín og ef maður tekur tvær B vítamín töflur á dag þá sækja þeir ekki í man.
Ég hef verið á sýningaræfingum núna undanfarin sunnudags og þriðjudagskvöld og það hefur gengið bara nokkuð vel ég get þó ekki neitað því að ég set mikkla pressu á mig fyrir næstu sýningu þar sem að eigandi Nóa sýndi hann á fuglahundasýningu og hann lenti í fyrsta sæti og fékk verplaun sem besti hvolpur sýningar. Síðast lenti ég í öðru sæti og markmiðið núna er að sjálfsögðu að taka numero uno en það er pressa skla ég segja ykkur.
Jæja ég ætla að fara að tjilla.
P.S. Allir að kveikja á kerti kl 11:00 á morgun því þá verður hetjan okkar hún Ásta Lovísa jörðuð, Lóa verður síðan jörðuð á þriðjudaginn.
Knús á línuna, Erla og Jotti
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 22:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.6.2007 | 22:20
Bloggleti hmmm
NÝJAR MYNDIR Í JÓHANNOTTI6-8MANAÐA MÖPPUNI
Já maður er búinað vera í einhverju bloggleti hérna undanfarið.
Það er allt gott að frétta af okkur Jóhann Otti er ennþá með smá kvef og kominn með hósta líka sem hefur valdið því að við höfum lítið sofið síðustu tvær nætur en þetta líður hjá (vonandi; ) hann er líka búin að vera í aðlögun hjá nýju dagmömmuni og só far só gúd en á morgun verður hann í fyrsta skipti fullann dag sem sagt 8-16 og það verður gaman að sjá hvernig gengur. Hann er farinn að skríða á fullu og ef þið skoðið nýju myndirnar þá sjáið þið það betur og núna er allskonar svona ó ó dót orðið mjjöögg spennandi þannig maður þarf sko að passa upp á litla putta. í næstu viku fer hann síðan í ungbarnaeftirlit og það verður gaman að sjá hvað hann er orðinn langur því hann er nýbúin eð er að taka vaxtakipp hann er allavega að lengjast og það er spurning hvort það haldi svoa rösklega áfram.
Jóhann Otti var í pössun hjá ólöf ömmu og Nonna afa um daginn og það er gaman að segja frá því að hann fór með þeim á skólaslit hjá Árna Snæ sem var nú ekki vandamálið nema þegar það kom að hópsöngi þá byrjar minn bara að "syngja" með ohh ég hefði vilja sjá þetta.
Já það eru sko ekki allir búnir að eiga sjö dagana sæla Ásta Lovísa lést og Lóa blómarós og fyrir þá sem ekki vita hver Lóa er þá er hún stelpa sem ég held að var 86 módel og hún var búin að vera að berjast við krabbamein.Lífið getur verið svo ósangjarnt, þegar svona gerist þá minnir það mann á hvað maður hefur það gott sem er að sjálsögðu leiðinlegt því að maður á alltaf að þakka fyrir hvern einasta dag sem maður lifur og getur deilt því lífi með þeim sem maður elskar mest.
Af okkur Davíð er annars allt það besta að frétta við erum bara að vinna á fullu og rækta litlu fjölskylduna okkar við fórum t.d. niður í bæ öll 3 í labbi túr á sjómannadaginn og það var bara klikkað fjör Jóhann Otti sofnaði reyndar síðustu 10 mín sem við vorum niður í bæ síðan um kvöldið þá fórum við familían út að borða á Loftleiði þar sem ég vinn og það vara bara virkilega huggulegt. Loksins er ég búina að panta tíma í litun og klippingu fyr má nú aldeilis vera ég hreinlega gleymi því að fara í klippingu síðast þegar ég fór í klippingu og litun þá var það fyrir 6 mánuðum síðan úff allt of lengi. Núna ætla ég að láta gera eitthvað geggjað ég er dökkhærð í augnablikinu og ég ætla eki að segja ykkur hvað ég ætla að gera don´t worry ég er ekki að fara lita mig platínum ljósa eða svarthærða eða eitthvað álíka en ég skal sita inn myndir á mánudagskvöld.
Jæja þar sem að ég á að mæta í vinnu kl 5:30 þá er kominn tími á að fara að sofa.
Fer að taka mig á í blogginu; )
Erla og Jóhann Otti
Færsluflokkar
198 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar