31.10.2007 | 22:26
Kominn tími á gott blogg...
Jæa það er nú aldeilis. Að frétta af okkur er það að við gerðum smá uppgötun um daginn ég og tengdamamma sem er sem sagt að þegar Jóhann Otti labbar(hann er ekki byrjaður að labba sjálfur) þá er vinstri löppin svo útskeif miðað við hægri og það er alveg áberandi, nema hvað þar sem að ég er nú að vinna á hjálpartækja miðstöðinni þar sem iðju- og sjúkraþjálfar eru að vinna þá talaði ég við einn sjúkraþjálfann og hún bauð mér að koma með strákinn og láta reyndar annan sjúkraþjálfa kíkja sem hefur unnið mikið með börnum og sérhæfir sig í skóm fyrir börn undir 18 og hún leit á hann, hún vildi meina að hann væri doldið laus í ökklunum og örlítið siginn á vinstri fæti, ég ætla nú ekki að fara að útskýra hvað það er að vera siginn. Þetta er ekkert alvarlegt en hún vildi að ég mundi kaupa extra stífa skó handa honum svo hann fengi stuðning um ökkla og við ætlum að kaupa inniskó svo ætlar hún að skoða hann aftur eftir 2 mánuði. Hún sagði við mig að yfirleitt eru börn ekki sett í bæklunarskó fyrir 2 ára aldur en ef að það sem er að er farið að hamla því að barnið lærir að labba þá er það sett í þessa bæklunarskó.
Svo fórum við í ungbarna eftirlit og minn er bara orðinn 9.550g og 78 cm og hann fylgir sinni línu, hann var sprautaður og var sko ekki sáttur það var grátið á þessa vindu hjúkku en eftir smá knús frá mömmu og pabba þá varð allt allt í lagi þetta tók nú ekki langann tíma þannig að this is it.
Við fórum til svefnráðgjafa síðastliðinn mánudag því ég bara ákvað hér og nú að nú skal drengurinn sofa betur, þetta var svo sum eitthvað HUGE vandamál en ég er bara þrjósk og vill að hann sofi betur og fái hvíldina sem hann þarf. Þannig að við fórum spjölluðum við hana og fengum plan sem við byrjuðum á strax á mánudagskvöld. Sko þetta er ekkert rosa flókið en það voru margir punktar sem hún sagði okkur og meika fullkomið sence en maður bara hefur ekki vit á að fatta, svo ætlum við a nýta tækifærið og hætta með pelann og ég verð að segja að ég get ekki kvartað yfir því, því að það er svo helv dýrt að kaupa þessa soya og rís mjólk ég tími því nú alveg en er feginn að það hefur minnkað svo um muni því ferna af svona er fjórfallt dýrari en venjuleg mjólk. Það hefur gengið vel og erum við strax að sjá framfarir, það hefur tekið svona 30 mín að svæfa sem er miklu minna en ég hafði gert mér í hugarlund. Þetta getur verið doldið erfitt samt það er sko þannig að fyrst þá fer hann sem sagt inn í rúm kl 21 og ég eða Davíð eigum að vera inn í herberginu enn svona bara í dyrinni og við meigum vera gera allt nema horfa á sjónvarpið og tala í símann ég hef t.d. verið að brjóta samann þvott, hann á auðvitað að liggja en litli þrjóskupúkinn stendur upp og fer að gráta, ég á að láta sem ég sjái hann ekki og ef hann bara grætur þá á ég að bíða í svona 2-3 mín og leggja hann niður og gera þetta aftur og aftur ef hann svara alltaf með því að standa upp og fara að gráta og svona má þetta ganga í 20-30 mín og ef hann er ennþá að gráta þá þá má fara og setjast við rúmmið.
Það hefur ekki komið til þess að það hefur þurft og er ég mjööög ánægð með það hann meira að segja sofnaði sjálfur í kvöld mér til mikkillrar gleði svo þegar hann kemmst upp á lagið með þetta þá ættum við ekki að þurfa hanga þarna inn í herbergi, svo bað hún okkur um að skipta þessu niður sem sagt að það tæki bara annað foreldrið fyrstu 3 dagana og síðan hitt næstu þrjá og það væri fínnt að hafa það svona fyrst og á meðan þá á foreldrið sem á ekki "vaktina" að fara út úr íbúðinni en það er bara fyrst sem betur fer og foreldrið sem fer á að kveðja barnið sérstaklega svo að barnið viti að það sér ekki heima og grenji ekki eftir því mjög sniðug pæling, ég sem sagt byrjaði og fyrsta vaktin hjá Dave er á morgun. Svo með að vakna á nóttunni þá hefur hann gert það síðastliðnar tvær nætur EN ég hef alltaf bara lagt hann niður og síðan skriðið upp í rúm aftur og þetta virkar því hann sofnar strax aftur og vonandi endar þetta þannig að hann hætti að vakna sem ég á nú alveg von á, en ég leyfi ykkur að fylgjast með.
Það varð smá slys á Jóhann Otta í dag hann semsagt datt fram fyrir sig náði svona nokkurn veginn að setja hendurnar fyrir framan sig en tókst samt að bita svona harkalega i vörina þannig að það koma smá blóð en svo lagaðist það mamma hjúkraði stráknum sínum en svo kom bólgan og þá var hann með efri vör eins og Angelina Jolie en þetta var bara smá Hans klaufi þarna á ferð.
Svo næstkomandi föstud þá ætla ég að vera aðeins á undan áætlun og halda upp á afmælið mitt og bjóða bara í svona fullorðins partý heim og það verður bara familíann og tengdaforeldrar mínir en þau ætla svo að vera svo væn og taka síðan strákinn í nætur pössun því það mundi ekki virka að hafa svona marga gesti og hann sofandi inni, þá reyndar þurfum við að finna einhvern góðan milliveg á svefn planinu okkar þetta eina kvöld en ég hef ekki áhyggjur af því.
Snjórinn sem ég pantaði kom um daginn og ég var svo glöð en hann var eiginlega allt of stutt svo fann ég hvergi snjóþotu handa Jóhann Otta bömmer það vilja allar verslanir skreyta með jólaskrauti í nóv ef ekki okt en það hefur enginn vit á því að vera með snjóþotu tilbúna fyrir Jottann össs, það kemur nú fyrr eða síðar.
Jæja ég er orðinn sibbó er ætla að fara að kúra ég er líka komin með blöðrur á puttana ég er búin að blogga svo mikið.
Adios Erla og Jottinn
Vinir og fjölskylda | Breytt 1.11.2007 kl. 09:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.10.2007 | 09:23
Fleiri myndir úr afmælinu
á þessum link................http://www.123.is/album/display.aspx?fn=MOTIVMEDIA&aid=242052
Endilega kíkið þið á myndirnar.
21.10.2007 | 22:52
Nýjar myndir
Jæja ég skellti inn nýjum myndum og úr afmælinum hans sem var haldið í dag þær eru svo sum ekki margar en við gerðum okkar besta til að reyna að muna eftur því að taka myndir. Ég kem með nánara blogg á næstunni.
Að öðru leyti vil ég bara segja TAKK KÆRLEGA FYRIR YKKAR NÆRVERU Í DAG ALLIR ÞEIR SEM KOMU OG TALA NÚ EKKI UM ALLAR ÞESSAR FÍNU GJAFIR SEM ÞIÐ GÁFUÐ STRÁKNUM.
Kíkið á nýju myndirnar.
18.10.2007 | 23:10
Fyrsta afmælis gjöfin og engin smágjöf frá Ömmu Ólöfu og afa Nonna
18.10.2007 | 07:54
Hann á .............
Afmæli í dag hann á afmæli í dag, hann á afmæli hann Jóhann Otti hann á afmæli í dag.
Ný fæddur, þvílíkt stoltir foreldrar.
1 árs töffari : )
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 07:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.10.2007 | 20:32
Ensk-Íslenska
ég var í hádeigismat og nokkar kvensur voru að tala saman og inn ímiðju samtali greip ég eitt orð sem mér finnst mjög ljótt og það var intresant sem þýðir áhugavert þá fór ég að pæla í svona ensk íslenskum orðum eða orðum sem eru í raunini ensk orð en er búið að troða þeim inn í íslenskuna eins og
- tjilla-slappa af
- kanselera-hætta við
svo man ég ekki meira en var sammt komin með fullt af orðum en endilega kommentið ef yjkkur dettur eittvað í huga því ég veit að það eru til fullt af fleiri kjánalegm orðum.
Allir að kommenta núna, ég sjá aksjón
14.10.2007 | 17:28
Nýjar Myndir og video
Jæja ég var víst búin að lofa bloggi sem er sko ekki vandamálið. Já maður er búinn að vera eitthvað latur í þessu.
Það sem er að frétta er að Jotti er búin að taka tvö skref en það gerðist hjá dagmömmuni við ekkert smá stoltir foreldrar, en því miður hefur það ekki gest aftur en við biðum bara spennt. Næsta fimmtudag verður þessi gullmoli 1 árs ohh það verður ekkert smá gaman, hugsið ykkur heilt ár bara flogið burt þetta líður svo hratt að maður þarf að passa sig á því að þetta líði ekki of hratt. Við ætlum að halda upp á það næsta sunnudag og þá verður boðið í kaffi og með því þannig að það fer að líða að því að undirbúningur fari að hefjast. Annars er ekkert planað á fimmtudaginn sjálfan enda verður nú um hullumhæ á sunnudaginn en við sjáum ti. Svo vil ég þakka ömmu og afa í Svíþjóð fyrir sendinguna Takk kærlega fyrir þetta .
Við tókum okkur til og prófuðum um daginn að gefa honum skyr og hvað haldið þið hann fékk ekki óþols viðbrögð en ég veit samt að hann getur ekki fengið ný-eða léttmjólk en það er gaman að hann geti borðað skyr það getur verið svo gott þannig að það eru bara góðar fréttir.
Nú hef ég hafið jólagjafainnkaupin ég er bara svo mikið skipulagsfrík að ég vil vera tímanlega í þessu það er svo gott að losna við örtröðina í des og svo hlakkar mig svo til að kynna Jotta fyrir snjónum já og jólasveininum. Ég bara nenni ekki að vera í einhverju stressi að þessu glætan spætan og skil ekki fólkið sem gerir það ár eftir ár að versla allt á síðustu stundu. Svo er að styttast í að Jóhann Otti verður stóri frændi þar sem að Inga kærasta stóra bróður míns á von á sér 3.des en það læðist samt á mér grunur að krílið þeirri komi aðeins fyr eins og kom fyrir hjá okkur.
Svo skelltum við skötuhjúin okkur á skrallið í gær þannig að maður er nú ansi lúinn en aftur á móti fór hann Jóhann Otti til ömmu Ólafar í næturpössun sem var líka svona gaman en það gerðist nú samt doldið fyndið hjá þeim, málið var það að ég, mamma og Jóhann Otti höfðum eitt meirihluta af deginum í svona dúlleríi við fórum í kringluna og Kolaportið nema hvað að Jóhann Otti var svo buinn á því að hann sofnaði yfir matarborðinu og svaf bara til 9 í morgun, hann var svo þreyttur að mamma gat háttað hann og hann steinsvaf á meðan. Svo náði hann ekki einu sinni að fá desert hjá ömmu sem hafði keypt spes jarðaberja soya ís fyrir Jotta sinn en hann á hann bara hjá ömmu og afa.
Jæja ég er farinn að tjilla, en ég stóð við mitt Dagbjört
Aurevoir Erla og Jóhann Otti
Risaeðlan Risó
5.10.2007 | 07:55
Ég vil minna á
hundasýninguna sem er á morgun laugd og allan sunnud, þær byrja báðar um 9 leytið og verða allan daginn.
Ég er sem sagt að sýna á laugd frá svona 10-14, svo eru alls konar kynningarbásar og það hafa líka verið kynningar básar frá alls konar hunda deildum ef þið eruð að spá í að fá ykkur hund.
VOFF VOFF
1.10.2007 | 21:11
Jæja já
Þið hafið væntanlega séð myndbandið hér fyrir ofan. OOHH ég á bara sætt barn.
Það má samt segja að sæta barnið mitt sé orðinn algjör klifur köttur, honum tókst um helgina að klifra hjálparlaust upp í sófann og hefur ekki hikað við að gera það aftur, svo vill hann bara klifra upp á ALLT má segja. Gaurinn er þó ekki farinn að labba en það vantar ekki mikið upp á þetta er spurning um að hann finni smá öryggi og það þarf ekki að gerast nema kannski einu sinni tvisvar og þá fer hann af stað það er eg alveg viss um. Þroskinn hjá honum hefur voða mikið verið þannig að hann hefur bara alls ekki gert hlutina koma þeir allt í einu einn daginn eins og hann sé bara reynslubolti. Já það er ótrúlegt hvað þessi blessuðu börn geta verið misjöfn, nú eru aftur á móti að bætast við 3 tennur í einu hjá honum og hefur það almennt ekki verið að bögga hann mikið neima eitt kvöldið í síðustu viku þá vildi hann lítið borða og það var bara allt ómögulegt en annars hefur þetta bara verð fínnt.
Nú styttist óðum í afmælið hans sem verður æði en lilli bróðir minn á afmæli fyrst 7.okt hann verður sem sat 15 ára gamall. Jii þegar maður segir hvað bróðir sinn er gamall þá líður mér eins og ég sé orðin hundgömul ég er það sammt ekki hafa það á hreinu. Núna í í október mánuði ætlum við mamma,frænka, amma og ég að gera slátur öss það er nú doldið spennó ég hef aldrei gert það but I will exspect the unexspected.
Þessi mánuður er alltof busy það er hundasýning, afmæli, slátur já og vinna vinna vinna alltaf nóg af vinnu úff. og það er ekki eins og það sé að minnka því þegar nær dregur að jólum því meira verður um að vera svo í des BÚMM jólahlaðborð þá verður allt ccraazzyy. Já en ég skal segja ykkur að ég er byrjuð að versla jólagjafir takk fyrir já ég gerði það nú alltaf að versla þær í okt nóv en það var nú doldið öðrvísi í fyrra sökum þess að maður var ný orðinn foreldri en nú er ég byrjuð hananú.
En ég vil minna ykkur á Hundasýninguna næstu hrelgi sem verður haldin í Reiðhöllini í víðidal þið geið séð beur um þetta á www.hrfi.is
Ég er farin að tjilla.
Færsluflokkar
198 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar