Jólin eru komin

 

hérna er linkur beint á videoið http://www.youtube.com/watch?v=bXop17c8pKE


Þetta er nú meira ruglið

Jæja fyrir örfáum mínútum labbaði ég inn í herbergið að gá að litla unganum mínum, strik honum um vangann og legg höndina á ennið hans því að hann var búin að vera með smá kommur í dag og þá er hann bara orðinn brennandi heitur og kominn með 39.5 stiga hita og ljótan hósta  svei mér þá hvað ég mundi gera til þess að skipta við hann bara svo honum liði betur og hann gæti notið jólanna í botn.

 Ég gaf honum stíl og svo eru góðar líkur á að fyrsta verk dagsins á morgun verði læknisferð, hann fór til læknis út af þessum veikindum um daginn og læknirinn sendi hann í blóðprufu til að athuga með ónæmiskerfið og við fengum semsagt út úr því að honum vantar eitthvað í ónæmiskerfið sem heitir IGG2 hvað það er veit ég ekki því miður þar sem að ég fékk niðurstöðurnar frá heimilislækninum en ekki lækninum sem sendi hann í blóðprufuna sem er ofnæmislæknir og það er nú bara saga út af fyrir sig.

En heimilislæknirinn gat þó sagt mér að það væri algengara að börnum vanti IGA hvað þetta allt saman þýðir veit ég því miður ekki en fæ að vita strax eftir áramót. Við vissum þó bæði að hann er viðkvæmur fyrir sýkingum og flensu,  mér langar stundum bara að setja hann inn í plastkúlu eða þannig það er bara svo vont fyrir hjartað mans þegar litli unginn mans er veikur.

 

Jæja það er bara að vona það besta svo allir geta verið hressir og kátir um Jólin

 

Gleðileg Jól öll sömul

Kv

Erla Jotti & Davíð

 


Nýjar en fáar myndir í nýju albúmi Jotti 14-16 manada

Endilega kíkið þið ég þurfti að búa til nýtt albúm þannig ég skellti nokkrum inn.


Jólahvað?

Jæja þá er maður að detta í jólastuðið. búin að versla allar jólagjafir og á bara eftir að gera þetta venjulega sem sagt þrífa og skipta um á rúmmonum.

 Jóhann Otti er að þroskast doldið núna hann er t.d. farinn að segja fleiri orð eins og hættu, takk svo þetta klassíska datt og mamma er bara spari. Svo gillar hann sig stundum sjálfur og reynir að segja gilli gilli gill það kendi ólöf amma hans honum.  Svo er hann nokkrum sinnum búin að benda á nebbann á sér eftir að hann var spurður hvar hann væri ohh ég veit gáfað barn Wink 

Annars er nú ekkert rosalegt að frétta jú við fórum á jólahlaðborð síðasta laugardag á Hótel Sögu og Jóhann Otti gisti hjá Ólöfu ömmu og Nonna afa sem gekk bara eins og í sögu, á meðan vorum við á Sögu og ég skal segja ykkur ég varð fyrir vonbrigðum mér fannst maturinn ekkert spes og forréttarlaðborðið sökkaði feitt en svo var sýning með Guðrúnu Gunnarsd, Hara systrum, Ragga bjarna, Bjarna ara og Hemma Gunn og það var nú bara ágætis skemmtun við vorum nú bara róleg á því annars því að við þurftum að sækja ungann okkar snemma á sunnudeginum.

 

Núna eru jólinn bara að bresta á og árið er flogið frá manni.

Ég er komin í mynda átak og er farin að taka myndir aftur á fullu þannig að ég er bara að safna í sarpinn og svo skeli ég þeim inn.

Got to go Kveðja Erla og Jóhann Otti.


Jólahjól.

Jæja  hvað segið þið gott?, asskoti er maður búin að vera latur að blogga hvað þá taka myndir en þið verðið bara að fyrirgefa þar sem að það er brjálað að gera hjá mér þennann mánuð.

Jóhann Otti er því miður ekki enn farinn að labba en er sammt orðinn mun sjálfsöruggari, í síðustu viku fékk hann gubbupest sem var nú ekkert alvarlegt nema hvað ég lagðist í hana daginn eftir og hef ALDREI fengið aðra eins gubbupest og ég get fullyrt það að að eru nokkur ár síðan ég fékk hana síðast. Að öðru leiti höfum við verið heilsuhraust. Amma Gunna var að kenna Jóhann Otta að benda á nefið á sér þegar maður spyr hann hvar er nebbinn sem er alveg gasalega krúttlegt því stundum þá bendir hann ekki á nefið heldur borar upp í það.  Hann stækkar og er farinn að "spjalla" alveg helling, skapið stækkar líka með en hann tapar oftast ef að hann ætlar að fara reyna að stjórna, svefninn er orðinn alger draumur núna þá rétt fyrir háttinn þá er hann knúsaður aðeins lagður niður í rúmm boðið góða nótt og svo fer hann oftast að sofa það eru þó stundum smá mótmæli en það tekur ekki lengur en 5-10 mín svo er bara sofið alla nóttina.

Jólin eru bara á næstu grösum og við eigum ekki eftir að kaupa margar jólagjafir sem betur fer og stefnan er að klára þær í næstu viku  en jólakortin eru eitthvað að lenda á hakanum hjá mér.  Það verður gaman að sjá hvernig Jotti á eftir að bregðast við öllum pökkunum, jólasveininum já og bara jólunu. MMM svo hlakkar mig svo til að fá hammarahrygg og brúnaðar nammi,talandi um mat jeremísa þar næstu helgi þá er jólahlaðborð í hádeiginu í vinnuni á föstud, jólahlaðborð í vinnuni hjá Davíð á laugard og jólaboð hjá fjölskylduni hjá Davíð á sunnud WHAT át helgi dauðans nee og þó þetta þýðir bara að maður þarf að draga framm eithhvað sem heitir agi og vera ekki að troða ofan í sig öllu sem maður langar í já þetta reddast.

Ég komst að því um daginn hvað það eru mikil forréttindi að eiga uppþvottavél, sko við höfum átt uppþvottavél síðan við fluttum hingað inn og ég var heillt sumar að safna fyrir(ýkt stolt) nema hvað að hún var bara algjört DRASL og var búin að vera að hökkta í nokkra mánuði, ég hringdi í Byko og kvartaði og þeir gáfu mér bara innleggsnótu af andvirði vélarinnar sem ég átti fyrir.  Ég var bara illa sátt og loksins létum við að því að  kaupa nýja og ég segji bara VVÁÁ hvað það er mikill munur þetta er bara æði af öllum hlutum sem ég á bíl, síma o.fl þá þykir mér mest vænt um uppþvottavélina, ást við fyrstu sín.Heart

Jæja ég ætla fara að sofa.

Kv. Erla og Jottinn


TIL HAMINGJU SÆMI OG INGA

Þau eignuðust strák um 13 í dag

Spítalaferðin sem var fyrir viku síðan.

Já það er sko kominn tími á smá fréttir.

Við urðum heldur betur hrædd síðasta föstudag þegar dagmamman hringdi í okkur og sagði að litla beibíið okkar væri orðin lasinn, nema hvað ég var ekki á bíl en tengdamamma mín gat sótt strákinn og kom svo og sótti mig í vinnuna og ætlaði að skutla okkur heim.

Á leiðinni heim líst mér ekkert á blikuna því að Jotti sat bara í bílstólnum og gaf frá sér þessi hræðilegu stunuhljóð og var vælinn og var bara eins og hann væri hálf kvalinn, þannig að ég bið hana um að skutla mér bara beint upp á heilsugæslu sem er nánast við hliðina á okkur. Þar labba ég upp og sagði að hann þyrfti að komast strax undir læknishendur þar sem að það væri eitthvað að og ég vissi bara ekkert hvað það væri, þetta yndislega starfsfólk bjargaði því og læknir kom og skoðaði hann og sá að það var greinilega ekki allt með feldu og þetta væri ekkert sem hann gæti læknað og vildi bara senda mig niður á barnaspítala.  Þar sem að ég var bíllaus þá rauk ég bara með hann í Taxa og beint niðureftir, þar löbbuðum við beint inn á bráðamóttöku og þar var hann mældur,tekið sýni og haft hann tengdann við vél sem mælir súrefnismettunina hjá honum.  Síðan vorum við send í röngen myndatöku með hann og þá kom í ljós að hann var komin með lungnabólgu í annað skipti og til að toppa það þá var hann með streptakokka líka.  Þá var farið í að setja upp æðalegg sem er nú bara blog útaf fyrir sig þar sem að þær vildu setja hann upp í hausinn á honum því hann var svo æðaber á ákveðnum stöðum og það gekk nú misvel, loksins tókst það og þá var honum gefið lyf í æð og stíll við tók bara smá bið á skoðunarstofunni og fylgst var með honum ásamt því að honum  var gefinn annars skammtur af lyfinu.

Þeir voru fyrst ekki vissir hvort þeir vildu halda honum yfir nótt en þegar líða tók á kvöldið þá var hann ekki orðinn eins hress og þeir hefðu vilja sjá hann vera þannig að við fengum sér stofu til að gista í og vorum í einangrun út af streptakokkunum.  Svo var honum gefið lyf einusinni um nóttina, við vöknuðum síðan um 10 leytið og þá var minn barasta hress og kátur þannig að hann fékk að  fara heim með lyf og fyrir mæli um það að hann þyrfti að ná að vera undir 38 st hita í 2 daga áður en hann færi aftur til dagmömmunar.

Því markmiði var náð núna á fimmtudaginn og hann var rosalega feginn að fara og hitta krakkana enda búin að fá nó af mömmu sinni sem var búin að hanga með honum meirihlutan af veikindonum.  Hann  hefur verið almennt hress en smá vesen með lyfið fyrst fékk hann rosalegan niðurgang af því en þetta er allt að smella hjá okkur. En stunuhljóðin voru bara út af því að hann var FÁRVEKUR en mömmu og pabba hjörtu voru smeik um litla molann sinn.

Þar hafið þið það ég ætlaði að vera búin að blogga um þetta en hef því miður ekki gefið mér tíma til þess fyrr en núna.

 

Kv Erla og Jotti


spennóóóó

Ég bara varð að segja ykkur að Jóhann Otti er sennilega að verða stóri frændi á mánudaginn SAMA afmælisdag og mamma,  Sæmi stóri bróðir minn og konan hans Inga eiga nefninlega von á sér og það er búið að vera smá vandræði hjá henni, hún er með meðgöngueitrun nefninlega og það á að leggja hana inn á spítala í dag og setja hana af stað á sunnudagskvöldið.

 VIÐ ERUM  SVO SPENNT FYRIR ÞEIRRA HÖND.

Varð bara að deila þessu með ykkur.

 


news

Sæl öll sömul nú er komin tími á fréttir, það er allt gott að frétta héðan Jotti vex og dafnar en er samt alltaf jafn nettur þessi dúlla með sínu litlu mjaðmir og læri. Hann fékk sýkingu í augun núna um daginn og var eldrauður með gröft allann hringinn ekki smart ég beit en við skelltum okkur til doksa og hann skrifaði upp á dropa fyrir okkur og er hann oðinn mun skárri núna. Nú fer að styttast í Jólin og ég veit að Jotti á ekki eftir að hafa neitt vit á hvað er í gangi þótt að honum eigi eflaust eftir að finnast Jólasveinninn og jólatréið skrýtið svo sjáum við bara hvort hann fattar að opna pakkana. En við ætlum að fara á jólaball hjá Frímúrurum sem er ball sem ég fór alltaf á þegar ég var lítil en núna er komið að því að fara með litla barnið mitt á það já það verður öðrvísi og eflaust gaman.

 

Ég skellti mér í sund í kvöld og  ó mæ god hvað það var gott, sko ég var búin að vera lengi á leiðinni en drullaði mér aldrei af stað en í kvöld var engin afsökun og ég sé sko ekki eftir því að fara.  Eftir þessa hressu sundferð þá langar  mig að reyna að halda þessu áfram og fara tvisvar í viku það er draumurinn. 

Jæja ég er farinn að tjilla.

Adios...Erla og Jóhann Otti

p.s. 41 dagar til jóla


NÝJAR MYNDIR

CHECK IT OUT

 



« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

198 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband