11.8.2009 | 21:42
Fréttir
Jæja þá er komin tími á smá update. Við erum öll hress ný komin úr sumarfríi nem krakkarnir, já þið heyrðuð rétt við erum byrjuð að vinna en börnin ekki farin í sína "vinnu". Leiksólinn byrjar ekki fyrr en í næstu viku og dagmamman í þar næstu. Það vill þannig til ég ég á yndislega foreldra og tengdaforeldra sem eru já við skulum segja í fríi og þau eru með litlu gullin okkar, mér finnst ég vera afskaplega heppin að eiga svona góða að sem geta bjargað manni á ótrúlegustu tímum. Lov you.
Það var fínnt að byrja vinna aftur komast í smá rútínu og reglu. Annars er það að frétta að Jóhann Otti er að fara í háls og nefkirtlatöku núna 28.ágúst því við fórum til læknis með hann því mig var farið að grúna þetta (móðureðlið ;) og það reyndist rétt að hann er með of stóra hálskirtla. Læknirinn sagði þó að hann mundi taka nefkirtla í leiðinni því það væri orðin hálfgerð regla. Ég er rosalega spennt fyrir þessari aðgerð því hann er orðin frekar erfiður á að borða og skýringin er sennilega of stórir hálskirtlar. þessi aðgerð mún sennilag hjálpa honum að hóstin sem hann er vanur að fá annaðslagið verði kannki ekki alltaf svo ljótur.
Emma er hress og er alger púkí,eiginlega meira en bróðir hennar. Hún fattaði það um dagin að hún getur klifrað upp í sófa og hlaupa um í honum án þess að gera sér grein fyrir hættunni. Svo finnst henni ægilega gaman þegar við sitjum við matarborð að lyfta annari löpp upp á borð, það eina leiðinlega er að þá fer bróðir hennar strax að apa eftir henni, en að sjálfsögðu bönnum við þeim bæði að gera þetta.
Annar vorum við að koma úr bústað núna um daginn, viku dvöl. Það var yndislegt frí í alla staði. Fyrstu helgina sem var verslunarmannahelgin þá voru vinir hans Davíðs hjá okkur svo komu mama, pabbi og árni á afmælisdeginum hans pabba 3.ágúst. Þau voru hjá okkur til föstudags þegar við öll fórum heim. En á meðan dvöl þeirra stó þá keyrðum við saman allt snæfellsnesið og stoppuðum á mörgum stöðum, fórum í sund í Borgarnesi og á Hvanneyri. Við komum allavega öll sátt eftir sumarfríið og ástfangari en áður :Þ
Þeir sem eru með davíð á facebook geta séð myndir úr sumarbústaður, en annars ætla ég að reyna skella inn myndum fljótlega.
Knús í bíli...erla
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
336 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.