NÝJAR MYNDIR

Það eru komnar NÝJAR MYNDIR í Jóhann Otti 4manada albúmið.

 

Kem með blogg á morgun um þessa yndislegu helgi.

 

Knús í bala

 

Erla og Jotti spotti


 


Gleðilega Páskahelgi

Hæ allir saman jú nú eru páskar að renna í garð og lambalærin, lambahryggirnir og svínakjötið verður væntanlega vinsælt og ég tala nú ekki um uppáhaldið mitt sykurbrúnaðar kartöflur mmmm(hættulega gott). 

Af okkur familíuni er allt það besta að frétta það bólar ekkert enn þá á tönnslum hjá Jóhann Otta en þetta kemur  fyr en siðar.  Nú þegar menn eru að verða 6 mánaða þá er komin tími á að maður fái að kynnast nýjum mat og þá alvöru mat ég fór í hagkaup og keypti sætkartöflur, tómata, avacado, mango og eitthvað fleira þetta ætla ég að fara að gufusjóða og gefa honum svona homemaid mat enda orðin þetta stór  og alveg komin tími á að fara læra að borða.  Jú þegar þið lesið sætkartöflur þá kannski tengið þið það beint við eitthvað sætt og óhollt tja nei sætkartöflur eru í raunini hollari en venjulegar þetta lærði ég í næringarfræði 102 og 202 sem er ekki slæmt því þær eru svo góðar mmmm. Já álið snýst núna um að gera þetta mest megnis heimalagað sem er ekki slæmt sérstaklega þar sem ég á gufusuðupott sem sildmenni mín í Sverige gáfu mér TAKK: )

Nú er hann líka farin að fá þriðju máltíðina sem sagt um kaffileitið sem er venjulegur hafragautur bragðbættur með einhverju góðu og þettta finnst honum bara nammi gott hann fær reyndar ekki mikið hann borðar ekki heila skál af hafragraut allaveg ekki svona til að byrja með en þetta mun aukast með tímanum.

jú ég er búin að vera frekar bisí síðan á þriðjudaginn því að hann Jón Gísli frændi minn var að fermast í dag (TIL HAMINGJUWizard) og við erum búin  að vera að undirbúa veisluna og þrífa húsið hans afa þar sem veislan var haldin.  Þetta var glæsileg og flott veisla,  boðið var upp á kökur, kaffi og gos og var vel mætt, stemmningin var góð og allir í sólskins skapi, Núna er veislan búin og þá tekur bara páskahelgin við, við familían erum að fara í mat tí ömmu Gunnu og afa Þorsteins á laugardagskvöldið og síðan erum við að far í sumarbústað á sunnudaginn, vinur hans Davíðs er með bústað yfir helgina og við ætlum að fara á sunnud og annars vinur hans kemur með sína familíu þannig ð það verður geggjað stuð.

Næst á dagskrá er að kaupa sér sund kort og fara í sund 1-2 í viku með Jóhann Otta og hafi einhver áhuga á að fara með þá eru allir velkomnir við stefnum af því að reyna að stunda að fara í Árbæjarlaug  þar sem að innilaugin þar er með fullkomið hitastig fyrir svona litla kroppa.

Jæja ég er orðin sibbin ætla að far að kúra.

GLEÐILEGA PÁSKAHELGI.

Erla og Jóhann Otti

Photo 134


NÝJAR MYNDIR

Það eru NÝJAR MYNDIR í Jóhann Otti 4 manaða möppuni  endilega kíkiði.


 

Annars er allt gott að frétta af okkur familíunni það er bara doldið mikið að gera hjá okkur eins og er þannig að þið fáið bara almenniglega bloggfærslu næsta föstd og þá mun ég segi ykkur sólarsöguna why we are busy.

 

 

Knús í drasl

ErlaInLoveog Jóhann OttiAlien


Ný skoðunarkönnun

Jæja það er augljóst að KÓKÓMJÓLKIN vann enda ekki skrítiðWink en kappi sótti hart að henni sveiiiattanErrm

en það er komin NÝ SKOÐUNARKÖNNUN endilega takið þátt í henni.

 

Photo 106

 

 

 

 

 

 

 

 

Knús Erla 


Bla

DSC03049Halló halló halló hvað er málið með þetta veður einn aginn er geggjað veður og daginn eftir er snjór wtf þetta er alveg glatað.

Annars er allt gott að frétta af familíunni ég, Jóhann Otti og amma Gunna erum að fara ú ungbarnasund á eftir það verður gaman að sjá hvernig hann bregst við því hann fór ekkert í síðustu viku út af slappleika,  við fórum með hann til læknis bara til að ath hvort hann væri nokkuð kominn með í eyrun en svo var ekki sem betur fer 7 9 13, sjálf var ég víst rosalegt eyrna barn og litli bróðir minn verri þannig ég vona að við sleppum að því leitinu til að þetta verði ekki rosa vandamál, öll höfum við þó einhvertíman fengið í eyrun einhvertíman að sleppur enginn en hjá sumum verður þetta að svona viðloðandi vandamáli sem getur verið rosalega erfitt fyrir barnið og foreldra.

Ég var ekkert rosalega ósátt við útkomuna í X-factor á föstudaginn enda kannski kominn tími til að GÍS detti út þær eru tvisvar eða þrisvar búnar að vera í neðsta sætinu það segir nú bara sitt en ég vil sjá Guðbjörgu detta út næst og Jógvan og HARA í undanúrslitaþættinum.  Persónulega finnst mér Guðbjörg ekki sérstök söngkona ég meina hún er ekki alslæm hún er svo sannarlega betri en ég GUÐ HJÁLPI MÉR en ef að hún mundi gefa út plötu þá mundi ég ekki kaupa hana eða gefa hana sem gjöf sorrí.  

Einhvernvegin þykir mér þó líklegt að Jógvan vinni enda er hann alger kjútípæBlush og hann er góður söngvari hann hrífur líka alla(gay ore straight) með sér með sinni hógværð og persónutöfrum þannig að ég segji bara ÁFRAM Jógvan.

Ég er að far í heimsókn til dagmömmu á fimmtud því að ég fann eina með eitt pláss til 15.júni þá fer hún í sumarfrí  og mér þykir líklegt að ég verði að taka því,  það er bara hægara sagt en gert að fá pláss hjá daymom þannig maður verður að grípa það sem maður fær í hendurnar þar að segja ef ég verð sátt við aðstæður og annað þið skilið.  Þetta verður engin smá breyting þegar hann fer til dagmömmu ég meina maður er búin að vera heima í næstum því 6 mánuði og síðan á maður bara að setja barnið sitt í hendurnar á manneskju sem maður þekkir ekki neitt  og þar er það hálfan/heilann daginn ég held að þetta verði nú ekkert rosa legt sjokk fyrir Jóhann Otta enda er hann ekki mikil mannafæla  það er hægt að setja hann á handlegginn á hverjum sem er og það er bara allt í lagi,  síðan verður líka gaman fyrir hann að leika við hina krakana.

Ég hugsa að þetta verði mest viðbrigði fyrir mig en það er sammt allt í lagi að sjálsögðu kemst maður yfir það þetta er bara partur af því ferli að hann sé að stækka og verða eldri og þroskast það kemur að þessu fyr eða síðarSmile

Ég fann GEGGJAÐ sniðugt sem ég ætla að gefa Jóhann Otta en ekki alveg strax hann er ekki orðin alveg nóu stór en stutt í það.......getGalImg.php

 

Lýsing: Leikfang frá 6mán. aldri. Fyrst rugguleikfang síðan stigbíll. 

 

 

 

 

 

 

 

Mér finnst þetta geggjað sniðugt því þetta getur þjónað sama tilgangi og göngugrind og síðan þegar hann verður ennþá stærri þá er þetta bara bíll, það er sem sagt hægt að taka þetta rauða undir hjólonum síðan er hægt að taka þetta rauða sem er fyrir framan barnið SNNNIIIÐÐUGTGrin

Ohh ég er sennilega að fara í smá aðgerð í vikunni það þarf að skera í tánna á mér ég er með fatlaðar táneglur þær nefnilega taka stundum upp á því að vaxa ekki upp heldur út til hliðina ojj ég veit grós þetta var rosa vandamál hjá mér á tímabili ég var alltaf að láta skera í þetta  og mera að segja fyrsta aðgerðin sem ég fór i þá var ég svæfð, glatað.

Þetta er nú reyndar bara hægramegin á hægri stórutá og þetta er bara á stórutánnum og að reyna að klippa nögl sem er kannski búin að vaxa aðeins inn í tánna á þér er VONT þetta fengi fullorðna karlmenn til að grenja.  Ég hata að vera með þennann "galla" því ég hata tær  en svona ert þetta svona aðgerðir eu gerðar hjá lítalækni og hann heitir Guðmundur sem mun skera í þetta,  þetta er ekkert rosalegt en það versta er að láta deyfa restin er pís of keik síðan má ég helst ekkert stíga í löppina restina af deginum en dagin eftir er þetta nokkurn veginn ei okei.  Gavuð ég gleymi því sammt aldrei eftir að ég fór í fyrstu aðgerðina þá var skorið á báðum tánnum báðu meginn og pabbi var að skifta um umbúðir og gömu umbúðirnar voru hálfpartin búnar að festast í sárinu út að blóðinu sem var storknað og síðan reif hann þær af og ég gargaðu úr mér lungun okei það gekk yfir síðan fór ég fram til að borða kvöldmat og var að setjast við eldhúsborðið þá er það fyrsta sem ég geri er að sparka í eldhúsborðið með stóru tánni ÁÁÁÁÁ ég neita því ekki það kom eitt tárPinch.

 En jæja þetta er komið gott en þá vitið þið það I hate toes.

ErlaInLove og Jóhann OttiAlien


Helgin

Hæ allir saman það er nú kominn tími á eit gott blogg er þð ekki,  helgin var nú ekki anasöm og það var ekkert sérstakt gert fyr en í dag þá vöknuðum ég og Jóhann Otti snemma og klæddum okkur og laumuðust út leifðum Davíð að sofa, við drifum okkur í Bónus að versla og síðan í smáralindina að kaupa afmælisgjöf handa Eyjólfi syni hans Einars vin hans Davíð. Hann verður eins árs á morgun en hélt upp á það í dag, ég man bara eftir því þegar hann var svona viku gamall  og við vorum að koma í heimsókn til að sjá hann,  jahérna hér hvað tíminn líður hratt.

Annars er nú voðalega lítið að frétta eitthvað kvefið hjá okkur er að hverfa og Litli sefur nú eins og steinn  þannig að ég vaki ekki lengur að horfa á pretty woman Wink heheh.

Það verður svaka stuð næstu helgi ég er að fara á föstudags kvöldið út að borða og skralla með stelðum sem ég var að vinna með,  við erum að spá í að fara á Domo til Ragga sem er yfirkokkurinn og vinur okkar og gæða á einhverjum góðgætum hjá honum, síðan er bara planið að skella sér á tjúttið eða kannski svona semi tjútt því að ég má gera ráð fyrir því að þurfa að vakna á laugardeginum því Davíð er að fara vinna þannig að það þýðir ekkert að koma heim klukkann 5, 6Kissing  

Það er sammt allt í lagi ég og mamma ætlum að fara í kringluna og versla pínu pons á Jóhann Otta því honum fer að vanta samfellur og annað smátterí og okkur konum þykir nú ekki leiðinlegt að versla ÓNEI.

Páskarnir er á næsta leiti og ég ætla ekki að kaupa páskaegg né skreyta, fyrir það fyrsta þá langar mig ekki að eiða páskonum í að úða í mig súkkulaði ég fer í eina fermingu og það er nó, hver skreytir??? jú mamma gerði það þegar ég var lítið en þetta er svo stuttur tími ég meina þetta er styttri tími heldur en jólin mér finnst þetta bara óóóóóþarfi sorrí.  Litli/stóri frændi minn fermist núna 5. apríl jú hann er minni en ég í aldri en hann er meira en höfðinu stærri en ég í hæð : ) það verður rosa stuð veislan verður haldin heima hjá Sæmund afa og ef ég á að segja alveg eins og er þá veit ég ekkert hvað ég á að gefa honum en ég hef viku til að finna út úr því.  Árni vinur hans Dave er með sumarbústað og það er hugmynd um að kíkja familían á sunnudeginum  en ekkert ákveðið en það gæti orðið svaka stuð því Benni vinur hans er að spá í að fara líka þá er aldrei að vita nema að það verði dregin upp spil þegar það verður búið að svæfa krakkana og látið reyna á gáfurnar í einhverju skemmtilegu spili.

Jæja ég ætla að henda mér út í sjoppu að kaupa T2 sítrónu mmmm love it.

Adios amigos,  ErlaInLove g Jóhann OttiBandit


HHHHOOORRRR

Þetta er nú meira ástandið nú er Jóhann Otti kominn með bullandi kvef og sefur frekar illa út af því þannig að síðustu tvær nætur eru búnar að vera frekar erfiðar hann nefninlega vaknar í tíma og ótíma en síðasta nótt var þó skárri svo var líka pretty woman í sjónvarpinu sú mynd er æði hún klikkar ekki.

Sjálf er ég drullu slöpp og bara búin að vera svona borderline veik þannig að það er bara ástand hér á þessum bæ Jóhann Otti er reyndar að fara til læknis á eftir það á að ath hvort að hann sé nokkuð kominn með í eyrunn, en þetta er í fyrsta skipti sem hann verður eitthvað  "veikur" og hann er sko ekki að fíla þetta það er líka alveg ömurlegt að vera svona síðan að nota nefsuguna eða saltvatnið í nefið á honum er bara ekkert pís of keik hann bilast honum finnst það svo leiðinlegt en hann verður því miður bara að bíta í það súra.

Dagbjört frænka er að koma í heimsókn í kvöld en hún er í bænum af því að hún er að fara til Kanarí á mmorgunn ooohhhhh ég öfunda hana svo ég hefði sko ekkert á móti því að við familían værum að fara þanngað núna,  það verður gaman  að fá hana við höfum ekki hist í meira en ár.

Ég vil minna ykkur á NÝJU MYNDIRNAR í albúminu hans Jóhann Otta.

Læt ykkur vit hernig fer hja doksa

Knús HorlingarnirSick


NÝJAR MYNDIR

.....sem eru í þið vitið hvaða albúmi er það ekkiWink ....

 Jæja gott fólk það er llt gott að frétta hér á bæ Jóhann Otti hefur ekki velt sér yfir á magann aftur en það kemur að því.  Þessi elska er búinn að vera doldið pirraðurAngry í góminum og það tók langann tíma að koma honum niður(svæfa hann) í kvöld svo er hann líka með pínu nefrennsl en þetta er í raunini bara merki um að það fer að líða að því að það fari að koma tönnsla.  

Við erum á fullu á sundnámskeiðinu og erum núna kominn í framhaldshóp og i honum er kafað mikklu meira en í byrjenda ég get nú ekki sagt að það sé bara allt í lagi hans vegna hann verður stundum pirraður þegar honum er stungið í kaf en það er ekkert alvarlegt,  því miður er bara tvær vikur eftir af námskeiðinu en ég er staðráðin í að halda áfram í að fara með hann í sund eftir að námskeiðið klárast.

Hér á bæ er flensan búin að vera hrjá Davíð en hann er góður núna þá byrjar mér að líða illa í hálsinum. mér líður eins og það sé rakvélablað í hálsinum síðan var litli bróðir minn að slá niður með flensu. Það er einhver bölvuð flensa að ganga algert vesen ég meina kommon það er mars síðan er það apríl , maí og þá á að vera komið sumar HALLÓCrying  hvar er góða veðrið ég vil geta lagt þykku úlpuni til hliðar og geta farið i bara þunnann jakk eins og var hægt um daginn   og tala nú ekki um að fara í flipp flopps en fyrir þá sem vita ekki hvað flipp flopps eru þá eru þetta svona sandalar með bandið á milli stóru tánnar og botninn á þeim eða sólinn er oftar en ekki úr svona hálfgerðu plast efni, ég elska að vera í svona skóm bara á tánum og mundi helst vilja vera bara í þeim allt árið kring.

Jæja ég ætla að fara að koma mér í draumalandið.

ErlaInLove og Jóhann OttiPolice


 


halló halló halló

hvað haldiði að hann gerst í gær............HANN VELTII SÉR YFIR Á MALLANN JJEEEIIIIJJJJJ  en því miður var ég ekki viðstöd til að sjá það en vonað ég verði það bara næst.

 

Vildi bara láta ykkur vita

 

Knús Erla 


Ávaxtastrákurinn

Já við vorum í ungbarna eftirlitinu í dag og það kom allt svo vel út, hann er orðinn 68.5cm og 7.440g og hún var rosalega ánægð með hann,  hann fékk líka sprautu sem var pís of keik ekkert farið að væla enda svo mikill nagliWink.   Hann er orðinn svo stór spáið í því hann verður 6 mánaða eftir mánuð vááá halló ég kom heim í gær af fæðingardeildinni (eða þannig).  Stundum finnst manni hann stækka of hratt og vill bara hafa hann svona litla beibí en stundum vill maður að hann fari að labba og tala á morgun svona er þetta: Þ

Hann er voða duglegur hann er ekki alveg búinn að ná að velta sér af bakinu yfir á magann en það vantar alltaf svo lítið upp á að það er fáránlegt þannig að þetta fer alveg að koma, hann er reyndar ekki farinn að sitja en ég læt hann nú sitja oft uppréttann og hann tekur alveg í með vöðvonum.  Vaxtakippirnir hjá honum eru stundum svo hraðir að reglulega þá þarf ég að fara í gegnum kommóðuna hjá honum og fara í gegnum ALLT og þá fer yfir yfirleitt svona 1/3 af fötonum sem betur fer þarf ég ekki að gera þetta oft ég hef þurft a gera þetta svona 3 sinnum síðan hann fæddist.

Nú hef ég það staðfest að Bumbo stóllinn er á leiðinni til ICELAND frá ameríkunni hún sagði að það tæki alt að 3vikur að koma hingað VÁ allt of langur tími en það verður bara gaman að fá hann.

Pabbi kom með í sundið síðasta föstudag og tók myndavélina með og tók alveg HELLING  af myndum og böns af köfunarmyndum ég er reyndar ekki búin að sjá þær en ég gæti alveg trúað því að þær væru geggjaðar og vonandi koma þær bara bráðlega inn á 123.is vefinn hans pabba.

Annars er minn maður bara orðinn alger ávxtastrákur þetta neta dæmi (mynd af neðar á síðunni) er að slá í gegn hann ELSKAR vatnsmelónur hann er líka búin að fá appelsínu sem var bara góð og peru líka en hún sló ekki eins vel í gegn af því að það er ekki eins miill safi í henni og hinum ávöxtonum sem hann er búinn að fá en þetta er alveg að slá í gegn og við höfum sko ekki við staðar numið við eigum eftir að prófa okkur áfram með fleiri ávexti. 

Annars er svo sum ekkert annað að frétta þannig að ég hef þetta ekki lengra.

ErlaInLove og Jóhann OttiPolice


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

196 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband