Ég blogga til að gleyma...

....nei djók.  Jæja lömbin mín það er nú búið að vera öttarlegt bloggleysi hér í gangi sökum anna en svona er þetta nú bara. 

Það sem er að frétta er að Jóhann Otti já er að skríða í að verða 7 mánaða töffari hann er alveg að ná tökum á að sitja það vantar svo lítið upp á, það er ekkert að bóla á tönnslu þó hann slefi heilum Dettifoss.

Síðan fékk hann og við síðbúin páskaglaðning frá Svíðþjóð um daginn frá langömmu og langafa sem var rosalega skemmtilegt, hann fékk sem sagt algjöran töffarabol og lítinn krúttlegann bangsa og ég vil í leiðinni þakka fyrir  amma og afaGrin Takk.  Hann Jóhann Otti er síðan byrjaður á fullu hjá dagmömmuni og gengur eins og í sögu, hann er yngstur og er rosalega vinsæll á meðal krakkana þau passa hann mjög vel knúsa hann og kyssa.  Síðan er það nýjasta nýtt er að við vorum að fá lánaða göngugrind hjá frænku minni og hann er alveg að fíla sig vel í henni en henn er ekkert búin að fatta hvernig maður á að gera í henni en hann nær stundum að ýta sér smá í henni. Síðan er hann alveg búin að fatta hvað hann getur gert með röddini sinni hann gargar stundum eins og smá stelpa bara svona just for the fun það er ekkert að hann er bara að þenja röddina og við hlæjum stundum mikið yfir hljóðunumsem koma upp úr honum.

 

 

Gær dagurinn er valla frá sögufærndi ég gerði mig að algjörum asna í Bónus(smáratorgi).  Sko við vorum að fara að versla eitthvað á grillið og ég er að keyra innkaupakerruna og davíð labbar eitthvað inn í búð að tala við vin sinn sem vinnur þarna okei ég ætla að byrja á ví að fara í grænmetiskælirinn en ég ætla eiginlega að labba inn þar sem er farið út nema ég stóð eitthvað í opinu og ég sá að fók hafði stoppað vinsta meginn við opið og var eitthvað rosa að pæla síðan stendur einn starfsmaður þarna og eitthvað að pæla með þeim og togar kassa af paprikum út og þegar hann gerir það þá kemur undan hilluni randafluga á stærð við folald fljúandi og stefnir BEINT Á MIG og í mínu paniki tek á rás og sleppi kerruni og hleyp burt á sama tíma að reyna að halda inn í mér garginu svo ég geri mig ekki að ennþá meira fífli en ég slapp nema hvað síðan var ég alveg á nálum eftir þessa áras enda full ástæða til því ég stóð hjá kælinum með kerrunna  og sé hana bara stefna beint á mig aftur og þá var aftur tekið á rás og hún flögraði eitthvað í kring um kerruna mína og fór síðan þá var gjörsamlega búið að rústa sálrtetrinu mínuWink  úúff Bónus ferðin óurlega.

 

Jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili reyni að blogga aftur fljótlega og splæsa inn nýjum myndum:

 

Adios



já mér leiðist  þannig að ég ákvað að skella mér í tölvuna og blogga aðeins. LoL

Við familían fórum saman á handboltaleik áðan og það var rífandi stuð, það voru trommur hjá sitthvoru stuðningliðinu  og hann Jotti var pínu hræddur fyrst og það kom stundum svona sviður eins og hann væri að fara að gráta en eftir smá stund þá var þetta bara geggjað fjör hjá litla kallinu, við létum hann stundum tromma í takt við hina og mamma sagði áfram HK fyrir Jotta og þá var sko brosaðGrin

Ég fór út í stuttan göngutúr í dag þar sem að ég var líka að passa hann Hnoðra(hund tengdó) of ég er EKKI að grínast það réðst á mig geitungur djöfull bráGasp mér ég var líka eins og hálviti ég fék svona spassa kast þarna á gangstéttini(var fyrir framan Kópavogsskóla) og það vildi svo skemmtilega til að það var ágætis umferð þarna gaman gaman.  Ég sagði Davíð frá þessu og hann vildi meina að þetta hafi ekki verið geitungur hann sagði bara  nei þeir eru ekki komnir en ef ég man rétt þá kom það nú bara í fréttum:  fyrsti geitungurinn mættur:  eða eitthvað álíka burt séð frá því þá var þetta einhver ógeðsleg fluga. 

Já ég er ógeðslega Undecidedhrædd við geitunga, randaflugur og köngulær sem koma inn til mans(tvisvar lent í því) og þið meigið alveg kalla mig kveif ef þið viljið mér er sko alveg sama ég er skíthrædd við þessi kvikindi tala nú ekki um eftir að það settist geitungur í hárið á mér síðasta sumar,  þá var ég inn í sjoppu að bíða eftir afgreiðslu og ég strauk svona í gegnum hárið á mér og fann fyrir einhverju sem var geitugur sem ég er ekki alveg klár á því hvað hann gerði því ég fékk sting í puttann en það var ekkert far þannig hann hefur kannski náð að draga oddinn út ég veit ekki en þá þurfti ég virkilega að hafa mig ALLA við til að bara fá ekki flogakast mér brá svo.  Þessi atburður var ekki að bæta úr minni hræslu við þessi kvikindi og gvuð minn alla malla ég veit ekki hvað ég geri í sumar ef þessum flugudruslum dettur í hug að setjast á Jóhann Otta þar sem að við erum með plan á að vera dugleg að nota garðinn okkar og gera eitthvað sumarlegt í sumar.

Aðlögunin hjá dagmömmuni gengur bara rosaleg vel það var svona Frown"fyrsta grátið" hjá henni í dag sem var ekkert drama svo sum hann var bara þreyttur og þurfti að komast í ró sem hún kom honum síðan í en þetta er kannski líka að vissu leiti ekki bara aðlögun fyrir hann hræddur líka mig og hana.   Ég held að þessi drengur verði doldið þrjóskur á að fara læra að sitja málið er nefninlega það að hann er rosalega sterkur  og hefur allt til að bera til að fara að sitja en hann er í einhverjum vandræðum með að finna jafnvægispunktinn hjá sér þetta er eins og í sundinu þá þegar þau eru látin standa i lófanum þá var alltaf eitthvað vandræði með hann hann varð aldrei almennilega stöðugur.  Við ætlum aftur á móti að gera okkar besta til að hjálpa honum en ég meina þetta er ekkert orðið eitthvað vandamál það væri annað ef hann væri orðinn svona 8 eða 9 mánaða þá væri þetta dolsið skrýtið en við höfum alveg nægan tíma.

Jæja nú er ég orðin sibbin ég nennni sammt ekki að fara frá tölvuni ég er að hlusta á Justin Timberlake og Straight up með Paula Abdul þið VERÐIÐ að dowload því lagi þetta lag er bara gamal og gottWink

Góða nótt alle sammen..........



Nýjar Myndir

Jæja ég er búin að skella inn örfáum nýjum myndum.  og ég vil minna á SKOÐUNARKÖNNUNINA 



Sumartöffarinn og Nýjar myndir

Hæ allir saman já ég og Jóhann Otti erum að bíða eftir sumrinu því hann er búin að fá eitt sumardress, kvartbuxur og stutterma  bol, ég er búin að máta það og hann er geggjað flottur.

Af okkur er allt það besta að frétta við vorum að spælsa á han svona púsl plötur má eiginlega segja(kem með myndir af því seinna)og þær taka alveg 1/3 af stofuni enda full ástæða til því að hann rúllar sér út um allt. Hann Jóhann Otti á krúttlegasta pabba í heima við fórum í IKEA í dag og ákváðum að fá okkur ís og það var keyptur ís spes handa Jóhann Otta, jú hann fékk sér smá síðan borðuðum við hann en bara að hann hafi keypt spes handa honum fannst mér alveg gífurlega krúttlegt.  Á miðvikudaginn þá fórum við í matarboð til Sæunnar sem var alveg gasalega gaman.  Á fimmtudaginn þá vorum við nú bara eitthvað að dúllast við tvö en ég nennti ekki í skrúðgöngu en hún labbar frammhjá húsinu hjá mömmu og ég stóð þar fyrir utan og leifði honum að horfa á hana labba framhjá sem var rosalega spes  þetta var eitthva skrítið það sást sko alveg á honum. 

Á föstudaginn var svo ekkert gert nema um kvöldið þá var mér boðið í mat í frímúrarahúsinu sem var alveg ÆÐI þetta var svo góður matur og það er langt síðan að ég hef borðað yfir mig.  Laugardaginn sváfum við út og síðan fór ég að vinna um kvöldið en Jotti í pösun til ólöf ömmu því Davíð fór í kveðju partý til vinar sína.  Síðan var bara familíu dagur í dag við fórum reyndar á rölt í IKEA  og núna í kvöld þá kom Dísa ogBaldur í heimsókn en ég var að vinna með þeim á sínum tíma á Hótwl Holti en núna búa þau í Danmörk en voru í stuttri heimsókn og komu til aðsjá Jóhann Otta og að sjálfsögðu okkur líka.

Á morgun og á miðvikudaginn þá fer  hann í aðlögun til dagmömmunar og það verður gaman að sjá hvernig hann verður en miði við hvernig hann er þá hef ég fulla trú á að þetta verði ekkert mál.  Vonandi þá verður nýji bílinn okkar tilbúin en við erum sem sagt að bæta við okkur tímabundið öðrum bíl Hondu Civic 92 árgerð, keyrðan, 65þús, sjálfskiptan og í toppástandi nema það eru einhver smá atriði sem þeir vilja laga áður en við fáum hann ein og stífleiki í hitastilli í miðstöð.

Já góðir hálsar það er bara búið að vera stemmning hjá okkur en núna ætla ég að fara að hátta og undirbúa mig fyrir morgundaginn.

Muna ath nýjar myndir 

Góða NóttSleeping   Erla og Jóhann Otti 



Ný skoðunarkönnun

og ég vil líka minna ykkur á að það eru konar nýjar myndir. 

ENDILEGA TAKIÐ ÞÁTT

 phpThumb.php

Þetta er mynd af uppáhalds súkkulaðinu mínu MARS 


Nýjar Myndir.....

Það eru komnar Nýjar myndir inn á 4 mánaða albúmið hans.


Svo ég snúi mér nú að öðru þá hefur Davíð verið duglegur að benda mér á stafsetningar villurnar í blogginu hjá mér og ég rekist sjálf á þær annað slagið en ég vildi bara segja ykkur að 95% af þessum villum er af því að ég skrifa kannski blogg og stundum skrifar maður of hratt og brussulega en ég gleymi alltaf að lesa yfir áður en ég ýti á ok, ég vildi bara deila þessu með ykkur því að sumar af þessum villum eru doldið fyndnar og ég vil ekki að þið haldið að ég sé alveg glötuð stafsetningu.

Já í tilefni að því að litli rassaprumpinn minn verður 6 mánaða núna á morgun 18.apríl  þá ætla ég að blogga aðeins um hann Jóhann Otta.

  • Fullt nafn Jóhann Otti Davíðsson
  • Hann er rosalega broshýr og glaður drengur og brosir framan í alla sem brosa framan í hann
  • hann lætur nánast bara heyra í sér ef eitthvað sé að t.d. þreyttur eða svangur
  • Það segja allir nema ein manneskja sem ég þekki(án gríns) að hann sé líkur pabba sínum og ég eigi voða lítið í honum.
  • hann á vin sem er hundur og heitir Bjössi,  Bjössi passar hann rosalega vel og sýnir að honum sé mjög ant um hann Jóhann Otta
  • Hann er alls ekki mannfæla(tja allavega ekki ennþá!!!!) það er hægt að setja hann í fangið á hverjum sem er og það er bara ekkert mál.
  •  þegar hann er í stuði þá iðar hann eins og ormur
  • honum finnst gaman að horfa á Bart Simpson
  • honum finnst ekkert skemmtilegra en þegar við förum í Kringluna eða Smáralindina og hann situr í kerruni og fær að horfa á allt fólkið, líka þegar við förum út að labba.
  • hann er alls ekki snuddu kall hann hefur aldrei tekið snuð nema fyrst núna og þá bara stundum þegar hann er að sofna, annars erum við ekkert að ota þessu að honum
  • hann á það til að klóra sér rosalega
  • hann er kitlinn
  • stundum þegar hann grætur þá er stundum eins og hann segji mamma en hann er það ekki það heyrist bara svona ma ma ma ma
  • Hann er HK-ingur og er búin að fara á sinn fyrsta handboltaleik með pabba sínum og var alveg stjarfur honum fannst þetta svo skrítið en sammt alveg rosalega gaman
  • hann getur ropað og prumpað eins og fullorðinn.

Jæja þetta er svona smá samantekt sem lýsir honum Jóhann Otta, spáið í því á morgun eru liðnir 6 mánuðir frá því ég lá upp á fæðingardeild að fæða gullið okkar, já það má segja að þennann örlagaríka dag breytist líf okkar Davíðs, ef eitthvað er þá bara til hins betra.  Þessi litli drengur hefur svo sannarlega fært okkur mikkla hamingju og gleði. 

Annars er nú það að frétta að það er önnur tönn byrjuð að þrýstast niður í efri góminum hjá honum en þær eru áðar ekki komnar það langt niður að það heyrist eitthvað ef maður mundi setja skeið upp í hann.  Hann er enn þá rosalega duglegur að velta sér yfir  á magann og liggur eiginlega eingöngu á maganum en við leggjum hann sammt alltaf á bakið svo gerir hann restina. Hann var að smakka tvennt nýtt í dag, fyrsta var bláberja skyr og það fannst honum sko gott. Síðan fékk hann stappaðann fisk og kartöflur með smjöri og það var pínu skrítið en hann át það með bestu list og svo heila krukku af ávaxtamauki í desert. Hann er líka farinn að borða brauð með lifrakæfu eins og pabbi sinn maður er farinn að þurfa  að kaupa tvö box svo allir fái.

Jæja ég læt þetta duga í bili.

Adios Erla og Jóhann Otti 


Góða helgi...................................

Já þá er það orðið staðfest að ég er komin með vinnu ég er semsagt nuna í maí, júní, júlí allavega og kannski framm í ágúst þá verð ég vaktstjóri á annari morgunverðavaktini á hótel loftleiðum spennó.  Ég get nú ekki sagt að vinnutíminn sé það skemmtilegur að ég ætli að halda upp á það en ég er semsagt að fara að vinna frá 6:00-13:00 omg ég þarf að fara að vakna á nóttuni og fara snemma að sofa....en það góða við þetta eru vaktirnar ég ég á svo kölluðum kokkavöktum sem ég nenni ekki alveg að útskýra nákvæmlega en basicly þá vin ég 15 daga í mánuði og er alltaf í fríi aðra hverja helgi næsí næs. Í endan júlía byrjun ágúst þá mun ég semsagt endursoða málin því að það er frekar líklegt að eftir 20.ágúst þá fær Jóhann Otti 8:00-15:00 pláss hjá dagmömmu.

HEYRÐU svo er nú varla frásögu færandi hehehe þið vitið að ég hef verið að segja ykkur ef Jóhann Otti hefur verið að velta sér yfir á mgan okei og það hefur kannski svona 4-5 sinnum gerst en svo gerðist það bara í dag að ég lagði hann á bakið á leikteppið sitt og hann velti sér á magann eins og ekkert sé og hann var bara í þessu allann daginn ég snéri honum annað slagið við og setti hann aftur á bakið en hann var ekki lengi að vippa sér yfir á magann, þetta var bara það heitasta í dag það var eins og hann vildi bara vera á maganum og ég ætla að vona að hann haldi þessu áfram þá líka í leiðinni styrkist hann enn frekar og þá verður stutt í að hann geti setið einn og óstuddur, ég og Davíð reynum líka svona einu sinni til tvisvar á dag að setjast niður með honum og láta hann sitja og þá styðja við hann, hann er nefninlega ekki orðin nógu stöðugur að það sé bara hægt að setja svona brjóstagjafapúða á bakvið hann.  

Ég veit ekki síðan hvað er í gangi með Jotta sko hann fær stundum svona exsem útbrot í andlitið og við erum dugleg við að bera réttu kreminn svona tl að minnka útbrot og kláða en núna eins og í kvöld þá var hann að klóra sér á enninu og hann gerir það svo rosalega fast og það skiptir ekki hvort ég sé nýbúin að taka neglurnar á honum í gegn hann gerir þetta sssvvvoo fast og núna tvisvar á stuttun tíma hefur hann náð að klóra sér til blóðs ekkert rosalega sammt það fossblæddi ekkert bara svona eitt lítið klín og svo var doldið skrítið að í kvöld þegar hann var að klóra sér á enninu þá var hann ekki einu sinni með útbrot á enninu.

Jæja best að drífa sig í bólið er nefninlega að fara vinna upp í Leifstöð á morgun í afmælinu þeirra.

Góða Nótt

Erla og Jóhann Otti



Ungbarnaskoðun..

jæja við fórum í ungbarnaeftirlitið í dag og það gekk alveg rosalega vel hann er sem sagt orðin 70,5cm og 7720g, búin að þyngjast um og búin að þyngjast um 260g á einum mánuð.  Hjúkkunni fannst þyngdaraukningin heldur lítil en hún sagði að þetta væri sennilega að hann væri bara farin að hreyfa sig meira sem hlítur að vera því við erum rosa dugleg að gefa honum eitthvað gott að borða: ).

Hann fékk sína þriðju sprautu og ein og áður þá gekk það bara áfallalaust, þeim leist allaveg alveg rosalega vel á hann barasta myndardrengur.  Nú er þessu pjakkur alveg orðin hugfangin af gleraugunum það er rosa vinsælt núna að teyja sig í þau og reyna að taka þau en neibb mamma segir ó ó.

Nú fer sýningarþjálfaninar að byrja fyrir næstu hundasýningu sú fyrsta er 22.apríl sem þýði það að ég þarf að fara að hitta St.Bernhard dúlluna hann Argos ég vil nefnilega hitta hann fyrst og sjá hvernig við náum saman og hvort hann sé ekki svona þokkaleg hlýðinn svona áður en ég fer að mæta á æfingar með hann en þetta verður geggjað gaman svo sýni ég Nóa aftur litlu dúlluna mína sem stóð sig svo vel síðast(2.sæti) en nuna ætlum við að stefna á fyrsta sætið.

Jæja ég ætla fara að taka úr þvottavélinni og tjilla aðeins.

Hastala vista



Góðir landsmenn nær og fjær........................

Hæ allir saman ég var búin að lofa bloggi og blogg skuluð þið fá.

Héðan er allt það besta að frétta hjá okkur páskahelgin búin (hefði vilja lengja hana) og hún var svona líka yndisleg á föstudagskvöldið bauð Tobba vinkona mér í mat og ég og Jóhann Otti skelltum okkur barasta saman til hennar og það horfðum við á X-factor og að sjálfsögðu vann kjútípæiðBlush ég var reyndar ekki sátt við síðasta lagið sem  hann tók það var spilað allt of hægt og já látið mig ekki byrja á að hneykslast á dönsörunum sem voru með þessi bjévítans tilgangslausu prik að dansa úfff i could say a word ore two about that.

Á laugd var bara dúllað sér síðan um kvöldið þá fórum við í grill hjá tengdó og fengum svínakjöt og bakaðar kartöflu sem var rosa gott síðan ákváðum við  bara að skella okkur fyrr upp í bústað(ætluðum á sunnudmorgun), við vorum nú ekki nema rétt tæpan 1og 1/2 uppeftir.

Síðan komum við upp eftir og við tók tjill á joggurum súkkulaðiát, lambalærisát, heiti potturinn og yndislegar stundir með börnonum og vinum.  Á mánudaginn var síðan haldið heim og allir voru bara svona dasaðirSleeping eftir helgina. Á mánudagskvöldið  skelltum ég og litli bróðir minn okkur í bíó á The Illutionist sem var bara fín mynd, ekki þessi túbíska hollywood formúla en samt góð svo sakar nú ekki að Edvard Norton var frekar hot í myndini.  Síðan var það núna í nótt þar sem klósettið var vinsælt allaveg hjá Davíð, minn maður fékk gubbupestSick en er reyndar á batavegi núna .  Ég eyddi deginum í að þrífa pínu og síðan bauð ég m-mmu, pabba og lilla bro í mat og ég eldaði heilhveiti penne(pasta) seti það í eldfast mót síðan var ég búin að steikja hakk og bæta BBQ sósu í það og setti það yfir pasta og síðan ost yfir hakkið og inn í ofn bara þannig að osturinn bráðni og þetta var jummí borið framm með salati.

Jóhann Otti hefur það fínnt ég var ýkt stolt af honum í gær þar sem að hann velti sér heilan hring vvvíííGrin hann er orðin pínu duglegri að velta sér.  Það bólar því miður kkert á tönnslu ennþá en þetta kemur það er allaveg nó um slef.  Það fer nú að styttast í að hann geti setið hann er orðin svoo sterkur alltaf þegar hann situr í bílstólnum sínum þá reynir að lyfta sér upp þannig að hann siti meira uppréttur hann gerir þetta líka stundum þegar hann hálf lyggur þá er eins og hann sér að gera magaæfingar.  Annars er hann orðin engin smá ORMUR stellingarnar sem við erum að finna hann í rúmminu sínu eru alveg ótrúlegar , búina að snúa sér 180°í rúmminu, snúa sér yfir á magann og 180°Crying ma ma ma bar orðin pínu stressaður að hann fari sér ekki að voða neeeee það má ekki.  

Ég tók mig til og gerði svona jemmelageð mauk ég semsagt gufu sauð mangó, sætkartöflur. peru, gulrætur, tómata og avacado rosa myndó síðan keypti ég bara litlar plastdollur setti í og frysti, núna er hann bara búin að smakka mangó og honum finnst það ÆÐI.

Það er ekki leiðinlegt að gera þetta og það er geggjað að geta gefið barninu sínu bara ávöxt beint í æð þetta gæti ekki verið hollara.

Jæja ég ætla að fara og reyna svæfa þennann orm hann var sofnaður síðan vaknaði hann þegar hann var eitthvað að nudda höndunum framan í sig og er núna bara að ormast.

Ég reyni að blogga aftur mjög fljótlega þannig að endilega fylgist með og veriði óhrædd við að kommenta  (takið fænku mína til fyrirmyndarWink)þó það sé ekki nema bara eitt hæ.

Erla og Jóhann Otti



« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

197 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband