1.1.2007 | 06:43
GLEÐILEGT NÝTT ÁR
Elsku dúllurnar mínar og takk fyrir þetta svona líka viðburðaríkt ár sem er liðið. Ég fékk alveg kökk í hálsinn þegar ég horfði á tölurnar á stöð 1 breytast úr 2006 í 2007 því ég er svo þakklát fyrir síðasta ár það gerðist svo margt gott.
Jóhann Otti var ekki alveg viss hvernig hann átti að haga sér í öllum þessum látum en hann var voðalega heillaður af öllum þessum ljósum sem voru á himninum og fylgdist með þeim þegar þau birtust. Annar er hann byrjaður að uppgöta hendurnar á sér sem er bara jákætt þá getur hann farið að taka við dóti og leika sér eitthvað af viti, en þetta er ferli sem er að byrja. Við eyddum kvöldinu hjá Gunni og Þorsteini ásamt fleirum og þar fengum við dýrindis kalkún og ÆÐISLEGAN desert heimalgaður toblerone ís mmmm hvað hann er góður. Síðan kíktum við á mömmu mína og pabba og fórum á brenuna og flugeldasýningin var GEGGJUÐ eins og vanalega en það var samt áberandi að þeir voru með nýjar bombur sem voru æðislega flottar, eftir það fórum við aftur til Gunnu og Þorsteins þar horfðum við á skaupi sem að mínu mati var bara þokkalegt og síðan rann nýja árið í garð og hann Jóhann Otti svaf á meðan síðan fórum ég og Dave út að sprengja flugelda. Þetta var í heild frábært kvöld.
Enn og aftur gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það liðna.
Litla fjölskyldan í Vallartröð 8.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
185 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gleðilegt nýtt ár elskurnar mínar og takk fyrir það gamla :D
Rut frænka (IP-tala skráð) 1.1.2007 kl. 06:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.