28.12.2006 | 18:14
Læknisskoðun
Jæja hann Jóhann Otti fór í læknisskoðunn í dag bara partur af ungbarnaeftirlitinu og allt kom svona líka vel út hann er búinn að þyngjast vel, síðast var hann 5.440g núna er hann 6.100g síðan er hann orðinn 63 cm hann var síðast 60.5 cm þannig að hann vex og dafnar hjúkkuni leist rosalega vel á hann og honum leist ýkt vel á hana því hann brosti alveg allan hringinn og sjarmaði þvílíkt fyrir henni pissaði meiri segja tvisvar á borðið hjá henni híhíhí. Næst fer hann í skoðunn 17. jan og þá fær hann sprautu OOÓÓÓÓÓ, en við erum búin að ákveða að vera ýkt dugleg og gráta ekkert. Annars er það að frétta að ég fór í skriflegt inntökupróf fyrir flugfreyjuna hjá Icelandair í morgun og það gekk svona lala, því var skipt í tvo hluta almennar spurningar og tungumál og mér gekk ágætlega í almennu spurningunum en OMG skeit á mig í tungumálonum þetta var líka ekkert auðvelt. Þetta var allt eiðufyllingar semsagt á ensku, dönsku, þýsku, spænsku og frönsku og þessi texti var bara ekkert grín þetta var bara háskólatexti og ég veit það að ég er ekki sú eina sem þótti þetta erfitt það var almennt talað um það hvað þetta var rosalega erfiður texti. Ég gerði enskuna, dönsku, frönsku og þýsku og by the way ég kann ekkert í þýsku en ég reyndi, síðan var mér litið yfir axlirnar á tvem stelpum þegar ég var að labba út og ég sá að þær voru rétt hálfnaðar með prófið og 10 mín þá eftir. Það sem mestu skiptir ég mætti og gerði mitt besta ég er eiginlega búinn að ákveða að ég sé ekki kominn í gegnum þessa síu því ég meika ekki að gera mér einhverjar vonir því mig langar ýkt í þetta starf þannig ég kemst ekki í gegn og nú verð ég ekki fyrir vonbrigðum. Síðan jafnvel þótt ég kæmist í gegnum þessa síu þá er ekkert sjalfsagt að maður fengið starfið því maður þarf að fara í viðtal og þá byrjar stressið þá þarf maður að vanda fataval og framkomu og amður er þvílíkt dæmdur. Síðan á ég vinkonu sem hefur sótt nokkrum sinnum um og hefur einu sinni eða tvisvar fengið viðtal en ekki komist í gegn og hún er meira menntuð en ég og útskrifuð úr flugfreyjuskólanum, hún þekkir líka margar freyjur og þær segja að þetta sé voðalega mikið happadrætti eða klíkuskapur hvort þú komist inn, segir þjósagan ekki það líka að þú komist inn ef þú þekkir einhvern eða ert einhver; )heh.
Jæja farinn að horfa á neighbours.
Hastala vista beibí
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
185 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Fólk
- Leita að fólki í áheyrnarprufur
- Fékk svar við flöskuskeyti þrjátíu árum seinna
- Elta ekki nornir, heldur dýrlinga
- Tvenns konar tvíhyggja
- Tjá sig hver með sínu nefi
- Tími til kominn að gera þetta almennilega og hætta að laumupokast
- Þakkaði trans einstaklingum í ræðu sinni
- Drake opnar sig um spilafíkn
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.