Hundraðkelling

dsc02025.jpg

Þá er maður bara orðin 6.vikna alveg að verða 2 mánaða og að styttast í ungbarnasund, hann er búin að vera duglegur að halda mér vakandi á næturnar síðustu tvær nætur þá er ég búin að vera vakandi til 7:00 um morguninn og það er ekkert sérstakt að þannig hann er bara búin að snúa sólahringnum við og ég þarf að snúa honum aftur við fyrir hann, en ég skal segja ykkur svona vökunætur reynir á ALLA þolinmæði sem maður á síðan er ekkert get ég ekkert verið að vekja Davíð í tíma og ótíma því hann þarf að vakna í vinnu, ég er líka stundum svo þrjósk að ég vil og ætla mér að geta þetta sjálf.

Við erum að fara æi 6.vikna skoðun í fyrramálið og það verður gaman að sjá hvað hann sé orðinn þungur og ég mun skrifa smá um það þegar við erum búin. Síðan get ég ekki beðið eftir að hann má fara í ungbarnasund oohhh það verður svo gaman að kafa og láta hann bussla í sundinu. Síðan er hann orðinn svo stór fyrir ykkur sem sáu hann í skírnaveislunni iss hann er sko búinn að stækka og orðin þvílíkt mannalegur meira að segja farinn að brosa.

Ég var rétt í þessu að koma heim úr hina árlega jólahlaðborði fjölskyldunar á Loftleiðum og NAMMI NAMM hvað þetta var gott ég er alveg að springa það er líka alltaf jafn gaman á þessu hlaðborði. Ég og Davíð fórum og byrjuðum að kaupa jólagjafir við erum svona tja hálfnuð sem er jákvætt ég greip líka gæsina og verslaði mér jólakjól alveg glæsilegan gullkjól og mér finnst ég vera ýkt pæjaa í honum og ákvað að vígja hann í kvöld og hvað haldiði!!! ég setti niður á mig þannig ég þarf að koma honum í hreinsunfyrir næstu helgi.

Síðan er það aðal málið ég eignaðist "listaverk" síðustu helgi, málið er það að fyrir nokkru síðan tók kona sig til og tók einhverja fleiri hundruð hundraðkalla og spreyjaði þá bleika og kallaði þá HUNDRAÐKELLINGAR og setti þá síðan í umferð og ég fékk einn svoleiðis síðust helgi og ég er ýkt ánægð með hana, Ég var að tala um þetta við Davíð og hann man ekkert eftir því að þetta hafi verið í sjónvarpinuog fáir virðast muna eftir því en ÉG SVER ÞAÐ þetta var í sjónvarpinu og ef einhver annar en ég kannast við þetta þá ENDILEGA SKRIFIÐ Í ATHUGASEMDIR takk fyrir.

En halló halló I´m in love sko það er Íslenskur hönnuður hún Hendriks Wage sem er að hanna kokteilhringi var að fá verðlaun eða viðurkenningu fyrir sína hönnun á hringjunum og ég vissi að þeir væru seldir á Hótel Loftleiðum og auðvitað greip ég öndina nei gæsina og kíkti í gluggan á búðinin og OMG hvað þetta eru geggjaðir hringir ohhhhhhhh mig langar þeir kosta en eru sammt ekki dýrir þeir eru undir 10000kr þeir sem ég sá í glugganum þessi kona hannar líka hálsmen og eyrnalokka þannig ef einhver á auka pening sem hann hefur EKKERT við að gera þá vitið hvað þið getið eitt honum í : Þ Jæja þanngað til á morgun.

Kveðja Erla og Jóhann Otti


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

184 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband