28.11.2006 | 16:41
Smá bros
Nú er minn maður 6. vikna gamall og díses maður hefur varla undann því að fylgjast með því hvað hann stækkar. Talandi um stærð ég fór í gegnum kommóðuna hans i gærkvöldi því neðsta skúffan var að SPRINGA það var sem sagt skúffan sem ég geymdi öll stærri eða stóru fötinn sem hann getur ekki notað strax, ég fór síðan í gegnum öll fötin og fyllti heilan kassa til að geyma, síðan fór ég í gegnum minnstu fötinn og það eru alveg nokkrar flíkur sem hann gat aldrei notað því hann fæddist svo stór hehe hann verður stór og sterkur eins og pabbi sinn. Síðan vil ég meina að hann sé aðeins farinn að bregðast við okkur og brosa það gerist samt ekki oft en við erum að æfa okkur og ætla að reyna að vera skælbrosandi á jólunum og eins og ég lofaði brosið er æði : )
Síðan er ég að fá jólakortin á morgun og myndina og þá er bara að byrja að skrifa,, síðan ætla ég að vera ýkt dugleg og klára allar jólagjafirnar í næstu viku á einu bretti ég NENNI ekki að vera allan des að þessu vanalega er ég búin að þessu á þessum tíma en eins og gefur að kynna þá hef ég verið önnum kafinn að vera mamma: Þ
Fyrsta jólahlaðborðið er næsta sunnudag á Loftleiðum ohh það er alltaf jafn gaman að fara þetta er orðin svo mikil hefð að fjölskyldan fari einu sinni á ári og þegar við erum búin á því þá er bara eitt hlaðborð eftir og tvær jólaveislur eftir fyrir utan aðfangadag og gamlársd ÚÚÚFFF út að skokka í jan; )
Við tókum okkar slúður göngutúr í dag sem sagt út á bókasafn lesa slúður og tilbaka og ég fann þessa blessuðu lyftu þökk sé Heiðu.
Jæja ég ætla fara að þrífa fiskabúrið þrátt fyrir að ég NENNI því ekki sökum alvarlegrar LETI.
Adios
Erla og Jóhann Otti
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 16:44 | Facebook
Færsluflokkar
184 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.