13.8.2008 | 11:40
Home alone
Sæ öll sömul það er búið að vera smá bloggleti eða er hægt að segja leti, Davíð er nefninlega nýfarinn að vinna og við erum búin að vera að læra að fóta okkur bara þrjú en ekki fjögur og þar af leiðandi er búið að vera meira að gera hjá manni að vera einn að sinna tvem gríslingum. Það er sko alger lúxsus að Davíð hafi verið heima fyrstu 6 vikurnar.
Annars er bara allt gott að frétta Jóhann Otta gengur rosalega vel í koppaþjálfun og ég er farin að láta hann vera bleyjulausann hérna á daginn og það gengur sko vonum framar það koma jú fyrir slys en það er nú ekki oft. Við bíðum ennþá eftir að hann fái að byrja á leiksóla það er búið að lofa honum plássi en ekki vitað hvenær hann kemst inn þar sem að sumarfríin eru að klárast og elstu krakkarnir sem eru að fara í skóla eru ennþá á leikskólanum þegar þessi tvö atriði eru frá þá gæti þetta farið að skýrast, en eins og staðan er núna þá reikna ég ekki með að hann byrji fyr en í september. Jóhann Otti er alltaf jafn góður við systir sína og við erum blessunarlega laus við alla afbrýðissemi ef eitthvað er þá vill hann frekar passa hana heldur en eitthvað annað. Það er skondið að sjá að ef að einhver annar tekur hana heldur en ég og Davíð þá lýst honum ekkert á það, systir hennar mömmu var hjá mér í gær og tók upp Emmu og honum líkaði
ekkert við það að einhver sem er ekki á heimilinu okkar oft væri að halda á henni já það er ga,man að þessu ég get ekki sagt annað.
Emma vex og vex og var hún síðastliðinn mánudag í 6 vikna skoðun á heilsugæslunni þar sem að læknir skoðaði hana og fékk hún barra eitt stykki gæðastimpil á rasinn hún er orðin 4.750g (fædd 3.885g) og 55.5 cm (fædd 50 cm). Emma er farin að vera meira og meira vakandi á milli lúra og svo er skvísan farinn að brósa á móti manni og það bræðir mann að sjálfsögðu eins og smjörlíki. Hún hefur átt við smá magakveisu að stríða en það hefur ekki verið neitt alvarlegt og vð komumst nú yfir það í sameiningu.
Við fammilían erum á leiðinni út úr bænum næsta föstudag í sumarbústað með foreldrum mínum og það verður ekkert smá gaman við munum vera framm á mánudag og ætlum að njóta hverrar mínútu í botn. Annars er planið sá helgi að grilla, lyggja í heita pottinum, gönguferðir, og tjilla. Við höfum verið í geitungaveislu hérna í garðinum við erum búin að slátra þrem búumreyndar þá náði fyrsta búið aldrei að lifna við en það var sko líf í hinum tvem við höfum verið að drepa þau sjálf með því að hella terpentínu yfir þau og svo fjarlæjum við þau eða eyðileggjum en þrátt fyrir það er sammt allt morandi í þessum kvikindum sem er ekki gott því að eins og þið vitið örugglega þá er ég lafhrædd við þetta, Davíð er búið að setja upp þrjár geitungagildrur í garðinum og ég hef verið að fylgjast aðeins með þeim og það er sko traffík í þær sem betur fer kannski
en þetta fer að taka enda þeir hljóta að fara að drepast.
Þar hafið þið það smá fréttir af okkur. læt heyra í mér von bráðar.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
199 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 55
- Frá upphafi: 105205
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.