23.11.2006 | 18:14
Litli unglingurinn
Þá er maður bara orðin 5 vikna gamal rooossa stór
Það er allt gott að frétta af okkur Jóhann Otti er eins og versti unglingur í framan með því líkt mikið af bólum, þetta er reynadar ekki áberandi nemi í mikillri birtu. Ég hélt að hann væri að fá exem eða einhver ofnæmisviðbrögð í húðina og fór meira að segja með hann til læknis, en læknirinn sagði bara að þetta væru hormónabólur ég vildi reyndar meina að þær væru búnar að koma og fara en hann sagði að þær gætu komið aftur og ekkert endilega litið alveg eins og þær fyrstu sem komu. Alltaf lærir maður eitthvað nýtt.
Nú erum við bara að bíða eftir brosi eða sem sagt að hann brosi á móti þegar við brosum til hans það ætti að fara að gerast bráðum og vitið það ég get lofað ykkur að það verður ÆÐISLEGA krúttlegt við höfum nefninlega séð hann nota brosvöðvana
Nú er snjórinn aðeins búin að bráðna og vð kíktum út í stuttan labbitúr í dag það vantar nú samt ekki klakan öss ég var nætum því flogin á hausinn. Ég fékk þær upplýsingar að það væri lyfta á bókasafninu ég var heldur ekki alveg að gleypa það að það væri ekki lyfta þarna. Síðan fékk ég líka merkinguna á orðinu Fjörulalli og hún er þjóðsagnaskepna, einhverskonar sækind sem leitast við að hrekja menn í sjóinn, þetta er orð dagsins.
Síðan er desember eftir OMG skemmtilegur mánuður en maður gerir ekkert nema að éta ég er að fara á hlaðborð 3 og 9 des og tvær jólaveislur, vanalegar fer ég bara á eitt jólahlaðborð og það er með fjölskyldunni á Loftleiðir sem við förum á 3. des en síðan bætist við núna 9. des Jólahlaðborð hjá Agli Árnasyni á Perluni ég hef reyndar aldrei farið þanngað þannig ég er pínu spennt fyrir því, litli rassálfurinn okkar fer líka í sína fyrstu næturpössun til Ólöf ömmu og Nonna afa þannig að ég og Dave ætlum að skvetta pínu úr klaufunum. Þannig að það verðu stuð hjá mömmu og pabba að vekna til að gefa honum pela og skipta á honum og Bjössi deyr úr afbríðissemi hehe hann verður rosa abbó ef mamma eða pabbi halda á Jóhanni Otta en það sem mér finnst skemmtilegast að sjá hvað hann er góður gagnvart honum, hann er rosa forvitinn en hefur sett sjálfum sér ákveðna línu og fer ekkert yfir hana.
Síðan þegar Bjössi kemur í heimsókn til okkar þá fer hann altaf strax að rúmminu hans til að athuga hann veit að litla barnið liggur stundum þarna síðan kemur fyrir að þegar Bjössi er hjá okkur og við kannski öll frammi en Jóhann Otti sofandi inn í rúmminu sínu þá labbar Bjössi stundum einn inn í herbergi bara til að athuga hvort allt sé ekki í lagi hann er sem sagt að passa hann. Þeir verða mikklir vinir, Jóhann Otti á eftir að klípa í trínið á honum og leika við hann um leið og hann hefur vit og getu til þess sem er mjög gott því persónulega er ég mjög hlynnt því að börn alist upp í kring um dýr því það kennir þeim að umgangast þau af virðingu og ákveðnu öryggi og eins með dýrið/inn sem umgengst þau.
Síðan fer alveg að koma að því að maður má byrja setja Jólaséríu í gluggan JEIJ gaman gaman.
Síðan viljum við Óska Brynhildi og fjölskyldu til hamingju með litla guttan
Yfir og út.
Erla og Jóhann Otti
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
184 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.