NÝTT blogg...

Jæja þá er komin tími á smá blogg.  Stelpan kom semsagt 30.júní kl 20:53, hún vó 3.855gr og var 50 cm og eins og þið sjáið kannski á myndunum þá er hún með frekar dökkan húðlit og dökkbrúnt hár sem sagt andstæðan við bróðir sinn.

Fæðingin tók 3 klst frá fyrstu verkjum og var stelpan fædd tæp 2 klst eftir að ég kom á fæðingardeildina. Ég var heima þegar ég byrjaði að fá verkina og það var mikið lán að pabbi var í heimsókn því að hann tók strákinn bara með sér þannig að ég og Davíð gátum brunað niður á fæðingardeild beint. Ég fór í gegnum fæðinguna á glaðlofti og svo fékk ég eina nálastungu sem mér fannst ekki virka neitt en jeremías glaðloftið hjálpaði helling en ég var farin að væla um mænurótardeyfingu en svæfingarlæknirinn var að deyfa aðra konu þegar ég bað um hana  þannig að það vara bið í deyfinguna. Þegar svæfingarlæknirinn kom loksins þá var ég komin með 9 og hálfan í útvíkkun og alveg tilgangslaust að setja deyfinguna upp sem var allt í lagi því að innan við 5 min eftir að læknirinn fór þá byrjaði ég að fá rembingstilfinningu og mér var sagt að rembast. Ef ég man rétt þá held ég að ég hafi kannski þurft að rembast í heild svona 3-4x og stelpan kom úr í 2 rembingnum.  Mér leið strax mjög vel eftir fæðingu og það þurfti bara að sauma eitt spor, Davíð stóð sig svo vel og hjálpaði mér meðal annars mikið þegar ég var að rembast.  Það var ljósóðursnemi sem tók á móti og með henni var ljósmóðir sem var meira henni innan handar enda hún að læra og ég treysti henni alveg fullkomlega en þær voru yndislegar. Ég  var soldið ringluð eftir fæðinguna enda gerðist þetta rosalega hratt(3klst í heild) og fannst mér eins og þetta hafið tekið kannski klukkutíma, þegar ég fékk stelpuna upp á magann þá fattaði ég ekki að hún væri komin og og greip ekki strax í hana þannig að hún rann aðeins til og ljósan lagaði hana fyrir mig. Það sem kannski fáir vita er að ÉG klippti á naflastrenginn Davíð spurði hvort að ég vildi ekki gera það þar sem að hann gerði það hjá Jotta og ég ákvað bara að slá til. 

Við skírðum kl 16 daginn eftir Emma Guðrún  og Emma er út í loftið en Guðrún er eftir mömmu hans Davíðs svo strax eftir skírn fórum við heim.

Hingað til hefur þetta gengið svo vel  að það liggur við að maður haldi stundum að maður lifi í draumi því að þetta smellur allt svo vel saman.  Jú jú þetta er ekkert alltaf dans á rósum og þetta er hellings vinna en þetta er góð vinna og samvinnan á milli mín og Davíð sem foreldrar er mjög góð enda mundi þetta ekki ganga upp öðruvísi. Jóhann Otti er því orðin stóri bróðir honum er þó að öllu jöfnu slétt sama en það koma alveg atvik þar sem að hann verður abbó en það er bara partur af programmet og við vinnum úr því þegar það gerist. Við höfum verið að passa okkur að knúsa hann alveg extra extra mikið svo að hann finni að hann  sé ekki að gleymast og það virðist virka ágætlega. 

Jæja ég læt þetta  duga í bili, vil minn á að Það eru nýjar myndir í albúmi krakkana sjá blogg fyrir neðan.

Kveðja Erla og gríslingar

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

199 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 105205

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband