40 vikur...settur dagur í dag...ekkert að gerast...ný bumbumynd...

Jæja þá er dagurinn RUNNINN UPP og það bólar ekkert á henni það er þó farið að bóla á smá fyrirvaraverkjum en þeir eru ekki miklir en það að það séu þó komnir fyrirvaraverkir þýðir að þetta er allt að þróast í rétta átt. Mér líður annars bara vel en ég væri alveg til í að fara að klára þetta maður er orðin soldið stór og ekkert grín að hreyfa sig mikið, Davíð rak mig út í göngutúr með sér í dag sem var bara yndislegt nema hvað að það hafðist ekkert upp úr því nema sinadráttur í nárana en ekki fæðing og djöfull er það vont að fá sindrátt í báða nárana ég hef aldrei fengið svona áður.

Við skelltum okkur í sund í dag og tókum ömmu Gunnu með sem hefur nú verið að kenna sund í áraraðir og litli prinsinn okkar var ekkert smá duglegur, málið er það að hann er sko komin með tæknina að vera með handkúta og láta sig fljóta en hann hefur ekkert verið að sprikla með fótunum en amman kom því í gang í dag þannig að hann synti um eins og kópur og það mátti sko ekki vera að hald neitt í hann eða snerta hann synti bara og synti.  Eftir sundið þá fórum við heim til ömmu Gunnu og afa Þorsteins og þar grilluðu þau yndislegan mat ofan í okkur öll sem var bara æði. Eftir matinn þá settumst við út og nutum restina af sólinni, þannig að þetta er búið að vera frábær dagur.

Við vorum í skoðun í gær og það leit allt alveg rosalega vel út blóðþrýstingur svona líka flottur og bara allt flott, hún vildi ekkert hreyfa við einu eða neinu en ætlar þó að gera það næsta fimmtudag ef ég verð ekki búin þá, þá ætlar hún að losa um belginn og panta gangsetningu það er þó ekki víst að ég þurfi hana því að það oft þá dugar að losa um belginn hjá konum og þær fara af stað en það þarf samt ekkert að vera.  Það væri nú samt asskoti flott ef hún kæmi næsta fimmtudag því að þá er kennitalan 06.07.08.... en hver veit, tengdapabbi var að segja mér að hann væri búin að spá 3.júlí ég veit ekki afhverju og það er ekkert sérstakt að gerast þá en hann sagði að honum grunaði að hún kæmi þá.

Ljósan spurði hvort að strákurinn væri eitthvað farinn að finna fyrir þessu, þar að segja að það væri að koma annað barn og við getum ekki fundið fyrir því hann fattar þetta ekkert fyrr en hún er komin og þá þurfum við öll að læra að það sé komin fjórði fjölskyldumeðlimur. Ég hef stundum heyrt raddir að það þurfi sko að koma og nappa honum því að við eigum ekki eftir að geta verið eins mikið með hann og núna, við bara munum ekki fallast á það því miður því að hann á aldrei eftir að geta vanist því að hann sé búin að eignast systkini ef að það er alltaf verið að "bjarga" honum þar að auki hefur verið og verður vonandi áfram svo gott veður að það verður farið út að labba við fyrsta tækifæri og jafnvel skellt sér bara á næsta leikskóla að leika og skvísan sefur.  Ég ætla allavega ekki að sitja heima allan daginn þó að við séum einu fleiri hananú.

Við ætlum að raka Jóhann Otta um helgina, við höfum sko verið að safna smá lubba á hann hingað til en ég hugsaði að það þyrfti nú að taka einu sinni vel af honum og það  væri skárra að gera það núna heldur en að gera það þegar nær dregur að hausti því að þá verður honum bara kalt á hausnum en jú við þurfum líka að passa að hann brenni ekki á kollinum en það er nú lítið mál. Við ætlum reyndar að raka Davíð líka en ekki krúnuraka en taka allavega vel af honum. Það verður gaman að sjá hvernig þetta kemur út og ég mun taka before and after myndir og skella þeim inn. 

Jæja ég ætla að fara að horfa á smá tv skelli inn nýrri bumbumynd með þessari færslu.

Adios Erla, Jóhann Otti og þrjóska bumbuskvísan.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Innilega til hamingju með prinsessuna   Hlakka til að sjá myndir af henni !

Erna & Kristófer Júlían (IP-tala skráð) 1.7.2008 kl. 09:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

199 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 105205

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband