17.11.2006 | 20:06
Út að labba.....
Jæja ég og Jóhann Otti tókum okkur til og fórum út að labba í dag þetta var nú enginn rosa göngutúr við röltum út að bókasafn þar sem ég skoðaði slúður og síðan til baka, þetta var fínnt honum leið vel þrátt fyrir kulda enda var hann í þykkum flísgalla, með lambúshettu, vetlinga og í þykkum kerrupoka og flísteppi fyrir þannig að kalda loftið blési ekki inn. Það er frekar að eyrun á mér hafi verið frosinn hehe
Maður er að stækka ég og Sæunn guðmóðir mældum hann um daginn og hann er orðinn sirka 58cm. Litli kall er líka farinn sko að sína skap hann var eitthvað pirraður um daginn og gargaði á Ólöf ömmu sko hann var ekki að grenja og garga hann gargaði eins og maður sjálfur mundi garga upp úr þurru ég og mamma rákkum upp stór augu hvað væri í gangi.
Síðan byrjar X-Factor í kvöld JEIJ það er alltaf gaman að horfa á fyrstu þættina líka í Idol þar sem maður sér einhverja vitleisinga sem halda að þeir séu næstu James Blunt eða næsta Britney Spears.
Ég á vinkonu sem er amerísk hún heitir Rebecca, þessi skvísa var hér á landinu síðustu helgi og hún kíkti til okkar í heimsókn þá barst í tal fæðingar orlof á Íslandi hún var eitthvað að spurja hvað ég væri lengi og ég sagði henni það að ég væri í 6mánuði hún var hissa á hvað það væri lengi því konur í USA fá bara 6 vikur í orlof greitt spáið í því hversu sorglegt það er, ég spurði hana hvað mæðurnar gerðu síðan við börnin þá eru sumar sem eru heimavinnandi en hinar fara með þau í svona daycare eða daggæslu. Þá þakka ég nú fyrir þennann skítna pening sem ég fæ.
jæja ég ætla fara strauja.
Yfir og út.
Erla og Jóhann Otti
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
184 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Jedúddah hvað maður er orðinn stór, bara farinn að fara út að labba og alles... Þú veist nú samt alveg hvaða þetta skap kemur... bókað ekki úr föðurfjölskyldunni... þar er bara rólyndis fólk :) hahah
Maður verður nú að fara að kíkja í heimsókn, langt síðan að maður hefur séð piltinn...
Rut Þorsteinsdóttir (IP-tala skráð) 18.11.2006 kl. 03:05
Já nei bókað ekki úr föðurfjölskyldu
Erla Júlía Jónsdóttir, 18.11.2006 kl. 15:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.