20.6.2008 | 14:52
39 vikur
jæja þá er ég komin 39 vikur og ekkert bólar á skvísunni, ég hef þó verið að fá nokkra sterka samdrætti og svona þrýstingstilfinningu en það er svo lítið að það tekur því varla að skrifa um það þar að auki eru engir verkir með og þessir fáu sterku samdrættir ekki reglulegir þannig að þetta er bara eitthvað prump. JÁ ég verð að segja að ég er að verða ansi óþolinmóð það er ekki auðvelt að vera svona stór geta varla hreyft sig og í þessum hita úff en mér finnst leiðinlegast að geta ekki leikið almennilega við litla prinsinn minn þar að segja ég vildi að ég gæti farið meira með hann t.d. á leikvöll og annað en ég hef bara ekki burði í það en við fjölskyldan reynum að vera dugleg að gera eitthvað þrjú saman við hvert tækifæri við erum t.d. mjög dugleg að fara í sund og förum orðið minnsta kosti 1x í viku.
Ég er sem sagt að fara í skoðun á fimmtudaginn í næstu viku þar að segja ef ég verð ekki búin og þá vona ég að hún verði viljug og hreyfir við belgnum ég ætla allavega að biðja hana um það, ef að hún gerir það þá er smuga að skvísan láti sjá sig um næstu helgi ég veit ekki með hana en ég er alveg reddí eins og maður segir.
Við erum farin að setja Jóhann Otta 1x á dag á koppinn svona til að byrja með og það hefur hengið alveg rosalega vel hann hefur í öll skipti pissað í hann við ætlum nú að reyna að auka koppaferðir en eins og er verður þetta bara 1-3 á dag fer eftir því hvort að það er virkur dagur eða helgi því hann er hjá dagmömmunni á daginn, ég held að honum sé samt alveg sama þegar hann pissaði í koppinn um daginn og ég og Davíð vorum svo glöð þá var hann bara eins og eitt spurningamerki í framan en við erum öll bara að læra þetta byrjar allavega vel. Hann er alveg rosalega duglegur að vera úti hjá dagmömmunni að leika sér og ég sé að hann er orðin pínu brúnn í framan, ég veit samt að hún ber á þau sólarvörn á fullu þannig að hann er ekkert að brenna sem betur fer en þessar litlu dúllur meiga alveg fá smá lit.
Davíð var að ákveða í dag að taka sér sumarfrí í næstu viku frá mánudegi eða þriðjudegi svona þangað til barnið fæðist sem er frekar næs það verður yndislegt að hafa hann heima aðeins fyrir fæðingu.
Ég ætla að taka nýjar bumbumyndir í dag og ég skelli þeim inn kannski í kvöld ásamt nokkrum myndum frá 17.júní o.fl.
OHhh ég skal segja ykkur ég elska Stöð 2 þar sem að So you think you can dance er að byrja á mánud en ég HATA STÖÐ 2 á daginn þar sem að ég er eiginlega bara heima núna í tjilli þá er ósjaldan kveikt á Stöð 2 og þeir gera ekkert annað enn að sýna þessar ÓGEÐSLEGA LEIÐINLEG spænsku sápu þætti og ég get sagt ykkur það að þetta er búið að vera svona síðan ég var í fæðingaorlofi með Jóhann Otta þá var Valentina sýnd en núna er það eitthvað annað og þetta er svo BOOOORING ég segji þetta er komið gott takk fyrir. Í gær þá ákvað ég að skella dvd í og myndin sem varð fyrir valinu var Turner and Hooch, þetta er eldri mynd með Tom Hanks og er um sem sagt lögreglumann sem tekur að sér hund af tegundinni Dog de bordeauxhttp://europuppyblog.com/media/40/turner_et_hooch.jpg eftir að eigandi hans er myrtur og þeir eru að reyna að leysa morðgátuna í myndinni. Ég dýrka þessa mynd þetta er ein af mínum uppáhalds myndum það þarf enginn að segja ykkur að hundurinn gerir útslagið en ég mæli með henni ég grenjaði allavega úr hlátri þegar ég var að horfa á hana og var reyndar næstum því farinn að grenja líka en það er önnur saga þetta er allavega möst watch.
Jæja farinn að halda áfram að tjilla.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
199 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 55
- Frá upphafi: 105205
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
ég held skvísan mæti í kring um settan dag og ef ég væri þú myndi ég ekki byðja ljósuna um að hreyfa við belgnum, hef heyrt að hríðarnar séu verri ef það tekst sem er víst mjög sjaldan, sumar hafa látið hreyfa við honum 3-4 sinnum og ekkert gerst... farðu bara þegar hríðarnar byrja niður á deild og fáðu púst í nefuð og verður komin í heiminn klukkutíma síðar
og hríðarnar ekert verri eða neitt...svínvirkar
að því sögðu segi ég bara gangi ykkur vel
Lea (IP-tala skráð) 20.6.2008 kl. 20:19
Ég tek þig á orðinu verð brjáluð ef hún kemur þá ekki í kring um settan dag
.
Takk fyrir kvejurnar....Erla
Erla Júlía Jónsdóttir, 20.6.2008 kl. 21:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.