38 vikur

Jæja þá er ég komin slétt 38 vikur á leið og það er allt í þessu fína lagi, heldur lág í járni í blóðinu en ekkert sem er hægt að laga. Ég var í skoðun í gær og blóðþrýstingurinn er svona líka fínn og ljósmóðirin leyfði sér að fullyrða að ég væri sloppin við meðgöngueitrun og þar af leiðandi fer ég ekki til hennar fyrr en eftir tvær vikur sem sagt 26.júní og settur dagur er 27.júní en eins og fæðingarlæknirinn sagði þá gæti komið einhver smá hækkun í lokin en það mundi sennilega ekki flokkast sem meðgöngueitrun því að þegar það er komið svona seint að þá er þetta oft bara merki um að líkaminn sé að fara yfir á þetta stig að fara að fæða barnið ef þið skiljið hvað ég á við. 

Ég sér orðið fram á það að ég gæti lent í því að bíða eftir skvísunni ekki það að maður sé hálfpartinn farin að gera það en þá er ég að tala um að ég gangi þessar 40 vikur eða lengur, ég er nefnilega ekki með neina fyrirvaraverki og reglulega samdrætti það mundi þá sennilega gerast skyndilega ef ég færi af stað. Ég sem sagt hitti ljósuna eftir tvær vikur og ef af bumban er bara róleg þá gæti verið að að hún hreyfi við belgnum þá ef ekki þá gerir hún það pottþéttvikunni eftir og ef að skvísan lætur ekki segjast þá er það bara að setja mig í gang en við vonum að það þurfi ekki að gera.

Þessa dagana er ég bara heima að dúlla mér og hvíla mig inn á milli sem er fínt Því að þegar það verða komin tvö börn að þá hefst sko vinnan. 17.júní er ég að fara í matarboð á Selfoss um kvöldið og þá er sko bannað að fara af stað í fæðingu ekki það að ég væri nú fljót í bæinn en ég segi samt pass, en um daginn ætlum við sko að marsera í skrúðgöngu með litla Jotta spottann okkar hérna í Kópavoginum.  Jóhann Otti er annars bara hress hann er orðin alveg rosalega duglegur að segja ný orð þó að hann viti ekki alltaf hvað þau þýði en hann apar eftir manni, hann er alltaf hjá dagmömmunni og verður þar út júní og svo fer hann bara á leikskóla í ágúst öss litla barnið mitt er að verða svo stórt.

En jææja ég ætla að fara að koma mér í bóliðSleeping.

Kveðja Erla og Jóhann Otti


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

199 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 105205

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband