14.11.2006 | 11:35
Módel
Hjúkkan var rétt í þessu að fara frá okkur hún var hérna í reglubundnu eftirliti og var að vigta Jóhann Otta og pota aðeins í hann ath hvort það væri ekki örugglega allt á sínum stað.
Henni leist svona rosa vel á hann dafnar vel hjá okkur búin að þyngjast meira okkur til mikillrar ánægju því í síðustu vigtun þá var hann búin að þyngjast í það minnsta (150gr) en núna er hann búinn að þyngjast um 300gr það sem er kannski líka að hjálpa er að hann er farinn að fá einn pela fyrir nóttina svo ég geti safnað í brjóstin, eins og ég segji hann er bara algert matargatsem er alls ekki slæmmt. Síðan er hann farinn að vera meira vakandi og þegar hann er vakandi þá er hann að fylgjast með í kring um sig og jafn vel að spjalla aðeins við mann þannig þetta er allt á réttri leið. Aftur á móti erum við ennþá að læra á snuð málinn hann tekur það alveg og heldur því í smá tíma enn missir það síðan enn hann verður duglegri með hverjum deginum að halda því sjálfur.
Síðan eru nýjar myndir inn á síðunni en sumar eru á hlið að sökum tæknilegrar örðuleika.
En jæja nú eru mánudagar orðnir heilagir fyrir kvennþjóðina því Grey´s Anatomy er byrjað aftur á stöð 2 kl 20:50 mér fannst þátturinn í gær samt frekar daufur það gerðist eiginlega ekki neitt þannig ég var pínu svekt en ég hef fulla trú á þessu dramað er bara rétt að byrja.
Síðan er ég orðin rosa spennt fyrir miðvikudeginum því pabbi ætlar að koma til okkar og taka myndir af okkur fyrir jólakortin og bara líka til að eiga og þetta verða sko flottar myndir við ætlum allaveg ekki að stilla okkur upp eins og einhver amerísk fjölskylda og sitja jólasveina húfu á hann óóó nei hvernig þær verða eru hernaðar leyndarmál og ef þig eruð að hugsa brosmyndir þar sem það er sett vængir á börnin eða þau klædd í allsskonar búninga óóó nei hann er heldur ekki orðin nógu stór í það, það er svo sem flott en það á orðið annað hvert barn svoleiðis og mér finnst það ekki lengur flott þegar allir eiga svona myndir og örugglega ekki gaman að eiga svona því þetta er allt eins uppsetningin það breytist ekkert með börnunum.
Jói frændi og Heiða skvís komu í heimsókn um daginn og færðu Jóhann Otta alveg krúttlegasta útigalla sem ég hef séð það er mynd af honum í myndaalbúminu hans og ég held ég láti myndina tala
Svei mér þá ég held bara að það verði farið út í fyrsta göngutúrinn í dag enda kominn tími til maður alltaf á leiðinni út en síðan kemur alltaf einhver stormur sem er ekki vinsælt.
Jæja ég ætla að fara koma mér á lappir og gera eitthvað af viti.
Yfir og út
Erla og Jóhann Otti
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 11:36 | Facebook
Færsluflokkar
184 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.