5.6.2008 | 21:16
37 vikur á morgun föstudaginn
vúhú gaman gaman, ég var í skoðun í morgun og það var allt í þessu fína lagi og ljósan var rosalega ánægð og telur að ég sleppi sennilega við meðgöngueitrun nema eitthvað gerist snögglega sem er frábært. Mér finnst svo spes að hugsa til þess að ég gæti gengið fulla meðgöngu því það hefur einhvernvegin ekki verið inn í myndinni ekki það að ég sé búin að vera eitthvað svartsýn eða búin að eiga von á einhverjum fyrirbura en að ganga 40 vikur hefur einhvernvegin ekki verið inn í myndinni en núna er það. Það eiga margir afmæli júní og ég ætla að vona að barnið komi ekki á afmælisdögum þessara aðila ekkert persónulegt gagnvart þeim ég vil bara helst að barnið fái sinn eigin afmælisdag en svo ræður maður ekki alltaf en eins og ég segi ég vona að það fæðist ekki á afmælisdegi einhverns annars í fjölskyldunni.
Jæja og þá er það sagan af baðferðinni skemmtilegu. Þannig er mál með vexti að Jóhann Otti þurfti að fara í bað í gær eins og við gerum reglulega nema hvað að við borðuðum kvöldmat og ég rauk síðan í meðgöngu/hvala sund kl 19 og Davíð ætlaði að bara hann á meðan okei ekkert mál. Davíð byrjar að láta renna í bað nema hvað að við erum með soldið spes blöndunartæki það rennur sem sagt ekki úr blöndunartækinu sjálfu heldur það kemur bara vatn úr sturtuhausnum. Davíð háttar gæjan og skellir honum í baðið og það var rétt komið botnfyllir í baðið og ennþá að renna í það, þá hringir gsminn hans og hann var inn í stofu hann sem sagt stekkur inn í stofu til að ná í hann og svara. Á meðan tekur Jóhann Otti sturtuhausinn sem var að buna vatni í baðið og fer að leika sér með hann og ýmindið ykkur gosbrunn sem hefur misst stjórn á sér Davíð tekur strax eftir þessu og hleypur inn á bað og tekur á sig svaka gusu til þess að taka sturtuhausinn af honum og þar með var baðherbergið á floti og þetta tók ekki langann tíma. Ég var því miður ekki heima en Davíð sagði mér frá þessu og ég vildi óska þess að ég hefði séð þetta, en þetta er nú meiri grallarinn.
Nú er helgin að koma og það er hitt og þetta á prjónunum um helgina t.d. að fara i sund og fjöruferð með litla já og svo ætlar litli bróðir minn að bjóða mér á Sex and the City, hann er nefnilega að vinna í Smárabíói og fær frímiða og ætlar að bjóða mér jeij, en talandi um litla bróðir minn hann var í dag að útskrifast úr grunnskóla TIL HAMINGJU og hann var líka að fá viðurkenningu í útskriftinni því hann er búin að vera taka aukaáfanga í Borgarholtsskóla skólann sem hann er að fara í og hann fékk viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í þeim áfanga TIL HAMINGJU við erum allavega rosalega stolt af honum.
Jæja ég er farin að horfa á sjónvarpið ég ætla að vera dugleg á myndavélinni um helgina.
Kveðja Erla og Jóhann Otti.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
199 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 55
- Frá upphafi: 105205
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.