Litli kálfur

dsc02292.jpg

Þá er Jóhann Otti að verða mánaðar gamall næsta miðvikudag þetta líður hratt og sammt ekki.

Það sem er að frétta af honum er að hann er orðinn betri í mallanum þannig að greyið litla engist ekki um en þegar eitt lagast þá tekur eitthvað annað við eða þannig við erum allavega búin að komast að því að hann er rosalega matfrekur sem er svo sem eðlilegt enda stór strákur þrátt fyrir ungann aldur.  Davíð er líka svona hann getur stútað allt að 2L á dag ef hann er rétt stemdur  þannig að ég var að stinga upp á því við Davíð að við mundum bara kaupa eina belju og geyma hana út í garði og þegar feðgarnir væru þyrstir þá mundu þeir bara fara á sitthvorn spenann.  Mjólkurbúið mitt hefur varla undan að framleiða fyrir litla kálfinnHalo  Síðan reyni ég að fara sitja inn fleiri myndir sem fyrst.

Síðan er hann að verða mannalegri með hverjum deginum og duglegri að halda haus það er ennþá smá í að hann geti haldið honum alveg sjálfur en við erum dugleg að æfa okkur. 

Ég get allaveg sagt ykkur það foreldrahlutverkið er yndislegt þrátt fyrir að hann geti haldið okkur vöku langt framm eftir nóttu heheheTounge

Síðasta þriðjudag var afmæliðWizard mitt og ég gerði svo sem ekkert þannig annað en að eyða tíma með fjölskylduni og bjóða fólki heim til að klára kökuafganga og ég vil þakka kærlega fyrir mig og líka fyrir að klára kökurnar ég var orðin smeyk um að þurfa að éta kökur næstu vikuna oohh.  

 

Síðan ætlum við Dave að reyna að skella okkur í bíó í næstu viku að sjá Borat sem er mynd sem ég held að maður meigi hreinlega ekki missa af í bíó annars erum við búin að ákveða að ver ekki að stunda bíóin nema að það sé einhver möst see mynd því að það er búið að hækka miðverðið upp í 900kr WHAT er verið að gera grín í okkur maður getur leigt eina nýja og eina gamla fyrir minna  OOOHHH ég þoli ekki hvað sumt eða kannski flest hérna á Íslandi er dýrt ekki það að ég sé eitthvað nýsk  en ég kannski miða við önnur lönd voða mikið svona er þetta bara.GetLost

Síðan er Nóvember hálfnaður OMG jólahjól bara á næsta horni mér finnst yndislegt að hugsa til þess að ég sé ekki að vinna yfir jól eða áramót og síðan fer Davíð aftur í orlof 15. des þannig að það verður sko jólastemmning á þessum bæ síðan er sko búið að plana að fara niður í bæ á Þorláksmessu þar sem ég hef ALDREI farið ég hef alltaf verið að vinna en núna get ég farið JEIJ,  og síðan eru þetta fyrstu Jól Jóhanns Otta en ég held að næstu verða æði fyrir hann því þá er hann orðin 14 mánaða og getur leikið sér með allt dótið sem hann á eftir að fá en þessi Jól verður hann bara slefandi og skilur ekkert í þessum Jólaljósum.

Jæja ég ætla að fara að taka úr þvottvélinni sem er búin að vera nánast stanslaust í gangi í 4 vikur eða síðan Jóhann Otti kom heim hehehe.

Yfir og út

ErlaCoolog Jóhann OttiPolice

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hahah ég hló mig máttlausa þegar ég las um beljuna sem þið eruð að spá í fá ykkur út í garð... sé bróður minn alveg fyrir mér að liggja á spena á einhverri kú... ahahahahahahahahahah

Jesús hvað maður er samt orðinn stór, farinn að halda haus og búinn að plana að fara niðrí bæ á þorláksmessu... Þið vitið svo að þið getið alltaf hringt í mig ef þið viljið fara í bíó eða eitthvað... ég er alltaf til í að kúra smá með prinsinum mínum...

Jæja ég ætla að fara að fylgjast með í tíma...

Kv. Rut uppáhaldsfrænka... :)

Rut Þorsteinsdóttir (IP-tala skráð) 13.11.2006 kl. 10:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

184 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband