19.5.2008 | 21:58
Fréttir
Jæja þá er sumarið að renna í garð og býflugurnar komnar á kreik og EKKERT SMÁ STÓRAR, ég var eimmit í vinnunni í dag og þá kom ein í heimsókn og ég gerði það sem ég geri vanalega hljóp eins og asni undan henni en ég soldið fegin þegar önnur stelpa í afgreiðslunni fór að hlaupa líka. Svo eru geitungarnir að fara að fæðast ég veit það, hvernig?, nú ég sá eitt geitungabú í dag en það var reyndar bara á stærð við golfkúlu en eins og ég segji þeir eru að fæðast.
Nú er ég að skríða í 35.vikur og það styttist óðum ég fer i vikulegar skoðanir og so far so od eins og þeir segja ég er reyndar komin með læknis vottorð um að hætta að vinna en ég talaði við yfirmen mína og vð ætlum að hafa þannig næstu tvær vikurnar að ég mæti bara þegar ég treysti mér til og vinn þá bara eins lengi og ég vil, sem er frábært það voru allavega allir sáttir við það þannig að ég verð svona viðloðandi við vinu næstu tvær vikurnar eða þangað til 30.maí þá hitti ég fæðingarlækni og þá sjáum við bara til. Þetta er orðið ansi strembið núna mér líður stundum eins og flóðhesti já eða fíl eða bara einhverju rosalega stóru ég hef verið með grindarverki eins og ég hef sagt frá áður en þó mis mikla t.d. í dag var ég ekki góð og þetta gerir það að verkum að ég vagga stundum alveg rosalega og þá lít ég út eins og togari á stórsjó
úúff þetta er ekki alltaf dans á rósum en ávöxtur þessara níu mánaða meðgöngu mun verða ómetanlegur og það er það sem gildir. Svo er bara að fara af stað loka undirbúningur fyrir komu skvísunnar okkur vantar eitthvað smotterí sem er nú ekki mikið mál að bjarga en ég verð fegin þegar það er búið.
Við familían skelltum okkur í fjölskyldu og húsdýragarðinn um helgina og það var alveg rosalegt stuð Jotti fór og skoðaði kálf og meira að segja klappaði honum nema hvað að kálfurinn var soldið mikill kjáni og vildi bara sleikja mann og annan þegar það var verið að reyna að klappa honum, en það var þó skárra að klappa kusunni það sem hún lá bara í leti og horfði á okkur eins og ég veit ekki hvað. Jóhann Otti bætir fleiri orðum nánast á hverjum degi í orðaforðann sinn og er orðinn ekkert smá duglegur að segja öll þessi orð sem hann kann en það er alltaf rosalega þægilegt að horfa, benda og bara babla eitthvað en svona er þetta við erum bara að læra. Nú erum ég og Jotti búin að fara í sund 2 DAGA Í RÖÐ shitt hvað við erum dugleg. Við skelltum okkur í gær fyrir hádeigi og ákváðum að leyfa pabba bara að lúra og njóta sín svona einu sinni þar sem að mamman á heimilinu er búin að fá að gera síðastliðnar tvær helgar, svo fórum við í kvöld eftir kvöldmat og það var rosalega gaman hann Árni frændi kom með okkur og við láum þarna í bleyti í svona 1 og 1/2 klst og svo var bara klætt drenginn í náttföt og heim í ból og hann sofnaði eins og lítið lamb.
Jæja ég er ekki frá því að ég sé lúin eftir sundið og ætla að fara að hátta og kúra.
Adios amigos.
MINNI Á NÝJAR MYDIR OG BUMBUMYNDIR.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
199 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 55
- Frá upphafi: 105205
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.