10.5.2008 | 00:27
Komin tími á fréttir
Jæja ég hef nú ekki verið dugleg að blogga hérna inni undanfarið hvað þá setja myndir en núna er ég komi í átak promise.
Það er allt gott að frétta af okkur Jóhann Otti stækkar og skapið með, hann er farin að segja fleiri orð og segja þau skýrari en hann er ekki farinn að mynda setningar sem þýðir nú samt ekki að hann sé eitthvað eftir á í þroska það er nú tæpir 6 mánuðir í að hann verði 2 ára og margt getur gerst á þeim tíma. Hann var í ungbarnaeftirliti á heilsugæslunni um daginn og Ólöf læknirinn okkar var mjög ánægð með hann, hún hefði þó viljað að hann hefði þyngjast aðeins meira en hún hafði þó samt engar áhyggjur af honum þar að auki hefur hann verið 2x veikur síðan hann var síðast vigtaður og um leið og hann verður veikur þá borðar hann nánast ekki neitt þannig að það setur alltaf stórt strik í reikninginn. Hann er á fullu hjá dagmömmunni og verður þar út júní og svo hættir hann þá verður hann bara með mömmu, pabba og litlu systir í sumar þangað til að hann byrjar á leikskólanum, við höfðum svo sem ekkert hugsað okkur að fara neitt í sumar við erum ALLT of sein að bóka bústað annars hefði verið finnst að skella sé í bústað og njóta friðsældarinnar og nærveru barnanna, farið í göngutúra með litlu í vagninum og leift Jóhann Otta að rúlla sér í grasinu ohh ég sé þetta alveg fyrir mér en nei ekki þetta sumar, draumurinn er nú að fara til Spánar næsta sumar það eru orðin fleiri fleiri ár síðan að bæði ég og Davíð höfum farið til Spánar þannig að það er alveg komin tími til.
Heilsan hjá mér er svona ágæt mér finnst ég vera alveg rosalega ólétt núna, núna fyrst er óléttan að láta finna fyrir sér enda er ég komin 33 vikur og er með lítinn orkubolta sem þarf mikla athygli og það er sko ekkert grín. Ég hef alveg verið að koma vel út úr skoðunum þó er ég ennþá með 1+ af próteini í þvagi og smá bjúgur er búin að bætast við EN svo lengi sem að blóðþrýstingurinn er í lagi þá er ég ekki með meðgöngueitrun en það þýrðir ekki að ég þurfi ekki að fara varlega þetta er í raunin bara byrjunar einkenni.
Ég er að fara til heimilislæknis 16.maí til að fá vottorð til að minnka vinnu eða hætta, ljósmóðir mín stakk upp á að ég mundi minnka vinnuna í 50% sem er nú allt í lagi en ég stakk að henni hvort að það væri ekki sniðugt að ég færi að hætta að vinna um næstu mánaðarmót og henni leist vel á það þannig að það er spurning hvort að læknirinn sem ég hitti 16 vilji splæsa á mig vottorð til þess að jafnvel bara hætta þá að vinna. Ég er orðin rosalega orkulaus ég vinn ekki erfiða vinna þannig en ég vinn frá 7:30-15 og fer síðan beint og sæki strákinn og fer heim og þá er ég bara búin á því, það bætir ekki á það að ég hef verið með grindarverki síðastliðnar vikur. Ég vil bara fara fá að hvíla mig geta sofið það sem ég þarf að sofa náð orkunni kannski aðeins upp og þá gæti ég til dæmis skellt mér í stutta göngutúra, leikið við strákinn eða bara eitthvað við sjáum til hvað læknirinn segir 16. Ég er í eftirliti vikulega núna sem er fínt það heldur okkur á tánum með meðgöngueitrunarvesen en svo þann 30.maí hitti ég fæðingarlækni sem kemur held ég 2x í mánuði upp á heilsugæslu til að hitta konur sem þurfa að hitta lækni, ég er svo sum ekki að fara að hitta hann út af neinu sérstöku það er soldið síðan ég hitti hann síðast og bara komin tími á að hann hitti mig aftur til að ath stöðuna.
Ég er komin með kommóðu fyrir litlu prinsessuna og ég er að byrja að þvo og verð sennilega í því um helgina, ég tek enga sjensa ef þetta fer eins og síðast þá ætti ég að vera að eiga eftir 5 vikur og ég ætla ekki að vera að þvo á síðustu stundu. Ég er byrjuð að kaupa smátteríis dót eins og bleyjur og svoleiðis þó vantar mig aðeins meira en það er bara lítið og ég hef svo sum engar áhyggjur af því.
það gleður mig að tilkynna að það er búið að kaupa heimferðar fötin, amma Ólöf fór og keypti þvílíkt flott heimferðaföt en það var ekki annað hægt en að halda í hefðina þar sem að hún keypti heimferðadressið á litla prinsinn ég þarf að taka mynd af því um helgina og skella henni hér inn ÞAÐ ER GEGGJAÐ FLOTT.
Jæja við skvísurnar ætlum að fara að sofa, strákarnir mínir eru þegar sofnaðir ég fékk bara allt í einu eitthvað orkuspark ég er gjörsamlega búin að vera leka niður í allan dag og svo allt í einu rankaði ég við mér þegar ég þyrfti að fara upp í rúm.
Góðan nótt. Erla. p.s. fylgist með ég fer að skella inn myndum og taka mig á í blogginu.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
199 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 55
- Frá upphafi: 105205
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég fylgist með og bíð spennt eftir nýjum myndum
Dagbjört Jóhannesdóttir (IP-tala skráð) 10.5.2008 kl. 17:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.