GLEÐILEGT SUMAR: )

Sæl öll sömul og gleðilegan sumardaginn fyrstaCool, vona að allir hafi það bara gott í dag því það er jú vinnudagur á morgun GLATAÐ svo líður manni eins og það sé  hálfgerður sunnudagur í dag, allavega svona frídagur í miðri viku klúðrar sísteminu alveg.

Jóhann Otti er búin að vera með einhverja pest síðan á laugardaginn síðasta,hita og kvef hann er nú loksins að skána en samt mjög leiðinlegt maður finnur svo til með þessum litlu skinnum tala nú ekki um hvað honum finnst alveg hrikalega leiðinlegtAngry að hanga heima allan daginn með foreldrum sínum. Ég er nú að vona að svona flensu lasarus vesen á honum fari að hætta með hlýnandi veðri 7 9 13 það er svo mikið a dagskránni hjá okkur að við megum ekkert vera að svona veikinda veseni, við ætlum að vera dugleg að nýta sundkortið okkar og fara út að leika, amma Ólöf gaf honum fötu og skóflu sem á eftir að nota miklu meira en er búið að gera. Jóhann Otti er búin að fá úthlutað plássi á leikskóla næsta haust, leikskólinn heitir sem sagt Kópahvoll og er á Bjarnhólastíg hér í Kópavogi en ég á ekki von á að hann byrji fyrr en í ágúst september síðasta lagi sem er bara allt í lagi það verður hvort sem er nó að gera við að passa mömmu sýna og systur í sumar, þannig að næsta skref er að bíða eftir símtali frá leikskóatjóranum sem  ætti að koma í byrjun ágúst um það hvenær hann meigi byrja.Cool Þetta er alveg rosa spennandi, þegar ég fékk bréfið frá Kópavogsbæ um að litla beibíið mitt kæmist inn á leikskóla þá hugsaði ég bara ó mæ god litla barnið mitt er að stækka hann er að byrja á leikskóla, ætli ég verð ekki grenjandi fyrsta daginn hans þegar ég sleppi af honum hendinniTounge

Hnoðri hundur tengdaforeldra minna er í pössun hjá okkur til 3.maí þar sem að skötuhjúin skelltu sér í golfferð til Spánar og Jóhann Otta er bara alveg sama um að það sé einhver hundur hérna þannig að sú samvist gengur bara eins og í sögu og ef ég á að segja ykkur alveg eins og er þá er fínt að hafa hann hérna málið er nefnilega það að hann fær að spranga um í garðinum annað slagið með ólina samt bundna við stofu gluggann og hann fælir alla kettina frá sem er fínn, kettirnir sem eru í hverfinu eru óþolandi þér hafa nokkrir komið inn til okkar og svo pissað í anddyriströppurnar sem fer ekkert smá í taugarnar á mér en mér er nú samt ekkert almennt illa við ketti bara þessa sem búa í hverfinu mínu.

Annars er ég bara hress ég er sem sagt komin nákvæmlega 31 viku á morgun, ég var í mæðraskoðun í gær og það kom allt bara ágætleg út nema hvað það er kominn 1+ af próteini í þvagið sem er ekki það sem mig langar að sjá akkúrat núna en þetta er samt ekki hlutur til að hafa áhyggjur af eins og er þar sem að blóðþrýstingur er í lagi og enginn bjúgur í gangi en ég á að fara í skoðun aftur 7.maí og á sjáum við hvað setur.5. maí er ég samt að fara í sykurþolspróf til þess að ganga úr skugga um að ég sé nokkuð með meðgöngusykursýki, það er svo sum ekki grunur á því núna að ég sé með hana en þeir vilja bara athuga þetta. Ljósan þreifaði á bumbunni og þá var skvísan í höfuðstöðu sem er bara í góðu en samt nægur tími fyrir hana til að snúa sér í allar áttir og það er sko alveg verið að nýta þann tíma vel því ég er búin að finna ekkert smá mikið af hreyfingum núna undanfarið það er sko búið að vera partý bumbaTounge

Jæja segjum þetta gott í bili.

Kveðja Sumarálfarnir Erla, Jotti og co.Cool


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gleðilegt sumar   ..úff, get ekki sagt að það sé beint sumarlegt hérna núna þegar ég lít útum gluggan, rignarslydda og vibbi   en þetta fer að koma hehe.

    Annars bara að kasta á ykkur smá kveðju, alltof langt síðan maður hefur heyrt í þér... en ég er alltaf dugleg að fylgjast með ykkur hérna..  

 Bið að heilsa öllum og hafið það gott....

Dagbjört Jóhannesdóttir (IP-tala skráð) 29.4.2008 kl. 08:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

199 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 105205

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband