14.4.2008 | 23:01
Nýjar myndir loksins....; Þ
Jæja allesammen, hér á bæ eru allir bara hressir, Jotti er orðin hress af hlaupabólunni og ég mundi nú segja að hann hafi sloppið nokkuð vel hann var t.d. ekki með mikinn hita eða mikið af bólum. Hann vex bara og dafnar og tala nú ekki um hvað hann þroskast, mér finnst hann vera farinn að skilja mann svo mikið þegar maður talar við hann. Jotti er að fara að fá glaðning í garðinn hjá okkur hann Sæmundur langafi ætlar að smíða handa honum sandkassa ohh ég er ekkert smá spennt það er nefnilega a teikniborðinu að nota garðinn MJÖG mikið í sumar, ég þarf bara að leggja smá vinnu í að gera hann soldið flottan. Það þarf t.d. að týna allt ruslið eftir veturinn kaupa blóm til þess að gera hann nógu litríkan lappa upp á stólana og borðið og slá þegar grasið fer að vaxa. Þá ætla ég líka að athuga málið með að planta einni buslulaug handa Jottanum og svo er alveg spurning um að fjárfesta í einum sólbekk. Ég sé þetta alveg fyrir mér.
Við erum að bíða eftir bréfi frá Kópavogsbæ um að fá pláss fyrir Jóhann Otta á leikskóla í ágúst, sept síðasta lagi og sá á eftir að njóta sín þegar hann fer á leikskóla honum finnst svo gaman að vera úti að leika að það er alveg yndislegt, en Jóhann otti er bara að stækka og stækka og verður alveg ákveðnari í leiðinni. Nú er hann búin að vera viku í nýja rúminu og það gengur svona líka vel eða allavega vonum framar hann kann þó að klifra fram úr því en hingað til hefur ekki verið vandamál 7 9 13
Ég er rétta að skríða í 30 vikur sem mér finnst vera bara áfangi út af fyrir sig, mér finnst þá orðið styttra í þetta því að ég get ekki ýmindað mér að ég gangi fullar 40 vikur þó að ég fari nálægt því en hver veit. Við ætlum að fara næstu mánaðarmót og kaupa kommóðu fyrir föt skvísuna svo ætla ég að fara yfir það sem ég á og það sem mér vantar sem á nú ekki að vera neitt þannig en svo verður splæst í heimferða gallann. Ég fer í mæðraskoðun næsta miðvikudag og svo eftir þá skoðun þá fer ég að fara oftar því það á að fylgjast extra vel með mér á endasprettinum út af smá áhættu á að fá aftur meðgöngueitrun og ljósan vill þá geta gripið í taumana strax og er því aukið eftirlit út af því. Kúlan stækkar en ég veit ekki hversu mikið mér finnst ég stundum bara vera passleg en stundum finnst mér ég vera HUGE kannski liggur hún bara asnalega, það er ekkert búið að athuga stöðuna á henni enda kannski soldið snemmt en ég held að hún muni gera það í næstu viku og það verður gaman að sjá hvort að hún verður komin í höfuðstöðu, ég man ekki hvenær Jotti var lausskorðaður en það var held ég um eða uppúr 32. viku.
Breytingar á íbúðinni gengu bara svona líka vel ég er alveg í skýjunum yfir þeim því þetta koma bara vel út við komumst allavega 4 fyrir í herberginu og það er samt ekki þröngt um okkur en það er gott að vera búin með þetta.
Ég þarf að fara vera duglegri með myndavélina það er bara búið að vera pínu mikið að gera hjá mér en eftir þessa viku snar minnkar það sem betur fer, en þá eru komnar nýjar myndir inn í albúmið hans því miður ekki bumbumynd en ég fer að splæsa í eina svoleiðis.
Jæja ég ætla í draumalandið.
Kveðja Erla og Jóhann Otti
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
199 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 55
- Frá upphafi: 105205
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Fólk
- Af listum: Mannát og mótmæli
- Þeir sem komast á bragðið fá ekki nóg
- Þetta völdu börnin
- Anna Júlía hlýtur Munduverðlaunin 2025
- Dóttir Völu og Hilmis fædd
- Það andaði ró- og góðsemd af sviðinu
- Dómur: Skipulagt tilfinningalegt ferðalag
- Glæsileg mæðgin prýða forsíðu tískutímarits
- Heilsueflandi söngur
- Christian Bale nær óþekkjanlegur
Íþróttir
- Alcaraz vann lygilegan úrslitaleik
- Kólumbía reyndist Íslandi erfið
- Aron og Bjarki meistarar
- Kári fór á kostum í Álaborg
- Frakkinn vann HM
- Aron hefur spilað sinn síðasta leik
- Á leiðinni til Mexíkó
- Viggó stórkostlegur þegar liðið hélt sér uppi
- Frakkar unnu bronsið
- Füchse Þýskalandsmeistari eftir torsóttan sigur
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.