25.10.2006 | 20:44
-=Jóhann Otti Davíðsson=-
Jæja þá er kúturinn kominn í heiminn ég var sem sagt lögð inn á þriðjudagshádeiginu með of háan blóðþrýsting´+3 Prótein í þvagi og bjúg. Þetta kom mér svo sem ekki að óvart því það var´búið að segja mér að ég ætti að eiga von á því að vera lögð inn, en hvað með það ég tók því bara rólega yfir daginn blóðþrýstingurinn var mældur með reglulegu millibili og hann fór ekkert lækkandi.
Síðan leið á kvöld og ég fékk þennan glæsilega spítalakvöldmat eða þannig og fór síðan bara upp í rúm í tölvuna síðan kom Davíð með djúsí bragðaref mmmmm hvað hann var góður. Davíð fór síðan eftir smá heimsókn og ég fór að horfa á DVD mynd þegar myndin var að klárast hringdi Davíð og spurði hvort ég gæti ekki stolist til að hitta hann og knúst hann góða nótt þrátt fyrir að heimsóknartímin vlri á enda. Ég bjó til einhverja lélega afsökun og fór og knústi kallinn minn síðan kvaddi hann þá var klukkan að ganga 00:30 ég fór inn og kláraði myndina og kom mér síðan fyrir og 10 mín síðar fékk ég líka þessar rosalegu hríðir ég fór framm og talaði við ljósmóður og hvorki hún né ég voru viss að ég væri að fara af stað því ég var ekki með neina samdrætti þannig hún gaf mér verkjalyf en það dugði EKKERT þannig ég fór aftur framm og hún ákvað að sitja mig í mónitor sem ég var í í tæpar 20 mín síðan tók hún blóðþrýsting og þá var illt í efni því hann var orðinn hættulega hár. Ljósan náði strax í lækni sem vildi bara rúlla mér uppá fæðingardeild og blóðþrýstingurinn var orðin það hár að ég varla mátti ná í síman til að hringja í Davíð.
Mér var rúllað upp og Davíð kom 10mín seinna eftir að hafa farið yfir á 2 rauðum ljósum en það var ekkert fyr en rétt áður en Davíð kom sem það var staðfest að ég væri kominn af stað. Eftir 1 klst var ég komin með 4 í útvíkkun sem þykir nokkuð gott mér var einnig gefið blóðþrýstinglækkandi lyf svo það myndi ekki skapast of mikið álag á litla kút og mig. Það var ákveðið frekar fljótt að ég myndi fá mænurótadeyfingu þar sem hún hjálpar oft við að lækka blóðþrýstinginn og ég var að Deyja ég var kominn með svo harðar hríðir, það tók nú smá tíma að fá hana en biðin var þess virði því þegar ég var búin að fá hana þá leið mér ólýsanlega vel. Nú tók bara bið við að leghálsinn opnaðist og um 7:00 var útvíkkun kominn í 10 og ég mátti byrja að rembast þegar ég fékk hríð þeim fannst ég nú sammt ekki vera að fá nógu harðar hríðir og voru að spá í að gefa mér dripp en hættu við síðan var ég að rembast til 9:14 með aðstoð Davíðs og ljósu og Jóhann Otti kom í heiminn. Ég var semsagt 8klst að fæða sem þykir lítið miðað við fysta barn en meðgöngueitruninn hefur átt þar stóran þátt. Litli kall fæddist 17 merkur og 55cm sem kom ÖLLUM MJÖG á óvart þar sem að það var búið að giska á 12-13 merkur en hann fæddist stálhraustur og ljósan var meira að segja með þá kenningu að það gæti verið að ég hafi verið lengra genginn en það er ekki hægt að athuga það eftir á. Síðan var mér rúllað inn á sængurkvennadeild ég mátti ekki fara á hreiðrið út af mínu fyrr nefndu ástandi sem var pínu bömmer því þá mátti Davíð ekki gista.
Við fengum brottfaraleyfi heim daginn eftir og við ákvaðum að skíra upp á spítala þar sem að nafnið var löngu ákveðið og við vildum ekki að hann fengi eitthvað leiðinlegt gælu nafn. Hann var skírðu JÓHANN OTTI DAVÍSSON. Jóhann er í höfuð á besta vini Davíðs og Otti er í höfuð á honum Jón Otta heitins. Eftir heimkomu hefur allt gengið bara frekar vel hann er búin að far í 5daga skoðun sem er rútinu check hjá nýburum og lækninum leist rosa vel á hann enda ekki við öðru að búast. Við erum búin að vera með frábæra ljósmóður í heimaþjónustu sem er búin að fylgjast með Jóhanni og leiða okkur í gegnum fyrstu dagana og núna snýst lífið um að borða og sofa mikið.
OG ÉG ER ÁSTFANGINN AF KÖLLUNUM MÍNUM TVEIMUR
Ég get því miður ekki sett inn myndir strax en reyni að gera það sem fyrst en ég vil benda ykkur á heimasíðu pabba þar er albúm sem heitir Jóhann Otti Davíðsson www.123.is/MOTIVMEDIA
Síðan er bloggið ekki búið það er bara rétt að byrja og verður reglulegt eðlilega hefur verið smá pása en nú er hún búin.
Þangað til næst
Erla og Jóhann Otti
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
184 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.