31.3.2008 | 21:40
Bóluhlaupari
Jæja þá erum við komin með einn bóluhlaupara á heimilið, Jóhann Otti er búin að vera heima síðan á fimmtudaginn síðasta og búið að vera svo sem mis gaman að hanga svona heima það er jú ekkert gaman að vera innilokaður. Hann er sem betur fer búin að vera með lítinn sem engan hita með þessu og kláðinn hefur verið í lagmarki sem betur fer. Jóhann Otti er að öðru leiti bara hress.
Ég er að verða skriðin í 28 vikur sem er bara æði mér finnst ég fyrst núna vera ólétt það er komin einhver kúla að ráði og bara stemmning, skvísan spriklar ekkert smá að vanda þó mismikið suma daga. Ég er að fara í mæðraskoðun næsta fimmtudag og þá fæ ég að hlusta á hjartsláttinn oohh get ekki beðið , Davíð kemst því miður ekki með mér þannig að ég fer ein í þetta skiptið.
Við höfum ákveðið að slá íbúðarsölu á frest í ljósi ástands hér á landi, ef við hefðum gert þetta fyrir svona 3 mánuðum síðan þá hefði þetta ekki verið neitt mál en það er bara þannig núna að það selur enginn nánast og þér sem selja fá ekkert endilega lán ef þeir ætla að stækka við sig. Það skondna við þetta er að það er maður sem vill kaupa íbúðina en hann ætlar bara að bíða eftir okkur. Varðandi pláss þá hef ég sko ekki áhyggjur af því við komumst alveg fyrir 4 í einu herbergi þó að það sé bara tímabundið en ég ætla ekkert að fara að lýsa því eitthvað nánar hvernig við komumst fyrir ég tek bara myndir þegar herbergið verður tilbúið, það verður geggjað flott. Annars erum við búin að festa kaup á nýju rúmi fyrir Jóhann Otta sem sagt stærra rúmi þannig að hann fer úr rimmla rúmminu sínu það vill nefnilega til að konan sem á rúmmið sem hann er í núna er líka ólétt og á bara að eiga viku á eftir mér þannig að ég verð að skila því.
Þetta er ekkert smá flottur gripur og við fengum það á HEILAR 500 kr í Góða hirðinum og núna er Davíð í þessum skrifuðum orðum að pússa það allt upp og svo ætlar hann að hvítta það af því að þetta er viður, svo fór ég í dag og keypti dýnu í það þannig að þetta er allt að smella, stefnan er að hann farið í þetta rúm næstu helgi því að við viljum vera búin að venja hann á svona rúm áður en skvísan kemur. Það eru hliðagrindur á rúminu þannig að þegar hann bröltir og snýr sér á næturnar þá veltur hann ekki út, sniðugt. Svo fer skvísan bara í vöggu til að byrja með og að sjálfsögðu með himnasæng.
Jæja ég ætla að segja þetta gott í bili. Ég set inn myndir fljótlega.
Kveðja Erla
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Færsluflokkar
199 dagar til jóla
Spurt er
Bloggvinir
Myndaalbúm
Bloggarar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 55
- Frá upphafi: 105205
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Bíð spennt eftir nýjum myndum.. og fréttum :)
Vonandi gengur allt bara frábærlega hjá ykkur og Jotti bóluhlaupari búnað jafna sig
Bið að heilsa öllum..
Dagbjört Jóhannesdóttir (IP-tala skráð) 12.4.2008 kl. 09:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.