Páskar o.fl.

Jæja þá eru páskarnir senn á enda því miður svo er manni bara skellt í vinnuna aftur eins og ekkert sé glatað alveg glatað. Þessir páskar eru búnir að vera yndislegir, byrjuðu sem sagt á fimmtudaginn ég vann til kl 15 í fermingarveislu og eftr hana þá  brunuðum við til Keflavíkur í skírnar/afmælisveislu hjá Einari og Ástu sem var bara æðislegt svo var svo sum ekki gert neitt sérstakt það sem eftir var af deginum annað en bara að slappa af. Á föstudaginn þá fór ég og Jóhann Otti á leikskólann sem er fyrir utan hjá mömmu og pabba að leika sem var ekkert smá gaman, litli gaur naut sín alveg í botn og veðrið var æðislegt. Amma og Bjössi komu síðan út til okkar að leika aðeins og þá var sko enn þá meira gaman.

Laugardagskvöld þá fórum við í matarboð hjá Gunnu og Þorsteini og snæddum þar lamb og með því og það var bara rosalega kósý, eftir matarboðið  þá fórum við til ömmu Erlu þar sem að þar hafði verið smá matarboð á sama tíma og heilsuðum upp á liðið þar svo var bara farið heim í háttinn. Í gær þá vorum við bara á náttfötunum fram eftir hádeigi og skelltum okkur síðan í sund sem var ekkert smá hressandi svo ætluðum við að gefa öndunum brauð eftir sundferðina en þurftum að hætta við þar sem að Jóhann Otti sofnaði í bílnum því að hann hafði eiginlega ekkert sofið um daginn. Svo eldaði Davið dýrindis máltíð handa okkur um kvöldið sem var svínalundir og brúnaðar kartöflur. Í dag var  matarboð hjá mömmu og pabba þar sem við fengum ekkert smá gott lambalæri, brúnaðar kartöflur  og allan pakkann með því.

Annars er bara allt gott að frétta ég er alveg að detta í að vera komin 27 vikur og heilsan bara góð, daman lætur sko alveg finna fyrir sér skal ég segja ykkur. Allt í einu einn daginn fannst mér eins og ég blési út eins og loftbelgur úff og ekki fer þetta minnkandi. Annars er ég farin að nota snúningslak í rúmmið sem ég bjóst sko alls ekki við að þurfa að draga það fram strax en ég hef bara verið að sofa svo laust að í hvert skipti sem ég velti mér þá hef ég verið að vakna við það en þegar ég setti snúningslakið í þá snarskánaði ástandið. 

Jóhann Otti er hress að vanda alltaf jafn mikill strákur í sér, hann hefur verið staðinn að því núna nokkrum sinnum að þurka sér um munninn í ermina sína svo er að bætast í orðaforðann hann það er komið orð eins og  dus sem þýðir djús svo er hann oft að reyna að herma eftir okkur en babblar alveg helling á milli. Vonir standa nú um að við fáum bréf frá Kópavogsbæ í apríl um að hann fái leikskólapláss í ágúst og þá mun hann hætta hjá dagmömmunni 1.júlí þar sem að hún er að fara í sumarfrí 4.júlí minnir mig og til 7.ágúst og þá verður hann bara heima með mömmur og pabba þangað til að hann fer á leikskólann hvenær sem það verður.

Jæja ég ætla að fara að knúsa minn heittelskaða og heimsækja draumalandið.

ÉG VIL MINNA Á AÐ ÞAÐ ERU NÝJAR MYNDIR AF JOTTA Í NÝJU ALBÚMI OG NÝ BUMBUMYND.  Til þess að sjá myndirnar þá farið þið hérna vinstrameginn á síðunni inn í myndaalbúm og tvö efstu albúmin eru þau nýjustu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

199 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 105205

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband