24vikur og 4daga

Já ég er komin svona langt og áður en ég veit af verð ég komin í næsta tug sem sagt 30.vikur úúúff hvað þetta líður hratt stundum finnst mér eins og þetta sé bara á næsta leiti og ég eigi eftir að gera allt, það er að sjálfsögðu ekki þannig en ég ætla samt að gera allt tíbúið tímanlega miðað við hvernig þetta endaði síðast. Ætli ég byrji ekki um 34.viku að klára allt þar að segja finna kommóðu, fá barnabílstólinn fara yfir öt og þvo þau og ætli ég leigi ekki vöggu til að byrja með og ég þarf þá að gera það, svo er það að rissa á blað hvað mig vantar og hvað ég tek a spítalann, græja heimferðaföt. Þetta er alveg slatti í poka ég veit nú að ég mun ekki gera þetta allt ein.Annars er lítið af fréttum a bumbunni ég var í skoðun um daginn og það var allt bara tipp topp og ekkert meira um það að segja nema næsta skoðun er í byrjun apríl. Mér finnst ég stundum varla vera ólétt kannski af því að maður hefur svo sem nóg í stafni fyrir og svo er maður ekkert orðinn fyrirferðamikill, en ég nyt þess samt að vera ólétt ekki misskilja mig Tounge Svo er komið ein bumbumynd inn í nýtt album sem heitir bumbumyndir2 til að sjá myndina þá verðir þið að smella á myndaalbúm hérna til vinstri á síðunni og albúmið er þar inni.

Litli prinsinn minn er orðinn aftur veikur Frown nema þetta er doldið skrítið síðast þegar hann var veikur sem er MJÖG stutt síðan þá var eins og hann vær ekki veikur hann lék sér og var ekkert aumur eða slappur hann var bara með hita núna er hann slappur og lasinn. Ég ætla að eyna að koma honum til barnalæknis hans á morgun good luck en ég verð að reyna. Læknirinn hans er búin að segja við mig að ég meigi alltaf hringja í hana ef það er eitthvað og ég ætla að nota það spil á morgun og hringja og sjá jafnvel hvort að hún skrifi ekki upp á beiðni fyrir röntgenmyndatöku til að athuga lungun. Þetta hljómar kannski doldið paranoijað en það er það gæti blundað í honum lungnabólga og því miður þá treysti ég heilsugæslulæknum takmarkað, ég ætla svo sum ekki að fara út í það að útskýra afhverju. Við vonum bara það bestaSmile Annars er litla barnið mitt bara þvílíkt að stækka og ég finn fyrir því því að allt í einu þá þurfti ég að taka til í kommóðunni hans því að það vara bara slatti af fötum orðin of lítil svo er hann líka að þroskast farinn að hafa skoðanir á hlutunum og sífellt að láta reyna á það hver ræður á heimilinu. 

Við skelltum okkur með mömmu minni og pabba i sumarbústað síðastliðnu helgi og Árni lilli bró fylgdi auðvitað, það var ekkert smá yndislegt bústaðurinn var rétt fyrir utan Laugarvatn og að sjálfsögðu var hann með heitapotti. Við komum seinnipartinn á föstudeginum og þá var bara komið sér fyrir og skellt hamborgurum á grillið svo eftir mat var farið í potinn. Á laugardeginum fórum við í bíltúr niður á Laugarvatn og tökum stuttan göngutúr þar og fórum síðan aftur í bústaðinn. Seinnipart laugardags komu Sæmi stóri bró, Inga og Ólafur Már rúsínubollan okkar, um kvöldið var svo grillað dýrindis svínaundir með tilheyrandi meðlæti og jeremías ég fæ vatn í munninn bara við að skrifa þetta þær voru svo góðar namm. Um kvöldið var síðan skellt sér í pottinn og á pallinn ehehehe Davíð og pabbi duttu á rassinn í hálkunni á pallinum slösuðu sig ekki en þetta var frekar fyndið.LoL

Á sunnudeginum fengum við okkur morgunmat meistarana, egg, beikon,ristað brauð og rauðar baunir og þetta var ekkert smá gott en svona gerir maður líka eiginlega aldrei þannig að maður naut þess, svo var bara farið í að ganga frá og koma sér til Selfoss í sund sem var nú ekkert rosalega langt aðallega sökum þess að það var bara ekkert alltof hlýtt en eftir sundið þá brunuðum við til Hveragerðis og ætluðum í Eden en ÞAÐ VAR LOKAÐ!!! shokking. Við fórum þá á eitthvað grill þarna og sleiktum sárin.

 ÉG VIL MINNA Á AÐ ÞAÐ ERU NÝJAR MYNDIR Í ALBÚMINU HANS JOTTA

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

jeij, gaman að fá að sjá eina bumbumynd.. og allar hinar myndirnar auðvitað líka   æðislegar myndir.. og Jotti litli alltaf jafn sætur !

     Bið að heilsa öllum....

   *knús*

Dagbjört Jóhannesdóttir (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 21:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

199 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 105205

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband