23 vikur

Jæja þá er maður kominn 23 vikur og allt gengur bara vel mér finnst ég finna voðalega lítið eitthvað fyrir óléttunni maður er allavega ekki farinn að vagga. Ég er byrjuð í meðgöngusundi og búin að fara í tvo tíma sem er ekkert smá fínt að hafa svona skipulagða hreyfingu.

Jotti spotti er búinn að vera lasinn síðan  á miðvikudaginn bara með flensuskít en búin að vera samt alveg ótrúlega hress mjög viljugur í að leika sér, svo hefur mikið verið horft á Latabæ og mamma hefur skellt sængunum hans á gólfið fyrir framan sjónvarpið og gert svona kúruhreiður og það hefur alveg vakið ágætis lukku. Ég finn samt doldið til með honum maður sér það alveg seinni part dags að hann er orðinn þá pínu eirðalaus en við höfum okkur alla við til reyNa að létta honum lund.  Hann hefur lítið viljað borða sem ég er ekkert hissa á en leiðinlegt því að ég tími ekki að hann missi gramm því hann er svo nettur en svona er þetta bara.

 

Við erum loksins búin að fá bílinn okkar ég er ekkert smá feginn þrátt fyrir að mér sé ekki vel við hann út af öllu því sem hefur komið fyrir hann þá vil ég vera á bílnum mínum.  Ég á samt frábæra tengdaforeldra sem höfðu tök á því að lána okkur annann bílinn sinn á meðan við vorum bíllaus og það bjargaði ÖLLU bókstaflega og við erum þeim svo þakklátGrin.

Eins og þið sjáið á færslunni hér fyrir neðan þá átti ástapungurinn minn afmæli á þriðjudaginn, við gerðum svo sem ekkert úr því nema að ég bakaði eina köku til að eiga heima ef fólk skildi vilja koma,  foreldrar mínir og tengdaforeldrar kíktu við og var það bara kósí stund, kakan var bara fín kom skemmtilega á óvart þar sem að ég átti sko tvo frosna púðursykursbotna og ég skellti þeim saman með smá rjóma með súkkulaðibitum í á milli og súkkulaðiflórsykurskrem ofan á. Þessi blanda var bara fín og borðuðum við hana með bestu lyst.

jæja ég ætla að hætta að skrifa um köku áður en mér fer að langa ógeðslega mikið í köku og fara að orfa á despó.

Adios amigos.  ErlaInLove og Jóhann Otti Police

 

p.s. fe alveg að skella inn myndum gekk eitthvað erfiðlega áðan þannig ég gafst upp.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábært að heyra að heilsan þín sé góð og vonandi á allt eftir að ganga ljómandi vel hjá þér... æjj, greyið Jotti litli.. lasarus  það er vonandi að hann fari að hressast sem fyrst. Bíð spennt eftir myndum..

     Bið að heilsa...

   *knús*

Dagbjört Jóhannesdóttir (IP-tala skráð) 1.3.2008 kl. 19:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

199 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 105205

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband