21vika og 5 dagar

Er ég sem sagt komin núna og heilsan so far bara mjög góð maður er ennþá bara lipur með sig, ég er að fara að byrja í meðgöngusundi næsta mánudag og verður það 2x í viku í 1 klst í senn.  Þetta er sama dæmi og ég var í á síðustu meðgöngu og var það bara æðislegt.  Það er loksins komin einhver bumba eiginlega alveg ágætis bumba og ég þarf bara fara að drífa mig í að taka mynd. Eins og þið sáuð í myndaalbúminu þá er auðvitað búið að kaupa smá bleikt á ófæddu dömuna.Ég finn orðið alveg fyrir mjög sterkum hreyfingum og hún er sko þvílíkt fjörug enda þegar við vorum í 12 vikna sónar þá var ljósan alveg í vandræðum því að hún þurfti að mæla hana en það var svo mikið fjör að hún var bara á fleygiferð.

 Jóhann Otti þroskast með hverjum degi og orðaforðin að stækka hjá honum, nýjasta sportið er að toga upp um mann eða annan bolinn og pota í bumbuna og segja buba=bumba. Svo er hann alltaf jafn hress og kátur þessi elska, ég var að skrá hann á íþróttanámskeið sem ég er ekkert smá spennt yfir það byrjar reyndar ekki fyrr en 12.apríl en við bíðum bara róleg.  Þetta er sem sagt 8 skipti alltaf á laugardögum fyrir hádeigi reyndar en okei svo er þetta svona blandaðir tímar það eru t.d. 2 tímar af 8 sem eru í sundi.

Þetta hljómar allavega ekkert smá vel og er alls ekki dýrt.

Bílinn okkar er búin að vera með vesen við okkur sem er nú bara saga sem varla er hægt að blogga um hún er svo löng en djööfull er það mikið bög, það eltir okkur einhver bílabölvun. Fyrsti bílinn okkar sem var Subaru Justy okei gamall bíll allt í lagi en hann var í topp standi sjálfskipt dúlla nema hvað einn daginn þá fór hann ekki í park né bakkgír svo nokkru seinna þá slitnaði handbremsan og þá var sko orðið brandari að keyra bílinn en hann var dúlla og okkur þótti vænt um hann. Bíll nr 2 Suzuki swift lítil púdda gott sem ekkert ekin bodyið perfect og fengum hann á klink og stefndi í að vera bíll sem maður mundi bara keyra út en nei þá eiðilagðist hann i árekstri. Bíll nr 3 Polo  2002 árg sem við eigum núna og búin að eiga í svona rétt tæp 2 ár og hann er búin að bila svona 4x allavega.

ÚÚFF hvar á þetta að enda ég vildi óska þess að einhver mundi koma og gefa mér einhver dúllulegan station bíl svona hentugan fyrir 4 manna fjölskyldu og við gætum átt hann í meira en ár án þess að eitthvað kæmi fyrir...... miði við okkar heppni DREAM ON.

Minn heittelskaði á afmæli í næstu viku og ég var búin að lofa að bara köku sem hann gæti tekið með í vinnuna,svo þarf ég væntanlega að baka eina til að eiga heima þannig allar uppskriftir eru vel þegnar þar sem að ég á eitthvað takmarkað af þeim.

Pabbi fór til Danmerkur síðastliðna helgi og var sú helgarferð reyndar bara tengd vinnu en gat þó skroppið aðeins yfir til Svíþjóð að hitta afa og ömmu, þau sendu smá sendingu með honum heim til Jóhann Otta sem var ekkert smá flottur íþróttagalli, bolur og regngalli sem ég vil bara segja TAKK æðislega fyrir þessa sendingu knúsar og koss frá Jotta og okkur.

 Jæja komið gott í bili.

Kveðja Erla og Jóhann Otti


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bara að kasta á ykkur smá kveðju.. gott að heyra að allt gengur vel.. og endilega dríbba í því að setja bumbumyndir   er annars komin með nýtt blogg.. johannesdottir.bloggar.is ..kíkka á það

       Bið að heilsa....

    *knús*

Dagbjört Jóhannesdóttir (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 22:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

198 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband