37.vikur

Jæja ég ákvað að grípa gæsina þar sem ég er stödd hjá tangdó í tölvunni og skella inn vikulega blogginu.

Jú nú eru komnar 37.vikur það er allt tilbúið nema rúmmið ég á eftir að fá það og spítalataskan.  Það kemur nú allt fljótlega ég viðurkenni það nú ég er doldið smeik við að setja í spítalatöskuna strax því þegar ég er búin að því þá finnst mér ég formlega vera farinn að bíða æ þetta er bara í hausnum á mér.  Annars hafði ég hugsað mér að hún yrði nú tilbúin í síðastalagi næsta sunnudag þá er ég að skríða í 38.vikur.

Annars er allt gott að frétta við fórum í mæðraskoðun á föstudaginn og allt leit svona rosalega vel út.  Ljósan sagðist halda að hann væri orðinn sirka 12 merkur sem mér skilst að séu um 3 kíló annars er ég ekki góð í þessu þyngdarsystemi.  Síðan var litli prinsinn bara með stæla við okkur málið er það að ljósan mín var með ljósmæðranema með sé sem framkvæmdi skoðunina þar að segja hún tók blóðþrýsting og mældi legbotnin og hlustaði á hjartsláttinn,  en þegar hún var að fara að hlusta á hjartsláttinn þá gekk eitthvað erfiðlega að finna hann en ég vissi alveg að hann væri þarna og ljósan mín kom og prufaði sjálf þá loksins fannst hann.  Ég held að hann hafi bara verið í fýlu því það var búið að vera að pota svo mikið hann til að finna hvernig hann lá að ljósonum grunar að hann hafi bara sett hendurnar fyrir aftan bak sem gerði þeim erfitt fyrir að finna hjartsláttinn.  

Hér er fróleikur um barn á 37.vikur 

 Neglur á fingrum hafa nú vaxið til fulls (fram að fingurgómi) og sama má segja um táneglur. Barnið heldur áfram að æfa sig inn í kvið móðurinnar og styrkja þannig sjálfan sig og æfa öndun. Öll líffæri nema lungun eru nú þroskuð. Lungu þurfa nokkra daga til viðbótar til að ná fullum þroska. Barnið er nú 48 cm langt og 2,9 kg að þyngd.

Já annars erum við bara hress við erum að reyna að vera dugleg að fara út í göngutúra það er svo gott þó manni líði eins og elephant og stundum doldið erfitt að hreyfa sig sökum eitt stiki barns þá er sammt svo gott að hreyfa á sér rassinn þegar maður er í stuði ég og Davíð fórum t.d. út í göngutúr í gær sem var tæpur 3km en sammt ekkert erfiður alls ekki svo segja menn að þetta komi nú stundum fæðingu af stað sem sakar ekkert þó hann megi nú hanga þarna inni í vikur í viðbót.

Síðan átti bróðir minn afmæli síðastliðinn laugardag 7. október JEEIIJJ TIL HAMINGJU og það þýðir líka að það er mánuður í að ég verði 21 sjibbí   gaman gaman en það verður ekkert djamm þetta ár eins og síðasta sem er allt í lagi það verða bara kökur og kozy eða eitthvað svoleiðis.  Hver veit nema það gæti orðið afmææisveisla og skrínarveisla á sama tíma hhhmmmm það væri nú ekkert amarlegt skal ég segja ykkur slá tvær flugur í einu höggi Brosandi

Vitiði ég var að hugsa,  þetta er bara alveg að verða búið jú það geta verið allaveg 3 vikur eftir og jafnvel meira en sammt getur allt gerst aldrei segja aldrei mér finnst ég sammt að vissu leiti eiga svo lítið eftir en vildi óska að ég ætti minna eftir ég viðurkenni það alveg en svona er þetta.

Þanngað til næst.

ErlsSvalur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

184 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband