The Secret(og ég er ekki að tala um bókina né myndina)

Já ætli það sé ekki kominn tími á að restin fái að vita, þetta hefur ekki verið neitt leyndarmál svo sem en samt ekkert sem ég hef verið eitthvað að tapa mér í að auglýsa.

Þannig vill nú svo til að í lok júní þá eigum við von á nýjum fjölskyldumeðlim og Jóhann Otti verður stóri bróðir.LoL eintóm gleði og hamingja í gangi hérna á þessum bæ skal ég segja ykkur. Ég er sem sagt að skríða í 20 vikur eða 5 mánuði(20 vikur nákvæmlega á föstud) og framan af þessu hef ég nú verið heilsuhraust það var þó smá ógleði á fyrstu 3 mánuðum en hún sneri mest að því að ég var viðkvæm fyrir allskonar lyktum, t.d. epla og kanil hafragraut, bláberjaskyr já og þegar Jóhann Otti fékk gubbupest þá þakkaði ég guði fyrir það að ég á yndislegann maka sem er ekki klíjugjarn og gat þrifið æluna upp á meðan ég var að berjast við að halda minni niðri úúff that wasn´t easy.

Ef þið eruð að spá í það hvort að þetta barn sé "planað" eða ekki þá get ég svara því strax ykkur kemur það ekki við, ég lenti nefnilega mjög oft í því þegar ég var ólétt af Jóhann Otta að ég var mikið spurð að þessu og þegar maður fer aðeins að spá þá jaðar þessi spurning  við að vera dónaleg því að hvort sem að óléttan sé plönuð eða ekki þá er þetta ákvörðun á milli tveggja ástfangna einstaklinga  og fólk á eiginlega ekki að vera að spyrja að þessu því að fólk væri aldrei að tilkynna þetta nema það ætli sér að eignast barnið og fólk á bara að segja til hamingju, shitturinn mér líður eins og ég sé að skammaBlush einhvern sem ég er ekki að reyna en þetta er satt þegar maður pælir aðeins í þessu.

Ég er svo sem ekki komin með neina kúlu af viti þannig ég hef ekkert verið að stressa mig á að taka neinar bumbumyndir enda skemmtilegra að taka helling af þeim þegar einhver bumba er komin. 

Við vitum ekki kynið ennþá allavega en við erum að fara í sónar næsta fimmtudag og ætlum að fá að vita það, við ætlum að opna pakkann við fyrsta tækifæriWink.

Að örðum skemmtilegum málum þá gifti stóri bróðir minn sig 26.janúar síðastliðinn og skírði son sinn í leiðinni og hann heitir Ólafur Már, hann er orðinn alger rúsínubolla í bókstaflegri merkingu en hann er samt sem áður eins og snýttur út úr nefinu á pabba sínum.  Þessi dagur var rosalega fallegur og lukkaðist hann vel, veislan var haldin í höllinni Wizard hans og var þar boðið upp á kökur og annað góðgæti.

Svo vil ég endilega láta ykkur vita af því að tvíburafrænkur mínar Þóra og Þórunn sem búa út í Svíþjóð ásamt afa átum afmæli síðastliðnu helgi og það eru öll mjög ung-áraWink þannig að TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ELSKURNAR MÍNAR ég sendi kossa og knús frá mér, Davíð, Jotta og bumbunni með íslandspóstiHeart.

 

Jæja ég ætla að fara að fara að fá mér night/beauty sleep.

Kveðja Erla 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

vó, stórar fréttir en INNILEGA til hamingju með nýja bumbubúann, bara stórfjölskylda coming right up... hehe

vona bara að þessi meðganga gangi mjög vel og lokin gangi betur en síðast (þá meina ég engin meðgöngusýking eða hvað það var sem þú fékkst)

kær kveðja frá næstum því nágranna Lea

Lea (IP-tala skráð) 6.2.2008 kl. 20:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

198 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband