ojj barasta veðrið : Þ

Já þetta er nú meira grín þetta veður hér en það er sammt gaman að hafa snjóinn þá getum við og Jotti farið út á snjóþotuna sem hann fékk í Jólagjöf frá ömmu Ollu og afa Nonna.  Við skelltum okkur eimmit síðasta föstudag strax eftir kvöldmat á snjóþotu með hann og við löbbuðum upp á leikskólann sem er á bak við hjá okkur, leikskólann sem við erum að vonast til að hann fái inn sem fyrst GetLost.  Við vorum nú ekki lengi úti en við fórum semsagt þangað og létum hann renna niður litla brekku og ég stóð neðst í henni til að taka á móti honum nema hvað það koma einu sinnu fyrir smá slys, þotan sem sagt snérist óvænt eitthvað smá og henni hvolfdiW00t bara en minn maður var svo mikill nagli að hann fór ekkert að gráta þrátt fyrir að hafa lent á hálfu andlitinu. Eftir smá tíma úti þá drifum við okkur bara inn og í heitt bað svo fór hann nú bara fljótlega að sofa eftir það.

Annars eru það nú STÓRU fréttirnar sem eru að drengurinn er byrjaður að labba, hann byrjaði að labba eftir eitt got æfingakvöld hjá ömmu Gunnu á meðan  við þurftum að vinna aðeins lengur og eftir það kvöld var ekki aftur snúið. Hann nýtur sín í botn og verður færari með hverri viku að labba og finna jafnvægið í sér, að sjálfsögðu er nóg að gera eftir þessa þróun en það er bara það sem fylgir þessum rjómabollum maður getur líka litið á það eins og bara að halda sér í formi hlaupin á eftir þeimWink. Litli strákurinn okkar er að þroskast svo hratt að það er ótrúlegt hann babblar svo mikið núna inn á milli þeirra orða sem hann kann og segir að hann samkjaftar varla sem er fínt því að það er skárra heldur en öskur tímabilið sem hann tók úúfff ekki skemmtilegt tímabil. svo er að styttast í læknisskoðun og bólusettninguna en ég er nú mest spennt yfir þyngdinni hjá honum hvort að hann hafi ekki bætt á sig smá eftir síðustu veikindi þetta er voða spennó, svo er maður bara að verða kominn með 9 vinnukonur(tennur) þannig þetta er allt að gerast.

Janúar er alveg að verða búin THANK GOD þetta er svo langur mánuður hvað gerist þá í febrúar, tja Davíð á afmæli systir hans og litli frændi líka svo má ekki gleyma stóra brósa og Daybright frænku þannig að það er nóg af afmælum til að fara í. Já svo er ekkert að gera í vinnunni núna það er gjörsamlega barist um umsókninar sem koma í deildina okkar. talandi um vinnuna það er bóndadagur næsta föstudag og hver og ein kona á að koma með eitthvað og það vill svo til að það eru MIKKLU fleiri konur eldur en karlar þannig að það verður nú engin smá veisla en við konurnar fáum nú að bragða á þessu, en hvað á maður að gera fyrir bóndann sinn, það þarf nú ekkert að vera eitthvað rosalegt en það væri gaman að gera eitthvað smá, endilega komið með tillögurInLove

Jæja farinn að horfa á fabilous 5.

 

 

Kiss kiss Erla og Jóhann Otti.

 

 

 

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

198 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband