Fréttir

Jæja þá er komið að fréttum málin standa þannig að við erum bara rosalega hress, jól og áramót búinn og hversdagsleikinn tekinn við sem er bara fínt þetta var löng hátíð og eiginlega allt of mikið af jólaboðum ef ég á að segja eins og er manni langar stundum bara að fá að vera  í friði með fjölskyldunni og kúra upp í sófa og horfa á allar þessu góðu bíómyndir sem eru sýndar yfir hátíðirnar eða hreinlega bara gera ekki neitt það er alveg spurning hvenær þetta er orðið gott. Jotti fékk alveg fullt af jólagjöfum og flestir pakkarnir voru þó mjúkir og vorum við eiginlega bara fegin því að hann fékk svo ROSALEGA mikið af dóti í afmælisgjöf og ekki er langt síðan að afmælið hans var að það er bara ekki pláss fyrir meira dót, hann fékk samt örfáa dótapakka sem verður að vera þeir meiga ekki allir vera mjúkir. Við erum byrjuð það ferli að fara að huga að selja og kaupa nýja íbúð og er ég bara nokkuð bjartsýn með það, við munum þó sennilega ekki kaupa fyrr en í apríl, maí , júní síðastlagi en það er ýmislegt sem þarf að gerast áður.

 

Orðaforði Jóhann Otta hefur aukist verulega á stuttum tíma hann kann sem sagt að segja takk, datt, mamma, pabba, bæ,hæ og hættu svo man ég ekki meir það voru einhver örfá orð í viðbót. Hann er ekki farin að labba en það er alveg ótrúlegt hvað það vantar lítið upp á hann er aðeins farin að sleppa sér en þessi þróun gengur eittvað hægt.  Hann fór í blóðprufu um daginn til að kanna ónæmiskerfið í honum og fékk niðurstöðurnar í dag, það kom í ljós að það vantar mótefni í hann sem heitir IGG2 sem er efni sem ver mann fyrir bakteríum og sýkingum, það sem á að gera er að hann á að fá bólusetningu sem er vanalega ekki gerð sem svona standard bólusetning í ungabarna eftirliti en hún er fyrir einhverjum kokkum ekki streptakokkum einhverjum öðrum sem ég get ekki munað nafnið á en hún er að vonast til að sú bólusetning gefi ónæmiskerfinu spark rassinn og það verður athugað hvort að  sprautan hafi  virkað með blóprufu2-3 vikum eftir hana.  Svo ef að hún er ekki að virka þá fær hann mótefna sprautur og vonandi verður hann þá bara eiginlega ekkert veikur eftir það eða það er allavega draumurinnWink. Hún bað okkur einnig af hafa þröskuldinn okkar lágan þegar það kæmi að honum og kvef og sleni að fara strax með hann og láta athuga hann, svo vill hún líka að hann fái alltaf púst þegar hann fær kvef og hósta.  Að öðru leiti kom allt annað vel út eins og t.d. járn magn og blóðmagn sem er bara jákvætt.  já svo er það líka í fréttum að Jotti er að fá 8 tönnina veeiii.

 

Núna standa framkvæmdir yfir í þvottahúsinu okkar sem eiginlega meira kompa heldur en þvottahús en allavega ég er rosalega spennt yfir því því að það leit ekkert vel út fyrir það hafði ekkert verið gert fyrir það en það vildi svo til að við eigum allt efni í að laga kompuna þannig að við ákváðum bara að drífa í þessu enda eitthvað sem gerir íbúðina sölulegri.  Við erum að mála hana og laga tvö svona hálfgerð göt sem eru á veggjunum og svo flísaleggja gólfið þannig að þetta verður bara eins og nýtt svei mér þá.

Ég ætlaði nú að setja nýjar myndir  en myndavélin er batteríslaus þannig að ég geri það bara bráðum.

 

Knús Erla og Jóhann Otti.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

getur verið að það heiti stafílókokkar???

annars langaði okkur bara að kasta kveðju

Lea og Ingólfur Þór (IP-tala skráð) 9.1.2008 kl. 15:47

2 Smámynd: Erla Júlía Jónsdóttir

Neee það var p-eitthvað kokkar ef ég man rétt.

 En annars bara hæ takk fyrir kveðjurnar; Þ

Erla Júlía Jónsdóttir, 9.1.2008 kl. 18:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Erla Júlía Jónsdóttir
Erla Júlía Jónsdóttir

Færsluflokkar

198 dagar til jóla

Spurt er

Hverjum líkist Emma
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG 4580
  • IMG 4576
  • IMG 4575
  • IMG 4572
  • IMG 4571

Nýjustu myndböndin

Emma Guðrún í göngugrind

Samtal við Jotta

Enginn titill

Emma að hæja

Emma að skríkja

Bloggarar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Leita í fréttum mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband